Morgunblaðið - 19.05.2004, Síða 39
snerrur er leið að kosningum. Þá iðaði
Einar af lífi. Hann kynntist líka mót-
læti á lífsgöngu sinni en ræddi það lít-
ið, flíkaði ekki sínum eigin málum. Ég
lærði margt af Einari sem ég vil nú
þakka. Enginn maður mér óskyldur
hefur sýnt mér meiri tiltrú. Ég nefndi
honum það síðast er við hittumst
fáum dögum fyrir andlát hans, hann
þá fársjúkur. Hann lyfti höfði daufum
augum en neisti kom í þau engu að
síður, bros á vör og svo kinkaði hann
kolli.
Næmi Einars á mannleg samskipti
var meiri en ég hef þekkt hjá öðrum.
Það hefði verið gagnlegt að ganga til
hans í skóla fyrr. Gott samt.
Ég flyt Hansínu innilegar samúð-
arkveðjur, fjölmennum hópi barna,
tengdabarna og annarra afkomenda
sem hann unni mjög.
Blessuð sé minning Einars Ólafs-
sonar.
Kristján Guðmundsson.
Einar Ólafsson var formaður
Starfsmannafélags ríkisstofnana,
SFR, í rúmlega tvo áratugi á miklum
uppgangstímum félagsins. Hann tók
við formennsku árið 1969 og næstu
árin þar á eftir var sannkallað blóma-
skeið í sögu samtaka opinberra
starfsmanna. Þau urðu raunverulegt
afl í samfélaginu. Í þeirri baráttu
lagði Einar Ólafsson sitt lóð á vog-
arskálarnar.
Í stjórnartíð Einars fóru verkefni
SFR vaxandi og snerust ekki ein-
göngu um kjaramál. Tímamót urðu í
orlofsmálum félagsmanna árið 1971
er húsin í Munaðarnesi voru tekin í
notkun og aftur árið 1984 er SFR
eignaðist land í Vaðnesi í Grímsnesi,
þar sem risu átta orlofshús. Orlofsmál
félagsmanna voru Einari jafnan sér-
stakt áhugaefni. Mörgum öðrum
framfaramálum og nýjungum barðist
hann fyrir og ýtti úr vör með félögum
sínum. Má þar m.a. nefna fræðslu fyr-
ir trúnaðarmenn og starfsmenntun
félagsmanna innan vébanda BSRB.
SFR var stofnað í Reykjavík 17.
nóvember 1939. Þegar horft er um öxl
dylst engum sem söguna þekkir að
samfélag okkar hefur tekið algerum
stakkaskiptum frá þeim tíma. Lífs-
kjör fjöldans eru á engan hátt sam-
bærileg við það sem tíðkaðist kring-
um 1940. Barátta SFR og annarra
stéttarfélaga undangengna áratugi
hefur borið ríkulegan ávöxt; skilað
auknum réttindum, betri kjörum, og
meiri velferð almenningi til handa. En
ekkert af þessu hefur unnist baráttu-
laust og margir hafa lagt hönd á plóg í
baráttu samtaka launafólks í gegnum
tíðina. Á þeim vettvangi og í krafti
samtakamáttarins var þáttur Einars
Ólafssonar stór og mikill.
Fyrir hönd SFR vil ég þakka Ein-
ari Ólafssyni innilega fyrir það fórn-
fúsa starf sem hann innti af hendi í
þágu félagsins. Eiginkonu Einars,
Hansínu Þorkelsdóttur, og fjölskyldu
þeirra færi ég hugheilar samúðar-
kveðjur.
Jens Andrésson, formaður SFR.
Einar Ólafsson var um áratuga-
skeið einn af burðarásum BSRB.
Hann var í forystu stærsta aðildar-
félags bandalagsins, SFR. Í vara-
stjórn BSRB var hann kjörinn árið
1960 og í aðalstjórn 1962 til 1991.
Hann var gjaldkeri BSRB frá 1962 til
1991. Einar sat í fjölmörgum nefnd-
um og ráðum innan BSRB og á veg-
um bandalagsins, samninganefndum,
fræðslunefnd, í stjórn fulltrúaráðs or-
lofsheimila, í verðlagsnefnd, í stjórn
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og
í framkvæmdastjórn Kjararannsókn-
arnefndar opinberra starfsmanna.
Einar lét til sín taka á fleiri sviðum
eða nánast í öllu sem snerti hag
bandalagsins. Einar Ólafsson gat
auðveldlega hrifið menn með sér þeg-
ar honum hljóp kapp í kinn og hann
fór á andans siglingu. Þá var hugsað
stórt og engar hindranir í vegi. Þetta
átti ekki síst við þegar uppbygging
orlofshverfa var annars vegar. Orlofs-
málin voru honum einkar hugleikin
og stendur BSRB í mikilli þakkar-
skuld við hann fyrir frumkvæði og öt-
ult starf á því sviði. Ég hef stundum
sagt frá því þegar við Einar Ólafsson
fórum einhverju sinni um jörð Stóru-
Skóga, sem liggur ofan þjóðvegar við
Munaðarnes í Borgarfirði. Á þessu
svæði er stór orlofsbyggð BSRB.
Þannig háttar til að bústaðirnir í
Stóru-Skógum standa á hæð og sér
vítt yfir. Fyrir neðan byggðina er
mikil grasi gróin lægð. Mér er minn-
isstætt, að Einar horfði yfir landið og
var greinilegt að hugur hans fylltist
framtíðaráformum og draumum.
Hann benti upp í hlíðarnar í norðri og
sagði að þar mætti hugsa sér næsta
áfanga í uppbyggingunni og síðan
breiddi hann faðminn mót grasi grón-
um dalnum, horfði fast á mig og sagði:
„Hér gerum við vatn.“ Í hans huga
var ekki mikið mál að búa til eitt
stöðuvatn. Þessi mynd af Einari
Ólafssyni kemur oft upp í hugann.
Hún er táknræn fyrir framfaravilja
og stórhug, mann sem kunni að virkja
ímyndunaraflið og taldi ekkert óger-
legt. Slíkir menn eiga auðvelt með að
sækja á brattann ef því er að skipta og
ómetanlegir eru þeir sem félagar í
baráttusveit. Einar Ólafsson átti
marga góða félaga og vini í BSRB og
tel ég mig í þeim hópi. Við söknum
hans, nú þegar hann er genginn. Fyr-
ir hönd BSRB færi ég eiginkonu Ein-
ars, Hansínu, og þeirra stóru fjöl-
skyldu einlægar samúðarkveðjur.
Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB.
Með Einari Ólafssyni er fallinn frá
einn af brautryðjendum í stéttarbar-
áttu opinberra starfsmanna. Einar
var ásamt félögum sínum Kristjáni
Thorlacius og Haraldi Steinþórssyni í
forystusveitinni á þeim árum sem
BSRB og aðildarfélög þess uxu nán-
ast úr engu í sterk og virt hagsmuna-
samtök.
Ákveðin verkaskipting var með
þeim félögum í baráttunni. Kristján
kom úr stjórnarráðinu og skipaði for-
ystusætið í BSRB og var þannig
fremstur meðal jafningja. Haraldur
kom úr röðum kennara og var fram-
kvæmdastjóri samtakanna um langt
skeið, afburða duglegur og snjall.
Einar var hins vegar formaður og for-
ystumaður í stærsta aðildarfélaginu,
Starfsmannafélagi ríkisstofnana,
SFR, jafnframt sem hann sinnti
annasömu starfi sem útibússtjóri hjá
ÁTVR.
Sá sem þessar línur ritar var fram-
kvæmdastjóri SFR á árunum 1973 til
1975. Það var skemmtilegur tími sem
sveipaður er ævintýraljóma, þegar
horft er til baka. Aðildarfélög BSRB
höfðu þá nýverið fengið samnings-
réttinn, en hann var áður hjá heildar-
samtökunum. Það var því mikið um
að vera strax á vormánuðum 1973
þegar Einar með sínu liði hóf orra-
hríðina við stjórnvöld um bætt kjör
opinberra starfsmanna. Trúnaðar-
mannaráð SFR var þá öflugt eins og
nú og mikið um fundarhöld næstu
misserin. Alls staðar innan SFR var
Einar í baráttunni enda lágu þræðir
hans víða í stjórnkerfinu og innan
samtakanna. Þetta var dýrlegur tími
fyrir okkur ungu mennina, sem tók-
um þátt í þessu ævintýri, að starfa
með þessum gömlu baráttujöxlum,
sem mótuðu samtök opinberra starfs-
manna fyrstu áratugina um miðbik
síðustu aldar.
Þó ég hafi verið kallaður til annarra
starfa á vordögum 1975 fylgdist ég
auðvitað með Einari og félögum hans
mörg ár eftir það. Alltaf var hann í
fararbroddi úti á örkinni og án þess að
hlífa sér hið minnsta.
Einar hafði í raun allt til að bera til
að vera forystumaður í verkalýðsbar-
áttunni. Hann var duglegur, fylginn
sér og ákveðinn þegar það þurfti, en
skynjaði hins vegar að á ákveðnu and-
artaki þurfti að slíðra sverðin og ná
samningum. Einars Ólafssonar verð-
ur því fyrst og fremst minnst sem eins
af fremstu baráttumönnum í kjara-
baráttu opinberra starfsmanna, en
einnig sem skemmtilegs félaga og
vinar.
Ég sendi eiginkonu Einars, Hans-
ínu, barnahópnum stóra og öllum af-
komendum hans mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Hrafn Magnússon.
Fleiri minningargreinar um
Einar Ólafsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 39
KIRKJUSTARF
Bústaðakirkja. Starf aldraðra kl. 13–
16.30. Spilað, föndrað, helgistund og gáta.
Tekið á móti munum fyrir sýningu. Þeir sem
óska eftir að láta sækja sig fyrir samveru-
stundirnar látið kirkjuverði vita í síma
553 8500.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Létt-
ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr-
irbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl.
14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall.
Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hug-
leiðing, altarisganga, léttur morgunverður.
Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–
12. Samverustund fyrir 6 ára kl. 14.30.
Samverustund fyrir 7–9 ára kl. 15.30. Sam-
verustund fyrir 10–12 ára kl. 17. Tólf sporin
– andlegt ferðalag, kl. 20.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11.
Súpa og brauð borið fram í Setrinu kl. 12.
Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöldbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Starf eldri borgara. Rútu-
ferð í Skálholt með viðkomu í Hveragerði.
Lagt af stað kl. 13. Rútuferðin er ókeypis en
kaffiveitingar kosta kr. 800. Þátttaka til-
kynnist í Langholtskirkju í síma 520 1300.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10
undir stjórn Aðalbjargar Helgadóttur.
Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af stað
frá kirkjudyrum kl. 10.30 alla miðvikudags-
morgna.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Vor-
ferð í Kaffi Nauthól. Súpa og spjall. Lagt af
stað frá kirkjunni kl. 10.30. Umsjón Elín-
borg Lárusdóttir. Fyrirbænamessa kl.
12.15. Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson.
7 ára starf kl. 14.30. Sögur, söngur, leikir
og föndur.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund í hádeg-
inu kl. 12. Altarisganga. Léttur hádegis-
verður eftir stundina. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í hádeg-
inu. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
að stundinni lokinni. Kl. 13–16 opið hús í
safnaðarheimilinu. Þorvaldur Halldórsson
kemur í heimsókn fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.
Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir stund-
ina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn
kl. 16.30. Lokasamvera. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 17.30. Lokasamvera.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. Op-
inn sporafundur Tólf sporanna kl. 20.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkj-
unni í síma 567 0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12
með Nönnu Guðrúnu í Vídalínskirkju.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn
og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safnaðar-
heimili Strandbergs, kl. 10–12. Kyrrðar-
stund í kirkjunni kl. 12, íhugun, orgelleikur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegis-
verður kl. 12.30 í Ljósbroti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbænastund
í dag kl. 12. Góður kostur fyrir þá sem vilja
taka frá kyrrláta og helga stund í erli dags-
ins til að öðlast ró í huga og frið í hjarta.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar. Boðið er upp á
súpu og brauð í safnaðarheimilinu að kyrrð-
arstund lokinni. Opið hús fyrir eldri borgara í
dag kl. 13. Verið velkomin í vikulegar sam-
verur í safnaðarheimili kirkjunnar í spil,
spjall, góðar kaffiveitingar og fleira.
Bessastaðasókn. Miðvikudagur er dagur
kirkjunnar í Haukshúsi. Foreldramorgnar
eru frá kl. 10–12. Þar koma saman foreldr-
ar ungra barna á Álftanesi með börnin og
njóta þess að hittast og kynnast öðrum for-
eldrum sem eru að fást við það sama, upp-
eldi og umönnun ungra barna. Opið hús
eldri borgara er síðan frá kl. 13.00-16.00.
Dagskráin verður fjölbreytt en umfram allt
eru þetta notalegar samverustundir í hlý-
legu umhverfi.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í
dag kl. 10–12.
Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í Lága-
fellskirkju. Unnið í 12 sporunum.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11
helgistund á Hraunbúðum.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Fríkirkjan Kefas. Samverustund unga
fólksins kl. 20.30. Samvera, lofgjörð,
fræðsla og lestur orðsins. Nánari upplýs-
ingar á www.kefas.is
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20. Drottinn leiðir og
frelsar. Sálmur 27. Ræðumaður Haraldur
Jóhannsson. Laufey Geirlaugsdóttir syngur
einsöng. Kaffiveitingar eftir samkomuna.
Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10–
12. Opið hús, kaffi og spjall. Safi fyrir börnin.
Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12. Org-
eltónar, sakramenti, fyrirbænir, léttar veit-
ingar á vægu verði í safnaðarsal.
Safnaðarstarf
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR
(Dúddu),
Aflagranda 40,
Reykjavík.
Jóhannes Vilbergsson, Guðrún Andrésdóttir,
Helga Guðmundsdóttir,
Vilberg Vilbergsson, Anna Kristín Kristinsdóttir,
Sigurður Vilbergsson, Lilja Benediktsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir og afi,
FRIÐRIK FRIÐRIKSSON,
Birkiteigi 4c,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnu-
daginn 16. maí.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 21. maí kl. 16.00.
Erla Björk Friðriksdóttir Djerf, Henrik Djerf,
Friðrik Friðriksson, Ragnheiður Kristín Benónýsdóttir,
Brynjar Emil Friðriksson, Sigurrós Antonsdóttir,
Yngvi Friðriksson, Marie Friðriksson,
Gylfi Þór Markússon, Anita Johannessen
og barnabörn.
Elskuleg móðir mín,
ÓSK GUÐRÚN GESTSDÓTTIR,
Sólvallagötu 46,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Njarðvíkurkirkju (Innri-
Njarðvík) föstudaginn 21. maí kl. 14.00.
Bjarni Cal Houn Þórðarson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærs föður okkar og bróður,
BJARNA HANS GUNNARSSONAR,
Teigaseli 5,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11-E
Landspítala við Hringbraut.
Börn og systkini.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru,
MARÍU BJARNASON
frá Bakka
í Siglufirði.
Fjölskylda hinnar látnu.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RUTH VITA GUNNLAUGSSON,
Blásölum 24,
Kópavogi,
áður til heimilis á Móavegi 11,
Njarðvík,
lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn
16. maí.
Jarðarförin fer fram frá Njarðvíkurkirkju (Innri-Njarðvík) laugardaginn
22. maí kl. 10.30.
Soffía Guðmundsdóttir, Þorfinnur Finnlaugsson,
Gunnlaugur Karl Gunnlaugsson, Agnes Agnarsdóttir,
Guðmundur Ingvi Gunnlaugsson, Dagný Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.