Morgunblaðið - 19.05.2004, Síða 41
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 41
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Aðalfundur SÁÁ
Aðalfundur SÁÁ verður haldinn fimmtudaginn
27. maí 2004 kl. 17.00 á Grand Hótel Reykjavík,
Sigtúni 38
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
Endurskoðaðir reikningar fyrir árið 2002
lagðir fram til samþykktar.
Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoð-
enda og varaendurskoðenda.
Tekin ákvörðun um félagsgjald.
Önnur mál.
Stjórn SÁÁ.
Aðalfundur Neistans
Aðalfundur Neistans, styrktarfélags hjartveikra
barna, verður haldinn í Seljakirkju fimmtudag-
inn 27. maí kl. 17:00. Á dagskrá eru venjuleg
aðalfundarstörf. Með kveðju.
Stjórn Neistans.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Mosfellsprestakall
Aðalfundur Lágafellssóknar
verður haldinn í safnaðarheimilinu, Þverholti 3
í Mosfellsbæ, miðvikudaginn 26. maí kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar
ATVINNU- OG RAÐAUGLÝSINGAR
É
mbl.is
FR TTIR
Stíflulosun og röramyndun
Ásgeirs sf.
Skolphreinsun
Losa stíflur úr salernum, vöskum,
baðkörum og niðurföllum.
Röramyndavél til að staðsetja
skemmdir í lögnum.
s. 892 7260 og 567 0530, f. 587 6030
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum og
niðurföllum – Við notum ný og fullkomin tækiStórhöfða 27, sími 552 2125
GÍTARINN EHF.
Opið virka daga 10-18
Laugardaga 11-16
www.gitarinn.is
Rafmagnsgítar - tilboð
Rafmagnsgítar, magnari,
ól, snúra, poki, stillitæki og
strengjasett kr. 29.900
Dagur aldraðra
í Bústaðakirkju
UPPSTIGNINGARDAG ber upp á 20. maí
og er sérstaklega tileinkaður starfi aldraðra
í kirkjunni. Þá eru aldraðir sérstaklega
boðnir velkomnir til messu og þátttöku í
helgihaldinu, sem minnir okkur á uppstign-
ingu Krists.
Í Bústaðakirkju verður guðsþjónusta
klukkan 14.00. Þar prédikar Ólafur Skúla-
son, biskup og fyrrv. sóknarprestur Bú-
staðakirkju. Aldraðir lesa ritningarlestra og
taka þátt í messunni. Glæðurnar, kór Kven-
félags Bústaðakirkju, syngja undir stjórn
Sigurbjargar Petru Hólmgrímsdóttur ásamt
félögum úr Kirkjukór Bústaðakirkju. Org-
anisti er Guðmundur Sigurðsson.
Eftir messu verður opnuð sýning í safn-
aðarheimili á munum úr starfi aldraðra í
vetur. Starfið hefur verið í vetur undir
dyggri stjórn Sigrúnar Sturludóttur, sem
ásamt hópi kærleikskvenna hefur annast um
starfið. Stór hópur hefur tekið þátt í starf-
inu í vetur og þar hefur verið komið saman
til handavinnu, gripið í spil eða dægurmálin
skeggrædd.
Veisluborð verður framreitt og öldruðum
boðið upp á veitingar meðan þeir, sem yngri
eru, greiða fyrir sig.
Það er von okkar að sem flestir sjái sér
fært að taka þátt í messunni og að hin yngri
aðstoði aldraða að komast til kirkju.
Pálmi Matthíasson.
Uppstigningardagur
í Grensáskirkju
Á MORGUN, uppstigningardag, verður
guðsþjónusta í Grensáskirkju kl. 11 árdegis.
Uppstigningardagur er dagur aldraðra í
kirkjunni og tekur guðsþjónustan mið af
því. Sóknarpresturinn, sr. Ólafur Jóhanns-
son, annast helgihaldið og kirkjukór Grens-
áskirkju leiðir söng en organisti er að þessu
sinni Reynir Jónasson.
Að guðsþjónustu lokinni verður borinn
fram matur í safnaðarheimili kirkjunnar.
Þátttaka í máltíðinni kostar kr. 1.000 á
mann.
Jónas Jónasson
útvarpsmaður predikar
í Fríkirkjunni
Á MORGUN, fimmtudaginn 20. maí, upps-
tigningardag, verður guðsþjónusta í Frí-
kirkjunni í Reykjavík klukkan 14.00. Predik-
un dagsins flytur útvarpsmaðurinn
góðkunni Jónas Jónasson.
Við hvetjum safnaðarfólk til að mæta í
kirkjuna sína á þessum hátíðardegi. Aldr-
aðir eru sérstaklega boðnir velkomnir til
guðsþjónustunnar. Yngra fólk er hvatt til
þess að fylgja þeim eldri til kirkju.
Eftir guðsþjónustu er kirkjugestum boðið
til kirkjukaffis í safnaðarheimilinu. Allir vel-
komnir
Fríkirkjan í Reykjavík.
Dagur aldraðra
í Háteigskirkju
Í GUÐSÞJÓNUSTUNNI kl. 11.00 á upp-
stigningardag syngja félagar úr Húnvetn-
ingakórnum og Harpa Þorvaldsdóttir. Prest-
ur verður sr. Gísli H. Kolbeins. Á eftir er
öllum boðin hressing í safnaðarheimilinu og
þegar fólk er orðið mett, verður farin rútu-
ferð í boði safnaðarins um Reykjavík og
ákveðnir staðir skoðaðir í fararstjórn Þór-
dísar Ásgeirsdóttur. Það eru allir velkomn-
ir.
Árbæjarkirkja á
uppstigningardag
ÞAÐ verður mikið um að vera í Árbæj-
arkirkju fimmtudaginn 20. maí. Hátíðar-
guðsþjónusta verður kl. 14.00. Ræðumaður
dagsins er Lára Björnsdóttir félagsmála-
stjóri. Kirkjukórinn syngur undir stjórn org-
anistans og kórstjórans Krizstinu Kallo
Sklenár. Eldri deild karlakórs Reykjavíkur
heiðrar kirkjugesti með nærveru sinni og
söng. Heldri borgarar lesa ritningalestra.
Sr. Þór Hauksson sóknarprestur þjónar fyr-
ir altari.
Eftir athöfnina í kirkjunni verður kaffi-
samsæti í safnaðarheimilinu í boði Soroptim-
istakvenna í Árbænum. Verður þeim seint
fullþakkað fyrir þá alúð og þann kærleika
sem þær leggja í þennan dag. Óhætt er að
segja að þar verða ljúfar veitingar og ekki
aðeins veitingar heldur mun og karlakórinn
syngja nokkur lög og eflaust meira til með
okkur hinum. Látum sönginn og gleðina
óma þennan dag sem og aðra daga.
Kammerkór frá
Helsinki í Langholtskirkju
KAMMERKÓR Dómkirkjunnar í Helsinki
syngur í Langholtskirkju. Á upp-
stigningardag, fimmtudaginn 20. maí, mun
Kammerkórinn Viva Vox, sem syngur við
Dómkirkjuna í Helskinki, syngja við guðs-
þjónustu í Langholtskirkju kl. 14 og á tón-
leikum í kirkjunni kl. 17. Kórinn er skip-
aður úrvals söngfólki og söngstjóri er Seppo
Murto, aðalorganisti Dómkirkjunnar.
Dagur aldraðra í
Fella- og Hólakirkju
Á MORGUN, uppstigningardag, verður
guðsþjónustan í Fella- og Hólakirkju helguð
öldruðum. Guðsþjónustan verður að þessu
sinni kl. 14. Gerðubergskórinn mun sjá um
sönginn en söngstjóri kórsins er Kári Frið-
riksson. Lenka Mátéová spilar á orgelið.
Sóknarprestarnir, sr. Guðmundur Karl
Ágústsson og sr. Svavar Stefánsson þjóna
fyrir altari. Lilja Hallgrímsdóttir djákni pré-
dikar. Á eftir guðsþjónustunni bjóða sókn-
arnefndir kirkjunnar kirkjugestum að
þiggja kaffiveitingar í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
Prédikari dagsins, Lilja Hallgrímsdóttir
djákni, lét af störfum við kirkjuna hinn 1.
maí sl. eftir liðlega fjögurra ára starf. Í
guðsþjónustunni kveður hún söfnuðina eftir
farsælt starf þar. Starf hennar innan kirkj-
unnar hefur að mestu falist í líknarþjónustu,
starfi með fullorðnum, þátttöku í helgihaldi
auk fjölþættra annarra kirkjulegra verkefna
við Fella- og Hólakirkju. Við vonum að sem
flestir komi til guðsþjónustunnar til að upp-
byggjast í helgihaldinu, þakki Lilju fyrir
hennar góða starf á liðnum árum og njóti
samfélagsins hvert við annað í kirkjunni.
Eldri borgarar og
sænskur kirkjukór
í Hafnarfjarðarkirkju
ELDRI borgurum verður sérstaklega boðið
til guðsþjónustu í Hafnarfjarðarkirkju á
uppstigningardegi 20. maí nk. og veglegs
kaffisamsætis eftir hana í Hásölum safn-
aðarheimilisins, Strandbergs, svo sem tíðk-
ast hefur lengi á þessum kirkjudegi.
Guðsþjónustan hefst kl. 14.00 (ath. tím-
ann).
Reynt verður að greiða götu eldri borg-
ara til og frá kirkju en vel fer á því að
yngri ættmenn og vinir sæki kirkju með
þeim á þessum degi. Rúta fer frá Höfn og
Sólvangshúsum um kl. 13.40 og ekur þaðan
að kirkju og síðan þangað aftur síðar um
daginn. Báðir prestar kirkjunnar sr. Gunn-
þór Þ. Ingason og sr. Þórhallur Heimisson
þjóna í guðsþjónustunni. Auk kórs kirkj-
unnar, sem Antonía Hevesi organisti stjórn-
ar, syngur Stefanoskórinn frá Dómkirkjunni
í Uppsölum í Svíþjóð í guðsþjónustunni,
undir stjórn Barbro Björklund. Stefanoskór-
inn syngur líka í kaffisamsætinu í Hásölum.
Þar mun Árni Grétar Finnsson, fyrrverandi
forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, lesa
eigin ljóð og annarra góðskálda og Hjörtur
Howser leika létta tónlist og sumarlög á
Friðriksflygillinn í Hásölum.
Fjölmargir hafa undangengin ár sótt
guðsþjónustu í Hafnarfjarðarkirkju á upps-
tigningardegi og notið þess að vera í veisl-
unni sem henni fylgir og þess er vænst að
svo verði einnig nú.
Prestar og sóknarnefnd Hafnarfjarð-
arkirkju.