Morgunblaðið - 19.05.2004, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Smáfólk
TIL ÞESS AÐ ÚTSKÝRA FYRIR
OKKUR AF HVERJU HUNDAR SLEFA
SVONA MIKIÐ ER KOMINN
HÖFUNDUR BÓKARINNAR...
ODDI! SYNTU HÉRNA YFIR
FÉLAGI!
HÉR ER
YFIR-
HUNDUR
AÐ VERKI..
ÉG VISSI
EKKI AÐ
ÞETTA YRÐI
SVONA
ERFITT!
SKRIFA UNDIR ÞETTA...
SKRIFA UNDIR HITT...
ÉG ÞOLI ÞETTA EKKI!!
LÁTUM OKKUR SJÁ... ÉG Á
AÐ STJÓRNA NOKKRUM
FJÁRHUNDUM Á
NORÐURLANDI OG FIMM
LÖGREGLUHUNDUM...
ÞAÐ ER SAMT
GOTT AÐ STJÓRNA!
TIL
HAMINGJU!
ÓVÆNT
EN
MJÖG
GOTT!
Svínið mitt
HVAÐ ER
NÚ ÞETTA?
© DARGAUD
ÞETTA ER
PEPPINO!
PEPPINO
SONUR
MINN!
ÞETTA ER SONUR
MINN! MJÖG
FALLEGUR. FALLEGRI
EN MEGAS...
...OG
SÆTARI EN
BJÖRK!
JÚ
JÚ
NÓG KOMIÐ. TAKTU ÞETTA AF.
ÞETTA ER EKKI FYNDIÐ
NEI!
VILTU HLUSTA
Á MIG?!
NEI!!
HANANÚ!
PEPPINO!
HVAÐ ER AÐ
GERAST? BBÚÚÚ!!
HHÚÚÚ!!
GROIN!
ÖÖ... ERFIÐ
FÆÐING...
FYRIRBURI
ÉG SAGÐI ÞÉR
ÞAÐ, FÆÐINGIN
ER ALLTAF ERFIÐ
FYRIR KONUR
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FÖSTUDAGURINN 14. maí rann
upp bjartur og nokkuð hlýr í Kaup-
mannhöfn. Mikið stóð til enda kon-
unglegt brúðkaup þá síðar um dag-
inn. Dönsku yfirvöld, ásamt
lögreglu og miklum fjölda fólks úr
hinum og þessum áttum höfðu lagt
mikið af mörkum undanfarna mán-
uði til að gera þennan dag ógleym-
anlegan fyrir brúðhjónin, konungs-
fjölskylduna, gesti nær og fjær og
ekki síst fyrir dönsku þjóðina og
aðra íbúa landsins. Segja má að allt
hafi tekist með miklum sóma ef
marka má það sem ég sá og fylgd-
ist með í mjög vönduðum útsend-
ingum tveggja sjónvarpsstöðva.
Um miðjan dag tók gesti að drífa
að dómkirkjunni í Kaupmannahöfn
(Vor Frue Kirke). Fyrst komu al-
mennir gestir af þeim u.þ.b. 800
sem boðið var til athafnarinnar og
smám saman fór að bera á þekkt-
ara fólki erlendis frá. Þegar nær
dró þeim tíma sem athöfnin átti að
hefjast dreif að þjóðhöfðingja og/
eða venslafólk þeirra og rétt undir
lokin mætti sænska og norska kon-
ungsfjölskyldan við mikinn fögnuð
áhorfenda sem sátu í stúku and-
spænis kirkjudyrunum. Þá kom
einnig forseti Finnlands en forseti
Íslands var ekki mættur, eini þjóð-
höfðingi á Norðurlöndum sem lét
sig vanta!
Þess í stað mætti forsetafrúin
Dorrit Moussaieff sem enginn af
sjónvarpsmönnum virtist þekkja.
Þegar ég sá hana tilsýndar á sjón-
varpsskjánum ganga eina síns liðs í
átt að kirkjudyrunum var hún sam-
stundis klippt út úr mynd og hvorki
minnst á hana, Ísland og því síður
fjarveru forsetans.
Síðar um kvöldið þegar gengið
var til hátíðarveislu í Fredensborg-
arhöll var sjónvarpað á svipaðan
hátt frá komu gesta en nú voru þeir
kynntir enn betur, þar sem hvert
„par“ stansaði stuttlega fyrir fram-
an myndavélar og sagt hver þau
væru. Meðal síðustu gesta á leið inn
í hinn fagurskreyttan matsal voru
þjóðhöfðingjar nágrannalandanna.
Loks kom að því að Dorrit Mouss-
aieff kæmi fram ganginn og beið ég
eftir því með eftirvæntingu að
hlusta á sjónvarpsþulina en viti
menn; Þeir þekktu hana engan veg-
inn og kynntu þess í stað hertogan
af Lúxemborg sem gekk við hlið
hennar. Áhorfendur máttu því
einna helst geta sér til um að þarna
færi hertogaynjan.
Það er tímanna tákn að forseti
Íslands mæti ekki við opinbera at-
höfn sem danska konungsfjölskyld-
an býður til. Samskipti landanna
eiga sér langa sögu sem skapað
hefur hefðir og siði í samskiptum
meðal þjóðhöfðingja sem og hinna
almennu borgara m.a. á sviði menn-
ingar, íþrótta og viðskipta. Því er
mjög óeðlilegt og reyndar ekki við
hæfi af hálfu forseta að mæta ekki í
konunglegt brúðkaup sem löngu er
ljóst að halda átti 14.maí. Fyrir
okkur Íslendinga búsetta í Kaup-
mannahöfn, er ávallt ljúft að heyra
okkar lands getið, nema þá helst
þegar um stór töp er að ræða á
íþróttavellinum. Því er það eitt af
meginhlutverkum forseta Íslands
að koma fram á erlendum vettvangi
f.h. þjóðarinnar og bera merki
lands og þjóðar hátt þannig að við
landarnir getum verið stoltir af.
Því miður verður það ekki sagt
um forsetann Ólaf Ragnar að hann
hafi vakið athygli á landi og þjóð í
Danmörku. Þegar maður spyr Dani
um hvort þeir viti hvað forseti Ís-
lands heitir vita fæstir nokkuð um
hann en nánast allir kannast við
nafnið Vigdís Finnbogadóttur enda
fór hún aðrar leiðir en Ólafur virð-
ist gera.
Um hugsanlegar ástæður þess að
Ólafur mætti ekki til brúðkaupsins
má gera því annars vegar skóna að
það hafi verið af stjórnmálalegum
aðstæðum á Íslandi, og ef svo er, er
það algerlega óviðeigandi og með
fullu óviðunandi þar sem hlutverk
og störf hans eru yfir stjórnmál
hafin. Gildir þar einu hvort hann
hugðist neita að undirrita lög eins
og sögur hafa gengið um í fjöl-
miðlum á Íslandi. Nægur var jú
tíminn til að klára það síðar, enda
boðið uppá allt að 3 ferðir daglega
með Icelandair til Kaupmannahafn-
ar.
Hins vegar vilja ýmsir meina að
Ólafur hafi viljað svara hennar há-
tign, Margréti Þórhildi II., með
svipuðum hætti þegar henni þótti
óviðeigandi fyrir nokkrum árum að
Dorrit forsetafrú mætti með Ólafi
Ragnari til opinberrar veislu þar
sem þau Ólafur höfðu nýlega
kynnst og voru enn ekki gift. Sinn
er siður í landi hverju.
Ólafur Ragnar hefur með fjar-
veru sinni í brúðkaup þeirra Frede-
riks krónprins og Mary Donaldsson
móðgað gestgjafann og um leið nið-
urlægt þjóð sína og ekki síst þær
þúsundir Íslendinga sem búsettar
eru í Danmörku. Að mínu mati get-
ur hann vart ætlast til þess að
danska konungsfjölskyldan sýni
mikinn áhuga á heimboðum til Ís-
lands á meðan hann situr sem for-
seti.
SIGURÐUR K.
KOLBEINSSON,
framkvæmdastjóri í
Kaupmannahöfn.
Forseti til vansa
Frá Sigurði K. Kolbeinssyni:
Úrslitin í spænska boltanum
beint í símann þinn