Morgunblaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 45
ÁSKIRKJA: Dagur aldraðra. Guðsþjónusta
kl. 14.00. Rósa Jóhannesdóttir syngur ein-
söng. Kór Áskirkju syngur. Organisti Kári
Þormar. Sr. Þórhildur Ólafs. Kaffisamvera í
efri safnaðarsal eftir guðsþjónustu í boði
Safnaðarfélags Áskirkju, skemmtiatriði.
Kirkjubíllinn ekur.
BÚSTAÐAKIRKJA: Uppstigningardagur sér-
staklega tileinkaður starfi aldraðra í kirkj-
unni. Guðsþjónusta kl. 14.00. Aldraðir sér-
staklega boðnir velkomnir til messu og
þátttöku í helgihaldinu, sem minnir okkur á
uppstigningu Krists. Þar prédikar Ólafur
Skúlason, biskup og fyrrv. sóknarprestur
Bústaðakirkju. Aldraðir lesa ritningarlestra
og taka þátt í messunni. Glæðurnar, kór
Kvenfélags Bústaðakirkju, syngja undir
stjórn Sigurbjargar Petru Hólmgrímsdóttur
ásamt félögum úr Kirkjukór Bústaðakirkju.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Eftir
messu verður opnuð sýning í safnaðar-
heimili á munum úr starfi aldraðra í vetur.
Veisluborð verður framreitt og öldruðum
boðið upp á veitingar meðan þeir, sem
yngri eru, greiða fyrir sig. Það er von okkar
að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í
messunni og að hin yngri aðstoði aldraða
að komast til kirkju.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 14.00 á
degi aldraðra. Sr. Hjálmar Jónsson prédik-
ar. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson þjónar fyrir
altari. Reynir Jónasson leikur á orgel, Dóm-
kórinn syngur. Kirkjukaffi í Iðnó eftir guðs-
þjónustuna.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 á
degi aldraðra. Kirkjukór Grensáskirkju
syngur. Organisti Reynir Jónasson. Sam-
skot til kirkjustarfsins. Málsverður í
safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lok-
inni. Ólafur Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr.
Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti Hörður Áskelsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Uppstigningardagur.
Dagur aldraðra. Guðsþjónusta kl. 11.00.
Félagar úr Húnvetningakórnum syngja.
Harpa Þorvaldsdóttir syngur einsöng.
Prestur sr. Gísli H. Kolbeins. Organisti Dou-
glas A. Brotchie. Veitingar í safnaðarheim-
ilinu á eftir, síðan verður rútuferð um
Reykjavík og valdir staðir skoðaðir. Allir vel-
komnir.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Grensás: Guðsþjónusta kl. 20.00. Sr. Birg-
ir Ásgeirsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta kl. 14 – athugið
tímann. Kammerkór Dómkirkjunnar í Hels-
inki syngur. Prestur Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kaffiveitingar
eftir guðsþjónustuna í boði Kvenfélags
Langholtssafnaðar. Eldri borgurum séstak-
lega boðið til guðsþjónustunnar. Þeir sem
vilja fá akstur eru beðnir um að hafa sam-
band við kirkjuvörð Langholtskirkju á mið-
vikudag. Kl. 17 heldur Kammerkór Dóm-
kirkjunnar í Helsinki, Viva Vox, tónleika í
Langholtskirkju.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.00 á degi aldraðra. Sr. Bjarni Karlsson
þjónar ásamt Sigurbirni Þorkelssyni með-
hjálpara. Kór Laugarneskirkju syngur undir
stjórn Gunnars Gunnarssonar. Að messu
lokinni býður sóknarnefnd upp á kaffi og
meðlæti í safnaðarheimilinu. (Athugið að
Kyrrðarstundir í hádegi halda áfram alla
fimmtudaga út júnímánuð, að uppstigning-
ardegi frátöldum).
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Litli
kórinn – kór eldri borgara syngur undir
stjórn Ingu J. Backman. Organisti Stein-
grímur Þórhallsson. Prestur sr. Örn Bárður
Jónsson. Kaffiveitingar að lokinni messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Arna Grétarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Kvartett Seltjarnarnes-
kirkju syngur. Þorvaldur Halldórsson,
söngvari, leiðir tónlistarflutning. Eftir stund-
ina er boðið upp á léttar veitingar í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Allir velkomnir.
FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK: Guðsþjónusta
klukkan 14:00 Predikun dagsins flytur út-
varpsmaðurinn góðkunni Jónas Jónasson.
Við hvetjum safnaðarfólk til að mæta í kirkj-
una sína á þessum hátíðardegi. Aldraðir
eru sérstaklega boðnir velkomnir til guðs-
þjónustunnar. Yngra fólk er hvatt til þess
að fylgja þeim eldri til kirkju. Eftir guðsþjón-
ustu er kirkjugestum boðið til kirkjukaffis í
safnaðarheimilinu. Allir velkomnir. Fríkirkj-
an í Reykjavík.
ÁRBÆJARKIRKJA: Dagur aldraðra. Hátíð-
arguðsþjónusta kl. 14.00. Kirkjukórinn
syngur. Eldri deild Karlakórs Reykjavíkur
syngur. Hjörleifur Valsson fiðluleikari spilar.
Lára Margrét Björnsdóttir félagsmálastjóri
flytur ræðu. Sóknarpresturinn sr. Þór
Hauksson þjónar fyrir altari. Organleikari og
kórstjóri er Krisztina Kalló Szklenár. Eftir
guðsþjónustuna er kirkjugestum boðið til
kaffisamsætis í safnaðarheimili kirkjunnar
í boði Soroptimistakvenna. Karlakórinn
syngur þar líka nokkur lög. Viljum við hvetja
eldri borgara til að koma og eiga góða
stund í kirkjunni.
DIGRANESKIRKJA: Kirkjudagur aldraðra.
Hátíð í Hjallakirkju kl. 14.00. Kaffiveitingar.
Sjá nánar: www.digraneskirkja.is
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14 á degi aldraðra. Lilja Hallgrímsdóttir
djákni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
sóknarprestunum sr. Guðmundi Karli
Ágústssyni og sr. Svavari Stefánssyni.
Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára
Friðrikssonar. Organisti Lenka Mátéová.
Lilja kveður söfnuðinn. Kaffi í safnaðar-
heimilinu í boði sóknarnefnda að lokinni
guðsþjónustunni.
GRAFARVOGSKIRKJA: Uppstigningardag-
ur, dagur eldri borgara. Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 14.00, ath. breyttan messutíma.
Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup prédikar.
Séra Anna Sigríður Pálsdóttir og séra Lena
Rós Matthíasdóttir þjóna fyrir altari. Lög-
reglukórinn syngur. Stjórnandi: Guðlaugur
Viktorsson. Organisti: Hörður Bragason.
Handavinnusýning eldri borgara opnuð.
Umsjón: Edda Jónsdóttir og Unnur Malm-
quist. Safnaðarfélag og sóknarnefnd Graf-
arvogskirkju bjóða öllum kirkjugestum til
kaffisamsætis.
HJALLAKIRKJA: Uppstigningardagur – dag-
ur aldraðra. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14 á
vegum safnaðanna í austurbæ Kópavogs.
Prestar safnaðanna þjóna og fólk í öldr-
unarstarfinu les ritningarlestra. Sr. Ingimar
Ingimarsson prédikar. Söngvinir, kór aldr-
aðra í Kópavogi, syngja og leiða safnaðar-
söng undir stjórn Kjartans Sigurjónssonar.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Veitingar í
safnaðarsal kirkjunnar að guðsþjónustu
lokinni (sjá einnig í www.hjallakirkja.is).
Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.00. Séra Ingþór Indriðason Ísfeld pre-
dikar og sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Einsöngur Jóhanna Guðríður Linnet. Kór
Kópavogskirkju syngur og leiðir safnaðar-
söng, organisti Julian Hewlett. Kaffi og
samvera í safnaðarheimilinu Borgum að
lokinni guðsþjónustu og þar mun Sigur-
björg Þórðardóttir leika undir fjöldasöng.
Sr. Ægir. Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Dagur aldraðra í Seljakirkju.
Guðsþjónusta kl. 14. Klara Hilmarsdóttir
guðfræðingur prédikar. Kór Seljakirkju leið-
ir söng. Organisti Jón Bjarnason. Eldri borg-
arar í Seljahverfi sérstaklega boðnir vel-
komnir!
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Guðs-
þjónusta kl. 14 í Landakirkju á uppstigning-
ardegi. Kór Landakirkju syngur undir stjórn
Guðmundar H. Guðjónssonar. Félag eldri
borgara tekur virkan þátt í athöfninni. Prest-
ar sr. Fjölnir Ásbjörnsson og sr. Þorvaldur
Víðisson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
uppstigningardag kl. 14.00. Ath. breyttan
tíma. Eldri borgurum boðið sérstaklega í
kirkju og ættmönnum og vinum þeirra.
Sætaferð frá Höfn og Sólvangshúsum kl.
13.40. Prestar: Sr. Gunnþór Þ. Ingason og
sr. Þórhallur Heimisson. Organisti. Antonía
Hevesi. Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng.
„Stefanoskórinn“ frá Dómkirkjunni í Upp-
sölum í Svíþjóð kemur í heimsókn. Stjórn-
andi hans er Barbro Björklund. Veislukaffi
eftir guðsþjónustuna í Hásölum. Stefanos-
kórinn syngur. Árni Grétar Finnsson, fyrrver-
andi forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar,
les ljóð. Hjörtur Howser leikur á Friðriks-
flygilinn í Hásölum.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Guðsþjón-
usta sérstaklega tileinkuð eldri borgurum á
uppstigningardag 20. maí, kl. 14.00. Prest-
ur: Sr. Bragi J. Ingibergsson. Gaflarakórinn,
kór Félags eldri borgara, syngur undir stjórn
Guðrúnar Ásbjörnsdóttur. Organisti: Úlrik
Ólason. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu
eftir messu. Rúta fer frá Hjallabraut 33 kl.
13.40 og frá Hrafnistu kl. 13.50. Allir vel-
komnir. www.vidistadakirkja.is
NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta upps-
tigningardag, fimmtudaginn 20. maí, kl.
11. Kórinn Eldey syngur undir stjórn Gísla
Magnasonar organista. Meðhjálpari Krist-
jana Gísladóttir. Kaffiveitingar í safnaðar-
heimilinu að athöfn lokinni. Baldur Rafn
Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Kirkjudagur eldri
borgara að vori. Guðsþjónusta kl. 11 árd.
Prestur: Ólafur Oddur Jónsson. Kór Kefla-
víkurkirkju syngur. Organisti og stjórnandi:
Ester Ólafsdóttir. Meðhjálpari Helga
Bjarnadóttir. Léttar veitingar eftir guðsþjón-
ustu.
STRANDAKIRKJA: Messa kl. 14, sérstak-
lega tileinkuð eldra fólki. Söngfélag Þor-
lákshafnar syngur. Organisti og söngstjóri
Julian Edward Isaacs. Baldur Kristjánsson.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta í
Skjaldarvík kl. 11. Húsblessun. Guðsþjón-
usta fyrir allt prestakallið í Möðruvalla-
kirkju kl. 14. Aldraðir boðnir sérstaklega
velkomnir. Kirkjukaffi á prestssetrinu.
Söngur við píanóið. Allir hjartanlega vel-
komnir. Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Svavar A. Jónsson. Kór eldri borg-
ara syngur. Sóknarnefnd býður til kaffiveit-
inga í safnaðarheimilinu eftir messu.
GLERÁRKIRKJA: Messa kl. 14. Sr. Haukur
Ágústsson prédikar. Sr. Gunnlaugur Garð-
arsson þjónar. Karlakór Akureyrar - Geysir,
leiðir söng undir stjórn Erlu Þórólfsdóttur.
Kaffiveitingar.
LAUFÁSPRESTAKALL: Grenilundur: Guðs-
þjónusta uppstigningardag 20. maí kl. 16.
TORFASTAÐAKIRKJA: Ferming verður í Tor-
fastaðakirkju á uppstigningardag 20. maí
kl. 14.00. Prestur sr. Egill Hallgrímsson.
Fermdur verður: Oddur Bjarni Bjarnason,
Brautarhóli, Biskupstungum.
SELFOSSKIRKJA: Messa á upp-
stigningardag kl. 11. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Hjúkrunarheimilið
Ás: Guðsþjónusta kl. 11.00.
Uppstigningardagur.
Dagur aldraðra.
Ferming verður í Torfastaða-
kirkju á uppstigningardag 20.
maí kl. 14. Prestur sr. Egill
Hallgrímsson. Fermdur verð-
ur:
Oddur Bjarni Bjarnason,
Brautarhóli,
Biskupstungum.
Fermingar
MESSUR Á UPPSTIGNINGARDAG
Sími 533 4040
Fax 533 4041
SÉRHÆÐIR
LAUGARÁSVEGUR. Mjög góð 5
herb. efri hæð í þríbýli. Stærð 104,0 fm
Glæsilegt útsýni. Suðursvalir. Fjögur svefn-
herbergi. Falleg sameiginleg lóð. Verð 16,8
millj. Nr. 3884
EINBÝLI
FUNAFOLD - M/BÍLSKÚR. Mjög gott einnar hæðar einbýlishús ásamt bíl-
skúr, stærð 191,6 fm. Húsið stendur sunnan við götu með fallegri ræktaðri suðurlóð.
Fjögur svefnherbergi og rúmgóðar stofur. Góð staðsetning. Verð 27,7 millj. Nr. 3818
4RA HERB
HRÍSMÓAR - GBÆ. Vorum að fá í einkasölu 3ja til 4ra herb. íbúð ásamt bílskúr.
Íbúð á 1. hæð. Falleg innrétting, parket á gólfum. Þvottahús í íbúðinni. Verð 18,7 millj.
SPORHAMRAR - M/BÍLSKÚR. Rúmgóð og falleg 3ja til 4ra herb. endaíbúð
á 3. hæð efstu í litlu fjölbýli. Íbúðinni fylgir góður bílskúr. Suðursvalir. Flott útsýni. Áhvíl-
andi 6,0 millj. Byggingasjóður 4,9% vextir. Verð 17,5 millj. Nr. 3912
Ármúla 21 • Reykjavík
Netfang: kjoreign@kjoreign.is
Heimasíða: www.kjoreign.is
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf Opið mán.–fim.
frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.
Í SUMAR verður boðið upp á 3 nám-
skeið fyrir börn á aldrinum 7–13 ára,
í Holti-Friðarsetri í Önundarfirði.
Námskeiðin byggjast upp á fræðslu
um mannlíf, dýralíf og jurtalíf, úti-
veru og helgistundir. Fyrsta nám-
skeiðið er 7.–11. júní, annað nám-
skeiðið 13.–16. júní en þá er gist eina
nótt. Þriðja námskeiðið verður 16.–
18. ágúst og verður þá áhersla lögð á
siglingu. Þau börn sem búa lengra í
burtu geta komið ásamt foreldrum
eða öðrum eldri, sem gista þá með
þeim og annast sig sjálf utan nám-
skeiðstímans. Prestar á svæðinu
stjórna námskeiðunum. Nánari upp-
lýsingar eru í Holti-Friðarsetri og
hjá sóknarprestum.
Börn frædd um dýralíf
SJÖ framhaldsskólanemendur
hlutu viðurkenningar í ritgerðar-
samkeppni í tilefni 100 ára afmælis
heimastjórnar, þar af þrír 100 þús-
und króna verðlaun hver. Nem-
endur skrifuðu um heimastjórn á
Íslandi, aðdraganda og afleiðingar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra afhenti verð-
launin í Þjóðmenningarhúsi ný-
verið.
Þeir sem hlutu 100 þúsund króna
verðlaun voru: Sigurður Helgi
Oddsson, Menntaskólanum á Akur-
eyri, Magnús Sigurðsson, Mennta-
skólanum í Reykjavík og Kristín
Svava Tómasdóttir, Kvennaskól-
anum í Reykjavík.
Þeir sem hlutu viðurkenningar
voru: Anna Björg Leifsdóttir,
Framhaldsskólanum á Húsavík,
Kristín Grímsdóttir, Mennta-
skólanum á Akureyri, Sigríður
Katrín Magnúsdóttir, Mennta-
skólanum á Akureyri og Anna
Njálsdóttir, Borgarholtsskóla.
Ritgerðirnar verða gefnar út í
kilju.
Ritgerðarsamkeppni um heimastjórnartímann
Sjö hlutu
verðlaun
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Tryggvi Gísla-
son, magister og formaður dómnefndar, ásamt verðlaunahöfum.