Morgunblaðið - 19.05.2004, Side 47

Morgunblaðið - 19.05.2004, Side 47
sumarskolinn.is sumarskolinn.is STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert athugul/l og hefur mjög ákveðnar skoðanir á mannlífinu. Á sama tíma býrðu yfir sanngirni og hlýju. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur breyst mikið frá árinu 1996. Nú er hins vegar kominn tími til að gera breyt- ingar á heimilisaðstæðum þínum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú hefur nánast byggt líf þitt upp frá grunni frá árinu 1999. Það er engu að síður kominn tími á frekari breytingar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Á undanförnum árum hef- urðu verið að læra að standa á eigin fótum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Mars er í merkinu þínu og því er mikilvægt að þú fáir mikla hreyfingu á næstunni. Þú hefur mjög mikla orku sem mun gera þig úrilla/n ef þú færð ekki útrás fyrir hana á heilbrigðan hátt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er eins og þú hafir þörf fyrir að rífa niður það sem þú hefur verið að byggja upp í lífi þínu síðasta áratuginn. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ættir að gefa sjálfri/ sjálfum þér klapp á bakið fyr- ir það sem þú hefur afrekað að undanförnu. Það er engin ástæða til að gera lítið úr af- rekum þínum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Margar vogir eru að upp- skera árangur þess erfiðis sem þær hafa lagt á sig und- anfarinn áratug. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur þurft að leggja hart að þér frá árinu 1999. Nú sérðu hins vegar fram á betri tíð þannig að þú þarft bara að passa þig á því að missa ekki dampinn. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Margir bogmenn hafa þurft að draga saman seglin að undanförnu þar sem sá fjár- stuðningur sem þeir hafa not- ið er ekki lengur til staðar. Láttu þetta ekki slá þig út af laginu. Þú ert fullfær um að standa á eigin fótum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það eru miklar breytingar í væntum hjá þér. Búðu þig undir að mæta aukinni við- urkenningu og virðingu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú kemst ekki hjá því að leggja hart að þér á næst- unni. Hlutirnir virðast stund- um yfirþyrmandi en ef þú heldur þínu striki ættirðu að uppskera ríkulega á næstu tveimur árum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Árið 1994 markaði nýtt upp- haf í lífi þínu. Þú ert aftur komin/n á tímamót en nú þarftu að gera það upp við þig hvað þú vilt gera í næsta kafla í lífinu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 47 DAGBÓK  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Nýttu þér áratuga reynslu okkar og traust í fasteignaviðskiptum Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 Milljónaútdráttur Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 5. flokkur, 18. maí 2004 Kr. 1.000.000,- 3299B 4209B 7218B 9109F 9378E 12244F 21152E 25047E 35677E 41902F 43855E 47375E 49931G 52002B 54434B Borgartúni 28 • símar 520 7901 & 520 7900 Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! Ísaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! ARTISAN 5 gerðir - 7 litir stærri skál, hveitibraut fylgir Yfir 60 ára frábær reynsla ÞÚ KOMST Í HLAÐIÐ Þú komst í hlaðið á hvítum hesti. Þú komst með vor í augum þér. Ég söng og fagnaði góðum gesti og gaf þér hjartað í brjósti mér. Ég heyri álengdar hófadyninn. Ég horfi langt á eftir þér. Og bjart er alltaf um bezta vininn, og blítt er nafn hans á vörum mér. Þó líði dagar og líði nætur, má lengi rekja gömul spor. Þó kuldinn næði um daladætur, þær dreymir allar um sól og vor. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 80 ÁRA afmæli.Fimmtudaginn 20. maí verður áttræð Jónína Björg Helgadóttir, ljós- móðir frá Hauganesi. Hún tekur á móti gestum í Ár- skógi á afmælisdaginn frá kl. 15–18. 80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 19. maí, er áttræður Krist- finnur Ingvar Jónsson, Blá- sölum 24, Kópavogi. Eigin- kona hans er Sigrún Sigur- jónsdóttir. Þau eru að heiman. ÍSLANDSMÓTIÐ í para- tvímenningi fór fram um síðustu helgi og unnu Ljósbrá Baldursdóttir og Björn Eysteinsson með umtalsverðum yfirburðum. Í öðru sæti urðu María Haraldsdóttir og Eiríkur Jónsson, en bronsið kom í hlut Geirlaugar Magnús- dóttur og Torfa Axels- sonar. Fjörutíu pör tóku þátt í mótinu og voru spil- uð 90 spil í þremur lotum. Lítum á spil úr síðustu lot- unni: Austur gefur; NS á hættu. Norður Norður ♠D10964 ♥G3 ♦ÁK93 ♣65 Vestur Austur ♠Á532 ♠KG ♥985 ♥Á1076 ♦DG5 ♦1074 ♣873 ♣G1042 Suður ♠87 ♥KD42 ♦862 ♣ÁKD9 Fyrsti leikurinn markar stefnuna og í þessu spili lagði Ljósbrá grunninn að toppskori sigurvegaranna með vel heppnuðu útspili. Björn og Ljósbrá voru í AV í vörn gegn tveimur gröndum eftir þessar sagnir: Vestur Norður Austur Suður -- -- Pass 1 lauf Pass 1 spaði Pass 1 grand Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu Pass 2 grönd Allir pass Norður og suður voru ekki samstiga í túlkun sinni á tveggja tígla sögn- inni, en við „yfirheyrslu“ kom í ljós að norður var að melda eðlilega, en ekki að krefja með tvíhleypunni. En lokasögnin er ágæt og margir fengu níu slagi í grandsamningi. Frá bæjardyrum vesturs er ekkert útspil freistandi. Hjarta eða lauf frá þremur hundum er líklegra til að svíða makker en byggja upp slagi, og spaði í gegn- um fimmlit blinds kemur ekki til greina. Tígul- drottningin er heldur ekki hættulaust útspil, en lík- lega skásti kosturinn af fjórum vondum. Ljósbrá lagði því af stað með tígul- drottninguna. Sagnhafa var hvergi brugðið. Hann drap með ás og hugðist strax tryggja sér áttunda slaginn á tígul – spilaði litlum tígli á átt- una heima og gosa Ljós- brár. Hugmyndin var aug- ljós og niðurstaðan óhjákvæmileg. Þegar suð- ur komst næst að, spilaði hann tígli og svínaði ní- unni! Björn drap óvænt á tíuna og sagnhafi varð að sætta sig við sex slagi: tveir niður og 200 í AV, sem reyndist vera hreinn toppur til Íslandsmeistar- anna. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 60 ÁRA afmæli. Ámorgun, fimmtudag- inn 20. maí, er sextug Hrefna Kristmannsdóttir, prófessor við auðlindadeild Háskólans á Akureyri. Hrefna og eiginmaður henn- ar, Axel Björnsson prófess- or, taka á móti ættingjum og vinum á heimili sínu í Dalsgerði 5c, Akureyri, frá kl. 16 á afmælisdaginn. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be7 8. f3 0–0 9. Dd2 Be6 10. 0–0–0 a5 11. Bb5 Rbd7 12. Df2 Hc8 13. g4 Hxc3 14. bxc3 a4 15. Bxa4 Da8 16. Bxd7 Rxd7 17. Kb1 Da4 18. Bc1 Ha8 19. a3 Ha6 20. Hd5 Bxd5 21. exd5 Rb6 22. Hd1 Rc4 23. h4 Bd8 24. Hd3 Bb6 25. De2 Bc5 26. De4 Bxa3 27. Bxa3 b5 28. Df5 Ha8 29. Bb2 Da2+ 30. Kc1 Dxb2+ 31. Kd1 Db1+ 32. Rc1 Staðan kom upp á pólska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu. Artur Jakubiec (2.532) hafði svart gegn Aleksander Mista (2517). 32. … Dxc1+! og hvítur gafst upp enda mát eftir 33. Kxc1 Ha1#. Evrópumeistaramót ein- staklinga stendur nú yfir í Anatalya í Tyrklandi og eru þrír Íslendingar á meðal keppenda. Vonir eru bundn- ar við að Íslandsmeistarinn í skák, Hannes Hlífar Stef- ánsson, veiti efstu kepp- endum harða keppni en þeir Stefán Kristjánsson og Björn Þorfinnsson munu án efa verða reynslunni ríkari að loknu þessu stranga móti. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik.           Ungmennahópur Málbjargar ætlar að hittast í dag, miðvikudaginn 19. maí kl. 19, á Pizza Hut á Suðurlands- braut. Málbjörg sér um veitinga- kostnað. Nýir meðlimir velkomnir. Ungmennahópur Málbjargar er ætl- aður fólki á aldrinum14–25 ára. Í DAG FRÉTTIR Samkoma hjá Hjálpræðishernum Framkvæmdastjóri Hjálpræðis- hersins í Noregi, Íslandi og Fær- eyjum, ofurstilautinant Miriam Frederiksen, mun tala á samkomu hjá Hjálpræðishernum í Reykjavík á morgun, fimmtudaginn 20. maí kl. 20. Á MORGUN Aðalfundur Alliance française verður haldinn þríðjudaginn 25. maí kl. 20 í húsakynnum Alliance franç- aise à Tryggvagötu 8. Fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga og Evrópusamtak- anna verður haldinn þriðjudaginn 25. maí kl. 12–13, í Norræna húsinu. Thomas Bryne, framkvæmdastjóri Þróunarstofu Suðaustur-Írlands mun fjalla um hvernig Evrópusam- bandið hefur, í samvinnu við fyrir- tæki og opinbera aðila, aðstoðað við uppbyggingu sveitarfélaga á Írlandi. Tom Bryne lauk prófi í opinberri stjórnsýslu frá háskólanum í Cork á Írlandi og síðar M.Phil prófi í Evr- ópufræðum frá sama skóla. Hann hefur reynslu af sveitarstjórnar- málum og hefur undanfarin 10 ár verið framkvæmdastjóri Þróunar- stofu Suðaustur-Írlands. Fundarstjóri verður Anna G. Björnsdóttir forstöðumaður þróun- ar- og alþjóðasviðs Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Fundurinn fer fram á ensku, aðgangur er ókeypis og er öllum opinn. Tilkynn þarf þátttöku á evropa- @evropa.is Á NÆSTUNNI Rangt fæðingarár Í formála minningargreina um Pétur Stefánsson á blaðsíðu 24 í Morgunblaðinu í gær, þriðjudag 18. maí, var rangt farið með fæðingarár Oddnýjar, hálfsystur Péturs. Hún fæddist 25. september 1891, d. 23. febrúar 1977. LEIÐRÉTT AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.