Morgunblaðið - 19.05.2004, Page 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 49
HEIMIR Ríkarðsson hefur valið hóp sextán pilta sem taka
þátt í undankeppni Evrópumóts landsliða í handknattleik
skipaðra leikmönnum 18 ára og yngri, en keppt verður í
Skopje í Makedóníu. Fyrsti leikurinn verður við Grikki á
föstudag, daginn eftir mæta íslensku piltarnir heimamönnum
og síðasti leikurinn verður við Frakka á sunnudag. Tvær
þjóðir komast áfram í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fram
fer í Serbíu/Svartfjallalandi í júlí.
Hópur Heimis er þannig skipaður
Hópurinn sem Heimir hefur valið til ferðarinnar er skip-
aður eftirtöldum leikmönnum: Markverðir: Björn Friðþjófs-
son, Fram, Hjalti Þorvarðarson, Fjölni. Aðrir leikmenn: Arn-
ór Þór Gunnarsson, Þór Ak, Ernir Hrafn Arnarson, Aftur-
eldingu, Elvar Friðriksson, Val, Fannar Friðgeirsson, Val,
Gunnar Harðarson, Fram, Gísli Jón Þórisson, Haukum, Guð-
mundur Örn Arnarsson, Fram, Gunnar Steinn Jónsson, Fjölni,
Jón Brynjar Ólafsson, Fram, Ingvar Árnason, Val, Magnús
Einarsson, Aftureldingu, Rúnar Kárason, Fram, Sigfús Páll
Sigfússon, Fram, Sveinn Þorgeirsson, Fjölni.Heimir Ríkharðsson, þjálfari ungmennaliðsins.
Piltalandsliðið á
leið til Makedóníu
ENSKA knattspyrnuliðið Leicester hefur leyst þrettán leik-
menn undan samningi. Þetta er gert í framhaldi af því að liðið
féll úr ensku úrvalsdeildinni á dögunum og til þess að mæta
tekjutapinu sem hlýst af fallinu þarf að grípa til mikilla sparn-
aðaraðgerða. Meðal þeirra sem leystir voru undan samningi
eru Muzzy Izzet og Frank Sinclair. Izzet hefur verið í her-
búðum Leicester í níu ár og Sinclair kom til liðsins fyrir sex
árum.
Aðrir leikmenn sem sagt hefur verið upp eru: Steffen
Freund, Steve Guppy, Billy McKinlay, Tom Williamson, Call-
um Davidson, Alan Rogers, Andrew Impey, Nicolas Priet,
Paul Murphy og Junior Lewis.
Markahrókurinn Paul Dickov og varnarmaðurinn Riccardo
Scimeca eiga í viðræðum við forráðamenn Leicester um að
vera áfram í herbúðum liðsins en eiga jafnframt í viðræðum
við önnur lið eftir því sem fram kemur á heimasíðu Leicester.
Les Ferdinand hefur verið boðinn nýr samningu en hann er
að jafna sig af meiðslum í hné. Ferdinand hefur lýst því yfir
að hann vilji leika með Leicester í eitt ár til viðbótar áður en
hann leggur skóna á hilluna.
Leicester segir upp
13 leikmönnum
MAGNÚS Sigmundsson mark-
vörður og Gunnur Sveinsdóttir voru
útnefnd leikmenn ársins í karla- og
kvennaflokki á lokahófi handknatt-
leiksdeildar FH um síðustu helgi.
ROBERT Bognar, Ungverjinn í
liði ÍBV, var kjörinn leikmaður ársins
hjá Eyjamönnum á lokahófi ÍBV um
helgina. Ekki var neinn sérstakur
leikmaður ársins valinn í kvenna-
flokki en Hlynur Sigmarsson, for-
maður kvennadeildarinnar, gat ekki
gert upp á milli leikmanna sinna og
þakkaði liðsheildinni fyrir frábært
tímabil en ÍBV varð Íslandsmeistari,
bikarmeistari og deildarmeistari.
BIRMINGHAM gekk í gær frá
kaupum á enska landsliðsmanninum
Emile Heskey, framherja Liverpool.
Kaupverðið er 3,5 milljónir punda, en
getur farið upp í 6,3 milljónir við til-
skilinn leikjafjölda með liðinu. Hesk-
ey gerði fimm ára samning við Birm-
ingham en hann hefur verið í
herbúðum Liverpool undanfarin
fjögur ár.
ASHLEY McElhiney var í gær ráð-
inn sem þjálfari atvinnumannaliðsins
Nashville Rhythm í körfuknattleik,
sem leikur í ABA-deildinni vestan
hafs. Hún er fyrsta konan sem þjálfar
atvinnulið karla í körfuknattleik í
Bandaríkjunum en hún er aðeins 22
ára gömul.
MCELHINEY lék með Vanderbilt
University-liðinu á háskólaárum sín-
um og er gríðarlega vinsæl í heima-
fylki sínu þar sem Nashville Rhythm
er staðsett. Sally Anthony er eigandi
liðsins en hún er ein af fjórum konum
sem eiga lið í ABA-deildinni en 28 lið
skipa deildina.
TALANT Dujshebaev er í lands-
liðshópi Spánverja í handknattleik
sem mætir Lettum í tveimur einvígis-
leikjum um laust sæti á HM í Túnis.
Leikirnir fara fram í lok mánaðarins
og í byrjun júní. Dujshebaev gaf ekki
kost á sér í lið Spánverja sem tók þátt
í úrslitakeppni Evrópumótsins í Slóv-
eníu í janúar en hann leikur sem
kunnugt er með Ólafi Stefánssyni hjá
spænska meistaraliðinu Ciudad Real.
CIUDAD Real á fjóra menn í
landsliðshópnum, markvörðinn Jose
Hombrados, Mariano Ortega, Albert
Enterríos og Talant Dujshebaev.
Barcelona á þrjá fulltrúa í hópnum,
markvörðinn og fyrirliðann David
Barrufet, Xavier O’Gallaghan og
Fernando Hernandés. Aðeins tveir
leikmenn úr 13 manna landsliðshópn-
um koma frá liðum utan Spánar.
Demetrio Lozano, sem leikur með
Kiel í Þýskalandi, og Ion Belausteui
með Hamborg.
ALLT bendir til að Kanu verði
þriðji leikmaðurinn sem fer frá meist-
urum Arsenal. Martin Keown hefur
leikið sinn síðasta leik með liðinu og
Sylvain Wiltord og Kanu eru með
lausan samning.
FÓLK
FRAMTÍÐ Didiers Deschamps,
þjálfara Mónakó, er í óvissu og svo
gæti farið að hann yfirgæfi franska
liðið eftir úrslitaleikinn í Meistara-
deildinni. Franskir fjölmiðlar
greina frá því að Chelsea og
Juventus vilji bæði nýta sér krafta
Deschamps en hann lék með báðum
þessum félögum á knattspyrnuferli
sínum. Mónakó vill halda
Deschamps í sínum röðum og hefur
þegar hafið viðræður við hann um
nýjan samning en Deschamps er
hins vegar sagður opinn fyrir öðr-
um möguleikum og vitað er að Juv-
entus vill fá hann til að taka við
starfi Marcelo Lippis og þá er uppi
orðrómur um að Roman Abramo-
vítsj, eigandi Chelsea, hafi þegar
rætt við Deschamps. Frakkinn
hyggst taka ákvörðun um framtíð
sína eftir úrslitaleikinn í Meist-
aradeildinni á móti Porto sem fram
fer í Þýskalandi í næstu viku.
Lið Valencia er gríðarlega velskipað, liðið hefur fengið fæst
mörk á sig í spænsku deildinni og að
auki hefur það skorað flest mörk í
heimalandi sínu.
Gengi Marseille hefur ekki verið
sem best í deildarkeppninni í heima-
landi sínu, en liðið situr í sjöunda
sæti.
Hinn litríki markvörður Valencia,
Jose Santiago Canizares, telur að
lukkan verði með Valencia að þessu
sinni en Valencia tapaði úrslitaleikn-
um í Meistaradeildinni árið 2000 fyr-
ir Real Madrid, 3:0. Ári síðar var lið-
ið mætt á ný í úrslitaleikinn gegn
Bayern München frá Þýskalandi en
þar réðust úrslitin í vítaspyrnu-
keppni. Valencia beið á ný ósigur,
5:4, og margir muna eftir því er Can-
izares grét eins og barn í leikslok á
San Siro-vellinum í Mílanó á Ítalíu.
Hinn 34 ára gamli markvörður,
sem fjórum sinnum hefur verið val-
inn besti markvörður spænsku deild-
arinnar, segir að í leiknum gegn
Marseille verði hann ekki með
hefndina að leiðarljósi.
„Allir sem standa að Valencia vilja
fagna sigri í þessum leik. Stuðnings-
menn liðsins hafa beðið lengi eftir
því að geta fagnað sigri í UEFA-
keppninni og vonandi getum við
einnig fagnað síðar sigri í Meistara-
deild Evrópu. Allt er þegar þrennt
er,“ sagði Canizares.
Allir leikmenn Valencia sem hafa
látið að sér kveða með liðinu í vetur
eru heilir en Rafa Benitez, þjálfari
liðsins, hefur ekki getað notað
Francisco Rufete og framherjann
Miguel Angel Angulo að undanförnu
vegna smávægilegra meiðsla.
Hins vegar gæti svo farið að knatt-
spyrnumaður ársins í Afríku og
Frakklandi, Didier Drogba, verði
ekki með Marseille. Framherjinn
snjalli meiddist á mjöðm í leik gegn
Mónakó í frönsku deildinni. Drogba,
sem er frá Fílabeinsströndinni, hef-
ur skorað 19 mörk í frönsku deildinni
og 11 mörk í Evrópukeppninni það
sem af er, en hann skoraði bæði
mörk liðsins í síðari leiknum gegn
Newcastle í undanúrslitum keppn-
innar.
Jose Anigo, þjálfari Marseille, er
bjartsýnn á að Drogba verði klár í
slaginn gegn Valencia. „Það er ekki á
hverjum degi sem leikmenn fá tæki-
færi til þess að leika úrslitaleiki.
Hann bítur á jaxlinn og verður með,“
sagði Anigo.
„Sigur í UEFA-keppninni myndi
fullkomna keppnistímabilið því sigur
í deildarkeppninni á Spáni er okkur
gríðarlega mikilvægur,“ segir Mista
Ferrer, framherji Valencia, en hann
hefur skorað 4 mörk í UEFA-keppn-
inni fram til þessa og verður án efa í
fremstu víglínu á nýja
Ullevi-leikvanginum í kvöld. Miðvall-
arleikmaðurinn Jorge Lopez getur
ekki tekið þátt í leiknum með Val-
encia þar sem að hann lék með
Villareal í Intertoto-keppninni sl.
sumar.
Ítalski dómarinn Pierluigi Collina
dæmir leikinn.
Úrslitaleikur UEFA-keppninnar fer fram í Gautaborg í kvöld
Valencia er líklegt til
afreka í Gautaborg
SPÆNSKA meistaraliðið í knatt-
spyrnu, Valencia, var á dögun-
um útnefnt besta lið aprílmán-
aðar af Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu, FIFA, og eru flestir
sparksérfræðingar á þeirri
skoðun að liðið sé líklegt til að
fagna sigri í UEFA-keppninni en
úrslitaleikur keppninnar fer
fram í Gautaborg í Svíþjóð í
kvöld. Þar mætir Valencia
franska liðinu Marseille sem
varð Evrópumeistari árið 1993
og tapaði í úrslitaleik árið 1999.
Valencia hefur hins vegar aldrei
unnið UEFA-keppnina né heldur
Meistaradeild Evrópu.
Reuters
Þrír leikmenn Valencia fagna marki – Brasilíumaðurinn Ricardo Olivera, Argentínumaðurinn Ro-
berto Ayala og Spánverjinn Jorge Lopez, sem skoraði. Þeir verða í sviðsljósinu í Gautaborg.
Yfirgefur Deschamps Mónakó?