Morgunblaðið - 19.05.2004, Síða 50
ÍÞRÓTTIR
50 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ARNAR Sigurðsson, fremsti tennisleikari Íslands, setti
skólamet í unnum leikjum á nýloknu tímabili í banda-
rísku háskólunum. Arnar vann 29 af 35 viðureignum
sínum í einliðaleik fyrir hönd Pacific háskólans en besti
árangur keppanda frá Pacific var áður 26 unnir leikir.
Að auki unnu Arnar og félagi hans, Lennart Maack frá
Þýskalandi, 20 af 29 leikjum sínum í tvíliðaleik, og þeir
deildu með sér titlinum „leikmaður ársins“ hjá Pacific.
Skólinn vann Vesturdeild bandarísku háskólakeppn-
innar en var síðan sleginn út af Stanford í fyrstu um-
ferð úrslitakeppninnar. Háskólakeppnin er mjög hátt
skrifuð í tennisíþróttinni en þar keppa flestir efnileg-
ustu tennisleikarar Bandaríkjanna og fleiri þjóða, sem
velja að stunda nám á meðan þeir vinna sig upp í íþrótt-
inni.
„Síðasti leikurinn, gegn Stanford, fór illa en þrátt
fyrir það var þetta ótrúlegt keppnistímabil fyrir mig.
Nú er ég á heimleið og fer síðan til meginlands Evrópu
í lok mánaðarins og keppi þar á atvinnumannamótum í
sumar,“ sagði Arnar við Morgunblaðið.
Arnar setti skóla-
met hjá Pacific
KEFLVÍKINGAR hafa ekkert heyrt frá for-
ráðamönnum svissneska úrvalsdeildarfélags-
ins FC Zürich en félagið lýsti yfir áhuga á að
gera samning við varnarmanninn Harald Frey
Guðmundsson eftir að hann var til reynslu hjá
því á dögunum.
Keflvíkingum barst munnlegt tilboð frá
Svisslendingunum fyrir tveimur vikum en
Keflvíkingar óskuðu eftir skriflegu tilboði sem
þeim hefur ekki borist í hendur enn sem komið
er.
„Við höfum ekkert heyrt meira frá félaginu.
Við vildum fá frá þeim skriflegt tilboð og
nokkrum dögum síðan fengum við á blaði frá
félaginu fyrirspurn um Harald sem við svör-
uðum bréflega en við höfum ekki fengið nein
viðbrögð. Boltinn er því alfarið í höndum
Zürich,“ sagði Rúnar Arnarson, formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur, við Morgun-
blaðið.
Keflavík ekkert
heyrt frá Zürich
Engar breytingar á
greinum á ÓL í Peking
DENIS Oswald, talsmaður Alþjóðaólympíunefndarinnar IOC, segir
að ekki verði hróflað við þeim 28 keppnisgreinum sem keppt hefur
verið í undanfarin ár á Ólympíuleikunum. Það verða því engar
breytingar gerðar á dagskrá leikanna fyrir ÓL í Peking í Kína árið
2008.
Jacques Rogge, forseti IOC, hefur undanfarin misseri sagt að
margar af þeim keppnisgreinum sem hafa verið á dagskrá leikanna
undanfarin ár veki ekki nógu mikla athygli og aðrar keppnisgrein-
ar ættu að fá tækifæri í þeirra stað. Á meðal greina sem Rogge hef-
ur nefnt í þessu sambandi eru nútímafimmtarþraut, hafnabolti og
afbrigði af hafnabolta sem oft er kallað „mjúkbolti“ (softball).
Rogge telur að karate, golf, ruðningur (rugby), veggtennis og
íþróttir sem tengjast hjólabrettum og línuskautum séu líklegri til
þess að vekja meiri athygli á Ólympíuleikunum. Rogge segir enn-
fremur að ekki verði bætt við nýjum keppnisgreinum án þess að
aðrar greinar víki í staðinn þar sem 28 keppnisgreinar, 300 atburð-
ir og 10.500 keppendur séu hámarksstærð í skipulagningu Ólymp-
íuleika.
KOLBEINN Sigþórsson, 14 ára
gamall knattspyrnumaður úr Vík-
ingi, skoraði eitt af fimm mörkum
Arsenal sem sigraði Southampton,
5:1, í leik sem háður var á High-
bury, heimavelli Arsenal, um síð-
ustu helgi. Kolbeinn er einn efnileg-
asti knattspyrnumaður landsins og
hafa forráðamenn Arsenal fylgst
grannt með honum um nokkurt
skeið. Kolbeini var boðið til æfinga
hjá Arsenal síðastliðið haust þar
sem hann skoraði í leik með
drengjaliði félagsins á móti
Chelsea. Þar heillaði hann þjálfara
Arsenal með frammistöðu sinni og í
kjölfarið var honum boðið að koma
út aftur. Kolbeinn hélt ásamt for-
eldrum sínum og Þórði Lárussyni,
fyrrverandi þjálfara Stjörnunnar
og kvennalandsliðsins, síðastliðinn
föstudag til London en Þórður hef-
ur um árabil starfað sem „njósnari“
fyrir Arsenal á Íslandi. Á laugar-
deginum voru þau á meðal áhorf-
enda á leik Arsenal og Leicester á
Highbury þar sem Arsenal-menn
voru krýndir meistarar í leikslok
og á sunndeginum lék Kolbeinn
með U-15 ára liði Arsenal á hinum
fræga Highbury-velli og þar skor-
aði hann fyrsta markið í stórsigr-
inum á Southampton.
Framhald verður á heimsóknum
Kolbeins til Arsenal því félagið vill
fá hann með sér á mót til Hollands í
sumar.
„Þetta var mikil upplifun fyrir
strákinn. Fyrst að taka þátt í fagn-
aðarlátunum á laugardeginum og
síðan að spila á Highbury en öll
unglingalið Arsenal fengu völlinn
til afnota á sunnudeginum,“ sagði
Þórður Lárusson.
Kolbeinn
skoraði á
Highbury
Níu leikmenn koma frá liðum áEnglandi, þar af fjórir frá
meistaraliði Arsenal, en athygli vek-
ur að nýkrýndir Frakklandsmeistar-
ar, Lyon, eiga aðeins einn fulltrúa í
hópnum og þá er Djibril Cisse, sem
gengur í raðir Liverpool í sumar,
ekki í hópnum þar sem hann tekur út
leikbann. Leikmannahópur Frakka
lítur þannig út:
Markverðir:
Fabien Barthez (Marseille), Greg-
ory Coupet (Lyon), Mickael Land-
reau (Nantes).
Varnarmenn:
Jean-Alain Boumsong (Auxerre),
Marcel Desailly (Chelsea), William
Gallas (Chelsea), Bixente Lizarazu
(Bayern München), Mikael Silvestre
(Manchester United), Lilian Thuram
(Juventus), Willy Sagnol (Bayern
München).
Miðjumenn:
Ludovic Giuly (Mónakó), Claude
Makelele (Chelsea), Olivier Dacourt
(Roma), Patrick Vieira (Arsenal),
Robert Pires (Arsenal), Jerome
Rothen (Mónakó), Sylvain Wiltord
(Arsenal), Zinedine Zidane (Real
Madrid), Benoit Pedretti (Sochaux).
Framherjar:
Thierry Henry (Arsenal), David
Trezeguet (Juventus), Louis Saha
(Manchester), Steve Marlet
(Marseille).
Frakkar, sem fögnuðu heims-
meistaratitlinum árið 1998 og Evr-
ópumeistaratitlinum tveimur árum
síðar áður en þeir brotlentu á HM í
S-Kóeru og Japan 2002, unnu riðil
sinn í undankeppni Evrópumótsins
með fullu húsi stiga. Frakkar þykja
mjög sigurstranglegir á mótinu en
þeir hefja titilvörnina gegn Englend-
ingum hinn 13. júní.
Sterkur
hópur hjá
Frökkum
JACQUES Santini, landsliðs-
þjálfari Frakka í knattspyrnu,
valdi í gær leikmannahóp sinn
sem á að verja heiður Frakka á
Evrópumeistaramótinu í Portú-
gal í sumar en þar hafa Frakkar
titil að verja.
Thierry Henry, miðherji Ars-
enal, verður á ferðinni á EM
í Portúgal.
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna,
Landsbankadeild
ÍBV - Breiðablik....................................... 8:1
Margrét Lára Viðarsdóttir 27., 30., 39., 87.,
Karen Burke 68., Olga Færseth 66., Mhairi
Gilmour 80., Erna B. Sigurðardóttir 54.
(sjálfsmark) – Erna B. Sigurðardóttir 77.
Breiðablik beið sinn stærsta ósigur í
deildakeppninni frá upphafi í Vestmanna-
eyjum í gærkvöld. Áður hafði félagið stærst
tapað 5:0, en það var tvívegis gegn KR, árin
1998 og 1999.
Bikarkeppni KSÍ
VISA-bikar karla, 1. umferð:
Neisti H. – GKS........................................ 1:0
Neisti mætir Tindastóli eða Hvöt.
Magni – Snörtur ....................................... 2:1
Magni mætir Reyni Á. eða KS.
ÍH – Afríka................................................ 5:1
ÍH mætir ÍR.
Höttur – Knattspyrnufél. Eskifj............. 4:1
Höttur mætir Sindra.
Neisti D. – Sindri...................................... 1:2
Sindri mætir Hetti.
Hrunamenn – Hamar............................... 2:1
Utandeildalið Hrunamanna leikur gegn
Ægi.
Aðrir leikir í 1. umferð keppninnar fara
fram á morgun.
England
Undanúrslit um sæti í úrvalsdeild, annar
leikur:
West Ham – Ipswich................................ 2:0
Matthew Etherington 50., Christian Dailly
71. - 34.002.
West Ham mætir Crystal Palace í úr-
slitaleik sem fram fer í Cardiff þann 29.
maí.
Svíþjóð
Djurgården – IFK Gautaborg .................1:2
Staðan:
Halmstad 8 7 1 0 22:8 22
Hammarby 8 5 2 1 9:4 17
Gautaborg 8 4 2 2 9:5 14
Kalmar 8 4 2 2 11:8 14
Malmö 8 3 4 1 13:5 13
Örebro 8 3 1 4 12:18 10
Trelleborg 7 2 3 2 7:7 9
Djurgården 8 2 3 3 10:12 9
Landskrona 8 2 2 4 10:13 8
Helsingborg 8 1 4 3 13:13 7
Sundsvall 8 1 4 3 7:10 7
Örgryte 7 1 4 2 7:10 7
AIK 8 1 3 4 4:9 6
Elfsborg 8 0 3 5 3:15 3
GOLF
Byron Nelson meistaramótið, PGA-mót
Sergio Garcia, Spáni ...............................270
77,2 millj. kr. (66-68-65-71)
Robert Damron, Bandaríkj ....................271
37 millj. kr. (67-69-68-66)
Dudley Hart, Bandaríkj..........................270
37 millj. kr. (65-71-67-67)
Tim Herron, Bandaríkj. .........................271
17,7 millj. kr. (69-70-68-64)
Duffy Waldorf, Bandaríkj. .....................271
17,7 millj. kr. (67-70-66-68)
Tiger Woods, Bandaríkj. ........................271
17,7 millj. kr. (65-67-70-69)
Nick Price, Zimbabwe ............................272
12,8 millj. kr. (66-71-69-66)
Shigeki Maruyama, Japan .....................272
12,8 millj. kr. (70-70-66-66)
Ernie Els, S-Afríku..................................272
12,8 millj. kr. (69-70-66-67)
Stephen Leaney, Bandaríkj. ..................272
12,8 millj. kr. (66-69-69-68)
Mark O’Meara, Bandaríkj. .....................273
9,8 millj. kr. (67-66-70-70)
Deane Pappas, Bandaríkj. .....................273
9,8 millj. kr. (67-69-66-71)
Jerry Kelly, Bandaríkj............................273
9,8 millj. kr. (66-68-67-72)
ÚRSLIT
ANTHONY Peeler, bakvörður
NBA-liðsins Sacramento Kings, var
í gær úrskurðaður í tveggja leikja
bann eftir að hann gaf Kevin Garn-
ett, miðherja Minnesota, olnboga-
skot í sjötta leik liðanna í undanúr-
slitum Vesturdeildarinnar.
GARNETT brást við með því að
gefa fyrrum félaga sínum úr liði
Timberwolves högg í brjóstkassann
en hann fær ekki leikbann en verður
að greiða um hálfa milljón kr. í sekt
vegna atviksins. Oddaleikur liðanna
fer fram í kvöld í Minnesota og liðið
sem sigrar mætir Lakers í úrslitum
Vesturdeildar.
ATVIKIÐ hefur vakið mikla at-
hygli í Bandaríkjunum þar sem leik-
mennirnir voru miklir vinir á meðan
þeir léku saman í Minnesota og segir
Flip Saunders, þjálfari liðsins, að
þeir væru enn vinir, en keppnisskap-
ið hefði hlaupið með þá í gönur að
þessu sinni.
FRANSKA knattspyrnuliðið
Marseille sem leikur í kvöld til úr-
slita í UEFA-keppninni í knatt-
spyrnu hefur staðfest að félagið hafi
komist að samkomulagi um kaup á
miðjumanninum Benoit Pedretti frá
Sochaux. Hinn 23 ára gamli Pedretti
skrifar undir samning til næstu fjög-
urra ára og fær Sochaux rúmlega
880 millj. kr. fyrir leikmanninn.
PEDRETTI hefur leikið 12 lands-
leiki fyrir Frakka og segir Christ-
ophe Bouchet, forseti Marseille, að
kaupin séu einn liður í því að gera at-
lögu að meistaratitlinum í Frakk-
landi á næstu leiktíð. Pedretti verð-
ur í franska landsliðshópnum sem
fer í úrslitakeppni EM í sumar í
Portúgal.
ALEX Rae, leikmaður enska úr-
valsdeildarliðsins Wolves, er á förum
frá félaginu sem leikur í 1. deild á
næstu leiktíð. Rae er skoskur og hef-
ur ávallt verið stuðningsmaður
Rangers og nú fær hann tækifæri
hjá liðinu sem leikmaður. Hann hef-
ur gert tveggja ára samning við fé-
lagið. Brasilíumaðurinn Emerson er
hins vegar á förum frá Rangers.
ENSKA dagblaðið The Guardian
segir í frétt sinni að Tottenham hafi
áhuga á að fá Frank Arnesen til
starfa hjá félaginu sem fram-
kvæmdastjóri íþróttamála hjá félag-
inu en David Pleat hefur verið í því
starfi undanfarin ár. Arnesen er
fyrrv. landsliðsmaður Dana í knatt-
spyrnu og hefur stýrt gangi mála hjá
hollenska liðinu PSV undanfarin ár
sem yfirmaður íþróttamála.
ARNESEN hefur víðtæka þekk-
ingu á leikmannasamningum, leik-
mannakaupum og innsæi í leik-
mannamarkaðinn í Evrópu en hann
sagði starfi sínu lausu hjá PSV á
dögunum eftir 19 ára starf sem leik-
maður og síðar sem starfsmaður í yf-
irstjórn félagsins.
FÓLK
EKKI er öruggt að belgíska knattspyrnu-
félagið Gent fái heimild til að leika gegn
Fylki í 1. umferð Intertoto-keppninnar í
næsta mánuði. Gent er ekki komið með
keppnisleyfi í Evrópumótum fyrir næsta
tímabil og þarf því að sækja um undanþágu
til UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu, til
að fá að taka þátt í keppninni. Forseti Gent
sagði við belgíska fjölmiðla í gær að hann
hefði beðið belgíska knattspyrnusambandið
um að óska eftir undanþágunni og reyna að
koma henni í gegn á sem skemmstum tíma
svo félagið fái að spila gegn Fylki.
Ef Gent fer ekki í keppnina er Íslendinga-
liðið Lokeren næst í röðinni sem mótherji
Fylkismanna. En þar er sama sagan, Lokeren
er ekki heldur komið með keppnisleyfi í
Evrópumótunum. Fyrri leikurinn verður í
Belgíu 19. eða 20. júní og sá síðari hér á landi
viku síðar.
Gent þarf að
fá undanþágu