Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 51
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 51 TORBEN Winther, landsliðsþjálfari Dana, hefur valið 16-manna lands- liðshóp sem leikur meðal annars við Íslendinga á fjögurra þjóða móti í handknattleik í Andwerpen í Belg- íu um næstu helgi. Auk Íslendinga og Dana taka landslið Serbíu/ Svartfjallalands og Túnis þátt í mótinu, en þetta er fjórða árið í röð sem Íslendingar verða á meðal þátttakenda. Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslendinga hyggst tilkynna val sitt á landsliðinu í dag en eftir því sem fram kemur í dönskum dagblöðum í gær þá er Róbert Gunnarsson, leikmaður År- hus GF, á meðal þeirra sem verða í íslenska landsliðinu. Róbert lék mjög vel í vetur í Danmörku og varð næstmarkahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar. Danska landsliðið að þessu sinni er eingöngu skipað leikmönnum sem spila með dönskum félagsliðum en er það nefnt deildarlandsliðið í dönskum fjölmiðlum. Það skipa; Peter Nørklit, FCK, Søren Rasmus- sen, AaB, Heino Holm Knudsen, AaB, Christian Back, AaB, Rune Ohm, AaB, Henrik Hansen, Århus GF, Kristian Gjessing, Skjern, Jesp- er Jensen, Skjern, Jesper Nøddes- bo, Tvis Holstebro, Kasper Klit- gaard, Team Helsinge, Thomas Larsen, Skjern, Kasper Sønder- gaard, Århus GF, Martin Bager, Team Helsinge, Pelle Larsen, AaB, Hans Lindberg, Team Helsinge, Lars Møller Madsen, Skjern. Landsliðsþjálfari Dana mætir með „heimamenn“ PÁLI Ólafssyni hefur verið boðið að halda áfram að þjálfa Hauka eftir að ljóst var að Atli Hilmarsson tekur ekki við lið- inu. Páll var ráðinn tímabund- ið eftir að Viggó Sigurðsson hætti í byrjun febrúar og und- ir hans stjórn urðu Haukar deildar- og Íslandsmeistarar. „Ég ætla að gefa mér nokkra daga til að ákveða mig. Ég gaf það frá mér strax eftir að ég hljóp í skarðið fyrir Viggó að halda áfram á næsta tímabili en Haukarnir leituðu til mín þegar það komst á hreint að Atli kæmi ekki. Þetta er krefjandi verkefni en jafnframt spennandi svo það er að mörgu að hyggja og því vil ég skoða málin frá öllum hliðum áður en ég ákveð mig,“ sagði Páll í samtali við Morg- unblaðið í gær. Haukar hafa rætt við Pál Gestirnir byrjuðu betur og áttumeð réttu að komast yfir á fyrstu tuttugu mínútunum en ákvarð- anir dómaratríósins kom í veg fyrir það. Fyrst virtist sem Blikar hefðu skorað þegar skalli kom að marki ÍBV, boltinn fór greinilega í hönd Mhairi Gilmour sem stóð inni í markinu og virtist hafa farið vel yfir marklínu Eyjastúlkna. Ekkert dæmt. Aðeins mínútu síðar slapp Björg Ásta Þórðardóttir inn fyrir Michelle Barr í vörn ÍBV og sú síðarnefnda renndi sér í Björgu innan vítateigs og virtist vera um brot að ræða. Ekkert dæmt. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins, lék glæsilega á tvo varnarmenn Blika og hamraði knöttinn í slána og inn frá vítateigslínu. Hún var aftur á ferðinni þremur mínútum síðar en þá átti Elín Anna Steinarsdóttir gott skot að marki Breiðabliks, Birna Kristjáns- dóttir varði en náði ekki að halda bolt- anum og Margrét Lára var fljót að átta sig og renndi knettinum í netið. Þriðja mark Margrétar Láru kom svo fimm mínútum fyrir leikhlé. Karen Burke sendi knöttinn fyrir og Mhairi Gilmour átti hörkuskot að marki, Birna varði vel en hélt ekki boltanum og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Margréti Láru. Í síðari hálfleik hélt stórskotahríð ÍBV áfram. Fjórða markið var sjálfs- mark. Breiðablik missti Söndru Karlsdóttur út af á 57. mínútu þegar hún fékk rautt spjald fyrir að brjóta á Margréti sem var sloppin í gegn. Olga Færseth gerði fallegasta mark leiks- ins, sendi boltann með bakfallsspyrnu í bláhornið. Nú héldu Eyjastúlkum engin bönd og sjötta markið skoraði Karen Burke eftir mikinn darraðar- dans. Breiðablik klóraði aðeins í bakkann með marki Ernu B. Sigurð- ardóttur en Mhairi Gilmour svaraði fyrir ÍBV og Margrét gerði síðasta markið og sitt fjórða. Áttum klárlega að fá víti Margrét Sigurðardóttir, þjálfari Breiðabliks, var að vonum ósátt í leikslok. „Liðið hrynur hjá okkur eftir að við fáum á okkur fyrsta markið. Annað markið kom fljótlega á eftir sem var óheppni, eflaust út af rign- ingu og bleytu. Þá fóru leikmenn að hætta að spila saman og fóru að reyna að gera allt upp á eigin spýtur.“ Mar- grét var ósátt við það að hafa ekki fengið vítaspyrnu í upphafi leiks þeg- ar brotið var á Björgu Ástu. „Þetta var klárlega víti og svo virtist boltinn hafa farið inn fyrir línuna aðeins áður þannig að í rauninni áttum við að vera komin tveimur mörkum yfir. Ég er svakalega svekkt en þessu getum við lært af. Þessi leikur verður skoðaður og unnið úr því á skynsamlegan hátt. Við erum síður en svo búnar að leggja árar í bát.“ Ekki getað dreymt betri byrjun „Þetta var ofboðslega óvænt. Mann hefði ekki getað dreymt um svona góða byrjun á mótinu,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, kampa- kátur í leikslok. „Blikar byrjuðu vel en um leið og þær fengu á sig fyrsta markið hættu þær.“ Heimir sagði að með réttu hefðu Blikar átt að vera komnir með forystu í leiknum áður en Eyjaliðið komst á blað. „Þær komu ekki með rétta hug- arfarið í þennan leik og það er mjög óvenjulegt að sjá þær svona daprar en ég var ánægður að fá þær í svona standi til Eyja.“ „Ég vona að þetta sé það sem koma skal,“ sagði Margrét Lára, besti leik- maður vallarins. „Reyndar spiluðum við ekkert neitt sérstaklega vel, mið- að við aðstæður, völlurinn blautur og þungur en þetta var Breiðablik þann- ig að þetta er gott.“ Margrét Lára hefur reynst Blikum erfið að undanförnu en þetta er þriðji leikurinn í röð þar sem hún skorar fjögur mörk gegn þeim. „Mér finnst bara svo gaman að spila við Breiða- blik, ég var náttúrulega í Tý og þykir vænt um græna litinn.“  MIHAJLO Bibercic, fyrrum markamaskína með ÍA og KR, er kominn með leikheimild með 1. deild- ar liði Stjörnunnar í knattspyrnu. Hann getur því leikið með Garðbæ- ingum á föstudag þegar þeir taka á móti Njarðvík í annarri umferð deild- arinnar. Sama er að segja um Dalibor Lazic, sem einnig er kominn til Stjörnunnar frá Serbíu/Svartfjalla- landi, en þeir gátu ekki leikið með lið- inu gegn Haukum í fyrrakvöld.  STJARNAN hefur einnig fengið til sín Emil Sigurðsson frá FH. Hann spilaði ekkert síðasta sumar en lék 4 leiki með Hafnarfjarðarliðinu í úr- valsdeildinni 2002.  VIKTOR Bjarki Arnarsson, leik- maður Víkings, var í gær úrskurð- aður í tveggja leikja bann vegna brottrekstursins gegn Fram í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu. Hann verður því ekki með Víkingi gegn KA á föstudag og ekki heldur gegn KR 27. maí.  FJÓRIR leikmenn úr 1. deild verða í banni í annarri umferð deildarinnar á föstudag en þeir voru allir reknir af velli í fyrstu umferðinni. Það eru þeir Hörður Már Magnússon úr HK, Ey- steinn P. Lárusson úr Þrótti R., Þor- gils Þorgilsson úr Stjörnunni og Guðmundur Brynjarsson úr Njarð- vík.  SIF Atladóttir, markahæsti leik- maður FH í úrvalsdeild kvenna síð- asta sumar, er gengin til liðs við Ís- landsmeistara KR. Sif, sem er 19 ára og dóttir Atla Eðvaldssonar, fyrrum landsliðsþjálfara karla, skoraði 5 af 11 mörkum FH í deildinni í fyrra og spil- aði jafnframt með U19 ára landslið- inu.  HJÁLMAR Jónsson missti í gær- kvöld af sínum þriðja leik í röð með Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu – vegna meiðsla. Gauta- borg vann þá góðan útisigur á meist- urum Djurgården, 2:1.  FORRÁÐAMENN enska knatt- spyrnufélagsins Leeds United skýrðu frá því í gær að þeir hefðu hafnað tveimur tilboðum frá Manchester United í Alan Smith, enska landsliðs- manninn. Smith er á förum frá Leeds í kjölfarið á því að félagið féll úr úr- valsdeildinni en ekki fyrir hvaða upp- hæð sem er. Manchester United bauð fyrst 3,5 milljónir punda, eða um 450 milljónir króna, og hækkaði sig síðan í 5,5 milljónir punda, eða 710 milljónir króna. Leeds vill hins vegar fá í kring- um 1.300 milljónir króna fyrir Smith.  THAKSIN Shinawatra, forsætis- ráðherra Taílands, sagði við BBC í gær að tilboð sitt um kaup á 30 pró- sentum í enska knattspyrnufélagið Liverpool hefði verið samþykkt. Að- eins væri eftir að greiða úr ýmsum smáatriðum varðandi kaupin. For- ráðamenn Liverpool hafa ekki stað- fest ummæli hans. FÓLK Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir ÍBV þegar liðið lagði Breiðablik í fyrsta leikn- um í efstu deild kvenna í gær, en leikið var í Eyjum. Hér fagna samherjar henni eftir eitt markið. Sjö marka skell- ur Blika í Eyjum FYRSTI leikur Landsbankadeildar kvenna fór fram í Eyjum í gær þegar heimastúlkur tóku á móti Breiðabliki. Fyrirfram var búist við hörkuviðureign enda þessum tveimur liðum spáð baráttu í efri hluta deildarinnar. Annað kom á daginn, heimastúlkur hreinlega völtuðu yfir andstæðinga sína og sigruðu örugglega 8:1. Sigursveinn Þórðarson skrifar BRYNJAR Valdimarsson varð í gær Íslandsmeistari í snóker þegar hann lagði Ásgeir Ásgeirsson í úrslitaleik með níu römmum gegn einum. Þetta er í sjötta sinn sem Brynjar verður Íslandsmeistari, síðast varð hann meistari árið 1992 en þá hafði hann einokað titilinn frá því hann varð fyrst meistari, árið 1988. Hann varð sem sagt Íslandsmeistari fimm ár í röð og nú er spurning hvort hann endurtekur leikinn. Brynjar meistari Fimm borgir keppa um ÓL 2012 PARÍS í Frakklandi þykir líkleg til að verða vettvangur Ólympíuleikanna árið 2012 en alþjóða ólympíunefndin tilkynnti hvaða fimm borgir koma til greina sem gest- gjafar leikanna. Borgirnar fimm eru: París, London, New York, Moskva og Madr- id en umsóknum frá Havana, Istanbul, Leipzig og Rio var hafnað. Þrjár af borgunum fimm hafa haldið leikana, París ár- in 1900 og 1924, London 1908 og 1948 og Moskva 1980. Ákvörðun um keppnisstaðinn verður tekin á fundi Alþjóða ólympíunefndarinnar í júlí á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.