Morgunblaðið - 03.06.2004, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Grettir
Smáfólk
ALLT Í LAGI,
ALLIR FRÁ
BORÐI!
FLÆR!! AAAAHHH! ÉG VAR BARA BÚINNAÐ SAMÞYKKJA AÐ
GEFA ÞEIM FAR
ÞETTA LANGT
ÞAÐ ÞARF MEIRA EN EINA LITLA
VEKJARAKLUKKU TIL ÞESS AÐ
KOMA MÉR Á FÆTUR
ÞETTA FÓR EKKI
MJÓG VEL...
HA? ÉG HLÝT AÐ HAFA
SOFNAÐ AFTUR... AFSAKIÐ...
JÁ KENNARI... ÉG SVAF
ÁGÆTLEGA Í NÓTT... EN AÐ
SOFA ER BARA EINS OG AÐ
BORÐA...
ÞETTA VAR EFTIRRETTUR!
Risaeðlugrín
© DARGAUD
AAAAHAAA! ER ÞETTA SÁ GRUNAÐI?
MIKIÐ VARSTU
FLJÓTUR
JÁ ÞETTA ER HANN!
GRUNAÐUR UM
HVAÐ? ÉG GERÐI
EKKI NEITT!
GERÐIR ÞÚ EKKI NEITT?
ERTU VISS?
VILTU VITA HVAÐ ÞÚ
HEFUR GERT?
ÖÖÖ
JÁ!
ÞÚ TÓKST ÞÁTT Í ÆFINGU Á NOTKUN NÝS LEYNILEGS
FJARSKIPTA-
BÚNAÐAR ÆFINGIN TÓKST MEÐ
EINDÆMUM VEL!
ÞAÐ ER ÞESSU UNDRATÆKI AÐ ÞAKKA AÐ LÖGREGLULIÐI
OKKAR TEKST AÐ NÁ BETRI ÁRANGRI Í ÞVÍ AÐ GERA
SAMFÉLAGIÐ
ÖRUGGARA DAVÍÐ, LÖGREGLUSTJÓRI, VERÐUR
ÁNÆGÐUR AÐ HEYRA
NIÐURSTÖÐUR VERKEFNISINS
Í NAFNI LAGANNA ÞÖKKUM VIÐ
ÞÉR FYRIR OG ÓSKUM ÞÉR TIL
HAMINGJU MEÐ ÞESSA ÓVÆNTU
ÞÁTTTÖKU
EKKI GLEYMA AÐ
MEÐ LÖGUM SKAL
LAND BYGGJA
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
EIN er sú bók, sem mest er með-
höndluð. Það er símaskráin, sem
komið hefur út frá upphafi símans
hérlendis, eða síðan árið 1906. Lengst
af var skrá þessi í einu bindi, sem fór
vitanlega stækkandi með vaxandi
fjölda símnotenda. Eitt sinn sagði
dagblað frá því, að kynjajafnréttið
hefði þanið skrána mjög út. Konur
tóku nú að vera með, en létu áður eig-
inmennina eina um að skrá sig. Það er
að vísu nokkuð algengt enn, og gegnir
nokkurri furðu á þeim jafnréttistím-
um sem yfir ganga.
En bréf þetta átti raunar fyrst og
fremst að fjalla um það, að nú er síma-
skráin send út í einu bindi, en var síð-
ustu árin send út í tveimur: öðru fyrir
höfuðborgarsvæðið og hinu fyrir
landsbyggðina. Um þetta skrifaði ég
bréf til Morgunblaðsins á sínum tíma,
og lýsti vonbrigðum mínum með það
fyrirkomulag. Hversu oft hefur það
ekki angrað mig að þurfa að leita í
annarri bók en Reykjavíkurskránni
að númerum úti á landsbyggðinni.
Sem betur fer er sú tíð á enda. Þakk-
látur er ég því þeim, sem málum hafa
stýrt á þann veg, sem orðið er.
AUÐUNN BRAGI
SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28, 107 Reykjavík.
Símaskráin er nú
í einu bindi
Frá Auðuni Braga Sveinssyni
rithöfundi:
Í MORGUNBLAÐINU 27. maí er
viðtal við Róbert Marshall, formann
Fjölmiðlasambandsins, um undir-
skriftasöfnun sem efnt var til vegna
fjölmiðlafrumvarps ríkisstjórnarinn-
ar. Í viðtalinu er þetta haft eftir Ró-
bert: „Ég fullyrði að þetta sé örugg-
asta undirskriftasöfnun sem fram
hefur farið á Íslandi“.
Þetta er hæpin staðhæfing svo að
ekki sé meira sagt. Dettur nokkrum
manni í hug að „undirskrift“ sem
felst í því að slá inn nafn og kennitölu
í tölvu, sé eins traust og raunveruleg
undirskrift sem lögð er fram opin-
berlega og allir geta fengið aðgang
að? Þannig var háttað söfnun undir-
skrifta sem fram fór undir kjörorð-
inu Varið land fyrir réttum þrjátíu
árum og var mesta undirskriftasöfn-
un sem um getur hér á landi. Fjöldi
kosningabærra manna sem þá skrif-
aði undir myndi samsvara hátt í 90
þúsund manns nú. Í þeirri söfnun
var mönnum gefinn kostur á að
kanna hvort nafn þeirra hefði verið
ritað á lista að þeim forspurðum og
var boðið að strika nafnið út. Skráð-
ur ábyrgðarmaður var fyrir hverjum
lista og hvert nafn borið saman við
íbúaskrá. Þetta var gert til að
tryggja að undirskriftirnar yrðu
ekki vefengdar, enda var það aldrei
reynt. Öðru máli gegnir um þá und-
irskriftasöfnun sem Róbert Mars-
hall er talsmaður fyrir. Ekki skal
dregið í efa að margir hafi tekið þátt
í henni, en hversu margir verður
seint upplýst. Staðreyndin er sú, að
undirskrift sem send er á þennan
hátt með tölvu verður ekki sann-
reynd nema með beinni fyrirspurn
til hinnar nafngreindu persónu.
ÞORSTEINN SÆMUNDSSON,
RAGNAR INGIMARSSON,
ÞORVALDUR BÚASON.
Höfundar voru í hópi
forgöngumanna undirskrifta-
söfnunar Varins lands.
Öruggasta undir-
skriftasöfnunin?
Frá Þorsteini Sæmundssyni,
Ragnari Ingimarssyni og
Þorvaldi Búasyni:
ÖÐRU hverju kemst Tétsnía í fréttir
fjölmiðla. Íbúar þar og nágrannar
þeirra í Ingútsíu eru undir járnhæl
Rússa. Þeir hafa þurft að þola miklar
hörmungar gegnum tíðina, allt frá
nauðungarflutningum Stalíns til
ógnarstjórnar Pútíns Rússlandsfor-
seta. Ráðamenn á Vesturlöndum
hafa sýnt málinu lítinn áhuga, sér-
staklega á þetta við um Evrópuríkin,
en málið ætti að standa þeim næst
þar eð Rússland er aðili að Evrópu-
ráðinu og hefur skuldbundið sig til
að virða mannréttindasáttmála þess.
Nákvæmustu fréttir sem ég hef
lesið um ástandið í Tétsníu hafa birst
í franska dagblaðinu Le Monde. Ég
hef lengi verið áskrifandi að viku-
blaðinu Le Monde, sélection heb-
domadaire, en þar birtist úrval af
greinum úr dagblaðinu. Nú í maí var
ágæt grein þar sem fjallað var um
hvernig rússneska leyniþjónustan
(FSB) stundar handtökur eða mann-
rán í Ingútsíu, þar sem flóttafólk frá
Tétsníu er fjölmennt. Þetta hefur
leitt til þess að margt yngra fólk hef-
ur snúist á sveif með öfgafullum mú-
hameðstrúarmönnum. Haft var eftir
einum íbúa Nazran, aðalborgar Ing-
útsíu, að fyrir 10 árum hefði varla
nokkur farið í moskurnar nema gam-
almenni. Nú væru moskurnar fullar.
Trúarofstæki leiðir ekki til neins
góðs og aðgerðir sem kynda undir
því eru af hinu illa. Mér finnst að það
mætti heyrast frá utanríkisráðu-
neyti Íslands mótmæli gegn fram-
ferði Rússa þarna. Ég bind vonir við
að sjálfstæðismaðurinn sem tekur
við utanríkisráðuneytinu 15. septem-
ber láti Rússana heyra hvað okkur
finnst um framferði þeirra þarna
niðurfá, þótt ég geri ekki ráð fyrir að
mikið mark verði tekið á okkur frek-
ar en edranær.
PÁLMI INGÓLFSSON,
Hraunbæ 128,
110 Reykjavík.
Stríðið í Tétsníu
Frá Pálma Ingólfssyni: