Morgunblaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 47
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert orðheppin/n og mjög
sannfærandi og getur hæg-
lega haft atvinnu af mælsku
þinni. Þú ert jafnframt
frumleg/ur í hugsun og fljót/
ur að tileinka þér hlutina.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er eins og allt aukist þegar
tunglið er fullt. Þetta á ekki
síst við um erfiðleikana sem við
glímum við. Þó getur þó hugg-
að þig við það að þetta muni
ganga yfir um leið og tunglið
fer að minnka á nýjan leik.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert með hugann við eignir
þínar og fjárhagsstöðu. Mundu
að raunverulegt örlæti felst í
því að láta hlutina af hendi
þegar þörfin fyrir þá kemur
upp.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert eitthvað tvístígandi
þessa dagana. Þú ert á báðum
áttum um það hvort þú eigir að
láta þarfir þínar eða annarra
hafa forgang.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur mikla þörf fyrir ein-
veru í dag. Þú vilt helst fela þig
sem lengst inni í skel þinni og
það mælir ekkert á móti því að
þú látir það eftir þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú munt líklega lenda í tog-
steitu á milli vina þinna og
kunningja annars vegar og
fjölskyldu þinnar hins vegar.
Þótt fjölskyldan skipti þig
mestu máli máttu ekki líta
framhjá þörfum vina þinna.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er hætt við að skyldur þín-
ar í vinnunni stangist á við
þarfir fjölskyldu þinnar þessa
dagana. Það er mikilvægt að
þú sinnir starfi þínu því annað
mun koma niður á fjölskyld-
unni þótt síðar verði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það eru miklar líkur á að þú
lendir í einhvers konar deilum í
dag. Best væri ef þú gætir
frestað umræðum um mik-
ilvæg málefni fram á föstudag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert ósammála einhverjum
um grundvallaratriði málsins
sem um ræðir. Þetta þýðir ekki
að annað ykkar hafi rétt fyrir
sér og hitt rangt. Þið hafið ein-
faldlega ólík lífsviðhorf.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það þýðir ekkert fyrir þig að
öskra til að ná eyrum annarra í
dag. Tunglið er fullt og það
skapar sambandsleysi á milli
manna. Þetta mun ganga yfir á
einum til tveimur dögum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það þýðir ekkert fyrir þig að
stappa niður fótunum og krefj-
ast þess að þú fáir þitt fram í
dag. Bíddu í nokkra daga og
sjáðu hverju fram vindur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert í skapi til að skemmta
þér þessa dagana. Þig langar
til að daðra, leika þér og fara í
ferðalög.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki setja þig upp á móti for-
eldrum þínum eða öðrum í fjöl-
skyldunni í dag. Bíddu með að
ræða málin fram á föstudag.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MÓÐURMÁLIÐ
Gefðu, að móðurmálið mitt,
minn Jesú, þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt
krossins orð þitt út breiði
um landið hér
til heiðurs þér,
helzt mun það blessun valda,
meðan þín náð
lætur vort láð
lýði og byggðum halda.
Hallgrímur Pétursson
LJÓÐABROT
DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 3. júní, eiga
60 ára hjúskaparafmæli hjónin Gísli Gíslason og Ingibjörg
Níelsdóttir, Hvassaleiti 56, Reykjavík. Þau verða að heiman
í dag.
SUÐUR er gjafari og vekur
á fjórum spöðum. Enginn
hreyfir andmælum og vest-
ur flettir upp hjartadrottn-
ingunni:
Norður
♠G52
♥Á872
♦D43
♣KD3
Suður
♠ÁKD10963
♥1095
♦7
♣G10
Hvernig myndi lesandinn
spila?
Vörnin hefur byrjað vel,
en það er ótímabært að gef-
ast upp. Hugsanlega er
hjartaliturinn stíflaður og
þá er ekki víst að vörnin hafi
samgang til að taka fjóra
slagi. Þar kemur tvennt til
greina: að útspilið sé frá DG
tvíspili eða DGxx. Ef sú er
raunin, ásamt því að lauf-
ásinn sé með tvíspilinu í
hjarta (DG eða Kx), er hægt
að vinna spilið með því að
spila strax tígli og skera á
sambandið í þeim lit:
Norður
♠G52
♥Á872
♦D43
♣KD3
Vestur Austur
♠84 ♠7
♥DG ♥K643
♦Á1052 ♦KG986
♣Á9875 ♣642
Suður
♠ÁKD10963
♥1095
♦7
♣G10
Ef þetta er legan má alls
ekki byrja á því að sækja
laufásinn. Þá á vörnin sam-
gang í tígli og getur tekur
báða hjartaslagina. Sú vörn
er vissulega ekki sjálfsögð
(vestur þarf að spila undan
tígulás), en gæti þó vel fund-
ist.
Spilið kom upp á lands-
liðsæfingu um helgina og
þar var legan allt önnur og
leiðinlegri, hjartað 3-3 og
vörnin tók strax fjóra slagi.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
85 ÁRA afmæli. EðvarðTorfason (Ebbi í
Brautartungu) verðu átta-
tíu og fimm ára mánudaginn
14. júní. Hann tekur á móti
gestum laugardaginn 5. júní
frá kl. 14 í Félagsheimilinu í
Brautartungu.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6
4. Bxc6 dxc6 5. d3 Bg7 6. h3
Rf6 7. Rc3 Rd7 8. Be3 e5 9.
Dd2 De7 10. Bh6 Bxh6 11.
Dxh6 f6 12. Rh4 Rf8 13. O-O
Be6 14. f4 exf4 15. Hae1 O-
O-O 16. Dxf4 c4 17. d4 g5 18.
Rf5 Dd7 19. De3 Bxf5 20.
Hxf5 Dxd4 21. Dxd4 Hxd4
22. Hxf6 Rd7 23. Hf5 He8
24. e5 g4 25. e6 Rf8 26. Re4
gxh3 27. c3 Hd3
Staðan kom upp á of-
urmótinu í Sarajevo sem
lauk fyrir skömmu. Sig-
urvegari mótsins,
Alexey Shirov
(2.713) hafði hvítt
gegn Borki Predoj-
evic (2.490). 28.
Hxf8! Hxf8 29. e7
Hg8 30. g4 Hf3 30. ...
Hxg4+ hefði tapað
eftir 31. Kh1. 31.
Rd6+ Kd7 32.
e8=D+ Hxe8 33.
Rxe8 hvítur er nú
riddara yfir og varð
ekki skotaskuld úr
því að innbyrða vinn-
inginn. 33. ...Hf8 34.
Rg7 Hg8 35. Hd1+
Kc8 36. Re6 Hxg4+ 37. Kh2
b6 38. Kxh3 He4 39. Hd8+
Kb7 40. Hd7+ Ka6 41. Rd4
He3+ 42. Kg4 h5+ 43. Kf4
Hd3 44. Rxc6 og svartur
gafst upp. Lokastaða móts-
ins varð þessi: 1. Alexey
Shirov (2.713) 7½ vinning af
9 mögulegum. 2. Sergei
Movsesjan (2.647) 6 v. 3.–4.
Ivan Sokolov (2.690) og
Viktor Bologan (2.665) 5½ v.
5. Zdenko Kozul (2.627) 5 v.
6. Emir Dizdarevic (2.520) 4
v. 7. Nigel Short (2.712) 3½
v. 8. Borki Predojevic
(2.490) 3 v. 9.–10. Suat Ata-
lik (2.554) og Bojan Kura-
jica (2.540) 2½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
www.lyfja.is
Árangur sem sést. Líkaminn sannar það.
Nýtt. Body Performance
ANTI-CELLULITE visible contouring serum
Loksins er komið fram áhrifaríkt vopn í baráttunni gegn appelsínuhúðinni sem
gerir svo mörgum lífið leitt. Þetta fjölvirka sermi með einstökum hitavaka og
kröftugum jurtakjörnum austan úr Asíu hrekur burtu appelsínuhúðina, hreinlega
bræðir hana. Það styrkir og stinnir húðina og hjálpar til að koma í veg fyrir að
appelsínuáferðin birtist á ný.
Prófanir hafa sýnt konur grennast um allt að 2,5 sm á 4 vikum. Í neytenda-
könnunum reyndust allt að 83% kvenna verða minna varar við appelsínuhúð.
Prófaðu! Líkaminn sem kemur í ljós sannfærir þig.
Glæsileg sólartaska með sólarpúðri fylgir Anti-Cellulite kreminu.*
* Á meðan birgðist endast.
Ráðgjafi frá Estée Lauder verður í Lyfju Smáratorgi í dag frá kl. 13-18,
Lyfju Lágmúla, föstudag frá kl. 13-18, Lyfju Laugavegi, laugardag kl. 12-16,
Lyfju Garðatorgi þriðjudag kl. 13-18, Lyfju Setbergi miðvikud. kl. 13-18.
FIMMTUDAGS-
TILBOÐ
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
BARNAGÚMMÍSTÍGVÉL
breið og góð
Litir: Rauð og
dökkblá
Stærðir: 23-35
VERÐ ÁÐUR 1.295
VERÐ NÚ 695