Morgunblaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 53
ARI Í ÖGRI: Dúettinn Acoustics
föstudag og laugardag.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Hljómsveit
Hjördísar Geirs laugardag kl. 22 til 03.
Caprí-tríó sunnudag kl. 20 til 23:30.
BAR 11: Jan Mayen með tónleika
fimmtudag kl. 21. DJ Hædí föstudag.
DJ Frosti úr Mínus laugardag. Kvik-
myndakvöld: Batman 1966 VS Bat-
man 1989, sunnudag kl. 21.
BÚÁLFURINN, Hólagarði, Breið-
holti: Feðgarnir Hermann Ingi og
Hermann Ingi jr föstudag og laugar-
dag. Sponsi kemur og tekur lagið.
CATALINA, Hamraborg 11, Kópa-
vogi: Örvar Kristjánsson föstudag og
laugardag.
DÁTINN, Akureyri: Dj Andri
fimmtudag kl. 22 til 01. Dj Leibbi
föstudag kl. 00.
DUBLINER: Spilafíklarnir föstu-
dag og laugardag.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Tríóið
Gloss föstudag. Gildrubandið laugar-
dag kl. 23 til 03. Randver, Uppistand-
arinn Beggi blindi. Sixties á dansleik
sunnudag.
FELIX: Doktorinn föstudag. Dj.
Andri laugardag.
FESTI GRINDAVÍK: Kalli Bjarni
og hljómsveit föstudag.
FÉLAGSHEIMILIÐ ESKIFIRÐI:
Papar laugardag.
FÉLAGSHEIMILIÐ PATREKS-
FIRÐI: Papar sunnudag.
GAUKUR Á STÖNG: Han solo og
úlpa með tónleika fimmtudag. Íslenski
Fáninn föstudag. Dozer og Brain Pol-
ice, með tónleika laugard kl. 17 til 20.
Jet Black Joe taka síðan við og spila
inn í nóttina.
GLAUMBAR: Dj Stonar og Dj Vik-
ingur fimmtudag, föstudag og laugar-
dag.
GRANDROKK: Tríó Sigga Flosa
ásamt Þóri Baldurs fimmtudag kl. 22.
Lára, Gummi Jóns og Galeiðan, Day-
sleeper, Lokbrá, 9-11́s KGB föstudag
kl. 21. Maus, Botnleðja, Tenderfoot-
hjálmar, Indigo, Ríkið, laugardag kl.
21. Blúsmenn Andreu sunnudag kl.
22.
GULLÖLDIN: Svensen og Hall-
funkel föstudag til 03. Svensen og
Hallfunkel laugardag kl. 22. Gullöldin
verður 9 ára gömul um helgina og að
því tilefni er efnt til stórdansleikja. Á
föstudaginu er næstsíðasti dansleikur
þeirra félaga Svensen og Hallfunkel.
Á laugardaginu er kveðjudansleikur
þeirra, en þeir hafa skemmt gestum
Gullaldarinnar nær óslitið síðastliðin 7
ár. Við hvetjum alla velunnara þeirra
félaga og Gullaldarinnar til þess að
fjölmenna og taka með sér gesti um
helgina.
H. M. KAFFI, Selfossi: Í svörtum
fötum laugardag kl. 17.
HRESSÓ: Búðarbandið fimmtudag.
Atli skemmtanalögga föstudag og
laugardag.
HVERFISBARINN: Dj Kiddi
Bigfoot föstudag og laugardag.
INGÓLFSTORG: Samtökin Komið
og dansið standa fyrir dansleik sunnu-
dag kl. 14 til 16 í samstarfi við menn-
ingarsveit Hins Hússins. Danstónlist
verður flutt af geisladiskum með há-
talarakerfi og val tónlistar miðað við
að flestir finni eitthvað við sitt hæfi.
JÓMFRÚIN, Lækjargötu: Tríó Sig-
urðar Flosasonar laugardag kl. 16 til
18.
KAPITAL: Kalli og Lelli ásamt Ex-
os fimmtudag. Anonymous, Exos,
Tómas THX, Árni Vector Anonym-
ous, Exos, Tómas THX, Árni Vector
föstudag. c.
KLÚBBURINN VIÐ GULLINBRÚ:
Hljómsveitin Ber laugardag.
KRINGLUKRÁIN: Rokksveit Rún-
ars Júlíussonar föstudag og laugardag
kl. 23.
LAUGAVEGUR 22: Sunboy
fimmtudag kl. 22 til 01. Palli og Biggi
Maus föstudag. Ragnar (Raggi Botn-
leðja) laugardag.
MÚLINN, Hótel Borg: Egg og
Beikon sunnudag kl. 21.
NIKKABAR, Hraunberg 4. : Tveir
Einfaldir föstudag og laugardag.
PAKKHÚSIÐ, Selfossi: Hljóm-
sveitin Ber föstudag.
PLAYERSPORT BAR, Kópavogi:
Stuðmenn föstudag. Sigga Beinteins,
Grétar Örvars & Co laugardag.
PRIKIÐ: Búðarbandið föstudag kl.
20.30 til 23.30.
RAUÐA HÚSIÐ, Eyrarbakka:
Sumarhátíð línudansara laugardag kl.
12.
RAUÐA LJÓNIÐ: Hin frábæra
hljómsveit Hilmars Sverrissonar leik-
ur fyrir dansi um helgina. Ísland-Eng-
land í beinni.
RÁIN, Reykjanesbæ: Hafrót föstu-
dag og laugardag.
REIÐHÖLL Sörla: Hafnarfirði, Sixt-
ies.
SJALLINN, Akureyri: Kúng fú
laugardag til 04.
SJÁVARPERLAN, Grindavík: Í
svörtum fötum laugardag.
STAPINN, Reykjanesbæ: Skíta-
mórall laugardag.
SÆBJÖRG, skip Slysavarnarskóla
sjómanna : Roðlaust og beinlaust
laugardag kl. 13. Í tilefni Sjómanna-
dagsins er fólki að venju boðið að fara í
ferð með Sæbjörgu, í siglingu frá
Reykjavíkurhöfn og verður fyrsta
ferðin farin laugardaginn 5 júní, kl. 13.
Hver ferð stendur yfir í u.þ.b. 45 mín-
útur. Í fyrstu ferð skipsins mun hljóm-
sveitin spila nokkur sjómannalög um
borð en hljómsveitin er skipuð sjó-
mönnum af frystitogaranum Kleifa-
berg ÓF-2 frá Ólafsfirði. Hljómsveitin
gaf nýlega út geisladiskinn Brælublús
sem seldur var til styrktar Slysavarn-
arskóla sjómanna.
VITINN, Sandgerði: Sixties föstu-
dag.
ÝDALIR, Aðaldal: Papar föstudag,
gestir verða hljómsveitin Sent.
FráAtilÖ
Morgunblaðið/Ásdís
Jet Black Joe leikur á Gauknum á laugardag en nýtt lag með sveitinni
verður að finna á Svona er sumarið 2004 sem kemur út í júlíbyrjun.
ÞEIR félagar Sigmar Vilhjálmsson
og Jóhannes Ásbjörnsson, betur
þekktir sem Simmi og Jói, sitja ekki
auðum höndum. Leysa af Audda og
Sveppa í 70 mínútna sumarfríinu og
nú hinn 13. júní nk. hefur göngu sína
á Stöð 2 nýr þáttur með þeim sem
heitið „Auglýsingahlé“. Þættirnir
eru 30 mínútur að lengd og verða
sýndir vikulega næstu níu vikurnar.
Þar munu þeir félagar sýna fyndn-
ar sjónvarpsauglýsingar alls staðar
að úr heiminum. Sérstakur dag-
skrárliður mun svo verða und-
irlagður fyndnum íslenskum auglýs-
ingum. Þættir sem þessir eru ekki
nýir af nálinni en fyrsti þáttur þess-
arar tegundar var franski þátturinn
Pub Culture frá árinu 1987 og síð-
astliðinn vetur var sýndur á Stöð 2
hinn breski Ruby Wax: Commercial
Breakdown, sem einmitt hefur hinn
franska að fyrirmynd. „Þetta er gert
alls staðar í heiminum og flestar
þjóðir eru með slíkan þátt á boð-
stólum og mér til furðu hefur þetta
ekki verið gert hér á landi áður,“
segir Simmi.
Skemmtiþáttur út í eitt
„Þátturinn er skemmtiþáttur út í
eitt og við munum reyna að höfða til
sem flestra. Okkar aðkoma er með
þeim hætti að við opnum þáttinn á
almennum nótum og ræðum eitt-
hvert ákveðið málefni á gam-
ansaman hátt og sýnum í kjölfarið
auglýsingar sem tengjast því mál-
efni. Hinar íslensku auglýsingar eru
alveg sér en rúsínan í pysluendanum
er sú að í lok hvers þáttar sýnum við
eldgamlar íslenskar auglýsingar,
sem á sínum tíma áttu ekkert að
vera fyndnar, en í tímans rás hafa
þær orðið það.“
Við val á íslensku auglýsingunum
fengu þeir Simmi og Jói aðstoð frá
Sambandi íslenskra auglýsingastofa.
„SÍA tók þátt í því með okkur að fá
tilnefningar og allar þær íslensku
auglýsingar sem við sýnum hafa ver-
ið tilnefndar frá íslenskum auglýs-
ingastofum eða íslenskum auglýs-
ingargerðarmönnum. Þetta er ekki
eitthvað sem við grófum upp sjálfir
heldur eru þetta tilnefningar sem við
báðum um að menn myndu senda
inn sjálfir.“
„Í lok seríunnar ætlum við að velja
fyndnustu íslensku auglýsinguna.
Það verður sér þáttur í beinni út-
sendingu og við verðum þá búnir að
velja þær bestu úr þeim auglýs-
ingum sem við sýndum yfir sumarið.
Þær munu verða sýndar í þessum
þætti og besta auglýsingin verður
valin af þjóðinni. Það er í takt við
annað sem við gerum – þjóðin þarf
að taka ákvörðun. Það er nú lenska
um þessar mundir að hafa þjóð-
aratkvæðagreiðslu,“ segir Simmi.
Stjörnuleit á
landsbyggðinni
Þeir Simmi og Jói munu end-
urtaka leikinn og verða kynnar í Idol
stjörnuleit sem sló rækilega í gegn
sl. vetur. Að sögn Simma er und-
irbúningsvinna vegna þáttanna hafin
og innan skamms munu auglýsingar
vegna áheyrnarprófa birtast. „Við
munum fjölga áheyrnarprófunum og
færa okkur meira út á landsbyggð-
ina. Við munum byrja í Reykjavík,
síðan munum við fara til Ísafjarðar,
Vestmannaeyja, Akureyrar og Eg-
ilsstaða. Sem Egilsstaðabúa er mér
þetta mikið hjartans mál,“ segir
Simmi og bætir því við að þeir muni
eflaust enda þar í kökubasar hjá
móður hans.
Simmi og Jói stjórna nýjum sjónvarpsþætti
Þjóðaratkvæða-
greiðsla
í Auglýsingahléi
Simmi og Jói hafa í nógu að snúast en þeir munu stýra þættinum Auglýs-
ingahlé auk þess sem undirbúningur fyrir Idol er hafinn.