Morgunblaðið - 03.06.2004, Blaðsíða 46
DAGBÓK
46 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Olivia kemur og fer í
dag. Cesaria, Laug-
arnes og Árni Frið-
riksson koma í dag.
Helgafell og Goðafoss
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Arnar kemur í dag.
Bootes og Polar Siglir
fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 10 boccia, kl.
13 myndlist. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð. Sími
535 2760.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in, almenn handavinna.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Fyrstu
vikuna í júní er lokað
vegna viðgerða á hús-
næði.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Vinnustof-
an opin miðviku-,
fimmtu- og föstudag
með leiðbeinanda til
15. júní. Púttvöllurinn
opinn. Böðun mánu- og
fimmtudaga. Fótaað-
gerðastofa á mið-
vikudögum, aðra daga
eftir samkomulagi.
Hárgreiðsla alla daga
kl. 9–12
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Karla-
leikfimi kl. 13. Opið í
Garðabergi kl. 13–17.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
videókrókur, kl. 10–
11.30 pútt, kl. 11.20
leikfimi, kl. 13.30
bingó.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Dagsferð í Rangárþing
10. júní, Ferð um norð-
urland 29. júní–3. júlí,
Akureyri, Hofsós,
Grímsey o.fl. Skráning
á skrifstofu félagsins í
síma 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 10.30
helgistund, umsjón sr.
Svavar Stefánsson; frá
hádegi verða opnar
vinnustofur og spila-
salur.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna,
kl. 20 gömlu dansarnir,
kl. 21 línudans. Kl. 9.05
landsmótsæfing.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin alla virka daga frá
kl. 9–17. Handa-
vinnustofan er opin frá
kl. 13–16. Alltaf heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og búta-
saumur perlusaumur,
kortagerð og hjúkr-
unarfræðingur á
staðnum, kl. 10 boccia,
kl. 11 , kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10–11 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl.13.30 fé-
lagsvist. Fótaaðgerðir
virka daga, hársnyrt-
ing þriðju- til föstu-
dags.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 sam-
verustund og leir.
Vesturgata. Kl. 9–
10.30 setustofa, dag-
blöð og kaffi, kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14 að-
stoð v/böðun, kl. 9.15–
15.30 hannyrðir,
kl. 9–10 boccia, kl.
9.30–11.30 skraut-
skrift, kl.13–14 leik-
fimi.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður,
perlusaumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt og bridge.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Opið kl.
9–14. Kl. 9.15 leikfimi,
kl. 10–12 verslunin.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK
Gullsmára spilar í fé-
lagsheimilinu að Gull-
smára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður á
morgun, föstudaginn 4.
júní kl. 10 við Austur-
bæjarskóla (forsýning)
og kl. 14 við Árbæj-
arsafn (frumsýning).
Bandalag kvenna í
Reykjavík. Gróð-
ursetningarferðin
verður mánudaginn 7.
júní, farið frá Hallveig-
arstöðum kl. 17.15.
Skárning í s. 561 5622
Elín Snorradóttir, s.
551 6701 Dóra Ólafs-
dóttir eða s. 551 8577
Lotted Gestsson.
Í dag er fimmtudagur 3. júní, 155.
dagur ársins 2004, fardagar.
Orð dagsins: Enginn kveikir ljós
og byrgir það með keri eða setur
undir bekk, heldur láta menn það
á ljósastiku, að þeir, sem
inn koma, sjái ljósið.
(Lk. 8, 16.)
Á vef Samtaka versl-unar og þjónustu
(SVÞ) birtist í gær pistill,
sem augljóslega beinist
gegn landbúnaðarkerf-
inu.
„Samkeppnislög banna
bæði lóðrétt samráð um
verð o.fl. á milli sölustiga,
t.d. heild- og smásölu, svo
og lárétt samráð, þ.e.a.s.
á milli fyrirtækja á sama
sölustigi t.d. í heildsölu,“
segja SVÞ. „Ef fyrirtæki
á smásölumarkaði kæmu
sér saman um verkaskipt-
ingu, verð og síðan skipt-
ingu tekna sín á milli
þannig að allir kæmu
a.m.k. sléttir út úr rekstr-
inum þá væru þau að
fremja glæp. Ef upp um
þau kæmist mættu fyr-
irtækin og forystumenn-
irnir búast við sektum og
jafnvel fangelsi. Þá mætti
jafnframt reikna með að
þessi fyrirtæki og for-
ystumenn yrðu að þola
bið í fjölda mánaða eða
ára þar til niðurstaða
fengist í mál þeirra hjá
Samkeppnisstofnun.
En það sem einum erkennt er öðrum bent.
Þrátt fyrir endurteknar
athugasemdir og álit
Samkeppnisstofnunar um
skaðsemi opinberrar
verðlagningar mjólk-
urvara á heildsölustigi
fyrir samkeppni og al-
mannahagsmuni hefur
Alþingi nú fullgilt samn-
ing landbúnaðarráðherra
við mjólkuriðnaðinn til
ársins 2012. Þar er
skattfé landsmanna varið
til að viðhalda óskilvirku
framleiðslu- og dreifing-
arkerfi með tæplega 30
milljarða fjárframlagi.
Þetta kerfi skilar ís-lenskum neytendum
ágætum framleiðsluvör-
um á mjög háu verði enda
ekki til að dreifa mikilli
samkeppni við þær. Í
skjóli þessa samnings eru
þarna leyfð vinnubrögð
sem væru brot á sam-
keppnislögum á almenn-
um markaði.
Þeir sem verja þetta
kerfi eru ekki að hugsa
um hagsmuni heildar-
innar, heldur hag fárra
fyrirtækja, sem enginn
virðist eiga og sem ráða
sér sjálf að flestu leyti.
Framleiðendur búvara
virðast ekki telja þau sína
eign og víst er að þeir
reiða ekki klyfjar gulls
frá þeim er þeir bregða
búi og fá greidda eign
sína í þeim.
SVÞ hafa ítrekað bent áað þetta sé óeðlilegt
fyrirkomulag. Þýðing-
armikið sé að sjá til þess
að samkeppni ríki í allri
verslun og það sé ekki
ráðlegt að leyfa einum
það sem öðrum er bann-
að. Þurfi að verja sam-
keppnina sé betra að gera
það með reglum og eft-
irliti um afslætti og und-
irboð en opinberri verð-
stýringu. Aukinn
innflutningur landbún-
aðarvara og niðurfelling
innflutningsgjalda á þær
er brýnt úrræði til að
tryggja samkeppni og
skilvirkni innlendrar
framleiðslu og þar með
lægra verð en nú býðst.“
STAKSTEINAR
Einum kennt,
öðrum bent
Víkverji skrifar...
Víkverji hjólaði um Hvalfjörð ogendaði síðan efst uppi í Borg-
arfirði í sumarbústað um hvíta-
sunnuhelgina. Tekið skal fram að
hjól Víkverja er ekki knúið lífrænum
heldur vélrænum mótor. Víkverji
var þarna að aka í annað sinn um
Hvalfjörð á þessu sumri og hefur
tekið nokkru ástfóstri við þá leið
sem honum þótt oft ægilega leið-
inlegt að keyra fyrir tíma Hvalfjarð-
arganganna þegar endalausar bíla-
lestir mynduðust í lok
umferðarhelga enda víða óhægt um
framúrakstur á leiðinni. Nú er þetta
gerbreytt og hægt að bruna í af-
slöppun og lítilli umferð um fjörðinn
og njóta þeirrar fegurðar sem hann
hefur upp á að bjóða. Og fyrir þá
sem vilja stoppa og fá sér hressingu
er tilvalið að stoppa við Laxá, inni í
botni eða í Ferstiklu þar sem enn er
rekin greiðasala.
x x x
Víkverji upplifði ekkert nema fyr-irmyndarökumennsku og tillits-
semi um helgina þar sem hann brun-
aði ásamt félaga um sveitirnar með
óvenjulegan hlýjan sumarvind í fang
og andlit.
Síðasta spottann, efst í Borg-
arfirði, var ekið eftir svona rétt
þokkalegum malarvegi í átt að
Fljótstungu og hægðu allir bílar á og
viku vel fyrir Víkverja sem ekur
götuhjóli sem ekki er beinlínis gert
fyrir akstur á malarvegum. Á þessu
var engin undantekning og var Vík-
verji hálfsnortinn yfir þessari kurt-
eisi gagnvart mótorhjólamanni sem
þykir ekki beint þægilegt að víkja út
í lausamöl fyrir bílum á mikilli ferð.
Einmuna blíða var uppi í Borgarfirði
og sjálfsagt 15–18 stiga hiti og var
því notalegt fyrir hjólamennina að
hvíla lúin bein í legustólum þegar
komið var í sumarbústaðinn og fara
síðan í heitan pott á eftir, svona til að
skola af sér óhreinindin fyrir góða
grillmáltíð um kvöldið.
x x x
Umferðin var orðin nokkuð þungsíðla dags á mánudag þegar
Víkverji ók til baka til Reykjavíkur.
Nokkuð ljóst var eftir að Víkverji
var kominn niður á hringveginn að
nær samfelld umferð bíla var alla
leið í bæinn og reyndist vera nokkur
röð við Hvalfjarðargöngin. Ekki er
það besta loft sem Víkverji hefur
andað að sér sem mætti honum þeg-
ar hann hjólaði inn göngin og gegn-
um þau og viss feginleiki fylgdi því
að koma út hinum megin fjarðarins.
Víkverji sá að framúrakstur var svo
að segja tilgangslaus eftir að komið
var á hringveginn og ákvað að fylgja
bara umferðarhraðanum sem var þó
minni en hann hefði kosið. Nær allir
bílstjórar virtust ákveða að sýna
sömu þolinmæði og því varð Víkverji
ekki var við hættulegan fram-
úrakstur sem fylgja vill löngum bíla-
lestum.
Morgunblaðið/Golli
Borgarfjörður, Baula í baksýn.
Skriplað
á skötu
SKELFING er það þreyt-
andi að þurfa að hlusta á
menn sem telja sig hátt yfir
aðra hafna og segjast hafa
dvalist langdvölum í öðrum
löndum fara rangt með al-
kunnar alþýðuvísur og
skrumskæla textann. Gísli
Marteinn þáttastjórnandi,
sem er glaður, en ekki síður
sjálfumglaður, ræddi við
kunnan blaða- og fjölmiðla-
mann sl. laugardagskvöld.
Þeim varð báðum tíðrætt
um margra ára dvöl Eiríks
Jónssonar sem fréttaritara
Ríkisútvarpsins í Kaup-
mannahöfn. Samt tókst
ekki betur til en báðir spek-
ingarnir skripluðu á skötu
þegar kom að einni fræg-
ustu söngvísu Dana, Kun
de var en Lørdagaften.
Báðir sögðu Lørdagsaften.
Það er ekkert s í þesari
ljóðlínu. Þetta hefði frétta-
ritari íslenska Ríkisút-
varpsins átt að læra á sjö
ára starfsferli í Höfn. Það
er einkar óviðeigandi hjá
fjölmiðlamönnum þegar
þeir stagast og staglast á
orðinu „Köben“ þegar átt
er við Kaupmannahöfn. Ís-
lendingar sögðu jafnan
Höfn, þegar rætt var um
höfuðborg Danmerkur hér
heima eða meðal Hafnar-
Íslendinga.
Pétur Pétursson þulur.
Flosnál óskast
FLOSNÁL óskast keypt.
866 7535.
Vatnsdalur er í Aust-
ur-Húnavatnssýslu
ÍBÚI í Austur-Húnavatns-
sýslu hafði samband við
Velvakanda og tjáði honum
að Víkverji hefði farið með
rangt mál hinn 27. maí sl. er
hann sagði Vatnsdal vera í
Vestur-Húnavatnssýslu.
Hið rétta er að Vatnsdalur
er ekki í Vestur-Húna-
vatnssýslu heldur í Austur-
Húnavatnssýslu.
Dýrahald
Yndislegur fress
fæst gefins
KELINN, eins og hálfs árs
gamall fress fæst gefins
vegna flutninga. Hann er
svartur að lit. Upplýsingar
í síma 696 0802 eftir kl. 18.
Yndislegan kött
vantar heimili
VEGNA ofnæmis verðum
við að finna nýtt heimili fyr-
ir kisann okkar. Hann er 1
1/2 árs, rauðgulbröndóttur
að lit og yndislega blíður og
góður. Allir nauðsynlegir
fylgihlutir fylgja með hon-
um. Ef einhver góður gæti
hugsað sér að taka hann að
sér þá fást upplýsingar í
síma 867 8640 eða 695 6237.
Gullfallegir kettlingar
fást gefins
TVEIR bröndóttir kett-
lingar fást gefins. Þeir eru
gullfallegir og að auki
kassavanir. Upplýsingar
gefur Lára í síma 694 5368.
Yndislegur kettlingur
fæst gefins
FJÖGURRA mánaða gam-
all svartur högni fæst gef-
ins. Hann er kassavanur,
blíður og góður. Upplýsing-
ar í síma 562 4766.
Gefins köttur
SEX mánaða gamall fress
leitar nú logandi ljósi að
góðu heimili. Upplýsingar í
síma 587 1589 eða 869 3729.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 vafasöm, 4 hand-
sömum, 7 þýðanda, 8
nagdýrs, 9 litla tunnu, 11
svara, 13 fíkniefni, 14
ganga, 15 gljálaust, 17
uppspretta, 20 agnúi, 22
heysáta, 23 fuglar, 24
beiskt bragð, 25 geta
neytt.
LÓÐRÉTT
1 háski, 2 drengs, 3
naum, 4 framkvæmt, 5
seðja hungur, 6 skordýrs,
10 óhreinka, 12 rödd, 13
mann, 15 horaður, 16
munnum, 18 sér eftir, 19
rudda, 20 verma, 21
landabréf.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 uggvænleg, 8 flaut, 9 ragna, 10 net, 11 rétta,
13 auðug, 15 vaska, 18 lifur, 21 frí, 22 staur, 23 tíran, 24
blákaldur,
Lóðrétt: 2 glatt, 3 vatna, 4 narta, 5 eggið, 6 afar, 7 laug,
12 tak, 14 uni, 15 vasi, 16 svall, 17 afrek, 18 lítil, 19
fornu, 20 rann.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html