Morgunblaðið - 03.06.2004, Side 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 45
SUMARKABARETT Sólheima hefst laugardaginn 5.
júní, en í sumar er þriðja sumarið sem Leikfélag Sól-
heima býður upp á söngdagskrá í kaffileikhúsinu Grænu
könnunni alla laugardaga og sunnudaga klukkan fjögur.
Á söngdagskrá sumarsins verða meðal annars lög úr
Latabæ, Hárinu, Grease og eftir sveitina Abba, ásamt
ýmsum sígildum smellum. Fólk er hvatt til að mæta
snemma því allar helgar er troðfullt út úr dyrum og
komast færri að en vilja. Kaffihúsið er opið alla daga frá
hálfeitt.
Vegna frábærrar aðsóknar á leikritið Latabæ hefur
leikfélagið ákveðið að bæta við tveimur aukasýningum á
þessu vinsæla barnaleikriti. Fyrri sýningin er klukkan
þrjú sunnudaginn 6. júní og seinni sýningin klukkan þrjú
sunnudaginn 13. júní. Leikfélagið leggur áherslu á að að-
eins verði um þessar tvær aukasýningar að ræða.
Þá bendir leikfélagið áhugasömum á að panta miða á
leiksýninguna Latabæ svo ekki þurfi frá að hverfa. Hægt
er að bóka miða símleiðis í síma 480 4400 eða með tölvu-
pósti á netfangið anna@solheimar.is.
Þriðja kabarettsumar Sólheima
Sumarkabarett á Sólheimum hefst næstu helgi, en á Sólheimum er iðulega blómlegt menningarlíf.
Kyrjurnar halda tónleika í Versöl-
um, Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn í
dag, fimmtudaginn 3. júní, kl. 20. Á
tónleikunum verða m.a. flutt gosp-
ellög. Aðgangseyrir kr. 1.200.
Númer á aðgöngumiða gildir sem
happdrætti.
Meistarafyrirlestur við lækna-
deild HÍ Í dag, fimmtudaginn 3. júní,
kl 16 mun Sigurður Magnason gang-
ast undir meistarapróf við lækna-
deild Háskóla Íslands og halda fyr-
irlestur um verkefni sitt,
„Spítalasýkingar á gjörgæsludeild“.
Prófið verður í kennslustofu á 3. hæð
í Læknagarði og er Jón Gunnlaugur
Jónasson dósentprófstjóri. Leið-
beinendur voru Karl G. Kristinsson
prófessor, Sigurður Guðmundsson
landlæknir og Þorsteinn Svörfuður
Stefánsson dósent. Prófarar eru Að-
albjörn Þorsteinsson læknir LSH og
Magnús Gottfreðsson dósent.
Málfundur S.u.s. um forsetaemb-
ættið í Iðnó. Samband ungra sjálf-
stæðismanna stendur fyrir málfundi
um forsetaembættið í dag, fimmtu-
daginn 3. júní kl. 12–13 í Iðnó. Fram-
sögumenn verða Birgir Tjörvi Pét-
ursson héraðsdómslögmaður, Ingvi
Hrafn Óskarsson lögfræðingur og
fyrrverandi aðstoðarmaður dóms-
málaráðherra og dr. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson prófessor við
stjórnmálafræðiskor Háskóla Ís-
lands.
Skógarganga skógræktarfélag-
anna verður í dag, fimmtudaginn 3.
júní kl. 20 á Suðurnesjum. Safnast
verður saman á upphafsstað göng-
unnar í Sólbrekkum við Seltjörn. Af-
leggjarinn að Seltjörn er á Grind-
arvíkurvegi, u.þ.b. 1 km sunnan við
gatnamótin á Reykjanesbraut. Þar
er beygt til vesturs, við skilti merkt;
„Seltjörn“. Gengið verður í fylgd
staðkunnugra um skóginn í Sól-
brekkum og yfir í skóginn við Háa-
bjalla og Snorrastaðatjarnir.
Rútuferð verður að Seltjörn kl. 19
frá húsi Ferðafélags Íslands í Mörk-
inni 6 og til baka um kl. 22. Fargjald
er kr. 1.000 fyrir fullorðna (báðar
leiðir). Ókeypis fyrir 14 ára og yngri.
Gangan er í umsjá Skógrækt-
arfélags Suðurnesja og Skógrækt-
arfélagsins Skógfells í Vogum.
Kvöldganga Ungmennasambands
Borgarfjarðar verður í dag, fimmtu-
daginn 3. júní kl 20. Gengið verður
frá Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, niður
í fjöru, fyrir Hrafnabjörgin og út að
Hrafneyri sem var gamall versl-
unarstaður. Gengið með leiðsögn
heimamanna og fræðst um sögu og
umhverfi svæðisins.
Rabbfundur um stjórnmál. Stein-
grímur J. Sigfússon og Katrín Jak-
obsdóttir verða með rabbfund um
stjórnmálin í húsakynnum Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs,
Suðurgötu 3 í Reykjavík í dag,
fimmtudaginn 3. júní kl. 20.
Í DAG
Framkvæmdastjóri 2000
Vegna rangra upplýsinga í frétta-
tilkynningu frá varnarliðinu kom
fram í frétt um viðurkenningu á
störfum Ingólfs Eyfells, sem birtist í
blaðinu síðastliðinn laugardag, að
hann hefði tekið við stöðu fram-
kvæmdastjóra verkfræðistofu varn-
arliðsins á þessu ári. Ingólfur hefur
verið framkvæmdastjóri frá árinu
2000 og hefur varnarliðið óskað eftir
að koma því á framfæri.
LEIÐRÉTT
STEFÁN Jóhannsson fjölskylduráð-
gjafi stendur fyrir námskeiði um
meðvirkni, samskipti, tjáskipti og til-
finningar dagana 4. og 5. júní nk. í
Hallgrímskirkju. Námskeiðið er nú
haldið áttunda árið í röð og segir Stef-
án þau ætíð hafa mælst vel fyrir.
„Það hafa milli 2 og 3000 manns
sótt þessi námskeið síðan við byrjuð-
um með þau. Við tökum fyrir með-
virkni í víðum skilningi, bæði á vinnu-
stöðum og heimilum. Það mætti lýsa
markmiði námskeiðsins með því að
segja að þar læri fólk að verða góður
ráðgjafi fyrir sjálft sig,“ segir Stefán
en auk hans mun Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir fjölskylduráðgjafi vera
með erindi á námskeiðinu.
Námskeið um
meðvirkni
Meistarafyrirlestur við verk-
fræðideild HÍ. Á morgun, föstudag-
inn 4. júní kl. 13.15, heldur Gísli Herj-
ólfsson fyrirlestur um verkefni sitt til
meistaraprófs í rafmagns- og tölvu-
verkfræði. Heiti verkefnisins er:
Svaranir hliðrænna og stakrænna
kerfa og stýringar byggðar á bestun
núlla. Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu 158 í VR–II, húsakynnum verk-
fræðideildar Háskóla Íslands.
Meistaraprófsnefndina skipa Anna
Soffía Hauksdóttir prófessor, sem
jafnframt er aðalleiðbeinandi, Jó-
hannes R. Sveinsson dósent og Jón
Atli Benediktsson prófessor.
Meistarafyrirlestur við verk-
fræðideild HÍ. Á morgun, föstudag-
inn 4. júní kl. 14, heldur Geir Ágústs-
son fyrirlestur um verkefni sitt til
meistaraprófs í vélaverkfræði. Verk-
efnið ber heitið: Hönnunarforsendur
og álag á sjókvíar við suðurströnd Ís-
lands. Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu 157 í VR–II, húsakynnum verk-
fræðideildar Háskóla Íslands.
Leiðbeinendur Geirs voru þeir Sig-
urður Brynjólfsson, prófessor við
véla- og iðnaðarverkfræðiskor verk-
fræðideildar HÍ, Magnús Þór Jóns-
son, prófessor við véla- og iðn-
aðarverkfræðiskor verkfræðideildar
HÍ, og Fjóla Jónsdóttir, dósent við
véla- og iðnaðarverkfræðiskor verk-
fræðideildar HÍ.
Á MORGUN
SLYSAVARNADEILD kvenna í
Reykjavík verður með sína árlegu
kaffisölu um sjómannahelgina.
Laugardaginn 5. júní verður kaffi-
sala um borð í Sæbjörgu er hún siglir
um sundin blá. Boðið verður upp á
vöfflur með rjóma, kaffi og gos.
Sjómannadaginn 6. júní verður
kaffisala í Sæbjörgu og í tjaldi á mið-
bakka Reykjavíkurhafnar. Einnig
verður boðið upp á kaffihlaðborð í
salnum að Sóltúni 20 Reykjavík frá
kl. 13.30–17.
Slysavarnadeild
kvenna í Reykjavík
Kaffisala á sjó-
mannadaginn