Morgunblaðið - 03.06.2004, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00
ELLA
Í ÁLÖGUM
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 8 og10. Sýnd kl. 4 og 6.
Kvikmyndir.com
EINI THX LÚXUS ALUR LANDSINS
Sýnd kl. 5.40, 8, og 10.20. Sýnd kl. 4, 5.20, 8 og 10.40.
Frá meistara spennunnar
Luc Besson kemur Taxi 3.
Frá meistara spennunnar
Luc Besson kemur Taxi 3.
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu mynd sem
stefna öllu lífi á jörðinni í hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður
sést á hvíta tjaldinu! Missið ekki af þessari.
Léttöl
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
kl. 5.50, 8.30 og 11.10.
DV
19.000
manns
á 7 dögum!!!
Sýnd kl. 5.50 og 10. B.i. 16.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
París
Helgarferð 24. júní
frá kr. 39.960
Ein rómantískasta borg Evrópu, áfangastaður elskenda á öllum aldri.
París er líka borg nýjunga, einstakra listviðburða og skemmtana.
París höfðar til listunnenda og allra þeirra sem hafa áhuga á tísku,
hönnun byggingarlist og góðum mat.
Frá kr. 39.960
4 dagar/3 nætur. M.v. tvo í herb. á Villa du
Maine, flug og flugvallarskattar.
Terra Nova bíður upp á úrval hótela
í París, meðal annara:
Villa du Maine** í 14. hverfinu,
Hotel Jardin d´Eiffel*** í 7. hverfinu,
Hotel Villa Lutéce**** í 13. hverfinu og
Íbúðarhótelið Champs de Mars í 15.
hverfinu.
ÞRJÁR myndir koma á leigurnar í
vikunni sem er minna en venjulega
og kannski til marks um að rólegri
sumartíð sé í garð gengin.
Fyrsta ber að nefna íslensku
heimildarmyndina Love is in the
Air eftir Ragnar Bragason. Um er
að ræða mynd sem Ragnar gerði
um hið makalausa ævintýri sem
leikhópurinn Vesturport hefur lent
í með djarfa og frumlega upp-
færslu sína á Rómeó og Júlíu.
Eftir gott gengi á fjölunum hér
heima, varð leikhópurinn þessi ein-
stæða heiðurs aðnjótandi að setja
sýninguna upp í Englandi og er
skemmst frá því að segja að sýn-
ingin og íslensku Shakespeare-
leikararnir slógu rækilega í gegn.
Svo mjög að nú hefur Vesturporti
verið boðið að setja sýninguna upp
í West End þar sem hún verður
sýnd í sumar og fram á haust.
Eins og góðum kvikmyndagerð-
armanni sæmir sá Ragnar sér leik
á borði og ákvað fanga þessi loft-
köst íslensku leikaranna á filmu.
Hann fylgdi leikhópnum þannig
eftir til Englands og fékk að nota
tökuvélina sem flugu á vegg, á und-
irbúningstímanum og fyrstu sýn-
ingum – þar sem margt heims-
frægra andlita mátti finna.
Þessi um margt óvenjulega
heimildarmynd Ragnars þykir hafa
heppnast með miklum ágætum og
voru gagnrýnendur á einu máli um
að hún væri enn eitt merkið um
hversu „góða hluti“ við erum að
gera í heimildarmyndageiranum,
eins og Sæbjörn Valdimarsson
komst að orði í umsögn sinni um
mynd sem skildi við hann í „sól-
skinsskapi“.
Fastir saman (Stuck on You) er
nýjasta myndi Farelly-bræðra,
sem eiga að baki Dumb and Dum-
ber, King Pin og There’s Somet-
hing About Mary, sem allar eru
orðnar sígildar gamanmyndir.
Ekki þykir Fastir saman alveg
standast þeim snúning en þó er
hún uppfull af þessum dásamlega
aulahúmor sem þeir bræður hafa
tileinkað sér en myndin fjallar um
síamstvíbura, leikna af Greg
Kinnear og Matt Damon, sem
halda til Hollywood. Vandinn er
bara sá að einungis annar þeirra
hefur áhuga á að freista þar gæf-
unnar.
Hjólahaukarnir (Biker Boyz) er
eins og nafnið gefur til kynna mót-
orhjólamynd. Laurence Fishburne
leikur aðalhlutverkið en aðrir leik-
arar eru Orlando Jones, Djimon
Hounsou, Lisa Bonet og Kid Rock.
Eins og við var að búast þá rauk
Return of the King beint á topp
myndbandalistans og þær fara inn
á topp tíu Mona Lisa’s Smile og
American Splendor en hún er ein-
mitt ein allra besta mynd síðasta
árs.
Heimsfrægðin
liggur í loftinu
!"#
!"# $
$
$
$
!"# $
!"#
!"#
!"#
!"#
!"#
!"# $
$
!"# $
!"# %
&
%
&
'
&
'
&
%
&
%
&
&
'
&
%
%
&
%
&
!
# $%& ! ' (
$
) #
* +,-./0
1
(
"() 2 3! "
*
!
&1& &&
' 4
Íslensku leikararnir sem svífa á
Shakespeare-línum.
03.06 LOVE IS IN THE AIR
03.06 STUCK ON YOU 03.06 BIKER BOYZ 4.0/10
(IMDB)34/100 (metacritic)
ÚTGÁFA VIKUNNAR
HAMRAHLÍÐARKÓRINN, einn
af sögufrægari kórum landsins, er
á leið til Eistlands í sumar þar sem
hann mun troða upp með söng sín-
um. Nokkrir kórfélagar, sem allir
eru að sjálfsögðu nemar í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð, tóku sig
því til og ætla í kvöld að efna til
söfnunartónleika til að greiða nið-
ur ferðakostnað. Fara þeir fram í
tónleikasal FÍH, Rauðagerði.
Fjórar hljómsveitir koma fram
og innihalda þær allar meðlimi sem
eru og í kórnum. Morgunblaðið sló
á þráðinn til Andra Ólafssonar,
talsmanns tónleikanna, og bað
hann að lýsa sveitunum í snagg-
aralegu máli:
Gaur
„Hér er á ferðinni frumsamið
popprokk. Helgi Rafns, sem var í
Stjörnuleitinni, er í þessari hljóm-
sveit.“
Homos with the homies
„Þetta er hress tökulagasveit
sem spilar erlend dægurlög frá
síðustu öld og reyndar frá þessari
líka.“
Bossasamsteypan
„Eins og nafnið gefur vonandi til
kynna er það bossanova-sveiflan
sem er allsráðndi hér. Sveitin á
það líka til að fara út í nettan
djassbræðing.“
Glymskrattarnir
„Þetta er nú hljómsveitin sem ég
er í. Við munum starfa á vegum
Hins hússins í sumar og heim-
sækja eins margar opinberar
byggingar og við komumst yfir;
sundlaugar, elliheimili og leikskóla
og kæta borgarbúa með spilagleði
og söng. Tónlistin er djass,
bossanova og ýmislegt fleira.“
Styrktartónleikar fyrir Hamrahlíðarkórinn
Fjögur hress bönd
Hljómleikarnir hefjast klukkan
20.00 og er aðgangseyrir 500
krónur sem renna beinustu leið í
tilhlýðilegan ferðasjóð.