Morgunblaðið - 03.06.2004, Page 56
Í KVÖLD hefst mikil menningarhá-
tíð á Grand Rokk og stendur hún
fram á sunnudag. Bókmenntir, tón-
list, kvikmyndir og myndlist munu
leika þar stórt hlutverk og er þétt-
bókuð dagskrá alla daga.
Jón Proppé er skipuleggjandi há-
tíðarinnar og er þetta í þriðja sinn
sem hún er haldin.
„Á laugardaginn verður t.a.m. um-
fangsmikil stuttmyndakeppni þar
sem vegleg peningaverðlaun eru í
boði,“ segir Jón. „Þá verður og
glæpasagnasamkeppni og þegar
hafa borist 40 sögur. Tónleikahald
verður þá með mesta móti eins og
alltaf og myndlistarmenn sem munu
sýna hér eru um 30 talsins, bæði
þekktir og óþekktir.“
Auk þeirra atriða sem talin eru
upp í meðfylgjandi ramma verða
ýmsar uppákomur á hátíðinni. M.a.
geta gestir látið Gulla og Stjána
stjörnur túlka spákort fyrir sig og
Ingi Rafn teiknar myndir af fólki
fyrir hóflega þóknun. Af og til verður
svo grillað í garðinum.
Menningarhátíð á Grand Rokk 3.–6. júní
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hljómsveitin geðþekka, Maus, mun
leika við hvurn sinn fingur á laug-
ardaginn.
Fjölþætt
dagskrá
Morgunblaðið/Kristinn
Heimildarmynd Þorfinns Guðna-
sonar, Hestasaga, verður sýnd á há-
tíðinni.
www.grandrokk.is
56 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í
SNERTINGU
VIÐ TÓMIÐ
Sýnd kl. 5.45, 8.15 og 10.
Tvíhöfði
DV
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6 og 8.
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
Sýnd kl. 5.45, 8, 9 og 10. B.i.14 ára.
B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i
ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA
ÓDAUÐLEGAR HETJUR
GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA
AÐ EILÍFU!
L Í
L J
I LIF
ILÍF !
SV MBL
ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA
ÓDAUÐLEGAR HETJUR
GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA
AÐ EILÍFU!
L Í
L J
I LIF
ILÍF !
B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai , l l , i
SV MBL
Stórviðburður ársins er kominn! Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric
Bana í magnaðri stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA
ÓDAUÐLEGAR HETJUR
GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA
AÐ EILÍFU!
L Í
L J
I LIF
ILÍF !
B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Bana
Stórviðburður ársins er kominn! Brad Pitt, Orlando Bloom og
Eric Bana í magnaðri stórmynd
undir leikstjórn Wolfgang Petersen.
Stórviðburður ársins er kominn! Brad Pitt, Orlando Bloom og
Eric Bana í magnaðri stórmynd
undir leikstjórn Wolfgang Petersen.
i l l i B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG
„THE MUMMY RETURNS“
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.20.
ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA
ÓDAUÐLEGAR HETJUR
GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA
AÐ EILÍFU!
L Í
L J
I LIF
ILÍF !
Útlit myndarinnar er frábært.
Tæknibrellurnar eru fyrsta flokks. Van Helsing er
alvöru sumarpoppkornssmellur sem stendur
fyllilega undir væntingum.
Þ.Þ. Fréttablaðið.
Svakaleg stórmynd um
náttúruhamfarir í sinni mögnuðustu
mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í
hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei
áður sést á hvíta tjaldinu!
Missið ekki af þessari.
4. JÚNÍ
MÖRGUM er eflaust minnis-
stæður flutningur á verkinu
Hrafnagaldur á Listahátíð í
Reykjavík fyrir nokkrum árum, en
því samvinnuverkefni var hrint af
stað meðal annars fyrir djörfung
stjórnenda Listahátíðar. Meðal
helstu atriða á Listahátíð að þessu
sinni var einnig frumlegt sam-
vinnuverkefni og þótt það hafi ekki
náð sömu listrænu hæðum og
Hrafnagaldur var það mjög í anda
Listahátíðar og menningarlegrar
fjölbreytni.
Ísland-Írland var yfirskrift tón-
leikanna í Laugardalshöll síðastlið-
inn laugardag og líklegt verður að
telja að margir hafi ekki áttað sig,
og átta sig kannski ekki enn, á
hvað var hér á seyði. Til útskýr-
ingar má segja að einvalalið írskra
tónlistarmanna kom hingað til
lands að vinna með úrvali íslenskra
tónlistarmanna, ekki bara til að
spila heldur líka til að semja eða
setja saman tónlistardagskrá þar
sem dregnir væru fram sameigin-
legir þættir í tónlistarhefð þessara
eyþjóða, ef þá þætti er þá einhvers
staðar að finna.
Þegar komnir eru saman aðrir
eins spilarar og þeir írsku tónlist-
armenn sem tróðu upp í Höllinni
síðastliðinn laugardag gat ekki
öðruvísi farið en halla myndi á ís-
lensku listamennina eða réttara
sagt íslenska hlutann í þessu sam-
starfi, í það minnsta framan af.
Þegar á leið jafnaðist þetta nokkuð
og undir lokin má segja að náðst
hafi jafnvægi, jafntefli, ef haldið er
áfram með líkinguna sem felst í yf-
irskrift tónleikanna.
Ekki vantaði þó að upphafsstefið
væri nógu íslenskt; Kristín Heiða
Kristinsdóttir flutti nokkur upp-
hafserindi Völuspár við naum-
hyggjulegt og lágstemmt undirspil
hljómsveitarinnar allrar. Henni
fórst það vel úr hendi, þótt varla sé
hún vön að kveða frammi fyrir svo
miklum fjölda sem samankominn
var í Höllinni. Vel til fundið að
byrja tónleikana svo, en erindin
fullmörg, fannst mér.
Íslensku tónlistarmennirnir
stóðu sig afskaplega vel þótt ekki
hafi alltaf mikið borið á þeim. Guð-
mundur Pétursson lék af stakri
snilld að vanda og Pétur Grétars-
son var líka traustur á slagverkið,
þótt ekki hafi verið mikið svigrúm
fyrir hann. Ég saknaði þess að ekki
skyldi heyrast meira í steinhörpu
Páls á Húsafelli.
Steindór Andersen átti svo stór-
leik fyrir hönd Íslands, fádæma
öruggur á sviðinu og í miklu stuði.
Flutningur hans á rímum af Gunn-
ari á Hlíðarenda tókst reyndar
ekki sem skyldi í fyrstu atrennu
því lítið heyrðist til hans, en hann
tók hana aftur sem uppklapp og
gekk þá frábærlega. Einn þriggja
hápunkta kvöldsins var þó þegar
hann flutti rímuna um lækinn í
magnaðri útsetningu Lunnys og
Hilmars.
Írsku lögin sem hljómuðu voru
flest þrælmergjuð danslög og erfitt
að hemja sig í sætinu, ekki síst
þegar síðasta rælasyrpan hljómaði.
(Margir létu sig hafa það að dansa,
til að mynda söngkonan Susana
Baca sem dansaði út alla tón-
leikana, hvort sem það var við rím-
ur eða ræla.) Inn á milli var írskur
tregi og þá heyrði maður helst
samhljóminn með íslenskri mæðu.
Dæmi um það var olnbogapípulagið
Port na bPucai, lag sem fiskimenn
heyrðu í hafvillum. Sumir segja
það hvalasöng en aðrir drauga;
hvort sem er var það einkar fallega
spilað af Ronan Browne. Enn betra
var annað tregaskotið lag sem kom
í kjölfarið, An tír seo, vögguvísa
sem írsk ambátt, nauðug á Íslandi,
syngur yfir barni sínu. Það lag,
sem Donal Lunny samdi, söng Rós-
ín Elsafty svo vel að erfitt er að
lýsa með orðum – ekki er nóg með
að hún sé með frábæra rödd heldur
einnig gríðarlega tilfinningaríka.
Þar var kominn annar hápunktur
kvöldsins.
Eivör Pálsdóttir var svo sér kap-
ítuli út af fyrir sig. Af henni geisl-
aði svo líf og þokki að birti í salnum
og ekki dró úr þegar hún byrjaði
að syngja. Eivör er sannkölluð
stjarna með glæsilega framkomu
og frábæra söngrödd. Eitt þriggja
laga sem hún söng þetta kvöld var
vögguvísan Sofðu unga ástin mín í
snilldarbúningi Lunnys. Eivör
söng lagið af miklu næmi og tilfinn-
ingahita án þess að fara yfir strikið
í túlkuninni. Frábærlega vel að
verki staðið – þar var kominn þriðji
hápunkturinn.
Eins og getið er í upphafi var
grunnhugmynd þessa verkefnis sú
að leiða saman írska tónlistarmenn
og íslenska, en einn enskur slóst í
hópinn, Damon Albarn, sem flutti
vögguvísu eftir sjálfan sig við
stjörnuleik Coru Lunny á fiðlu
meðal annars. Lagið hans Albarns
átti kannski ekki vel heima í því
sem á undan var komið og á eftir
fór, það var ekki eins þjóðlegt ef
svo má segja, en frábært lag engu
að síður og vel flutt – lag sem mun
örugglega fara víða.
Hér hafa verið rakin nokkur þau
atriði sem hæst bar á þessum tón-
leikum að mínu mati, en annað var
líka gott þótt ekki næði það slíkum
hæðum. Samhljómur með mönnum
jókst eftir því sem leið á tónleikana
og líkast til hefði verkið orðið enn
betra ef menn hefðu haft meiri
tíma til að spila sig saman, kynnast
og stilla saman strengi. Ég geri ráð
fyrir að verkið muni taka einhverj-
um breytingum áður en það verður
flutt næst. Eftir stendur að Donal
Lunny er snilldar tónlistarmaður,
snjall útsetjari og skipuleggjandi,
fínn bouzouki-leikari og mikill
hljómsveitarstjóri, og félagar hans,
þá helst Cora Lunny dóttir hans,
sem hefur einkar fagran hljóm í
fiðlu sinni, harmonikkusnillingur-
inn Máirtin O’Connor og fiðlarinn
Cathal Hayden, eru sannkallaðir
virtúósar á hljóðfæri sín.
Áfram Írland!
TÓNLEIKAR
Laugardalshöll
Ísland-Írland, tónleikar í Laugardalshöll á
vegum Listahátíðar í Reykjavík. Fram
komu Donal Lunny, Hilmar Örn Hilm-
arsson, Rósín Elsafty, Noel Eccles, Cath-
al Hayden, Graham Henderson, Ronan
Browne, Máirtin O’Connor, Cora Venus
Lunny, Guðmundur Pétursson, Pétur
Grétarsson, Bryndís Halla Gylfadóttir,
Steindór Andersen, Páll Guðmundsson á
Húsfelli, Eivör Pálsdóttir, Rósa Jóhann-
esdóttir og Kristín Heiða Kristinsdóttir.
Haldnir laugardaginn 29. maí.
Ísland-Írland
Morgunblaðið/Árni Torfason
„Eivör Pálsdóttir var svo sér kapít-
uli útaf fyrir sig. Af henni geislaði
svo líf og þokki að birti í salnum og
ekki dró úr þegar hún byrjaði að
syngja,“ segir í umsögn um Ísland-
Írland tónleikana í Höllinni.
Árni Matthíasson
FIMMTUDAGUR
18.00 Hátíðin sett. Karlakór
Grand Rokk syngur. Listmálarar
byrja að vinna verk á staðnum sem
boðin verða upp í lok hátíðarinnar.
Myndlistarsýning: Kristján Guð-
mundsson, Sigurður Guðmundsson,
Ómar Stefánsson, Vitas Narbautas,
Helga Egils, Halldór Sigurðsson,
Tryggvi Ólafsson, Ásgeir Lárusson.
21.00 Úrslit í glæpasagnakeppni
sem Grand Rokk heldur í samstarfi
við Hið íslenska glæpafélag – sögur
lesnar upp og verðlaun afhent; allir
helstu glæpasagnahöfundar lands-
ins verða viðstaddir.
22.30 Tríó Sigurðar Flosasonar
ásamt Þóri Baldurssyni.
FÖSTUDAGUR
17.30 Hin sívinsæla spurn-
ingakeppni Grand Rokk; Ævar Örn
spyr um glæpi.
19.00 B.G. og Slow Beatles:
Bjöggi Gísla, Lísa Páls, Böggi og
Maggi Einars
22.00 Lára, Gummi Jóns og
Galeiðan, Daysleeper, Lokbrá, 9-
11’s, KGB.
LAUGARDAGUR
13.00 Náttúrulífsmyndin Hesta-
saga eftir verðlaunaleikstjórann
Þorfinn Guðnason sýnd.
14.30 Anna Richards og Ragga
Gísla flytja þrifalegan gjörning í
portinu þar sem gestir geta sólað
sig.
17.00 Hanastél kvikmyndaunn-
andans. Stuttmyndahátíð Grand
Rokk; þriðja árið í röð verða valdar
til verðlauna stuttmyndir sem sum-
ir af helstu kvikmyndagerð-
armönnum landsins hafa framleitt
sérstaklega fyrir keppnina.
22.00 Botnleðja, Maus, Ten-
derfoot, Hjálmar, Indigo, Ríkið.
SUNNUDAGUR
13.00 Kvikmyndasýningar:
Hestasaga eftir Þorfinn Guðnason,
verðlaunamyndir stuttmyndahátíð-
arinnar í ár, verðlaunamyndir fyrri
ára endursýndar.
17.00 Hið árlega bókauppboð
Grand Rokk; bókabéusar staðarins
velja bækur sem almenningi gefst
kostur á að eignast.
18.00 Listaverkin sem unnin
voru á Grand Rokk meðan á hátíð-
inni stóð verða boðin upp.
22.00 Blúsmenn Andreu.
Dagskráin
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930