Morgunblaðið - 21.06.2004, Síða 18
18 C MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Kynntu þér kosti www.hus.is
a
sb
yr
g
i@
a
sb
yr
g
i.
is
•
w
w
w
.a
sb
yr
g
i.
is
•
w
w
w
.h
u
s.
is
3JA HERBERGJA
HÁAGERÐI - RIS
Mjög falleg 54 fm ris íbúð í Hágerði. Húsið
er í mjög góðu standi og íbúðin mikið
uppgerð. Sólríkar suðursvalir. (34196)
Verð: 10,4 millj.
HRAUNBÆR - AUKA HERB.
Mjög góð 3ja herbergja 95,7 fm íbúð með
miklu útsýni, ásamt herbergi í kjallara í
góðu steinklæddu húsi. Nýjar innréttingar
á baði.(til. 34191) Verð: 12,7 millj.
2JA HERBERGJA
SEILUGRANDI - LAUS STRAX
Mjög góð íbúð á 4. hæð í góðu fjölbýli
með stæði í bílageymslu. Fallegt útsýni.
Lyklar eru á skrifstofu Ásbyrgi. Laus
strax. (33745) Tilboð
SUNDAGARÐAR - LEIGA
Til leigu í Olíshúsinu við Sundagarða
160 fm verslunar- og skrifstofuhús-
næði á jarðhæð. Mjög vandaðar inn-
réttingar, stórir verslunargluggar. Hús-
næðið hentar vel fyrir hvers konar
verslun og þjónustu. Nánari upplýsing-
ar veitir Ingileifur Einarsson hjá Ásbyrgi
í síma 568-2444. Laust strax.
SAMTENGD SÖLUSKRÁ SEX FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MINNI KOSTNAÐUR - MARGFALDUR ÁRANGUR
Suðurlandsbraut 54 - við Faxafen - 108 Reykjavík
Sími 568 2444 - Fax 568 2446
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali.
SJÖFN ÓLAFSDÓTTIR SKJALAGERÐ, MARÍA ÞÓRARINSDÓTTIR.
GUNNAR BERGMANN JÓNSSON SÖLUMAÐUR SÍMI 690 3408
GUNNAR HALLGRÍMSSON, SÖLUMAÐUR SÍMI 898 1486
Við erum í Félagi fasteignasala
ATVINNUHÚSNÆÐI
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Köllunarklettsvegur til sölu eða leigu ný-
uppgert skrifstofu og fundarhúsnæði með
fallegu útsýni yfir sundin og til Esju, sam-
tals ca 615 fm. Húsnæðið hentar vel t.d.
fyrir skrifstofur eða félagasamtök. Öll
skipti möguleg, öll tilboð skoðuð. Laus
strax. Allar nánari upplýsingar hjá sölu-
mönnum Ásbyrgi í síma 568-2444.
HAFNARSTRÆTI - SKRIF-
STOFUR
Til leigu eða sölu 94 fm skrifstofupláss á 4.
hæð með miklu útsýni m.a. yfir höfnina.
Herbergin eru með parketi og eða teppi á
gólfum. Góð sameign. Nánari upplýsingar
hjá Ásbyrgi fasteignasölu.
www.hus.is
Nýtt í sölu
Glæsilegar 2ja, 3ja og 4ja herbergja
íbúðir með bílskýli í nýju lyftuhúsi í
Grafarholti. Íbúðirnar skilast fullfrá-
gengnar með eða án gólfefna, inn-
réttingar spónlagðar með eik eða
mahóní, baðherbergi flísalagt með
hita í gólfi. Grasflatir tyrfðar. Bíla-
stæði malbikuð og gangstéttir
steyptar. Teikningar og bæklingar
á skrifstofu Ásbyrgi fasteignasölu.
MARTEINSLAUG 8–16
STÆRRI EIGNIR
STAPASEL
Glæsilegt 201 fm einbýli á fallegum stað
ásamt 37 fm bílskúr og 60 fm aukaíbúð,
auk 20 fm aukaherbergi. Samtals ca 318
fm. Hornhús með miklu útsýni og stórum
garði. Eigninni hefur verið haldið mjög vel
við, lítur mjög vel út. 6 svefnherbergi, 4
baðherbergi, opið eldhús, hátt til lofts.
Falleg eign. (tilv. 33878)
ÞVERÁS - PARHÚS
Glæsilegt 146,9 fm parhús með 24,5 fm
bílskúr á besta stað í Árbæ. Eignin lítur
mjög vel út í alla staði, halógen-lýsing í
lofti, parket á herbergjum, flísar á
baði.(tilv.34026) Verð: 25,9 millj.
HLÍÐARHJALLI - KÓPAVOGUR
Mjög skemmtilegt og fallega innréttað 214
fm einbýlishús á tveimur hæðum með
31,3 fm innbyggðum bílskúr. Frábær stað-
setning, frábært útsýni. (tilv. 33611 Óskað
eftir tilboðum.
REYKJAVÍKURVEGUR
Til sölu eða leigu mjög snyrtilegt iðn-
aðarpláss í Hafnarfirði, gott útipláss.
Plássið er einn stór salur með góðri
kaffistofu og skrifstofu, innkeyrsludyr.
Lóð malbikuð gott útipláss fyrir gáma
eða aðra starfsemi. (tilv. 33629)
LAUST STRAX. Verð: 13,9 millj.
Sumarhús í Grímsnesi Kerengi
Til sölu í Kerengi Grímsnesi mjög
vandaður og fallegur bústaður á 0,9 ha
eignarlóð. Til afhendingar strax. (til
34041)
VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA
Nú vantar okkur allar gerðir eigna á skrá, höfum ákveðna kaupendur að eign-
um í Kópavogi og Árbæ. Við hjá Ásbyrgi komum og metum eignina þér að
kostnaðarlausu, ásamt því að finna eign sem þér hentar. Við erum með sam-
tengdan gagnagrunn sex fasteignasala, þú setur eignina þína í einkasölu hjá
okkur en ferð inn á sameiginlegan grunn hjá HUS.IS. Kynntu þér kosti HUS.IS
og vertu í sambandi við sölumenn okkar.
Slíkt gerir auðvitað ekkinokkur maður, ekki nemahann sé rammur bindind-ismaður, en þá mundi hann
ekki aðeins hella helmingnum í vask-
inn heldur öllu víninu. Nei, líklega
gerir þetta ekki nokkur maður sem á
annað borð kann að meta vín.
En stundum eru menn að kaupa
gæði, fá þau vel útilátin og skeyta
engu um hvort helmingurinn fari í
súginn. Því miður er þetta að gerast
út um borg og bý, bæði hjá þeim sem
eiga digra pyngju sem þeim sem lít-
inn eiga sjóðinn. Þetta er vatnið sem
við kaupum til að hita upp okkar
hallir sem hreysi og þó við hérlendis
búum við einhverja ódýrustu orku til
upphitunar, er engin ástæða til að
sóa því sem keypt er.
Þetta skilja flestir þegar samlík-
ingin er eðalvín og allir ef hún er
brauð. Það kaupir enginn þriggja
korna brauð, étur helminginn og
kastar hinum partinum í sorpfötuna.
En nú er að renna upp sá tími ársins
þegar margir hverjir sóa mestu af
heitu vatni, þetta finnst efalaust
mörgum fjarstæðukennt. En svona
er það samt og á því er afar einföld
skýring.
Úrelt stýritæki
Þessi pistill er ætlaður útvöldum
en í þetta sinn eru þeir ekki fáir,
heldur ætlaður mörgum útvöldum.
Lítið aðeins á myndina af Danfoss
retúrlokanum, þessum gamla vini
okkar hérlendis, en engin þjóð hefur
tekið þennan loka eins upp á arma
sína eins og Íslendingar. Sá gamli
Danfoss retúrloki skal vissulega fá
að njóta sannmælis, hann er búinn
að þjóna okkur lengi og að sumu
leyti vel, hann hefur gert sitt gagn
meðan annað var ekki betra í boði.
Það hafa vissulega verið betri
stýritæki í boði sl. 20 ár, en sá gamli
var búinn að vinna sér slíkan þegn-
rétt að það er ekki auðvelt að losna
við hann. Í samanburði við hann var
það barnaleikur að slíta sig frá landa
hans, kónginum langa Kristjáni 10.,
fyrir sextíu árum síðan.
En þetta á að verða stutt kennslu-
stund um að leggja af sóun, jafnvel
þó húsráðandi ætli að búa við gömlu
Danfoss retúrlokana enn um sinn.
Þá er það fyrsta að líta í kringum
sig, skoða hvort það sé sá gamli sem
ræður ríkjum á þínu heimili. Þá
skaltu leita í kringum ofnana. Ekki
er ólíklegt að hann klúki niður við
gólf við annanhvorn enda ofnsins. Sé
hann þar skaltu slást í hópinn. Það
er nefnilega hægt að nota þrjótinn
sér til gagns, það er að segja ef hann
er í lagi.
Stutt retúrlokanámskeið
Ofan á hausi lokans eru tölur frá 1
- 8. Ef rétt hefur verið gengið frá
lokanum í byrjun, eða þó seinna sé,
ætti ekki að vera hægt að stilla hann
á hærri tölu en 3 en stillingin miðast
við merki inni á miðjum hausnum.
Þessi stilling, 3, merkir að vatnið
getur runnið út af ofninum 40°C sem
er ekki viðunandi, það er illa nýtt.
Ein lúsarleg spurning; hvað oft
breytir þú stillingu lokanna og á
hvað hefur þú þá stillta? Það eru æði
margir sem hreyfa þá aldrei og það
er ekki gott. Þessir lokar eru þeirrar
náttúru að þeir taka ekkert tillit til
hitans í húsinu, þeir stjórnast af hit-
anum á vatninu sem um þá rennur.
Þess vegna eru þeir ekki góðir hita-
stillar, en þeir koma samt í veg fyrir
ofursóun á heitu vatni.
Lágmarkið er að breyta still-
ingum tvisvar á ári, lækka á vorin og
hækka á haustin. Getur það verið að
lokinn sé stilltur á 3 og getur það
verið að hann sé það árið um kring?
Þá skaltu rifja upp söguna um eðal-
vínið og kornabrauðið, það er ekki
ólíklegt að nokkur glös af víni og
margar brauðsneiðar hafi farið í
vaskinn og sorptunnuna.
Það hefur verið sólríkt þessa dag-
ana, sólin vermir láð og lög en geisl-
ar hennar ná einnig inn í hallir sem
hreysi. Þar fáum við mikinn ókeypis
varma og þá koma gallar retúrlok-
anna í ljós; þeir taka ekki tillit til
þess að það er jafnvel orðið yfirheitt
í stofum og öðrum vistarverum. En
retúrlokinn heldur áfram að etja
kappi við sólina og lætur vatnið
renna á sínum hraða í gegnum ofn-
inn sem skilar varmanum frá sér
eins og á köldum jóladegi.
Hvað gerir þú þá? Lækkarðu still-
inguna á lokunum? Að sjálfsögðu, þú
lækkar stillinguna niður á 1 til 2 eða
gerirðu kannski eitthvað allt annað.
Það skyldi þó ekki vera að þú látir
retúrlokana ósnerta, en opnir þess í
stað glugga og auðvitað svaladyrnar,
þær hleypa svo miklum hita út. Nú
er einmitt sá árstími sem fjölmargir
keppast við að kaupa heitt vatn til
upphitunar og þegar hitinn er alla að
kæfa henda þeir hitanum út. Nú
skilurðu dæmisöguna um vínið og
brauðið.
Niðurstaða námskeiðsins er sú að
það er hægt að lifa við það að stýra
hita með retúrlokum á ofnum. En þá
verður sá, sem við það býr, að vita
hvernig þeir virka. Þeir virka þannig
að það er vatnið sem um þá rennur
sem stýrir því hvort þeir opna eða
loka. Þá verður sá hinn sami að vita
hvernig á að nota þá og stilla.
Retúrloka ætti ekki að stilla
hærra (og ætti ekki að vera hægt) en
á 2,5 (35°C út), hærri stilling þýðir
sóun á vatni og í svefnherbergjum
aldrei svo hátt, stilla þar á 1 - 2. Á
vorin ætti að lækka allar stillingar,
niður í 2, en í svefnherbergjum og
öðrum vistarverum á 1 -1,5, hækka
svo aftur í september. Enginn má
taka þessar tölur sem heilagar, þær
eru aðeins leiðbeinandi.
Hver og einn á að hafa þann hita
sem hann óskar, en alls ekki að eyða
til þess meiru af heitu vatni en þörf
krefur. Það er kjarni málsins.
Kaupirðu eðalvín og hellir helmingnum í vaskinn?
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is