Morgunblaðið - 23.06.2004, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.06.2004, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRAMHALDSSKÓLAR á höfuð- borgarsvæðinu eru sumir hverjir þegar búnir að svara nýnemum og hafna þeim um skólavist næsta skóla- ár. Aðrir bíða eftir svörum stjórn- valda um hve mikið fjármagn verður veitt til að mæta mikilli fjölgun nem- enda og aukinni aðsókn. Eins og fram kom í blaðinu í gær vantar skólana nærri 400 milljónir króna miðað við að um 700 nemar fái ekki skólavist sem stendur. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er einn þeirra skóla sem þegar hafa sent nýnemum og öðrum umsækjendum bréf þar sem beiðnum þeirra er svar- að. Alls bárust 713 umsóknir að þessu sinni, þar af 226 frá nýnemum sem luku grunnskóla í vor. Að sögn Krist- ínar Arnalds, skólameistara FB, hafa 497 nýir nemendur verið teknir inn í skólann. Það þýðir að 216 umsækj- endum var hafnað og segir Kristín að nýnemar séu 43 þeirra. Auk skorts á fjármagni og húsnæði sé umsóknum einnig hafnað þar sem nemendur hafi lokið óviðunandi grunnskólaprófi og standist ekki lágmarks inntökukröf- ur. Kristín segir að þetta sé verulegt áhyggjuefni en annars konar vanda- mál en verið sé að glíma við vegna innritunar nýnema. Kristín segir að ákveðið hafi verið að svara umsóknum á tilskildum tíma. Fáist meira fjármagn frá stjórnvöldum verði staðan endur- metin í ágúst næstkomandi, að lokn- um sumarfríum starfsmanna. ,,Við erum illa stödd í húsnæðismálum og ekki eini framhaldsskólinn á höfuð- borgarsvæðinu. Reykjavík hefur set- ið eftir í húsnæðismálum á meðan staðan er allt önnur og betri á lands- byggðinni. En ríki og borg eru að vinna í þessum málum og hafa heitið úrbótum á næstu árum,“ segir Krist- ín. Yngvi Pétursson, rektor Mennta- skólans í Reykjavík, segir að skólinn geti tekið við fleiri nemendum en hann skorti fjármagn til þess. Því sé beðið eftir svörum frá stjórnvöldum áður en umsækjendum sé svarað formlega. Alls bárust MR ríflega 300 umsóknir fyrir næsta ár en Yngvi segir að miðað við núverandi fjár- magn geti skólinn tekið við 164 ný- nemum. Síðastliðið haust hófu 814 nemendur nám í MR. Að sögn Yngva er stefnt að því að geta tekið inn svip- aðan fjölda nýnema og síðasta ár, eða 240 manns. Þetta þýðir að um 60 um- sækjendur fá ekki inni í skólanum, þótt viðbótarfé fáist frá ríkinu. Varðandi húsnæðismál MR vonast Yngvi til þess að ráðist verði í fram- kvæmdir á næstu árum. Eins og fram hafi komið áður sé húsakostur skól- ans bágborinn og brýnna úrbóta þörf. Iðnskólinn hafnar 30 nýnemum Baldur Gíslason, skólameistari Iðnskólans í Reykjavík, segir að mið- að við núverandi stöðu þurfi að hafna umsóknum 30 nýnema úr grunn- skóla. Alls sóttu 180 slíkir um, en Baldur segir skólann aðeins geta tek- ið við 150 nýnemum. Ef allt er talið hafa á sjötta hundrað umsóknir bor- ist Iðnskólanum frá fólki sem vill hefja þar nám næsta haust. Síðasta skólaár voru nemendur í dagskóla um 1.550 en um 2.100 ef kvöldskóli og fjarnám er talið með. ,,Við erum einfaldlega að sníða okkur stakk eftir vexti. Hins vegar má segja að þessi skóli er þannig byggður að ef ákveðið yrði að fjölga í honum þá getum við tekið við fleiri nemendum, ekki síst ef nemendur myndu raðast á þær námsbrautir sem við vildum, segir Baldur. Sumir skólar hafa þegar neitað nýnemum en aðrir bíða svara Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur neitað 216 af 713 umsækjendum um nám ÞREMUR erlendum mönnum, sem komu hingað til lands 6. maí ýmist með stolin eða fölsuð skilríki, hefur verið vísað úr landi og voru tveir þeirra fluttir í lögreglufylgd til Noregs í gær. Þeim þriðja verður fylgt út í dag, miðvikudag. Mennirnir hafa sætt gæsluvarðhaldi frá handtöku þeirra 25. maí. Hafa norsk yfirvöld samþykkt að taka við þeim en ríkisfang þeirra er ókunnugt. Þremur mönnum vís- að úr landi UNGUR maður liggur enn al- varlega slasaður á gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi vegna höfuðmeiðsla sem hann hlaut er hann féll út úr bifreið á ferð skammt norðan Akureyrar aðfaranótt 18. júní. Hefur hann farið í tvær aðgerðir á spítalan- um og er tengdur við öndunar- vél. Hefur líðan hans verið svip- uð undanfarna daga að sögn vakthafandi læknis. Óbreytt líð- an eftir slys UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur beint því til félagsmálaráðuneytisins að það taki mál fyrirtækis, sem hafði kvartað yfir samningi um háhraða- net í sveitarfélagi, til endurskoðun- ar. Segir í áliti umboðsmanns að ráðuneytið hafi ekki uppfyllt ákvæði stjórnsýslulaga um að mál sé nægi- lega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Málsatvik eru þau að fyrirtæki kvartaði yfir því að ráðuneytið hefði með úrskurði hafnað kröfu þess um að ógilda ákvörðun hreppsnefndar um að heimila sveitarstjóra að und- irrita samning við annað fyrirtæki um háhraðanet. Fyrrnefnda fyrir- tækið taldi samninginn ólögmætan og byggði kvörtun sína m.a. á því að hreppurinn hefði brotið gegn rann- sóknarreglu stjórnsýsluréttarins. Félagsmála- ráðuneytið fór ekki að stjórn- sýslulögum HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur dæmdi í gær tæplega fer- tuga konu í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að kinnbeinsbrjóta sextuga konu með hnefahöggi og valda henni miklum augnskaða. Konan var kærð fyrir líkams- árás sem átti sér stað í ágúst 2002 fyrir utan veitingahús við Laugaveg í Reykjavík. Að mati dómsins var árásin fruntaleg og tilefnislaus. Tekið var tillit til þess að hún hafði ekki verið dæmd fyrir hegningarlagabrot frá því á árinu 1997 og að nærri tvö ár voru liðin frá brotinu. Þótti því mega skilorðsbinda refsinguna. Málið dæmdi Pétur Guð- geirsson héraðsdómari. Fruntaleg og tilefn- islaus árás STUTT SAMÞYKKT var á borgarráðsfundi í gær að leik- skólanám fimm ára barna verði gjaldfrjálst að hluta. Næsta haust verður því fimm ára börnum boðið gjaldfrjálst nám í þrjár klukkustundir á dag, en samkvæmt þriggja ára áætlun Reykjavíkur- borgar er stefnt að því að fjölga stundunum í sex. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, segir sjálfstæðimenn hafa samþykkt málið en ekki bók- un R-listans. „Hún gekk út á það að við töldum að þetta væri mikilvægt skref í þá átt að gera leik- skólann gjaldfrjálsan. Það voru hártoganir má segja um túlkun á því orðalagi hvort þetta þýddi að stefnan væri ekki að hafa allan leikskólann gjaldfrjálsan, eða fimm ára börnin eins og við höf- um í raun gert ráð fyrir í þriggja ára áætlun Reykjavíkurborgar núna.“ Árni segir að sjálf- stæðismenn hafi viljað fá frekari útskýringu á bókuninni og skilið hana á þann veg að R-listinn væri að boða það að allur leikskólinn ætti að vera gjaldfrjáls. „Við gáfum ekkert svo sem sérstak- lega út á það. Við sögðum bara að við værum að fagna því að þetta skref væri tekið og að það væri mikilvægt jafnræðismál að fólk gæti átt kost á leikskóladvöl, óháð efnahag, fyrir sín börn. Þetta er auðvitað skref í þá átt en við höfum ekki tekið aðra pólitíska ákvörðun en þá að byrja á fimm ára börnunum í okkar langtímaáætlun. Það má segja að auðvitað væri það æskilegt ef leikskólinn gæti fallið eins og grunnskólinn undir það að vera gjaldfrjáls, svona til framtíðar litið,“ segir Árni. Borgarráð samþykkir að gera leikskólanám gjaldfrjálst að hluta Fimm ára börnum boðið gjald- frjálst nám í þrjár stundir TJALDAPAR hefur hreiðrað um sig með unga á fjórðu hæð litla turnsins í Kringlunni. Einar Guðmundsson lækn- ir sem rekur læknastofu í turninum, hefur verið að fylgj- ast með parinu en segist einnig hafa séð að sandlóupar hefur komið sér fyrir á þakinu fyrir ofan Kringlubíó. Ein- ar gerir að gamni sínu og segir að ástæðan fyrir búslóða- vali sandlóunnar sé „sennilega kvikmyndaáhugi“. Hann segir að mikið fuglalíf sé í kringum Kringlusvæðið t.a.m. sé talsvert líf í kringum Borgarleikhúsið og segir Einar hafa séð starra koma sér upp hreiðri á þakinu undir bár- unum. Morgunblaðið/Jim Smart Fuglalíf viðKringluna 22 ÁRA maður játaði fyrir dómi í gær að hafa framið vopnað bankarán í útibúi Búnaðar- banka Íslands við Vesturgötu 17. nóvember á síðasta ári. Ríkissaksóknari hefur ákært manninn og 26 ára félaga hans og var málið þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær. Eldri maðurinn er sakaður um að hafa ekið meðákærða umrædd- an dag og útvegað honum lambhúshettu og hníf. Neitaði hann sök að öðru leyti en því að hann játaði aksturinn. Í ráninu var gjaldkera ógnað með hnífnum og hvarf ræning- inn á brott með 430 þúsund krónur. Allt að 16 ára fangelsi liggur við bankaránum skv. 252. gr. almennra hegningar- laga og krefst ríkissaksóknari refsingar yfir báðum mönnun- um. Aðalmeðferð málsins hefst 21. september. Játar á sig vopnað bankarán ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti í gærkvöld stúlku sem hafði slasast á hnjálið í Landmannalaugum. Var þyrlan að lenda þegar haft var sam- band við Landhelgisgæsluna, skömmu fyrir klukkan 23 í gær- kvöld. Torfært var um landleið og því var óskað eftir þyrlu. Slys í Land- mannalaugum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.