Morgunblaðið - 23.06.2004, Side 12

Morgunblaðið - 23.06.2004, Side 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ SÉRFRÆÐINGAR í greiningar- deildum Landsbanka og Íslands- banka telja litlar líkur á því að al- mennar lækkanir verði á fasteignamarkaði á næstunni. Ný- skipaður yfirhagfræðingur Seðla- banka Íslands er sama sinnis en seg- ir að verðið muni lækka, þó óvíst sé hvenær. Sérfræðingur á greiningar- deild KB banka segir að þróunin á fasteignamarkaði veki áhyggjur. Morgunblaðið hafði samband við sérfræðinga bankanna í tilefni af niðurstöðum Axels Hall og Tryggva Þórs Herbertssonar, sem eru starfs- menn Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Þeir komust að þeirri nið- urstöðu í grein sem þeir skrifuðu og birt var í Morgunblaðinu síðastliðinn mánudag, að ekki sé eignaverðsbóla á húsnæðismarkaðinum. Þá telja þeir að hverfandi líkur séu á al- mennum lækkumum á fasteigna- verði. Óvissa í lok framkvæmda Arnór Sighvatsson, yfirhagfræð- ingur Seðlabanka Íslands, segist vera sammála því mati að ekki sé líklegt að fasteignaverð muni al- mennt lækka hér á landi á næstu ár- um. Hugsanlegt sé þó að bakslag komi í ráðstöfunartekjur fólks þegar hinum miklu framkvæmdum sem nú standa yfir lýkur. Það gæti kallað fram lækkun á fasteignaverði. Arnór segir að einn mælikvarðinn til að meta hvort fasteignaverðs sé orðið hátt sé að skoða hlutfallið á milli fasteignaverðs og bygginga- kostnaðar. Samkvæmt honum sé fasteignaverðið orðið mjög hátt. Annar mælikvarði sé svo saman- burður á fasteignaverðsþróun og tekjuþróun. Á þeim mælikvarða sé fasteignaverðið ekki eins hátt. Hann segir að samspilið á milli framboðs og eftirspurnar skipti miklu máli. „Fjárfesting í íbúðarhús- næði hefur aukist verulega á síðustu tveimur árum. Í dag er verið að byggja á forsendum þess háa verðs sem er á húsnæði nú. Til þess getur komið fyrr eða síðar að verðið lækk- ar. Hvort það gerist með nafnverðs- lækkunum eða raunlækkunum á löngu tímabili liggur ekki fyrir. Dæmi eru um hvort tveggja.“ Arnór segir líklegt að að því muni koma að fasteignaverð lækki. Að- stæðurnar muni þá hafa mikið að segja um hvort afleiðingarnar verði alvarlegar eða ekki. Stuttur sam- dráttur þurfi þó ekki að hafa alvar- legar afleiðingar í för með sér. Aukið lánsfé hækkar verð Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu- maður greiningardeildar Lands- bankans, segir að deildin hafi birt ít- arlega greiningu á fasteigna- markaðnum í byrjun mars. Þar hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að verðbóla hafi ekki myndast hér á landi og lækkunarhrina sé því ekki í spilunum. Henni sýnist að niður- staða þeirra Axels og Tryggva Þórs sé sú sama. Þeir horfi þó bæði framhjá auknu framboði nýbygg- inga og væntanlegum breytingum á lánafyrirgreiðslu Íbúðalánasjóðs. Það takmarki gildi greiningarinnar varðandi mat á núverandi stöðu. Aukið framboð nýbygginga dragi úr verðhækkunum, en aukið framboð lánsfjár hækkar fasteignaverð. Lík- legt sé að næstu misserin muni áhrif lánsfjárins yfirgnæfa áhrif nýbygg- inganna og fasteignaverð því halda áfram að hækka. Edda Rós segir að frá því grein- ingardeildin gaf út greiningu sína hafi fasteignaverð hækkað um 5,4% sem jafngildi 21% hækkun á árs- grundvelli. „Svo mikil hækkun stenst auðvitað ekki til lengdar og með sama áframhaldi getur hæglega myndast verðbóla. Mér þykir því lík- legt að Seðlabankinn hækki vexti meira á næstunni en gert hefði verið ef meiri ró væri yfir fasteignamark- aðnum. Aðgerðir Seðlabankans ættu að draga úr hættu á að verðbóla myndist,“ segir Edda Rós. Óvissa í lok árs Ásgeir Jónsson, hagfræðingur greiningardeildar KB banka, segir að fasteignaverð hafi sjaldan verið hærra sem hlutfall af launum en nú. Sú staða geti ekki verið varanleg. Til að ná aftur jafnvægi verði laun að hækka hraðar en fasteignaverð. Slíkt gæti reyndar vel gerst. Það verði þó að teljast áhyggjuefni að þróunin virðist stefna í þveröfuga átt. Töluverður þrýstingur sé enn til staðar á hækkun fasteignaverðs, en dregið hafi heldur úr launahækkun- um. Flest bendi til þess að laun muni ekki hækka mikið umfram það sem samið var um í síðustu kjarasamn- ingum. Af þeim sökum veki þróunin á fasteignamarkaði fremur áhyggjur en punktstaðan nú. „Þá verður að hafa í huga að sam- anburður launa og fasteignaverðs veitir aðeins upplýsingar um lang- tímajafnvægi. Þegar til skemmri tíma er litið er það fyrst og fremst samspil framboðs og eftirspurnar sem ræður verðinu. Flest bendir nú til þess að töluvert af nýju húsnæði sé að koma inn á markaðinn og spurning hvort nægjanleg eftir- spurn muni vera til staðar til þess að taka við þegar líður á árið,“ segir Ásgeir. Vísbendingar fremur en sönnur Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningar Íslandsbanka, segir að í riti um þróun eignaverðs sem deild- in gaf út í lok maímánaðar hafi þeirri spurningu verið velt upp hvort verð- bólga væri á innlendum íbúðamark- aði um þessar mundir. Niðurstaðan hafi verið að svo væri ekki og að fátt bendi til þess að skarpar verðlækk- anir séu framundan. Þvert á móti bendi flest til þess að hækkanir á íbúðaverði séu á næsta leiti, knúnar áfram af auknum kaupmætti, auknu framboði lánsfjár og tiltölulega lág- um langtímavöxtum. Ingólfur segir að sú staðreynd að raunverð íbúðarhúsnæðis standi sögulega hátt um þessar mundir segi lítið sem ekkert um hvernig það muni þróast eða hvort verðbóla sé á markaði. Mun réttara sé að bera saman þætti eins og markaðsverð íbúðarhúsnæðis og byggingarkostn- að að viðbættu lóðaverði. Sé verð- bóla á markaðinum muni framboð af nýju húsnæði aukast og draga verð- ið niður. Segir hann fátt benda til þess að munurinn sé mikill um þess- ar mundir og að framboð nýbygg- inga verði það mikið á næstunni að það skrúfi niður íbúðaverð almennt. Þá segir Ingólfur að hlutfall launa og íbúðaverðs bendi ekki til þess að verðbóla sé á innlendum íbúðamark- aði. „Að öllu þessu sögðu verður þó að reka þann fyrirvara að þó að ofangreindar aðferðir bendi ekki til þess að verðbóla sé á íbúðamarkaði er hér fremur um vísbendingar að ræða en sönnur. Aðferðir sem skera úr með fullri vissu um hvort slík bóla sé til staðar eru ekki til,“ segir Ing- ólfur. Lækkun fasteignaverðs ekki líkleg á næstunni Sérfræðingar greiningardeilda bankanna og hjá Seðlabankanum eru almennt sömu skoðunar og starfsmenn Hagfræðistofn- unar um að litlar líkur séu á því að almenn- ar lækkanir verði á fasteignamarkaði á næstunni. Þó heyrast efasemdir. Morgunblaðið/ÞÖK Mismunandi mælikvarðar Fasteignaverð er hátt í samanburði við þróun byggingarkostnaðar en ekki eins hátt í samanburði við tekjuþróun, að sögn nýskipaðs yfirhagfræðings Seðlabanka Íslands. ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI                           !"  # $ #%  &' (  ) %  * #%  $ # +, +,#, -' & ,( . /, .   -"(, '%0 .  ! ! /!(1 /0 2       ( ("(, '(3' -  ! $ # -"(, '(0   -', !  !  # 4 ( 5  ! 5 %3( ! 5 %! 6 !%0 5!(1  0 7/(  8!%   )#% ) ' *9( *9( : ! ;</, .$- .9#   ." (3' .! # .: = ' =1'' ' ! ! >  ! 7  0  .:%,'   ! "#$#  % - ,# ?1(! * #9 $ # . "  =: (: >" 1'' '(3' $ # .9!   !0,!              @ @   @  @   @   ,1 ' (" (1  !0,!   @      A BC A  BC A BC A BC A BC A BC A BC A  BC A BC A BC A BC A  BC A BC A  BC A BC A BC A @BC A BC A BC A BC A BC 5, # !  #'  = % ! 9   #'D ) . 0  0 0  0 0  0 @ 0 0 0 0 0@ 0 @ @@0   @0@ 0  0 0  0      0              @ @    @  @  @          @                            @ @  @  @    @          > !  9 E60 0 - #  !                    ● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði enn í dag og náði sínu hæsta lokagildi frá upphafi. Vísitalan endaði í 2.957 stigum og hækkaði um 1,1%. Það sem af er júnímánuði hefur vísitalan hækkað um 11%. Hækkunin varð mest á bréfum Mar- el hf. en þau hækkuðu um 6,32%. Eyrir fjárfestingarfélag ehf. jók tals- vert hlut sinn í félaginu í dag og á nú 7,60% hlutafjár í Marel. Ekki urðu markverðar hreyfingar á mörkuðum úti í heimi. Banda- rísku vísitölurnar hækkuðu eilítið, en flestir markaðir í Evrópu lækk- uðu, að þeim danska undanskild- um. Eyrir ehf. kaupir 6,56% hlut í Marel hf. ● MEÐALLAUN landsmanna gerðu lítið meira en halda í við verðbólguna á milli apríl og maí í ár, en bæði vísi- tala neysluverðs og launavísitala hækkuðu um 0,8% á tímabilinu. Kom þetta fram í tölum sem Hag- stofan birti í gær. Í Morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka í gær kemur fram að á síðustu tólf mánuðum hafi laun hækkað að meðaltali um 4,6%, en verðbólga á sama tíma mældist 3,2%. Hefur hún því étið upp nær 2⁄3 hluta allra launahækkana sem orðið hafa síðastliðna tólf mánuði. Af þessum sökum hefur kaupmáttur vaxið tiltölulega hægt að undanförnu eða um 1,4% á síðustu tólf mán- uðum. „Hægur vöxtur kaupmáttar hefur þó ekki aftrað því að heimilin hafa aukið útgjöld sín hratt að undanförnu og hafa þau fjármagnað bilið með lántökum,“ segir að lokum í Morg- unkorninu. Laun rétt halda í við verðbólgu ● GUNNAR Thoroddsen hefur verið ráðinn bankastjóri Landsbanka Lux- embourg S.A. frá 1. júlí næstkom- andi. Á sama tíma lýkur tíma- bundnum ráðn- ingarsamningi nú- verandi bankastjóra, Tryggva Tryggva- sonar, sem hverfa mun aftur til fyrri starfa hjá Landsbanka Ís- lands hf. í Reykja- vík. Gunnar er 34 ára lögfræðingur með meistarapróf frá Duke-háskóla í Bandaríkjunum og MBA frá Háskól- anum í Reykjavík. Hann hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri Hamla hf., dótturfélags Landsbanka Íslands og sem forstöðumaður sér- tækra útlána hjá höfuðstöðvum bankans. Nýr yfirmaður Lands- banka í Lúxemborg Gunnar Thoroddsen ● HLUTHAFAR í bresku versl- unarkeðjunni Londis, en þeir reka jafnframt verslanir keðjunnar, sam- þykktu með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að taka 60 milljón sterl- ingspunda yfirtökutilboði Musgrave. Í tilkynningu Londis Holdings Ltd segir að af þeim 1.626 hluthöfum sem atkvæði greiddu á fundinum hafi 97,36 af hundraði verið fylgjandi því að kauptilboðinu yrði tekið. Hver hluthafi fær í sinn hlut um 31.000 sterlingspund, eða um 4,1 milljón ís- lenskra króna. Londis-keðjan seld ;#F .GH   B B -=.? IJ     B B KK &+J     B B )-J ; ,    B B LK?J  I M 8 ,     B B

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.