Morgunblaðið - 23.06.2004, Side 15
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Sveitarstjóri Vestfjarða | Heimamað-
urinn Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps, sigraði í keppni um tit-
ilinn Sveitarstjóri Vest-
fjarða sem haldin var á
Bryggjudögum í Súða-
vík síðastliðinn laug-
ardag. Sagt er frá úrslit-
unum á vef
Súðavíkurhrepps.
Ásdís Leifsdóttir,
sveitarstjóri Hólmavík-
urhrepps, hafnaði í öðru
sæti en Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar, lenti í því þriðja. Lestina
ráku Einar Pétursson, bæjarstjóri Bolung-
arvíkur, og Einar Örn Thorlacius, sveit-
arstjóri í Reykhólahreppi. Fulltrúar ann-
arra vestfirskra sveitarfélaga sendu ekki
keppendur til leiks. Sveitarstjórarnir leystu
fjölbreyttar þrautir sem aðstandendur
keppninnar töldu reyna á svipaða hæfileika
og að stjórna sveitarfélagi. Meðal annars
glímdu þeir við að þræða fíngerðar nálar,
sem ef til vill er vísun í glímuna við fjármál
sveitarfélaga, pilla 300 grömm af rækju og
teikna Íslandskort.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Sýning | Kristinn G. Harðarson mynd-
listarmaður opnaði sýningu í galleríi
Klaustri 11. júní sl. Á sýningunni er verk
í ellefu hlutum frá 1992–1993, svipmynd-
ir úr almenningsgarðinum Walnut Hill
Park í New Britain, Connecticut í
Bandaríkjunum, en Kristinn bjó í ná-
grenni garðsins um árabil. Þá sýnir
Kristinn einnig nokkrar bækur sem hann
hefur unnið upp úr dagbókum er hann
hefur haldið undanfarin 20 ár. Sýningin
er opin á sama tíma og hús skáldsins,
milli kl. 10 og 18 alla daga, og stendur til
30. júní nk.
Klifruðu í 11 tíma | Krakkarnir úr Björg-
úlfi, unglingadeild Björgunarsveitar Hafn-
arfjarðar, fóru í klifurmaraþon síðastliðinn
laugardag. Klifrað var í ellefu klukkustund-
ir á klifurvegg Fimleikafélags Bjarkanna í
Hafnarfirði. Var þetta einn liður í fjáröflun
þeirra fyrir ferð sem áætluð er til Sviss í
ágúst, en þar munu krakkarnir dvelja í æf-
ingabúðum og læra margt um björgunar-
störf. Söfnuðust nokkur áheit á þetta klif-
urmaraþon.
Jón B.G. Jónssonsagði af sér trún-aðarstörfum fyrir
bæjarstjórn Vest-
urbyggðar á síðasta fundi
bæjarstjórnar. Hann er
fluttur úr bæjarfélaginu.
Guðmundur Sævar Guð-
jónsson var kjörinn for-
seti bæjarstjórnar í hans
stað.
Á fundinum voru Jóni
þökkuð vel unnin störf í
þágu bæjarfélagsins.
Kolbrún Pálsdóttir
bæjarfulltrúi vildi láta það
koma fram við þetta tæki-
færi að það væri fyrst og
fremst Jóni að þakka að í
Vesturbyggð væru risin
tvö íþróttahús. Einnig að
sveitarfélagið, sem hefði
verið eitt af þeim verst
stæðu, væri nú komið í
flokk best settu sveitarfé-
laga landsins.
Kolbrún og Guðmundur
Sævar af D-lista voru kos-
in í bæjarráð og Sigurður
Viggósson fyrir hönd
Samstöðu.
Nýr forseti
Selfoss | Gunnar Gränz
myndlistarmaður sýnir
verk sín í húsnæði Trygg-
ingamiðstöðvarinnar að
Austurvegi 6 á Selfossi.
Gunnar sýnir 23 vatns-
litamyndir frá ýmsum
stöðum á landinu. Sýn-
ingin er opin á afgreiðslu-
tíma TM, klukkan 9 til 16.
Gunnar Gränz sýnir
hjá TM á Selfossi
Á dögunum vargrennslast fyrirum höfunda koní-
aksvísna og barst svar frá
Eddu Magnúsdóttur: „„Ja
hérna hér," sagði hún
amma mín stundum þeg-
ar hún varð standandi
aldeilis hlessa. Þannig fór
fyrir mér í dag." Hún seg-
ir vísurnar eftir sig og
Sigurð Guðmundsson,
æskuvin sinn frá
Kirkjubóli, sem fallinn er
frá fyrir nokkrum árum.
Hún hafi veðjað um það
við Sigurð að hann fengi
fólk út á dansgólfið með
því að spila "Kokkinn".
Hún hafði rétt fyrir sér
og eignaðist þar með sína
fyrstu vínflösku. Hún
stríddi honum þegar
greiðslurnar drógust og
sagði tíðkast erlendis að
greiða vexti af koníaks-
skuldum.
„Nokkrum dögum seinna
kom drengur ríðandi með
koníakspela í ullarsokk til
mín og framhaldið veistu.
Utan það að Siggi fékk
nákvæmlega útmælda tíu
dropa úr pelanum í hvert
sinn sem hann kom í
heimsókn meðan mjöð-
urinn entist.“
Koníaksvísur
pebl@mbl.is
Ólafsvík | Færeysku dagarnir í Ólafsvík
verða haldnir nú um næstu helgi í sjötta
skiptið. Hefur aðsókn aukist á hverju ári
og er nú ein af stærstu útihátíðum á
landinu.
Á síðasta ári voru komnir saman í
Ólafsvík um átta
þúsund gestir, og
von er á svipuð-
um fjölda í bæinn
um næstu helgi,
Verður dag-
skrá að venju
með fjölbreyttu
sniði, jafnt fyrir
börn sem full-
orðna. Sumarhá-
tíðin Færeyskir
dagar í Ólafsvík
var fyrst haldin í
ágúst árið 1998.
Upphafið að henni var sú að þrír Fær-
eyingar og makar þeirra sem búa í
Ólafsvík tóku sig saman veturinn 1998
og hófu undirbúning ásamt öðru fólki úr
Ólafsvík.
Það er engin tilviljun að þessi hátíð
hafi verið tileinkuð Færeyingum. Fær-
eyingar tóku mikinn þátt í að byggja
Ólafsvík upp. Á árunum frá 1954 og til
alveg til ársins 1980 komu Færeyingar
til starfa á vertíðarbátum frá Ólafsvík.
Flestir voru þeir árið 1958. Það ár voru
um 120 Færeyingar í Ólafsvík eða um
nær 20% af bæjarbúum og settu þeir
mikinn og góðan svip á bæinn.
Færeyskir
dagar í
Ólafsvík
Eskifjörður | Ganga á til samninga við
byggingafyrirtækið Viðhald fasteigna um
stækkun Grunnskóla Eskifjarðar. Er það
síðasti áfangi í stækkun skólans, nú um ríf-
lega 200 fermetra, og verður þar vinnuað-
staða kennara og stjórnunarrými. Viðhald
fasteigna bauð tæplega 45 milljónir í verk-
ið, en Dalhús ehf. bauð nokkru hærra, eða
um hundrað þúsund krónum. Kostnaðar-
áætlun nam 41,7 milljónum króna.
Grunnskólinn
stækkaður
♦♦♦
Egilsstaðir | Sankti Bernharðs-
-hundurinn Brandý vekur hvar-
vetna athygli sökum stærðar
sinnar og koníakslitarins á feld-
inum. Hún ferðast gjarna um í
stórum jeppa með eigendum
Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum á
dögunum, í för með Arneyju
Einarsdóttur, sem átti á köflum
fullt í fangi með að sannfæra
tíkina um að þær tvær þyrftu að
eiga samleið.
sínum og þykir stærð farartæk-
isins fara þessari stórkostlegu
tík vel, þar sem hún hreykir sér
í aftursætinu, veraldarvön og
hnarreist.
Brandý var á fótboltaleik á
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Brandý í boltanum
Samleið