Morgunblaðið - 23.06.2004, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 23.06.2004, Qupperneq 26
MINNINGAR 26 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Svafa HildurHalldórsdóttir fæddist á Hnausum í Breiðuvík á Snæ- fellsnesi 18. desem- ber 1912. Hún andað- ist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Eir 27. maí síðastlið- inn. Hún var áttunda af sautján börnum Kristjáns Pálssonar bónda (1880–1962) og Danfríðar Brynj- ólfsdóttur konu hans (1883–1958). Svafa var fóstruð (og síðan ættleidd) 12 daga gömul til Hall- dórs Eyjólfssonar, búfræðings og kennara, og Guðlaugar Gísladótt- ur rjómabússtýru. Þau bjuggu í Hólmi á Mýrum í Austur-Skafta- fellssýslu. Svafa ólst upp með þremur fóstursystkinum: Sigur- laugu, Tryggva og Sigríði. Svafa bjó í Hólmi þar til hún kynntist eiginmanni sínum Hjalm- ar Willy Juliussen árið 1943. Hann fæddist 19. júlí 1921 í Nor- egi og lést 10. janúar sl. í Reykja- vík Þau bjuggu í Reykjavík allan sinn hjúskap. Willy starfaði lengst af við sænska sendiráðið í Reykja- vík. Svafa starfaði mörg ár við kjóla- saum. Svafa og Willy eignuðust tvær dæt- ur: Dóru Sigurlaugu 14. maí 1945 og Önnu Karinu 1. maí 1946. Dóra er fé- lagsráðgjafi, gift Karli Marinóssyni félagsráðgjafa, f. 23.5. 1944. Þau eiga synina Hjálmar, f. 24. mars 1987, og Egil, f. 30. maí 1990. Anna Karin er fé- lagsráðgjafi, gift Guðmundi Kristjánssyni hæstaréttarlög- manni, f. 20.2. 1946. Anna á tvo syni með Ingibergi Elíassyni: 1) Eirík Stein, f. 18. desember 1965, kvæntur Susanne B. Götz, f. 7. mars 1966. Börn: Jóhannes Davíð, Kristján Daníel og Símon Alex- ander. 2) Ragnar, f. 17. mars 1972, kvæntur Sigríði Ólafsdótt- ur, f. 21. október 1965. Börn: Geri og Vilji. Sigríður á dóttur, Elísa- betu Ellertsdóttur. Svafa Hildur Halldórsdóttir var jarðsungin frá Laugarneskirkju 18. júní. Mamma var fædd undir Snæfells- jökli og alin upp undir Vatnajökli. Í hennar persónuleika voru nokkr- ir skýrir drættir: Listfengi sem kom fram í blýantsteikningunum hennar af konum og hestum og fallegu kjól- unum sem hún saumaði og postulíns- máluninni á efri árum. Sjálfstæði sem sýndi sig í skoðunum hennar sem oft gengu þvert á það sem öðr- um fannst. Frelsisþrá sem fékk út- rás í hestamennsku hennar austur á Hornafirði, þar sem hún ræktaði upp Nökkva, landsfrægan kynbótahest og hans afkvæmi. Hæfileiki til að for- gangsraða samkvæmt eigin gildum í lífi sínu. Alls þessa nutum við sem vorum svo heppin að vera hennar fólk. Við nutum þess að ganga í fallegum föt- um sem hún gerði handa okkur, vor- um hvött til að halda okkar skoðun- um til streitu, hún samgladdist okkur þegar við lögðum land undir fót og kvöddum hana til að fara til náms erlendis eða ferðast okkur til skemmtunar, þótt við vissum að hún vildi helst alltaf hafa okkur nálægt. Og það sem var dýrmætasta vega- nestið okkar út í lífið: Hún lét okkur finna að við værum elskuð. Mamma minnti um margt á aðal- persónuna í sögunni „Babettes gæstebud“ eftir Karen Blixen. Hún bjó yfir ríkum hæfileikum og kunn- áttu, sem voru á heimsmælikvarða, en hún lét einungis þá njóta er stóðu henni næst. Anna Karin. SVAFA HILDUR HALLDÓRSDÓTTIR Dvínar þrek og þróttur þver, þungt og sárt margt sporið er. Hjartakæri Jesú himnaherra, hjálpa nú í þrautum mér. Hér ligg ég í dúradvala, Drottinn minn, ég kalla á þig, leið mína önd til sælusala, sonur Guðs, ó, bænheyr mig. (Jón Ólafsson) Látin er fyrrverandi tengdamóðir mín og amma okkar. Hún var búin að heyja erfiða baráttu við langvarandi veikindi. Það var ótrúlegt hvað Sigga var sterk, öll þau veikindi sem hún hefur gengið í gegnum á síðustu áratugum, enda kjarnorkukona með stórt hjarta. Þvílíkt æðruleysi sem þessi kona bjó yfir. Það var ekki mulið undir hana eins og sagt er. Mjög ung þurfti hún að fara að vinna og draga björg í bú, faðir hennar dó ungur frá konu og fimm ungum börnum. Við mæðgurnar rifjuðum upp liðna tíð og margs var að minnast um ömmu Siggu og afa „gamla“ eins og stelpurnar kölluðu þau. Við urðum þeirrar gæfu aðnjót- andi að dvelja vor og haust í nokkur ár á Borðeyri hjá þeim þegar stelp- urnar voru litlar, þannig að þau áttu stóran sess í lífi okkar. Sigga var mikil húsmóðir, borðin svignuðu undan kræsingum í hvert mál, það var ýmislegt sem ég smakk- aði hjá henni í fyrsta sinn, t.d. laufa- brauð og hinn magnaði sherry-from- age hennar. Og enginn var sokkurinn með gati á því heimili. Hún var snilldarhagleikskona í höndunum, saumaði, prjónaði og föndraði mikið hin seinni ár. Mikla elsku bar hún til barna sinna og barnabarna. Margs er að minnast. Nú í sumar eru tuttugu og fimm ár síðan ég kynntist Siggu. Þegar ég kom til hennar í fyrsta skipti lét hún mig gera við gauðrifinn jakka af syni sín- um. Til að gera langa sögu stutta stóðst ég prófið. Þegar ég horfi til baka sé ég að akkúrat svona var Sigga, best að hafa allt á hreinu. Hvernig var hún þessi stúlka sem ætlaði að verða tengdadóttir hennar, kunni hún eitthvað til verka? Tengdamóðir mín var hreinskilin og góð manneskja. Það var yndislegt að vera hjá þeim Siggu og Valda á Borðeyri í gamla daga. Vorið sem nafna hennar fæddist vorum við um tíma hjá þeim. Eitt- hvað fékk ég að gramsa í tuskupoka og fann þar gamlan og gulnaðan skírnarkjól. Hafði þetta verið hennar skírnarkjóll, vildi ég endilega fá að nota hann við skírn barnsins þar sem hún átti að heita í höfuðið á henni, al- nafna. Hún hélt nú ekki að barnið yrði skýrt í þessari dulu, og jú það SIGRÍÐUR JÓNA INGÓLFSDÓTTIR ✝ Sigríður JónaIngólfsdóttir fæddist á Prest- bakka í Hrútafirði 22. október 1922. Hún andaðist á Dval- arheimili aldraðra í Borgarnesi 5. júní síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Prestbakka- kirkju 18. júní. vildi ég, fannst mér þetta algjört æði að hafa fundið þennan fjársjóð sem kjóllinn var í mínum augum, nöfnurnar skírðar í sama kjólnum, vá! Ég held hún hafi þvegið kjólinn í hálfan mánuð daglega áður en ég fékk „jæja þá“. Dálítið hafði hún nú gaman af þessu sjálf veit ég. Eitt sinn gáfum við ömmu Siggu tvo páfa- gauka í búri. Ekki varð henni um sel þegar nafna hennar klifraði upp á fuglabúrið. Það væsti ekki um fuglana í umsjá ömmu, því- líkt dekur og dúll við þá. Amma Magga á Hellu gaf þeim nöfnin Pét- ur og Lína þegar hún og afi komu í heimsókn á Borðeyri um það leyti sem fuglarnir tóku hús þar. Þessir litlu vinir ömmu, sem þeir voru svo sannarlega, gáfu henni mikla gleði. Amma Sigga var með eindæmum þolinmóð, kenndi okkur að spila m.a marías og manna, þá var oft kátt á hjalla. Amma Sigga og afi voru hjá okkur á Hellu um jól í mörg ár og amma eftir að afi dó í janúar 1990. Þegar við systur vorum litlar kom amma alltaf með nýjustu bókina um Fríðu framhleypnu og las hana fyrir okkur, það var alltaf mikið tilhlökk- unarefni. Nú á seinni árum hafa aðstæður verið þannig að við höfum ekki hitt ömmu eins oft og skyldi. Með söknuð í hjarta viljum við minnast yndis- legrar konu sem skilur eftir ljúfar minningar okkur til handa sem eftir lifum og biðjum Guð að varðveita ömmu Siggu og afa. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Fríður Norðkvist Gunnars, Sigríður Jóna Ingólfsdóttir, Magnhildur Ingólfsdóttir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Við kveðjum þig, kæra Sigga, og þökkum fyrir góð kynni. Innilegar samúðarkveðjur til aðstandenda. Magnhildur og Gunnar, Hellu. HINSTA KVEÐJA Svafa Hildur Halldórs- dóttir var tengdamóðir mín um nokkra hríð. Okkar sam- skipti voru friðsöm og lagði hún mér ætíð gott til. Sonum mínum og Önnu Karinar dóttur hennar reyndist hún óþreytandi að sinna og hlúa að og sá raunar ekki sólina fyrir þeim. Ég vil þakka fyrir hin gömlu kynni og votta fjölskyldu Svöfu samúð nú er hún hefur kvatt jarðvistina. Ingibergur Elíasson. HINSTA KVEÐJA Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 Englasteinar LegsteinarElskuleg móðir okkar, fósturmóðir, tengda- móðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR, áður til heimilis í Dynskógum 20, Hveragerði, verður jarðsungin frá Kotstrandarkirkju í Ölfusi föstudaginn 25. júní kl. 14.00. Hulda Björg Lúðvíksdóttir, Brynjar Röine, Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, Erna Hannesdóttir, Ragnheiður Kristín Björnsdóttir, Elís Kjartansson, Þjóðbjörg Hjarðar Jónsdóttir, Sigurþór H. Sigmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, FRIÐÞÓR GUÐLAUGSSON, Illugagötu 49, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja laugardaginn 19. júní. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 26. júní kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarfélög. Margrét Karlsdóttir, Stefán Friðþórsson, Svala Sigurðardóttir, Brynja Friðþórsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðlaugur Friðþórsson, María Tegeder, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Jón Atli Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, RÖGNVALDUR JÓN AXELSSON, Hraunbæ 52, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut sunnudaginn 20. júní. Sálumessa er sungin í Kristskirkju, Landakoti, mánudaginn 28. júní kl. 13.30. Kristrún Elíasdóttir, Rögvaldur Axel Rögnvaldsson, Margrét G. Rögnvaldsdóttir, Anna A. Rögnvaldsdóttir og aðrir aðstandendur. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN BJÖRN SAMÚELSSON, Eyjabakka 22, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 24. júní kl. 13.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Bergþór Kristjánsson, Valdís Gestsdóttir, Björn Kristjánsson, Sigríður Lindbergsdóttir, Kristján Lindberg Björnsson, Anna Karen Björnsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítala háskólasjúkra- húss að morgni sunnudagsins 20. júní. Gígja Árnadóttir, Rúnar Sveinsson, Þórunn Árnadóttir, Þórir Lárusson, Árni Þór Árnason, Lísbet Sveinsdóttir, Guðmundur Árnason, Margrét Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.