Morgunblaðið - 23.06.2004, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 23.06.2004, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 31 Tvö lið á Evrópumótið í brids í Svíþjóð Evrópumótið í sveitakeppni verð- ur haldið í Malmö, Svíþjóð dagana 19. júní–3. júlí. Keppt verður í opn- um flokki, kvennaflokki og flokki eldri spilara. Samhliða Evrópu- mótinu verða spiluð opin mót alla daga svo þarna verður samfelld bridgeveisla í tvær vikur, hvort sem bridgeáhugafólk vill spila eða fylgj- ast með Evrópumótinu. Á heimasíðu mótsins www.bridge- festival.net verður hægt að fylgjast með fjölda leikja í beinni útsendingu og nú þegar liggur fyrir að margir leikir íslenska liðsins í opnum flokki verða sýndir beint. Lið Íslands eru þannig skipuð: Kvennaflokkur: Einar Jónsson, fyrirliði, Anna Ív- arsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Ragnheiður Nielsen, Hjördís Sigur- jónsdóttir, Alda Guðnadóttir, Stef- anía Sigurbjörnsdóttir. Opinn flokkur: Guðmundur Páll Arnarson, fyrir- liði, Jón Baldursson, Þorlákur Jóns- son, Bjarni Einarsson, Þröstur Ingi- marsson, Matthías Þorvaldsson, Magnús Eiður Magnússon. Frá eldriborgurum í Hafnarfirði Spilað var föstudaginn 11. júní. Úrslit urðu þessi. N/S Árni Bjarnason – Þorvarður S. Guðm. 113 Sævar Magnúss. – Bjarnar Ingimarss. 105 Jón R. Guðmundss. – Kristín Jóhannsd. 98 A/V Hermann Valsteinss. – Jón Sævaldss. 110 Kristján Þorláksson – Guðni Ólafsson 109 Sófus Berthels. – Haukur Guðmundss. 99 Önnur umferð hafin í bikarkeppninni Önnur umferð í bikarkeppninni hófst sl. sunnudag en þá mætti sveit Eðvarðs Hall- grímssonar sveit Sparisjóðsins í Keflavík. en Eðvarð og félagar höfðu helgina áður farið til Súðavíkur og unnið heimamenn. Liðsmenn Eðvarðs eru í góðum gír ef svo má að orði komast og unnu bikarjaxlana af Suðurnesjum nokkuð sannfærandi en sigur- vegararnir unnu fyrstu og aðra lotu, töpuðu þriðju lotu og lentu undir í leiknum en unnu fjórðu lotu sannfærandi og þar með leikinn. Í sveit Eðvarðs spiluðu ásamt honum þeir Jör- undur Þórðarson, Júlíus Sigurjónsson og Magnús Sverrisson. Félag eldri borgara í Kópavogi Efstu pör í spilamennskunni sl. föstudag: N/S: Rafn Kristjánsson - Oliver Kristófss. 218 Auðunn Guðmundss. - Bragi Björnsson 169 A/V: Heiður Gestsd. - Ingiríður Jónsd. 195 Halla Ólafsd. - Jón Lárusson 187 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Frá bikarkeppninni. Guðjón S. Jensen og Gísli Torfason spila gegn Magnúsi Sverrissyni og Eðvarð Hallgrímssyni. Til sölu veitingastaðurinn Zanzibar, Mývatnssveit Húsnæðið er 244 fm, í fullum rekstri. Áskilinn réttur að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Upplýsingar gefnar í síma 898 0442. Til leigu verslunar-, skrifstofu-, þjónustu-, lager- og iðnaðarhúsnæði á stór-Reykjavíkursvæðinu. Fasteignafélagið Kirkjuhvoll. Vefsíða okkar er www.kirkjuhvoll.com Uppl. veitir Karl í síma 892 0160 og Styrmir Karlsson í síma 899 9090. TILKYNNINGAR Deiliskipulag - Eyvindarholt 1 Bæjarstjórn Álftaness auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi landspildunnar Eyvindarholt 1, Álftanesi, skv. 25. gr. skipulags- og bygging- arlaga nr. 73/1997. Skipulagssvæðið afmarkast af mörkum lands Eyvindarholts 1, sem liggur austanvert við Norðurnesveg. Í skipulagstillög- unni er gert ráð fyrir íbúðarlóð með einu ein- býlishúsi í Eyvindarholti 1, auk óbyggðs svæð- is innan veghelgunarsvæðis meðfram Norður- nesvegi. Skipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrif- stofu Álftaness, Bjarnastöðum, frá kl. 8:00- 16:00 alla virka daga frá 23. júní til 23. júlí 2004. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna. Frestur til að skila inn at- hugasemdum rennur út 4. ágúst 2004. Athuga- semdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Álfta- ness, Bjarnastöðum. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni. Bæjarstjórinn á Álftanesi. Jónsmessuferð til Þingvalla Á morgun fimmtud. 24. júní verður farið í okkar árlegu Þing- vallaferð á Jónsmessu. Hittumst við Bolholt 4 kl. 19:00 og sam- einumst um bíla eða við Valhöll kl. 20. Tökum með okkur nesti. Stjórnin. Mosfellsbær Deiliskipulag á frístundalóð norðan Krókatjarnar, þjóðskránr. 9000-1080 Á fundi bæjarstjórnar þann 26. maí 2004 var samþykkt tillaga að deiliskipulagi fyrir frístundalóð norðan Krókatjarnar, þjóð- skránr. 9000-1080. Skipulagstillagan nær til frístundalóðar sem er 5,6 ha norðaustan við tjörnina og nær lóðin að tjarnarbakka. Tillagan verður til sýnis í afgreiðslu bæjar- skrifstofu Mosfellsbæjar, í Þverholti 2, fyrstu hæð, frá 23. júní 2004 til 23. júlí 2004. Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu hafa borist skipulags- og byggingar- nefnd Mosfellsbæjar fyrir 5. ágúst 2004. Jafnframt má kynna sér tillöguna á heimasíðu Mosfellsbæjar, www.mos.is undir framkvæmdir. Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkir tillögunum. ATVINNUHÚSNÆÐI Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. R A Ð A U G L Ý S I N G A R 23.06 Jónsmessuferð á Hafnarfjall (844 m). Brottför Mörkin 6 kl. 18.30. Verð 1800/2300. Fararstjóri Guðlaugur Þórarinsson. ATVINNA mbl.is Í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær vegna kynningar Íbúðalánasjóðs á bráðabirgðaútboðslýsingu í tengslum við fyrirhuguð skipti á tilgreindum flokkum húsbréfa og húsnæðisbréfa yfir í íbúðabréf var ekki greint rétt frá því hvar hin nýju íbúðabréf sjóðsins verða gefin út. Í fréttinni sagði að uppgjörsfyrirtækið Clearstream Banking sæi um það. Hið rétta er að uppgjörs- og vörslufyrirtækið Clear- stream mun gefa bréfin út. Villa í töflu Í töflu um hlutabréfaviðskipti í Kauphöll Íslands, sem birtist á bls. 14 blaðinu í gær og verður framvegis á viðskiptasíðu, hliðruðust tölur um við- skipti með bréf í „öðrum félögum á aðallista“ niður um eina línu. Beðizt er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 Sængur, koddar og dýnuhlífar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.