Morgunblaðið - 23.06.2004, Page 37
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 37
BARÐI Jóhannsson og Bang-gengið hans
munu leggja land undir fót á næstunni og troða
upp á tveimur tónlistarhátíðum. Gengið er
reyndar nýbúið að renna í hlað eftir vel heppn-
aða ferð til Belgíu þar sem það lék við hvern
sinn fingur á Les Nouts Botanique-hátíðinni en
þar léku aukinheldur hljómsveitirnar Divine
Comedy og The High Llamas.
Nýtur vinsælda
í rómönsku Evrópu
Hátíðirnar sem eru framundan eru Arezzo
Wave á Ítalíu 8. júlí og svo hin þekkta hátíð
Montreaux Jazz Festival sem fram fer í Sviss
14. júlí næstkomandi.
Bang Gang nýtur einhverra hluta vegna mik-
illa vinsælda í rómönskum löndum, einkanlega í
Frakklandi og svipað virðist vera með Ítalíu og
rómanska hluta Sviss en heimsóknin til þessara
hátíða er m.a. til þess að láta kné fylgja kviði
hvað vinsældarnir varðar. Myndband við
skemmtilega ábreiðu Bang Gang yfir hið kunna
lag „Stop In The Name Of Love“ fór t.d. á topp-
inn hjá MTV Ítalíu yfir mest spiluðu myndbönd
á kvöldin og nóttunni. Helstu útvarpsstöðv-
arnar á þessum svæðum hafa einnig verið dug-
legar að spila lög af nýjustu plötu Bang Gang,
Something Wrong.
Arezzo Wave er haldin rétt utan við Flórens
og sækja hana um 200.000 manns. Bang Gang
leikur á stærsta sviðinu fyrir framan rúmlega
25.000 áheyrendur. Einnig leika Black Rebel
Motorcycle Club og Cypress Hill þennan dag-
inn.
Montreaux-hátíðin er ein elsta og virtasta
tónleikahátíð Evrópu og hafa margar vinsæl-
ustu hljómsveitir heims leikið þar. Bang Gang
spila í svonefndu Miles Davis-tjaldi sem rúmar
2.000 manns. Strengjakvartett verður með í för
en aðrir listamenn hátíðarinnar eru t.a.m. Dido,
Korn, Alicia Keys, Sean Paul, Black Eyed Peas,
Air, BB King, PJ Harvey, Van Morrison, Bryan
Ferry, Herbie Hancock og Phil Collins.
Bang Gang spilar á
Montreaux-hátíðinni
„Verið þið blessuð. Ég er farinn til Evrópu að
kynna nýju plötuna mína.“
www.arezzowave.com
www.montreauxjazz.com