Morgunblaðið - 23.06.2004, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 41
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 5, 7, 8 og 10 E. tal.
ÁLFABAKKI
Kl. 5.30. B.i. 12.
Nýjasta og mest spennandi
myndin um Harry Potter er
komin í bíó. Stórkostlegt
ævintýri fyrir alla fjölskylduna
sem enginn má missa af!
Ráðgátur leysast, leyndarmál
verða uppljóstruð.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás2
DV
HL Mbl
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás2
DV
HL Mbl
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal.
Tom Hanks er einhver útsmognasti,
klárasti, færasti og mest heillandi
afbrotasnillingur sem nokkru sinni hefur
REYNT að fremja glæp aldarinar!
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5 og 8 .
ÁLFABAKKI
Kl. 4, 6, 8 og 10.10
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.10.
AKUREYRI
Kl. 5 og 10.30. B.i. 14.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 5 og 8.
KRINGLAN
Forsýning kl. 10.15
KRINGLAN
Sýnd kl. 7 og 10.
ÁLFABAKKI
Kl. 8. B i 12
SV MBL
Kvikmyndir.is
Með hinum eina sanna
og ofursvala Vin Diesel.
Geggjaaður hasar og
magnaðar tæknibrellur.
BÓKIN Engill tímans
kemur út í dag og er hún
gefin út til minningar
um Matthías Viðar Sæ-
mundsson, dósent í ís-
lenskum bókmenntum
við Háskóla Íslands, en
Matthías lést 3. febrúar
sl. eftir erfið veikindi. Að
sögn Eiríks Guðmunds-
sonar og Þrastar Helga-
sonar, ritstjóra bók-
arinnar, var hún
upphaflega hugsuð sem
afmælisbók en Matthías
hefði orðið fimmtugur í
dag hefði hann lifað. Að
sögn Þrastar og Eiríks
voru efnistök bók-
arinnar og val á höfundum unnin í
nánu samráði við Matthías. „Við fór-
um á fund Matthíasar í nóvember sl.
með þessa hugmynd um að gefa út af-
mælisrit þegar hann yrði fimmtugur.
Hann tók hugmyndinni vel og var
glaður að við, fyrrverandi nemendur
hans, vildum heiðra sig á þennan
hátt. Matthías lagði á það ríka
áherslu að bókin yrði ekki eins og
dæmigert afmælisrit þar sem hinir og
þessir henda inn göml-
um ritgerðum um ryk-
fallið efni, heldur að
fundið yrði verðugt
umfjöllunarefni sem
lagt yrði fyrir höfund-
ana og þeir beðnir að
frumsemja greinar fyr-
ir bókina,“ segir Þröst-
ur og tekur fram að sér
finnist mjög dýrmætt
að bókin hafi verið
gerð í slíkri samvinnu
við Matthías. „Í fram-
haldinu leituðum við til
Jóhanns Páls Valdi-
marssonar hjá JPV-
útgáfu sem tók hug-
myndinni mjög vel og
gefur bókina út með miklum sóma,“
bætir Eiríkur við.
Aðspurðir segja Eiríkur og Þröst-
ur rannsóknarspurningu bókarinnar
snúa að því hvað taki við eftir að póst-
módernisminn er liðinn undir lok.
„Þannig má segja að þetta sé kannski
enn ein tilraunin til að ganga frá póst-
módernismanum. Sjálfum var Matt-
híasi meinilla við upplausnarástand
póstmódernismans og sífellt að reyna
að finna smuguna út. Það var því leið-
arspurning hjá okkur hvar útgöngu-
leiðin er,“ segir Eiríkur. „Við ætlum
einmitt að finna þennan engil tímans,
sem er nokkurs konar skilaboða-
skjóða er ber okkur boðin um það
sem við eigum að taka okkur fyrir
hendur,“ segir Þröstur.
„Auk þess má í bókinni finna
ádrepur um það sem betur mætti
fara, eitthvað sem við getum kallað
fjarvist engilsins. Þannig ritar Álfrún
Gunnlaugsdóttir prófessor á mjög
beittan hátt um stöðuna í rannsókn-
arsamfélaginu hérlendis og gagn-
rýnir gæðastýringu, punktasöfnun og
innihaldsleysi fræðanna. Í grein sinni
fjallar Sigfús Bjartmarsson um Ís-
land sem vanþróaða bókmenntaþjóð,
þ.e. hvernig við höfum farið á mis við
margt sem hefur gerst í bókmenntum
á meginlandi Evrópu alla 20. öldina.
Önnur grein sem talar mjög til sam-
tímans er grein Guðna Elíssonar um
Píslarsögu Krists eftir Mel Gibson
sem kemur beint inn í umræðuna,“
segir Eiríkur.
Fíflaskip siglir um sundin blá
Spurðir hvort „konsept“ bók-
arinnar hafi breyst mikið við það að
bókin breyttist úr afmælisbók í minn-
ingarbók svara þeir Eiríkur og Þröst-
ur því neitandi. „Hins vegar má vera
að það hafi kannski breyst ómeðvitað
í hugum þeirra sem voru að skrifa,
þ.e. að sumir hafi kinka kolli til Matt-
híasar á annan hátt en þeir hefðu
annars gert. Þannig er lokagreinin
eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur
kveðjuorð og um leið þakklætt-
isvottur frá ungri fræðakonu, sem
okkur fannst við hæfi að ljúka bókinni
á til að sýna hvað Matthías hefur haft
mikil áhrif á fólk í fræðasamfélag-
inu,“ segir Eiríkur.
Alls leggja þrjátíu og fimm höf-
undar til efni í Engli tímans og koma
þeir úr hinum ýmsu geirum listalífs-
ins og fræðaheimsins. Þannig má í
höfundahópnum finna háskólamenn,
sjálfstætt starfandi fræðimenn, skáld
og myndlistarmenn, en meðal höf-
unda má nefna Ástráð Eysteinsson,
Birnu Bjarnadóttur, Matthías Jo-
hannessen, Elísabetu Kristínu Jök-
ulsdóttur, Sjón, Thor Vilhjálmsson,
Úlfhildi Dagsdóttur, Þorstein Gylfa-
son og Þorstein frá Hamri sem ritar
kveðjuorð, en Eiríkur og Þröstur
skrifuðu inngang og er þar farið yfir
fræðaferil Matthíasar.
Í tilefni útgáfunnar verður gömul
hugmynd Matthíasar, um að sjósetja
dárafley, gerð að veruleika, því í dag
kl. 18 mun svokallað Fíflaskip leggja
úr höfn frá Ægisgarði og sigla út á
sundin, en um borð verða m.a. höf-
undar bókarinnar og útgefendur.
Fíflaskipið er að sögn Eiríks fyr-
irbæri á mörkum skáldskapar og
veruleika, en sagnir herma að fyrr á
öldum hafi sturluðum einstaklingum
verið safnað saman á Fíflaskip sem
síðan var sent á haf út. Að sögn
Þrastar var það Matthías sem stakk
upp á siglingunni þegar farið var að
ræða hvernig fagna ætti útgáfudeg-
inum. „Enda var það gamall draumur
hjá honum að safna saman þeim sem
þykjast hafa vitið á Fíflaskip,“ segir
Þröstur. „Það er einmitt mjög Matt-
híasarlegt og hann hefði eflaust glott
við tilhugsunina um skáld og fræði-
menn sem sigla undir merkjum sturl-
unar,“ segir Eiríkur. Bókin kemur út
í takmörkuðu upplagi og er meirihluti
þess þegar seldur í áskrift.
Leit að engli tímans
silja@mbl.is
Matthías Viðar
Sæmundsson
Engill tímans nefnist minningarbók um
Matthías Viðar Sæmundsson sem kemur út
í dag. Silja Björk Huldudóttir ræddi af því
tilefni við Eirík Guðmundsson og Þröst
Helgason, ritstjóra bókarinnar.
Morgunblaðið/Eggert
Þröstur Helgason og Eiríkur Guðmundsson, ritstjórar minningarbókar um
Matthías Viðar Sæmundsson sem nefnist Engill tímans.
Nokkrar Hollywood-stjörnur eru stadd-
ar hér á landi í þeim til-
gangi að leika golf. Shan-
non
Eliza-
beth,
sem lék
skipti-
nemann
þokka-
fulla í
Americ-
an Pie-myndunum og
Bond-stúlkan Tanya Ro-
berts úr A View To A
Kill og sjónvarpsþátt-
unum Svona var það ’76
eru hér í tengslum við
Amstel Light golfmótið,
ásamt Eric Szmanda úr
CSI-þáttunum sem einn-
ig kom í fyrra …
Hinn vinsæli Harry Pott-er kveður sér hljóðs á
íslensku á föstudaginn. Þá
verður frumsýnd talsett út-
gáfa á myndinni í Sambíó-
unum.
Það gleð-
ur vafalítið
margan ung-
an unnanda
galdra-
drengsins
sem orðinn
er vanur að fá að sjá hann
tala íslensku, en fyrri mynd-
irnar tvær voru báðar sýndar
í bíó með íslensku tali við
góðar undirtektir. Myndin
var annars sú vinsælasta um
síðustu helgi hér á landi,
3.500 manns sáu hana yfir
helgina og er aðsóknin nú
komin í 35 þúsund manns …
Fólk folk@mbl.is