Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 24
DAGLEGT LÍF
24 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Snemma á vorin fer að lifnaverulega yfir bæjarlífinuvið brúarsporðinn á Sel-fossi. Um páskaleytið fjölg-
ar sumarhúsagestunum sem margir
hverjir hafa áttað sig á að óþarft er
að birgja sig upp áður en haldið er
af stað. Í Nóatúni á Selfossi er reynt
að uppfylla allar hugsanlegar óskir
allt frá Sunday Times, gúmmískóm
og ferskri matvöru svo dæmi sé tek-
ið.
„Við elskum allar séróskir og ger-
um okkar besta til að uppfylla þær,“
segir Sigrún Jónsdóttir verslunar-
stjóri og nefnir sem dæmi að boðið
er upp á að taka niður pantanir fyr-
ir grillið eða aðrar veislur helgar-
innar. Sigrún hefur starfað í versl-
uninni undanfarin 19 ár og þekkir
vel til væntinga viðskiptavinanna.
„Það er gott að fá pantanirnar fyrri
hluta vikunnar. Þá höfum við tíma
til að vinna úr þeim og panta það
sem til þarf ef þess gerist þörf. Við
höfum það svo tilbúið þegar dag-
urinn rennur upp.“
Sigrún segir að viðskiptavinum
fjölgi verulega frá páskum eða um
70–80%. „Við tölum jafnvel um ver-
tíð hér og leggjum okkur fram um
að vera vel í stakk búin til að taka á
móti viðskiptavinum okkar. Það eru
um fimm þúsund sumarbústaðir í
uppsveitum Árnessýslu þannig að
búast má við að þar dvelji að jafnaði
um 20 þúsund manns á sumrin,“
segir hún. „Það munar um minna.“
Vöruverð í versluninni fylgir
verðinu í Reykjavík og vöruúrvalið
er það sama hvað matvöru varðar.
„Vörurnar koma aðallega frá BÚR,
sem er birgðastöð Nóatúnsversl-
ananna í Reykjavík, bæði kjöt og
grænmeti, en fyrir kemur að við
fáum vörur beint frá framleið-
endum á Suðurlandi, t.d. grænmeti,
kryddjurtir og að sjálfsögðu alltaf
mjólkurvörur frá Mjólkurbúi Flóa-
manna. Hér er mjög góður kælir og
þar geymum við allt grænmetið og
við erum með frábært kjötborð með
ófrosnu kjöti og fiski fyrir svo utan
bakaríið, þar sem fæst nýbakað
brauð og kökur.“
Bókabúð Eymundssonar og Int-
ersport hafa lagt undir sig hluta
verslunarinnar. Þar fást bækur og
dagblöð, bæði innlend og erlend,
sem hefur mælst vel fyrir bæði hjá
Íslendingum og erlendum ferða-
mönnum. Og svo er það Intersport
með útivistarklæðnaðinn. Þar að
auki eru fatadeild með svona það
helsta og vísir að búsáhaldadeild.
„Sunnlendingar og aðrir hafa tekið
okkur mjög vel. Það er ekki hægt að
segja annað,“ segir Sigrún. „Það er
svo gaman að starfa hér í versl-
uninni þegar öllu er svona vel tek-
ið.“
SELFOSS | Leitast við að uppfylla allar séróskir
krgu@mbl.is
Nóatún Austurvegi 3–5
800 Selfossi
Sími: 585-7165
selfoss@noatun.is
Frá páskum fjölgar viðskiptavinum Nóa-
túns á Selfossi um 70–80%. Þar eru á ferð
sumarhúsaeigendur sem birgja sig upp af
matvælum og hafa jafnvel þá pantað fyrirfram.
Kristín Gunnarsdóttir skrapp á Selfoss.
Morgunblaðið/Golli
Verslunarstjóri Nóatúns á Selfossi: Sigrún Jónsdóttir við kjötborðið.
Fjölbreytt úrval: Nýtt ferskt græn-
meti, kryddjurtir og ávextir.
Í kjötborðinu: Margar gerðir af vel
tilreiddu lambakjöti á grillið.
Gúmmískór og
erlend dagblöð
Gömlu góðu
gúmmískórnir:
Henta vel í
sveitinni.
European Business School London
EBS London is one of the UK’s largest and leading private business
schools. Through our innovative programmes and corporate links, we
consistently achieve a 100% employment rate amongst our graduates.
BA (Hons) in International Business
choice of six business majors, combined with 1 or 2 languages.
Regents Business School London
With a professional and practical focus our degree programmes are
suitable for a range of entry qualifications. BA (Hons) degrees in:
International Business
International Finance & Accounting
International Marketing
International Business with Design Management
British American College London
Leading American University degree programmes delivered
in Central London. 4 year BA degrees (GCSE entry):
Management, Media Communications
International Relations, Social Science, Psychology
Study in London
Situated in central London’s Regent’s Park, Regent’s
College offers a unique education experience at
one of 3 leading independent institutions.
Apply now
for August
2004
w
w
w
.r
e
g
e
n
ts
.a
c
.u
k
Regent’s College, Regent’s Park, London NW1 4NS, UK T: 020 7487 7505 - F: 020 7487 7425
Vorum að fá í sölu fallegt einbýl-
ishús (207 fm) á þessum eftir-
sótta stað í Garðabæ ásamt tvö-
földum innb. 50 fm bílskúr. Efri
hæð skiptist í stóra stofu, borð-
stofu og eldhús, þvottahús,
gestasnyrtingu, baðherb. og
fjögur góð svefnherb. Á neðri hæð er innréttuð lítil 2ja herb. íbúð.
Garðurinn er stór og í góðri rækt. Stór verönd í suður. 2859
SUNNUFLÖT - GARÐABÆ
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Vorum að fá í einkasölu góða
4ra herb. (99 fm) hæð og ris
(gólfflötur mun stærri) auk 29 fm
bílskúrs á frábærum stað í vest-
urbæ Reykjavíkur. Á neðri hæð
er eldhús m. borðkrók, björt
stofa, gott barnaherb. og hol
með stiga upp í ris. Á efri hæð er
baðh., tvö rúmgóð svefnherb.
og annað þeirra með svölum
sem snúa í suður, lítill leikkrókur og geymsluloft yfir allri íbúðinni.
GÓÐ EIGN Á GÓÐUM STAÐ. Áhv. 5,5 millj. í byggsj. og húsbréf-
um. Verð 16,4 millj. 2857
REYNIMELUR - HÆÐ OG RIS
Falleg og vel skipulögð 110 fm
hæð og ris með sérinngangi auk
stæðis í bílageymslu. Á neðri
hæð er rúmg. eldhús, þvottahús,
gestasalerni og stór stofa með
útg. á suðursvalir. Á efri hæð eru
þrjú stór herb., hol og baðherb. Í
risi er búið að útb. rúmg. herb.
Góð sameign. Fallegur garður.
Stutt í alla þjónustu og góð útivistarsvæði fyrir börn og fullorðna.
Áhv. 6,4 millj. Verð 17,2 millj. 2627
LÆKJASMÁRI - HÆÐ OG RIS
Vorum að fá í sölu glæsilega 4ra
herb. 113 fm íbúð á efstu hæð í
litlu fjölbýli í Lindunum, Kópavogi.
Þrjú stór svefnherb. Rúmgóð
stofa með útg. á s-svalir m. fal-
legu útsýni. Flísalagt baðherb.
Sérþvottahús innan íbúðar. Loft upptekin m. halogen-lýsingu. Fal-
legar innréttingar. Stutt í skóla og aðra þjónustu. Glæsileg eign á
góðum stað. Áhv. 8,1 millj. húsbréf. Verð 19,2 millj. 2887
LAUGALIND - FRÁBÆRT ÚTSÝNI
Vorum að fá í sölu 4ra herb. (109
fm) íbúð á 2. hæð í þriggja hæða
fjölbýli. Eignin skiptist í anddyri
m. skápum, eldhús m. borðkrók,
stofu m. svalir í austur, baðherb.
m. baðkari og innréttingu. Tvö
góð barnaherb. með skápum.
Hjónaherb. með skápum og innréttingu. Sérþvottahús. Filtteppi á
gólfum nema á baðherb. sem er flísalagt. Verð 17,9 millj. Áhv.
góð lán. 2867
KRISTNIBRAUT - GLÆSILEGT ÚTSÝNI
Sérlega glæsilegt og vel hannað
277 fm tvílyft einbýlishús á frábær-
um útsýnisstað, með útsýni yfir
Elliðavatn og fjallahringinn Bláfjöll,
Hengil og víðar. Neðri hæðin skipt-
ist í 50 fm tvöfaldan bílskúr, 4 stór
herbergi, hol, þvottahús og bað-
herb. Steyptur stigi milli hæða. Efri hæðin: Stórt hjónaherbergi ásamt
fataherb., eldhús, miklar stofur og 22 fm svalir. Húsið er til afhending-
ar fljótlega fullbúið að utan og fokhelt að innan. Verð 27,0 millj. 2820
FÁKAHVARF - VATNSENDI
Vorum að fá í sölu vandað 54 fm
sumarhús (heilsárshús) á einni
hæð á fallegum útsýnisstað miðja
vegu milli Álfaskeiðs og Flúða í
Hrunamannahreppi. Húsið er
klætt með liggjandi bjálkaklæðn-
ingu. Ca 76 fm sólpallur með heit-
um potti og er einstakt útsýni, rafmagn og hitaveita sem nýtt er m.a.
í kyndingu hússins. 3 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi
með sturtu. Massíft heillímt eikarparket á gólfum og grenipanell á
hluta veggja. Frostfríar lagnir og extra einangrun í gólfi. Húsið
stendur á ca 3.300 fm leigulóð og er leiguverðið með hitaveitunni ca
90.000 á ári. Vönduð eign á eftirsóttum stað, m.a. stutt í þjónustu,
golfvöll o.fl. Verð 12,0 millj.
Upplýsingar gefur Ólafur B. Blöndal í 690 0811.
SUMARHÚS VIÐ FLÚÐIR