Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 45
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 45
NÁTTÚRAN leikur stórt
hlutverk í tveimur sýn-
ingum í Hafnarborg nú
um stundir, á sýningu
samstarfs þeirra Önnu
Þóru Karlsdóttur og Guð-
rúnar Gunnarsdóttur,
TÓ-TÓ, og í ljósmyndum
Marisu Navarro Arason.
TÓ-TÓ vinnur mestmegn-
is með ull eins og nafnið
gefur til kynna, en lista-
konurnar hafa áður sýnt
verk unnin úr ullarflóka
undir þessu nafni. TÓ-TÓ
er listræn hönnun með
ákveðið notagildi en þess
utan vinna listakonurnar
að list sinni sín í hvoru lagi
og hafa getið sér gott orð á
þeim vettvangi. Í Hafn-
arborg kennir ýmissa
grasa, þar má sjá blóm,
fjöll, steina og kleinur í
dós, sem ég hélt reyndar
að ættu að vera eftirlíking
niðursoðinna kindaeyrna
væri slíkt til. Verkin eru
búin til í fjölda eintaka þó
að engin tvö séu alveg
eins. Þetta verður til þess
að þau skapa sterkari
mynd en ella og þar komu
Skálablómin, lifandi, opin
og dularfull með óvæntri
fyllingu, sérstaklega vel
út. Hér er falleg og frum-
leg hönnun á ferð þar sem
íslenska ullin nýtur sín
sérstaklega vel.
Íslensk náttúra er einn-
ig myndefni Marisu Nav-
arro Arason ljósmyndara
sem sýnir á efri hæð Hafn-
arborgar. Marisa er ljós-
myndari sem hefur um
árabil unnið með hafið í
myndum sínum. Nú notar
hún efniseiginleika sjávar
til þess að leysa upp og
umbreyta ljósmyndum
sem allar eru teknar á Ís-
landi og sýna ýmist nátt-
úru eða byggð og náttúru.
Þessar myndir stækkar
hún svo upp. Þær eru lit-
ríkar og að hluta til ab-
strakt, sjóvatnið hefur
unnið á þeim á mismun-
andi hátt og skapað ótal
blæbrigði lita og áferðar. Í
myndunum mætast tveir
heimar, smáheimur efna-
hvarfa sjávar og myndar,
abstrakt og tilvilj-
anakenndur, og síðan sýn
listakonunnar, myndefni
þau sem hún hefur valið.
Efnistök listakonunnar
minna til dæmis á verk og
þankagang súrrealistanna
sem leituðu í sífellu hins
ljóðræna í tilviljuninni og
smáatriðum hversdagsins.
Ljósmyndirnar eru mis-
áhugaverðar en áhrifarík-
astar og eftirminnileg-
astar eru þær myndir þar
sem tveir heimar, hinn
smái og hinn stóri, ná að
falla saman á dulúðugan
hátt og skapa þann þriðja
sem býr yfir eiginleikum
sem hvorugur hinna hefur.
Brotið verður
aftur bætt
Í Hafnarborg má einnig
sjá myndbönd eftir
finnsku listakonuna Jaana
Partanen. Hversdags-
hlutum, glösum og vösum
er stillt upp ásamt málm-
kúlum áþekkum þeim sem
notaðar eru í franska
leiknum vinsæla „jeu de
boules“. Hanskaklæddir
fingur sem minna á gang-
andi fætur eru líka á „svið-
inu“ og svo fer að flest
brotnar. En rís síðan upp
á ný. Svipað er upp á ten-
ingnum í myndbandi sem
sýnir fallandi kubba. Þetta
eru einfaldar hugmyndir
en vel útfærðar og ná að
heilla áhorfandann auk
þess að hafa víðari skír-
skotanir.
MYNDLIST
Hafnarborg
Til 12. júlí. Hafnarborg er opin
alla daga nema þriðjudaga frá
kl. 11–17.
MYNDBÖND,
JAANA PAARTANEN
BLÖNDUÐ TÆKNI, TÓ-TÓ,
ANNA ÞÓRA KARLSDÓTTIR OG
GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
SUNDRUN, LJÓSMYNDIR,
MARISA NAVARRO ARASON
Manngert og lífrænt spilar
saman á sýningu TÓ-TÓ.
Efnahvörf sjávar lita sýn, frá sýningu Marisu Navarro
Arason í menningarmiðstöðinni Hafnarborg.
Ragna Sigurðardóttir
Greinarhöfundur flýgur út tilDanmerkur á sunnudaginnvegna Hróarskelduhátíð-
arinnar og mun gera grein fyrir há-
tíðinni á þessum síðum. Hróarskelda
er án efa vinsælasta og virtasta
rokktónlistarhátíð í heimi og eftir
því sem ég fer þangað oftar því
sannfærðari verð ég um það að fólk
ætti að heim-
sækja þessa há-
tíð að minnsta
kosti einu sinni
áður en glas
tímans rennur
út. Þú þarft ekki einu sinni að hafa
snefil af áhuga fyrir tónlist til að
skynja þann einstaka anda sem um-
lykur Skelduna, eins og hún er
stundum kölluð.
Þegar ég fór að kanna hvað yrði áseyði í svipuðum efnum hér-
lendis er nánast hægt að segja að ég
sé þó að sækja vatnið yfir lækinn.
Ósköpin öll af tónlistarhátíðum
dynja nefnilega dásamlega á land-
anum á næstu vikum, og það út um
allt land, í hverjum firði sem vík.
Maður er enn að furða sig á því
hversu óskaplega ríkt og fjörugt
tónlistarlífið er hér á landi og á
heildina litið skipta tónleikahátíðir
sumarsins nokkrum tugum. Í gær
var t.d. Jazzhátíð Egilsstaða sett í
sautjánda sinn en Árni Ísleifsson
hefur stýrt henni af miklum mynd-
arbrag frá upphafi (ég vil samt hafa
það djass en ekki jazz, líkt og Jón
Múli heitinn). Þá fer blúshátíðin á
Ólafsfirði í gang í kvöld og stuttu
eftir þarnæstu helgi (7. júlí) fer Þjóð-
lagahátíðin á Siglufirði af stað. Á
Akureyri var svo fyrsti „heiti“
fimmtudagurinn í gær í Deiglunni,
þar sem djasssveiflan réð lögum og
lofum. Allri flórunni er fagnað því
að Sumartónleikar í Skálholtskirkju
hefjast um þessa helgi, Kamm-
ertónleikar á Kirkjubæjarklaustri
verða haldnir í ágúst og í endaðan
júlí er tónlistarhátíð í Reykholti. Þá
er nýlokið hátíðinni Við Djúpið sem
fram fer á Ísafirði og í Bolungarvík
Um Verslunarmannahelgina er
svo slegið upp hátíðum um land allt
og spila tónlistaratriði þar einatt
stórt hlutverk.
Allt landið er hér undir eins og sjá
má. Oft eiga svona hátíðir því að
þakka að nokkrar eldsálir – eins og
Færeyingar kalla það – koma saman
og snúa hlutunum í gang og er
skemmst að minnast þegar Mugison,
Örn Elías Guðmundsson, ungur tón-
listarmaður á Ísafirði stóð fyrir tón-
listarhátíðinni Aldrei fór ég suður í
mars síðastliðnum þar sem hljóm-
sveitir og listamenn úr Reykjavík og
Ísafirði og nærsveitum léku.
Líkt og á fyrrgreindri Hróars-kelduhátíð snúast þessar hátíð-
ir um miklu meira en bara tónlist. Þá
daga sem hátíðirnar standa yfir er
„allt að gerast“ eins og sagt er, heilu
bæjarfélögin sogast inn í stemningu
sem er engri lík og láta það sér vel
lynda. Glóð er í geði, hugmyndir
vakna – andinn hafinn á loft.
Ferðamenn sem staddir eru á
landinu komast ekki undan atgang-
inum og sumir eru meira að segja
farnir að heimsækja landið gagn-
gert til að vera viðstaddir einhverja
tónlistarhátíðina í hinni margróm-
uðu og stórbrotnu náttúru Íslands.
Þetta er að sönnu hið besta mál –
hvernig sem á það er litið.
Landsmenn kærir til sjávar sem
og sveita. Gleðilegt tónlistarsumar!
Úti á (tónlistar)landi
AF LISTUM
Arnar Eggert
Thoroddsen
arnart@mbl.is
’Glóð er í geði, hug-myndir vakna – andinn
hafinn á loft.‘
LISTASAFNIÐ í Bergen,
Bergen Kunsthall, auglýsir um
þessar mundir eftir forstöðu-
manni. Umsækjendur þurfa að
hafa víðtæka innsýn í norska
og alþjóðlega nútímamyndlist,
samkvæmt atvinnuauglýsing-
unni. Þrjú sýningarrými eru í
listasafninu og hefur for-
stöðumaður yfirumsjón með
rekstri safnins, en meginhlut-
verk hans er þróun sýn-
ingahalds. Umsóknarfrestur er
til 20. ágúst þessa árs.
Auglýst
eftir for-
stöðumanni
www.kunsthall.no
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
6. flokkur, 24. júní 2004
5428 B kr.16.350.000,-
5428 E kr. 3.270.000,-
5428 F kr. 3.270.000,-
5428 G kr. 3.270.000,-
5428 H kr. 3.270.000,-