Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 22
Grafarvogur | Krakkar, foreldrar
og starfsmenn leikskólans Funa-
borgar gerðu sér glaðan dag í gær
þegar þeir héldu Jónsmessugleði.
Litadýrðin var í algleymingi, grill-
að, sungið, dansað og leikið, enda
ekki seinna vænna, nú þegar dag-
inn fer aftur að stytta. En sumarið
er langt frá því búið, það er rétt að
byrja og þessi káta táta veit það svo
sannarlega.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jónsmessugleði
á Funaborg
MINN STAÐUR
22 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
Hafnarfjörður | Húsin úr Jólaþorp-
inu í Hafnarfirði standa ekki ónýtt
restina af árinu, því á góðviðr-
isdögum í sumar er hugmyndin að
skella upp útimarkaði á Ráðhústorg-
inu á milli Súfistans og Bókasafns-
ins. Komið hefur verið fyrir nokkr-
um húsum og búin til falleg umgjörð
á torginu þar sem tilvalið er að koma
og fá sér kaffisopa og kíkja á það
sem til sölu er í húsunum. Þetta
kemur fram á upplýsingavef Hafn-
arfjarðar.
Sumarþorpið verður opið alla
laugardaga í sumar og einnig eftir
veðri. Markaðsstemmning verður
höfð í hávegum og eru húsin lánuð út
án endurgjalds. Aðstaðan er tilvalin
fyrir félagasamtök, tombólur, bíl-
skúrssölur og margt fleira, en það er
Vinnuskóli Hafnarfjarðar sem held-
ur utan um lánin á húsunum.
Markaðstorgs-
stemmning á
Ráðhústorginu
Breytingar á Suðurgötu | Í sum-
ar verður ráðist í gagngerar end-
urbætur á Suðurgötu og verður
gatan því að mestu lokuð allt sum-
arið.
Akstursleiðir Strætó breytast
þess vegna á framkvæmdatím-
anum. Biðstöðin í Vonarstræti á
móts við Ráðhúsið verður ekki í
notkun á meðan á framkvæmd-
unum stendur.
Forvarnaviðurkenningar | For-
varnanefnd Hafnarfjarðar afhenti á
dögunum viðurkenningar þeim
söluaðilum tóbaks sem seldu ekki
börnum tóbak í síðustu könnun sem
gerð var. Í ávarpi sínu sagði fulltrúi
Lýðheilsustöðvar að tekið væri eftir
framtaki bæjarins, sem miðaði að
því að minnka aðgengi barna og
unglinga að tóbaki.
Formaður forvarnanefndar, Guð-
mundur Rúnar Árnason, minnti
gesti á að svo virðist sem tóbaks-
reykingar meðal barna og unglinga
í Hafnarfirði séu að aukast og því
nauðsynlegt að aðilar standi saman
og sporni gegn þeirri þróun. Síðan
var söluaðilum sem seldu ekki
börnum tóbak afhent viðurkenning
og þeir hvattir til að halda sínu
striki.
Eftirfarandi staðir fengu viður-
kenningu: Samkaup, Söluturninn
Miðvangi 41, Olís, Vesturgötu 1,
Fjarðarkaup, Skalli, Söluturninn
Jolli, Nóatún, 10/11 við Melabraut -
Holtinu, Bónusvideo við Lækjar-
götu 2 og Videoholtið.
NÆSTA vetur mun Menntaskólinn
á Akureyri bjóða upp á ferðamála-
kjörsvið á mála-
braut, en um er
að ræða víðtækt
málanám sem
tengist fjölmörg-
um öðrum náms-
greinum og býr
nemendur m.a.
undir há-
skólanám í
ferðamálavís-
indum, al-
þjóðafræðum og fleiri greinum sem
krefjast mikillar tungumálakunn-
áttu.
Jón Már Héðinsson skólameistari
greindi frá þessu við skólaslit og
sagði að þetta myndi hafa í för með
sér nýjungar í kennslu þar sem
kennarar í ólíkum greinum kenndu
saman og myndu vinna sameig-
inlega að undirbúningi og úr-
vinnslu.
„Við förum varlega af stað og
tökum eitt skref í einu,“ sagði Jón
Már. Angi af þessu er að hans sögn
þátttaka skólans í alþjóðlegu sam-
starfi, „sem vex með hverju ári,
bæði samskiptaverkefnum milli
landa, heimsóknum nemenda og
samvinnu með upplýsingatækni og
einnig samskiptum og gagn-
kvæmum heimsóknum kennara.“
Kennsla í ferða-
málum í MA
Jón Már Héðinsson
FFA| Ferðafélag Akureyrar verður
með tvær ferðir á morgun, laugardag,
að Steinboga í Heiðinnamannafjalli í
Skíðadal með brottför kl. 8 frá skrif-
stofu við Strandgötu og þá verður
gengið inn Fossdal frá Ólafsfirði,
brottför kl. 9.
Á sunnudag verður genginn fyrsti
hluti af fjórum í raðgöngu sumarsins,
um Bíldsársskarð að Fjósatungum.
NÝTT og fullkomið segulómtæki
verður tekið í notkun á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, FSA, í
október næsta haust. Skrifað var
undir samning um kaup þess á árs-
fundi FSA sem haldinn var í gær.
Tækið er frá Siemens og kostar um
130 milljónir króna. Tilkoma þess
mun auka mjög möguleika til rann-
sókna og þá mun þjónusta við sjúk-
linga á upptökusvæði sjúkrahússins
aukast til muna.
„Þetta er stór dagur,“ sagði Hall-
dór Jónsson, forstjóri FSA, þegar
skrifað var undir samning um kaup
á tækinu en hann gat þess jafnframt
að málið ætti sér langan aðdrag-
anda. Markvisst hefði á undanförn-
um árum verið unnið að því að end-
urnýja tæki til rannsókna. Fyrir
nokkru voru ný röntgentæki keypt
til sjúkrahússins, en segulómtækið
ekki verið inni í þeim pakka. Unnið
er að því að útbúa aðstöðu á sjúkra-
húsinu þar sem segulómtækinu
verður komið fyrir „þannig að allt
verði tilbúið í haust“, sagði Halldór.
„Tækið mun eðlilega breyta mögu-
leikum okkar mikið, það gerir okkur
kleift að sinna okkar hlutverki bet-
ur. Eins og staðan hefur verið hafa
fjölmargir þurft að leita suður til
Reykjavíkur eftir þessari þjónustu.“
Fulltrúi Siemens gat um helstu
kosti tækisins og kvaðst stoltur af
því að tæki frá fyrirtæki hans hefði
orðið fyrir valinu, en efnt var til út-
boðs vegna kaupanna.
Á fundinum var einnig fjallað um
framtíðarhlutverk sjúkrahússins en
m.a. kom fram í máli Þorvaldar
Ingvarssonar, forstjóra lækninga,
að aukin áhersla yrði lögð á
kennsluhlutverk þess, þá myndi
þjónusta við krabbameinssjúklinga
verða aukin í framtíðinni og hann
gat þess að brýnt væri að koma upp
líknardeild. Einnig nefndi Þorvald-
ur að um 200 manns af upptöku-
svæði sjúkrahússins færu árlega
suður í hjartaþræðingu en stefnt
væri að því að bjóða þá þjónustu í
heimabyggð. Eins væri markmið
forsvarsmanna sjúkrahússins að
auka hlutfall Norðlendinga sem
fengju þjónustu þess sem og að efla
endurhæfingu.
Nýtt segulómtæki í haust
FLEIRI bílastæði í miðbæinn. Minni
bílaumferð í miðbænum. Þetta voru
á meðal hugmynda sem fram komu
á samráðsfundi sem efnt var til
vegna verkefnisins „Akureyri í
öndvegi“ en þar komu saman þeir
sem hagsmuna eiga að gæta í
miðbæ Akureyrar og ræddu mál-
efni hans fram og til baka. Líkt og
vænta mátti voru skoðanir skiptar.
Fundurinn var haldinn til að und-
irbúa stórt íbúaþing sem haldið
verður í Íþróttahöllinni 17. og 18.
september nk., og var á honum leit-
að eftir hugmyndum manna og sýn
þeirra á nýjan breyttan miðbæ.
Efniviðurinn sem fram kemur á
þinginu verður svo nýttur til að
skilgreina forsendur í alþjóðlegri
arkitektasamkeppni um miðbæ Ak-
ureyrar. Ráðgjafarfyrirtækið Alta
stýrir verkefninu, en tólf fyrirtæki
hafa myndað áhugahóp um það.
Meðal annarra hugmynda sem
fram komu má nefna byggingu
nýrra íbúða í miðbænum, uppbygg-
ingu Skátagilsins og leiksvæði fyrir
börn og unglinga. Þá vildu sumir að
heilsugæslan flytti sig um set úr
miðbænum og aðrir að þar yrði
reist stór matvöruverslun.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Sól og skjól í miðbæ“ var eitt markmiðið sem einhver fundarmanna setti á
blað á fundi um framtíðarskipun miðbæjarins á Akureyri.
Sól og skjól
í miðbæ
HÖFUÐBORGIN
AKUREYRI
Keflavík | Skemmtibáturinn Duus
KE er farinn að sigla á ný frá sam-
nefndum veitingastað í Keflavík,
eftir gagngerar endurbætur, og í
raun má svipað segja um skipstjór-
ann, Jón G. Benediktsson. Í apríl
síðastliðnum, í kringum páska,
lenti hann í alvarlegu slysi um borð
í grásleppubáti sínum, Magga litla,
og var nálægt því að missa hægri
fótinn. Þrátt fyrir að lærleggurinn
brotnaði illa á fimm stöðum tókst
læknum á Landspítalanum að
bjarga fæti Jóns og nú er hann
kominn á sjóinn á ný, mun fyrr en
bjartsýnustu menn þorðu að vona.
Jón er lífsglaður ungur maður og
hann segir jákvætt hugarfar hafa
haft mikið að segja um sinn skjóta
bata. Hann segist einnig eiga mikið
að þakka Gunnari B. Gunnarssyni
bæklunarlækni og öðru starfsfólki
sjúkrahúsanna í Reykjanesbæ og á
Landspítalanum í Fossvogi, þar
sem hann lá fyrstu tvær vikurnar
eftir slysið og fór um í hjólastól. Nú
styðst hann við hækjur öðru hvoru.
„Vonandi ná báturinn og ég að
ganga á báðum næsta sumar,“ seg-
ir Jón og vísar þar til þess að í
fyrrasumar hafi hann hlaupið um á
báðum fótum en skemmtibáturinn
Duus gengið illa á einni vél. Nú séu
hins vegar komnar tvær aflmiklar
vélar, alls með 1.260 hestöfl, í bát-
inn en hann hökti nánast um á ein-
um fæti! „Þetta er nú svolítið
ósanngjarnt,“ segir Jón og brosir
að öllu saman.
Slysið á grásleppubátnum varð
með þeim hætti að Jón og mágur
hans, Björgvin Magnússon, lentu í
ólgusjó fyrir utan Sandgerði þegar
verið var að draga inn netin. Bát-
urinn hálffylltist af sjó og er Jón
var að laga stíflaða lensidælu fest-
ist hann í tengi á gír og vafðist
vinstri höndin utan um öxulinn um
leið og löppin fór niður á milli öx-
ulsins og bátsins og mölbrotnaði.
Losnaði hann ekki úr prísundinni
fyrr en það drapst á vélinni.
Hræddur um að missa löppina
„Ég held ég geti fullyrt að þetta
sé það alversta sem ég hef upplifað
á ævinni. Ég var dauðhræddur um
að missa löppina,“ segir Jón en með
aðstoð Björgvins og áhafna nær-
staddra báta tókst að koma honum
fljótt í land í Sandgerði og þaðan í
skyndi með sjúkrabíl á Landspít-
alann í Fossvogi. Tveir tímar liðu
frá óhappinu þar til Jón var kom-
inn á skurðarborðið.
Að lokinni aðgerð var Jón upp-
lýstur um það að bati gæti tekið
langað tíma og hann þyrfti ekki að
spá í að geta hreyft löppina næsta
hálfa árið eða svo. En aðeins um
tveimur mánuðum eftir slysið er
skipstjórinn ungi kominn á stjá og
ekki eingöngu farinn að stýra Du-
us, heldur einnig búinn að fara einn
túr á Magga litla.
„Ég hef fulla trú á að ná algjör-
um bata. Ég má þakka Guði fyrir
að fleiri líkamshlutar sködduðust
ekki. Það var lán í óláni,“ segir Jón.
Hann hóf að gera út Duus, sem
tekur 40 manns um borð, í fyrra
ásamt tengdaföður sínum og eig-
anda veitingastaðarins Kaffi-Duus,
Sigurbirni Sigurðssyni, betur
þekktum sem Bóa. Jóni til aðstoðar
um borð er svo mágur hans, Björg-
vin. Þeir eru bjartsýnir á gott
gengi í sumar á tvíefldum báti og
gefa fólki kost á alhliða skemmti-
ferðum, jafnt í hvalaskoð-
unarferðir, sjóstangveiði og kletta-
stökk.
Báturinn gengur á tveimur
en skipstjórinn á einum
Morgunblaðið/Björn Jóhann Björnsson
Jón G. Benediktsson við stýrið á skemmti- og hvalaskoðunarbátnum Duus.
Ótrúlegur bati skipstjórans á Duus eftir að hafa nær misst annan fótinn