Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.2003, Side 15
Laugardagur
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhús kl. 14 Smekk-
leysubíó: HAM – lifandi dauð-
ir, heimild-
armynd um
rokksköddun.
84 mín. Ensk-
ur texti. Kl. 16:
SSL 25 eftir
Óskar Jón-
asson. Sýning-
arnar verða á
sama tíma á
morgun.
Smekk-
leysudagskrá kl. 15: Jóhamar
les úr eigin verkum og Sig-
urður Ármann trúbador leikur
og syngur frumsamin lög.
Sjóminjasafn Íslands,
Hafnarfirði kl. 13 sýning á
völdum gripum úr þjóð-
fræðisafni
Þjóðminja-
safns Íslands.
Gallerí Tukt,
Hinu hús-
inu, Póst-
hússtræti
3–5, kl. 16
GAG opnar
einkasýningu
sem hann
nefnir „Pester
a Beuty“. Þar er skírskotað til
líðandi atburða þjóðfélagsins.
Á opnuninni munu skáld lesa
ljóð.
Sýningin stendur til 12. júlí.
Gallerí Nema hvað, Skóla-
vörðustíg 22c, kl. 17 Sam-
sýningin Fjarskanistan. Verk
eiga Guðný
Rúnarsdóttir,
Hildigunnur
Birgisdóttir,
Hörn Harð-
ardóttir, Rak-
el Gunn-
arsdóttir, Sólveig Einarsdóttir
og Þorbjörg Jónsdóttir.
Opið sunnudaga til mið-
vikudags kl. 20–22.
Sunnudagur
Reykjavíkurtjörn kl. 15
Valgerður Dögg Jónsdóttir og
fjölskylda verður með uppá-
komu með þátttöku skúlptúra
eftir Aðalheiði S. Eysteins-
dóttur og er uppákoman liður í
40 sýningum á 40 dögum sem
nú stendur yfir.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhúsi kl. 15 Ingólfur
Arnarson leiðir gesti um sýn-
inguna Innsýn í alþjóðlega
samtímalist á Íslandi. Ingólfur
valdi verkin á sýninguna.
Þriðjudagur
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar kl. 20.30 Söng-
kvartettinn Út í vorið flytur er-
lend og innlend sönglög fyrir
kvartett, þar á meðal syrpu af
lögum Jóns Múla Árnasonar
sem Bjarni Þór Jónatansson
hefur útsett. Kvartettinn skipa
Einar Clausen
tenór, Halldór
Torfason tenór,
Þorvaldur Frið-
riksson bassi
og Ásgeir
Böðvarsson
bassi ásamt
Bjarna Þór Jón-
atanssyni pí-
anóleikara.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhús kl. 12 HAM – lif-
andi dauðir, heimildarmynd
um rokksköddun.
Fimmtudagur
Hallgrímskirkja kl. 12
Sumarkvöld við orgelið: Erla
Berglind Einarsdóttir sópran
og Douglas A.
Brotchie orgel.
Listasafn
Reykjavíkur
- Hafnarhús
kl. 12 HAM –
lifandi dauðir,
heimildarmynd
um rokk-
sköddun.
Föstudagur
Ráðhús Reykjavíkur kl.
12.15 Tríó Cantabile heldur
stutta hádegistónleika og flytur
allt frá dramatískum verkum
yfir í létt
dægurlög.
Tríóið er
skipað
Birnu
Helgadótt-
ur píanó-
leikara,
Emilíu Rós
Sigfúsdótt-
ur flautu-
leikara og
Sigríði Ósk Kristjánsdóttur
söngkonu.
Tilkynningar sem birtast
eiga á þessari síðu þurfa að
berast í síðasta lagi kl. 11
árdegis á fimmtudögum á
netfangið menning@mbl.is.
Sjá einnig mbl.is/staður og
stund.
Erla Berglind
Einarsdóttir
Jón Múli
Árnason
Jóhamar.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 5. JÚLÍ 2003 15
Morgunblaðið/Þorkell
Marteinn H. Friðriksson.
TÓNLEIKARÖÐINSumarkvöld við org-elið er gengin í garð íHallgrímskirkju í ell-
efta sinn. Það er Marteinn
H. Friðriksson dómorgan-
isti sem ríður á vaðið á
fyrstu sunnudagstónleik-
unum annað kvöld kl. 20.
Efnisskráin gefur góða
mynd af íslenskri org-
eltónlist en
einnig fær
meistari
Bach að
njóta sín.
Hvers
vegna Bach meðal íslenskra
tónskálda?
„Margir freistast til að
leika síðrómantíska tónlist
á svona stór hljóðfæri eins
og Klais-orgelið í Hall-
grímskirkju er, en núna
langaði mig að leika tónlist
eftir Bach. Hann hafði, eins
og ég nú, stóra kirkju og
stórt orgel til að halda tón-
leika í. Þess vegna leik ég
tvö stór verk eftir hann.
Annars vegar Tokkötu og
fúgu í F-dúr, sem er eitt af
þekktustu orgelverkum
hans, og hins vegar Sónötu
nr. 6 í G-dúr en hún er talin
meðal bestu verka meist-
arans. Sónötuna samdi
Bach fyrir son sinn Friede-
mann og hefur hún allar
götur síðan verið próf-
steinn en um leið gott vega-
nesti sérhvers organista.
Verkið er erfitt en ótrúlega
fallegt og hlakka ég mikið
til að flytja það.
Einnig flyt ég stórt verk
eftir Pál Ísólfsson honum til
heiðurs en í ár eru liðin 110
ár frá fæðingu hans. Því
fannst mér vel við hæfi að
flytja Chaconne um stef úr
Þorlákstíðum. Verkið er al-
veg tilvalið til flutnings í
Hallgrímskirkju og mér
finnst alveg frábært að
leika á orgelið sem er ákaf-
lega hljómfagurt.“
Innan um þessi stóru
verk eru þrjú minni sálma-
verk, eitt eftir ungt tón-
skáld, Þóru, dóttur Mar-
teins. Hún stundar nú
framhaldsnám í tónsmíðum
við Tónlistarháskólann í
Gautaborg. Hvernig tilfinn-
ing er að flytja tónlist eftir
dóttur sína?
„Það er alveg yndislegt
að upplifa það að leika verk
eftir barnið sitt og vonandi
verða verkin fleiri sem ég
kem til með að flytja eftir
hana. Verk Þóru nefnist
Sálmaforleikur og þar vinn-
Ragnari Björnssyni en þá
frumflutti hann nokkra
sálmforleiki eftir íslensk
tónskáld. Þessi verk finnst
mér sóma sér vel meðal
stóru verkanna.“
Marteinn flytur hluta
efnisskrárinnar á hádeg-
istónleikum í dag kl. 12:
Tokkötu og fúgu í F-dúr
eftir Bach, Jesús, mín
morgunstjarna eftir Jón
Þórarinsson og Chaconne
um stef úr Þorlákstíðum
eftir Pál Ísólfsson.
ur hún með gamalt íslenskt
sálmalag. Einnig flyt ég
sálmaforleik eftir Jón Þór-
arinsson, Jesús, mín morg-
unstjarna. Verkið útsetti
Jón fyrst fyrir blandaðan
kór árið 1952 og gerði síðar
við hann sálmaforleik.
Þetta litla verk er í miklu
uppáhaldi hjá mér. Auk
þess leik ég Sálmforleik um
sálm sem aldrei var sung-
inn eftir Jón Nordal. Verkið
var frumflutt á Skálholts-
tónleikum 17. ágúst 1980 af
Þrjú smá-
verk meðal
stórverka
STIKLA
Orgeltón-
leikar í Hall-
grímskirkju
Næsta v ika
Myndlist
Árbæjarsafn: Daglegt líf í
Reykjavík – sjötti áratugurinn.
Til 1.9. Lárus Sigurbjörnsson,
safnafaðir Reykvíkinga. Til
20.7.
Galleri@hlemmur.is: Sam-
sýning fimm núverandi og ný-
útskrifaðra nemenda LHÍ. Til
6.7.
Gallerí Skuggi: Joris Rade-
maker. Til 14.7.
Gerðarsafn: Jóhannes Kjar-
val. Úr einkasafni. Til 6.9.
Gerðuberg: Upplýsingar
um Breiðholtið á 18. og 19.
öld. Til 5.9.
Hafnarborg: Afmælissýn-
ing Hafnarborgar. Til 4.8.
Handverk og hönnun:
Sumarsýning. Til 31.8.
Kling & Bang, Laugavegi
23: Pétur Már Gunn-
arsson.Til 13.7.
Listasafn ASÍ: Úr eigu
safnsins: Nína Tryggvadóttir,
Svavar Guðnason og Kristján
Davíðsson. Til 3.8.
Listasafn Árnesinga,
Hveragerði: Kristján Dav-
íðsson og Þór Vigfússon. Til
31.7.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga og
sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Úrval
verka úr eigu safnsins. Til
31.8.
Listasafn Rvíkur – Ás-
mundarsafn: Ásmundur
Sveinsson – Nútímamað-
urinn. Til 20.5.
Listasafn Rvíkur – Hafn-
arhús: Innsýn í alþjóðlega
myndlist á Íslandi. Til 7.9.
Erró – stríð. Til 3.1. Humar
eða frægð – Smekkleysa í 16
ár. Til 31.8.
Listasafn Rvíkur – Kjar-
valsstaðir: Nýir tímar í ís-
lenskri samtímaljósmyndun.
Til 17.8.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar: Andlitsmyndir og af-
straksjónir. Til 1.9.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur: Claire Xuan. Til 1.9.
Mokkakaffi: Katrín Elvars-
dóttir. Til 5.7.
Norræna húsið: Norræn
fílasýning. Til 17.8. Ragnar
Th. Sigurðsson og Ari Trausti
Guðmundsson.Til 31.8.
Norska húsið, Stykk-
ishólmi: Ebba Júlíana Lár-
usdóttir og 15 félgsmenn
Samlagsins á Akureyri. Til
28.7.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg
3B : Matthew Barney: Cre-
master-plate. Til 27.7.
Safnasafnið, Alþýðu-
listasafn Íslands, Eyja-
firði: Tíu úti- og innisýningar.
Til 14.9.
Skálholtsskóli: Björg Þor-
steinsdóttir staðarlistamaður.
Til 1.9.
Slunkaríki, Ísafirði: Egill
Sæbjörnsson. Til 21.7.
Sjóminjasafn Íslands,
Hafnarfirði: Valdir gripir úr
Þjóðminjasafni. Til 15.11.
Þjóðmenningarhúsið: Ís-
landsmynd í mótun – áfangar
í kortagerð. Til 8.8. Handritin.
Landafundir.
Leiklist
Borgarleikhúsið: Grease,
sun., fim., fös.
„Gunnari Helgasyni hefur
tekist að færa kraftinn, leik-
gleðina og frelsið, sem hefur
einkennt framhaldsskólasýn-
ingar liðinna ára, yfir á at-
vinnusýningu.“ Mbl. SH.
Iðnó Ferðaleikhúsið. Light
Nights, mán. fös.
Evrópsk sönglög við Mývatn
17. STARFSÁR sumartónleika við
Mývatn hefst um helgina með fyrstu
tónleikum í Reykjahlíðarkirkju kl. 21
í kvöld og í Skútustaðakirkju annað
kvöld kl. 21. Þetta er í fyrsta sinn
sem sumartónleikarnir eru einnig í
Skútustaðakirkju, en þar er nú kom-
ið lítið pípuorgel, smíðað af Björg-
vini Tómassyni orgelsmið.
Flytjendur helgarinnar eru Margrét
Bóasdóttir, sópran og Guðmundur Sigurðsson, organisti í Bú-
staðakirkju í Reykjavík. Á efnisskrá þeirra eru orgelverk og söng-
lög frá Frakklandi, Spáni og Þýskalandi og einnig íslensk kirkju-
lög og sálmalög í nýjum útsetningum Smára Ólasonar.
Guðmundur
Sigurðsson
Margrét
Bóasdóttir
ÞRIÐJU tónleikar
í röð org-
eltónleika í Reyk-
holtskirkju verða
í kvöld, kl.
20.30. Það eru
feðginin Árni Ar-
inbjarnarson
organisti og Pál-
ína Árnadóttir
fiðluleikari sem
leika einleik og samleik á orgel
og fiðlu verk eftir J.S. Bach, G.F.
Händel, A. Vivaldi og Pál Ísólfs-
son. Árni Arinbjarnarson stund-
aði orgelnám hjá dr. Páli Ísólfs-
syni og lauk burtfararprófi í
orgelleik frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1960. Áður hafði
Árni lokið burtfararprófi í fiðlu-
leik frá sama skóla, en kennari
hans í fiðluleik var Björn Ólafs-
son. Árni stundaði framhalds-
nám í fiðlu- og orgelleik í Lond-
on og hlaut til þess styrk frá
British Council. Árni starfaði sem
fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit
Íslands frá 1960–1996. Hann er
nú fiðlukennari við Nýja tónlist-
arskólann og org-
anisti við Grens-
áskirkju í Reykjavík.
Pálína Árnadóttir
fiðluleikari lauk ein-
leikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið
1994 undir hand-
leiðslu Guðnýjar
Guðmundsdóttur.
Framhaldsnám stundaði hún við
University of Houston hjá Fredell
Lack prófessor og lauk þaðan
M.M.-prófi. Einnig stundaði hún
nám við Royal College of Music
í London hjá Grigory Zhislin
prófessor, þar sem hún lauk
Postgraduate Diploma. Á síð-
asta ári lauk hún Graduate Dipl-
oma frá Juilliard-tónlistarskól-
anum í New York. Pálína hefur
víða komið fram sem einleikari
og tekið þátt í mörgum keppn-
um.
Tónleikarnir eru skipulagðir í
samvinnu við Félag íslenskra
organleikara til styrktar org-
elinu.
Árni
Arinbjarnarson
Pálína
Árnadóttir
Feðgin á orgeltónleikum
í Reykholtskirkju
SÖGUSETRIÐ á Hvolsvelli efnir til ferða með leiðsögn um
Njáluslóðir næstu tvo sunnudaga. Lagt verður af stað frá
Sögusetrinu báða dagana kl. 13. Heimsóttir verða nokkrir
helstu sögustaðir Njálu í Rangárþingi.
Sögumaður í ferðinni, sem tekur um fjórar klukkustundir,
verður Arthúr Björgvin Bollason. Þeir sem vilja geta tekið
daginn snemma og mætt í Sögusetrið kl. 11 um morguninn.
Þá mun Arthúr Björgvin ganga með gestum um sýninguna
Á Njáluslóð sem nú hefur verið endurnýjuð og aukin til
muna. Sömuleiðis er boðið upp á rammíslenska kjötsúpu í
Söguskála Setursins sem rangæskar griðkonur í mið-
aldaklæðum bera fram við flöktandi skímu frá kyndlum sem
loga á fornum röftum. Hádegisverðurinn hefst kl. 12.
Nauðsynlegt er að panta bæði í ferðina og matinn.
Þess má geta að Njáluveislur Sögusetursins hefjast að nýju í
Sögusetrinu um miðjan ágúst og standa fram eftir hausti.
Leiðsögn um Njáluslóðir
Arthúr Björgvin Bollason er forstöðumaður Sögusetursins á Hvolsvelli.