Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.2003, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. JÚLÍ 2003
F
LESTIR þeirra er lögðu leið sína á
listakaupstefnuna í Basel notuðu
tækifærið til að skoða nýjan og
óvenjulegan myndlistarvettvang
er opnaður var þar í borg fyrir
skömmu. Staðurinn heitir
Schaulager og vísar heitið til þess
hlutverks sem hann á að þjóna,
sem eins konar lager fyrir sjónlistir, einhvers
staðar á mörkum listasafns, listaverkageymslu
og fræðaseturs. Að baki þeim óvenjulega list-
vettvangi sem þarna er opnaður liggur sú hug-
mynd að söfn samtímalistar þurfi að vera annað
og meira en geymslustaðir – þeir eigi að gegna
virku hlutverki við að auka skilning okkar, þekk-
ingu og virðingu fyrir listinni.
Vörulager sjónlistanna
Húsið er hannað af Herzog & de Meuron,
sömu arkitektum og teiknuðu breytingar þær
sem gerðar voru á byggingu Tate Modern-
safnsins í London og vöktu mikla athygli á sín-
um tíma. Í hönnun sinni á Schaulager hafa þeir
farið óvenjulega og óhefðbundna leið, því kveikj-
an að húsinu er augljóslega byggð á hugmynd-
inni um vöruhús, þar sem listaverk eru gerð að-
gengileg fyrir þá sem vilja njóta þeirra í
sérstaklega hönnuðu geymslurými er jafnframt
býður upp á bestu aðstæður til varðveislu.
Byggingunni er einnig ætlað að vera staður þar
sem forverðir hafa bestu hugsanlega aðstöðu til
að sinna sínum rannsóknum, þar sem hægt er að
sinna fræðimennsku og kynningarstarfi auk
þess að setja upp sýningar fyrir almenning.
Útlit hússins er nokkuð sérstakt – undir aug-
ljósum áhrifum frá hugmyndinni um vöru-
geymsluna – en jafnframt gætir framsækinnar
fágunar er hæfir starfsemi þess vel. Útveggur
er rofinn með afgerandi hætti til að veita ljósi
inn í bygginguna og inngangurinn er eins konar
torg sem miðar að því að brúa bilið á milli starf-
seminnar innandyra og borgarsamfélagsins fyr-
ir utan. Á torginu er gler áberandi ásamt hvítum
flötum, en yfirborð þeirra er mótað í stór kúlu-
laga form er vísar til lífrænna þátta. Ytra byrði
hússins fellur einnig ákaflega vel að umhverfinu,
enda er steypan sem í það var notuð blönduð
möl og steinum úr því sem grafið var upp fyrir
grunninum. Þetta jarðkennda ytra byrði er auk
þess í mörgum lögum er þjóna lykilhlutverki í
því að viðhalda kjöraðstæðum til varðveislu
listaverka innandyra; réttu raka- og hitastigi.
Söfnun, varðveisla og miðlun listar
Schaulager er byggt til að hýsa safn Emanuel
Hoffmann-stofnunarinnar, en hún var sett á
laggirnar árið 1933 af Maju Hoffmann-Stehlin, í
minningu manns hennar sem lést langt fyrir ald-
ur fram. Markmið hennar með þessu framtaki
voru þríþætt frá upphafi; að safna, varðveita og
miðla framsækinni list, en þessi markmið eru
enn helsta leiðarljós stofnunarinnar eins og
Schaulager byggingin ber með sér.
Það var þó ekki einvörðungu hið nýja sýning-
arrými og hugmyndafræðin að baki því sem dró
að fagfólk og listunnendur víðs vegar að úr
heiminum, heldur einnig fyrsta sýningin á þess-
um vettvangi; yfirlitssýning á verkum lista-
mannsins Dieters Roth. Það er óneitanlega vel
við hæfi að stofnun sem staðsetur sig á því svæði
menningarinnar þar sem svo mörg svið skarast
skuli hefja starfsemi sína með sýningu á verkum
hans, því Dieter var auðvitað einn þeirra lista-
manna sem hvað mest hefur látið reyna á þol-
mörk listrænnar tjáningar. Hann lét hvorki
mörk hefðar né miðla aftra sér frá því að komast
þangað sem hann fann sig knúinn til að fara til
þess að láta reyna á það takmarkaleysi sem list-
arskrá, er hann tilgreindur sem „snillingur á
sviði teikningar, málari, innsetninga-, ljós-
mynda- og videólistamaður, sem skáld, bóka-
gerðarmaður og tónlistarmaður“. Eins og áður
sagði spannar sýningin ævistarf þessa fjölhæfa
listamanns og gefur því góða mynd af því hvern-
ig lífsferill og áhugasvið hans þróaðist. Í bókinni
og bæði til safna og einkaaðila. Sonur Dieters,
Björn Roth, sem var lengi samstarfsmaður föð-
ur síns, hefur lagt mikið af mörkum til að sýn-
ingin yrði að veruleika, en að hans sögn hefur
undirbúningur staðið í þrjú ár og á þeim tíma
hafa þrír til sex einstaklingar verið að vinna við
verkefnið.
Sýningin mun enda fara í mikla heimsreisu
eftir að hún fer úr húsakynnum Schaulagers;
fyrst til Kölnar þar sem hún verður sett upp í
Museum Ludwig og síðan til Museum of Mod-
ern Art (MOMA) í New York. Komið hefur til
tals að sýningin verði einnig sett upp í Tate
Modern í London, en enn er ekki ljóst hvort af
því verður.
Roth-tíminn; tími fjölhæfninnar
Það hefur reynst aðstandendum sýningarinn-
ar jafn erfitt og öðrum að skilgreina listamann-
inn Dieter Roth, enda var hann ekki maður
hinna afmörkuðu ramma. Á kápublaði bókarinn-
ar Roth-Zeit, sem einnig þjónar sem sýning-
sköpun getur falið í sér ef víðsýni og hugarflug
fær að ná yfirhöndinni. Jafnframt samræmist
sýningin vel þeim markmiðum sem starfsemin í
Schaulager byggist á, því verk Dieters eru ekki
einvörðungu mikilvæg í samhengi samtímalista,
heldur eru þau vegna þess óvenjulega efniviðar
sem hann iðulega notaði, ögrun fyrir alla þá sem
vinna við forvörslu og rannsóknir.
Sýning sem fer í heimsreisu
Sýningin, sem kynnt er undir heitinu Roth-
Zeit, eða tími Roths, ber þess augljós merki að
hafa verið lengi í undirbúningi og í tilefni hennar
hefur verið gefin út vegleg þrjú hundruð blað-
síðna bók um ævistarf og lífshlaup listamanns-
ins. Um síðustu helgi var ráðstefna um sama
efni og er fyrirhugað að gefa þau erindin sem
þar voru flutt einnig út á bók.
Það rannsóknarstarf sem inna þurfti af hendi
til að koma sýningunni heim og saman er ómælt,
því til þess að gefa raunhæfa mynd af þessum
langa ferli þurfti að sækja verkin víða um heim
PORTRETT AF LISTA
FUGLAFÓÐURS
Nýr myndlistarvettvangur, Schaulager, var opnaður nýverið í Basel, en hann er
ætlaður undir starfsemi sem er á mörkum listasafns, listaverkageymslu og fræða-
seturs. Það er vel við hæfi að fyrsta sýningin í byggingunni skuli vera yfirlitssýning
á verkum Dieters Roths, enda sköruðust iðulega mörk margra sviða í verkum hans.
FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR skoðaði tíma Roths.
(Ljósm./Martin Bühler)
Portrett af listamanninum sem fuglafóðurs-
brjóstmynd, 1968. Súkkulaðibrjóstmynd.
(Ljósm./Gygi)
Nýársgjöf, 1954. Tvílit æting á pergament.
Roth var mjög afkastamikill þrykkjari.
Kryddgluggar, 1969. Ýmiskonar k
(Ljósm./A. Burger)
Reykjavíkurskyggnur 1. hluti: 1973–75, 2. hluti: 1990–93. 30.000 skyggnur, 3 viðarhillur, 8 sýning-
arvélar á stöplum. Þetta verk Dieters Roths er ómetanleg rannsókn á íslenskri byggingararfleifð.
Schaulager er hugarfóstur arkitektanna Herzog &
húsakynnum Tate Modern. Húsið er miðstöð fy