Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.2003, Síða 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. JÚLÍ 2003
ORÐIÐ „arkítektúr“ er samsett úr grísku orð-
unum „arch“ sem þýðir „æðri“ eða „betri“ og
„tecrure“ sem þýðir „konstrúktsjón“ eða „bygg-
ing“. Orðið túlkast sem „listin að hanna rými“ og
er almennt notað yfir hönnun allra bygginga.
Samband myndlistar við byggingarlist hefur oft
verið náið, sérstaklega í tíð endurreisnar og bar-
okks, enda var myndlistin þá ekki þetta sjálf-
hverf vísindi og við þekkjum frá tíð módernism-
ans á 20. öldinni. Í dag eru myndlist og
byggingarlist ekki sérlega samofnar hvor ann-
arri en tengslin hafa þó aldrei rofnað enda fást
myndlistarmenn mikið til við form og rými, líkt
og arkítektar.
Undanfarin ár hefur aukning verið á stað-
bundnum myndlistarverkum við opinberar
byggingar hér á landi sem kallast á við arkítekt-
úrinn með einum eða öðrum hætti, en frá árinu
1998 hafa verið í gildi lög sem segja „að verja
skuli 1% af heildarkostnaði opinberra bygginga
til listskreytingar“. Til að viðhalda fagmennsku
er því haldin samkeppni eftir reglum SÍM (Sam-
band íslenskra myndlistarmanna) um listskreyt-
ingar fyrir slíkar byggingar þar sem myndlist-
armenn gera tillögur að staðbundnu listaverki
með tilliti til arkítektúrsins.
Engar kvaðir um listskreytingar eru á bygg-
ingum fyrirtækja eða stofnana sem ekki eru í
eigu hins opinbera. Ekki einu sinni kirkjubygg-
inga, en safnaðarnefnd hverrar kirkju getur t.d.
sett upp listaverk eftir hvern sem er án samráðs
við nokkurn fagaðila. Faglegmennska eða fagleg
ráðgjöf er einnig fátíð þegar kemur að lista-
verkakaupum hjá einkafyrirtækjum hérlendis og
leita mörg hver ekki lengra en í listmunamark-
aðinn eftir listskreytingum, enda eini þróaði
myndlistarmarkaðurinn á Íslandi. Sem betur fer
eru fyrirtæki hér á landi þar sem yfirmenn þess
hafa kynnt sér samtímalistir, hafa áhuga á þeim,
og leggja metnað í listskreytingar.
Mýri í mýrinni
Bygging Íslenskrar erfðagreiningar við
Sturlugötu er ekki í eigu hins opinbera og sætir
því engum reglum um listskreytingar. Engu að
síður er þar staðbundið listaverk eftir danska
myndlistarmanninn Ólaf Elíasson. Engin sam-
keppni fór fram við val á listaverkinu heldur var
fyrst og fremst verið að velja listamann sem þeg-
ar hefur sannað sig á alþjóðlegum vettvangi og
leggur fyrirtækið traust sitt í að hann fram-
kvæmi metnaðarfullt verkefni við hæfi. Ekki
brást Ólafur því trausti og skapaði hágæða um-
hverfislistaverk við bygginguna að framanverðu.
Listaverkið nefnist „Mýrargarður“ og var form-
lega kynnt almenningi í fyrra. Um er að ræða
mýri sem listamaðurinn gerði í samvinnu við
landslagsarkítekt og grasafræðing, en ólíkar teg-
undir af mýrargrösum vaxa þar á þúfum. Fegurð
listaverksins felst í eiginlegri náttúrulegri fegurð
en ekki í túlkun á henni. Því er ekki sjálfgefið að
vegfarendur átti sig á að þetta sé samtímalista-
verk, en vissulega er sérkennilegt að sjá „villta“
náttúru við þetta nýstárlega byggingu og þar af
leiðandi snertir verkið mann hvort sem maður
skoðar það sem umhverfislistaverk eða ekki.
Ólafur sækir áhrif sín í „landlist“ og „hug-
myndarlist“ sjötta og sjöunda áratugarins. Hug-
myndin að baki verksins hefur með sögu stað-
arins að gera, en þarna var áður heilmikil mýri
sem á sínum tíma var þurrkuð upp. Má líta svo á
að listamaðurinn sé að áminna okkur að fara
gætilega með náttúruna því að náttúrufegurð er
ekki bara fjöll og firnindi eins og Halldór Kiljan
benti á í eina tíð hér á síðum blaðsins, þegar hann
lagði til að menn sem grófu skurði til að ræsa
fram mýri og fengju greitt fyrir að fylla í þá aft-
ur.
Óáþreifanlegt rýmið
Að færa náttúruna aftur inn fyrir borgarmörk-
in er auðvitað ekkert nýtt af nálinni, en út frá
hefðbundnum hugmyndum um þrívíða list þá
mun „Mýrargarður“ teljast nokkuð sérstakur
skúlptúr. Flestir þekkja eða hugsa þrívíða list
sem hlut sem hægt er að ganga í kringum og
skoða eða handfjatla sem „objekt“. Viðtekin leið
til að aðgreina tvívídd og þrívídd, utan þess að
skýra eitt „mynd“ og annað „hlut“, er út frá
punkti. Punktur er án víddar, tveir punktar gera
línu sem er þá tvívídd og tvær línur mynda rými
sem er þrívídd. Það er því rýmið sem segir okkur
til um þrívíddina en ekki hluturinn. Allmargir
myndlistarmenn á 20. öldinni einblíndu á rýmið
frekar en sjálfan hlutinn. Hámarkinu var þó náð í
mínimalisma sjötta og sjöunda áratugarins hjá
listamönnum á borð við Carl Andre John
McCracken, Dan Graham, Yves Klein o.fl.
Þór Vigfússon er íslenskur skúlptúristi sem
um skeið hefur gengið í mínimalískt myndmál og
unnið með rýmið á nokkuð áhrifaríkan hátt. Í
glæsilegum höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavík-
ur á Bæjarhálsi 1 hefur verið sett upp staðbundið
listaverk eftir Þór. Það er innanhúss og sam-
anstendur af fimm emaleruðum glerplötum sem
teygja sig upp fjórar hæðir eftir einum vegg
hússins við hlið göngubrúa sem tengja saman
tvær álmur. Listaverkið hefur ekki verið form-
lega vígt ennþá en þetta er fyrsta verkið sem rís
af fjórum sem sigruðu í lokaðri samkeppni fyrir
Orkuveituna. Lokuð samkeppni felst í því að hóp-
ur listamanna er valinn til að gera tillögur að
listaverki og svo er ein tillaga eða fleiri valdar til
útfærslu. Fyrir höfuðstöðvar Orkuveitunnar
voru, auk tillögu Þórs, valdar tillögur Hreins
Friðfinnssonar, Svövu Björnsdóttur og Finn-
boga Péturssonar.
Það eru eflaust ekki allir á eitt sáttir við að ég
kalli listaverk Þórs, „skúlptúr“, þar sem það er
algerlega flatt upp við vegg. Reyndar má hand-
fjatla sjálfar glerplöturnar og segja þær vera
hlut eða „objekt“, en glerið sjálft er alls ekki
skúlptúrinn. Þór er í raun að sýna tómt og
óáþreifanlegt rými sem við sjáum þegar arkí-
tektúrinn speglast í glerinu og upplifum jafn-
framt í sömu þrívídd og áþreifanlegan hlut.
Reyndar sveipar listamaðurinn rýmið vissri dul-
úð með því að nota lituð gler og gerir það verkið
enn áhrifaríkara og fallegra en ef um hreina
speglun væri að ræða.
Fallið dýrmæti
Tengsl listaverks Þórs Vigfússonar við arkí-
tektúrinn eru augljós enda skapar sambandið
þar á milli sjálfan skúlptúrinn. Í öðrum tilfellum
kann sambandið að vera túlkunaratriði eins og
raunin er með listaverk sem var vígt nú í sumar
við Borgarholtsskóla í Grafarvogi. Höfundar
verksins eru þær Eirún Sigurðardóttir, Jóní
Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir, sem saman
mynda Gjörningaklúbbinn. Var tillaga þeirra
valin til útfærslu af um 30 tillögum í almennri
samkeppni sem haldin var um listskreytingu við
skólann í fyrravetur. Almenn samkeppni fer
fram þannig að samkeppnin er auglýst og öllum
sem vilja er boðið að senda tillögur undir dul-
nefni. Sigurverk er svo valið án þess að dóm-
nefndin viti nokkur deili á listamanninum. Hér er
því þveröfugt farið miðað við hjá Íslenskri erfða-
greiningu.
Verk Gjörningaklúbbsins nefnist „Dýrmæti“
og er opinn stálskúlptúr sem stendur á bílastæði
skólans og formast líkt og gimsteinn. Undirrit-
aður sá á sínum tíma sýningu á öllum innsendum
tillögum, nema fjórum sem höfundar vildu ekki
sýna á opinberum vettvangi. Af þeim sem sýndar
voru þótti mér tillaga Gjörningaklúbbsins eiga
sigurinn skilið. Að sjá skúlptúrinn svo á skólalóð-
inni finnst mér eins og að eitthvað hljóti að hafa
farið úrskeiðis í útfærslunni. Birtist hann mér
sem ódýr staðgengill einhvers sem átti að vera
glitrandi gimsteinninn og varð þess í stað dæmi-
gerður formalískur stálskúlptúr. Það sem lífgar
skúlptúrinn þó eilítið við er brotið malbikið í
kringum hann sem gefur til kynna að „dýrmæt-
ið“ hafi dottið af himnum ofan, lent á skólalóðinni
og stungist þar í jörðina. Setningin „Ómetanlegt
dýrmæti“ sem listakonurnar hafa svo látið rita á
glugga skólans er annar hluti af listaverkinu og
má túlka sem ómetanlegt dýrmæti menntunar
og/eða í hinu unga fólki er nemur innan veggja
hússins og býr sig undir að erfa landið. Þannig
má tengja verkið við bygginguna eða starfsem-
ina sem þar fer fram og jafnframt sjá „gimstein-
inn“ sem táknmynd þessa dýrmætis.
Jón B.K. Ransu
INNI OG ÚTI
MYNDLIST
Íslensk erfðagreining
SKÚLPTÚR
ÓLAFUR ELÍASSON
Orkuveita Reykjavíkur
SKÚLPTÚR
ÞÓR VIGFÚSSON
Borgarholtsskóli
SKÚLPTÚR
GJÖRNINGAKLÚBBURINN
Óáþreifanlegur skúlptúr Þórs Vigfússonar í
höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Árni Torfason
„Dýrmæti“ Gjörningaklúbbsins við Borgarholtsskóla.
Morgunblaðið/Ásdís
„Mýrargarður“ Ólafs Elíassonar við byggingu Íslenskrar erfðagreiningar.
BRESKA stríðssafnið Imperial
War Museum hafnar því alfarið
að bræðurnir og listamennirnir
umdeildu Jake og Dinos Chap-
man séu sendir til Íraks til að
túlka eftirleik stríðsins sem
fulltrúar breskra listamanna.
Að mati safnsins væri það hel-
ber smekkleysa að senda lista-
mennina, en verk þeirra byggj-
ast gjarnan á dauða og eyði-
leggingu. Ákvörðun safnayfir-
valda hefur vakið mikla reiði
hjá bræðrunum sem höfðu ætl-
að sér að nota ferðina til að
mótmæla Íraksstríðinu.
Miklar deilur risu upp í kjöl-
far ákvörðunarinnar á milli
dómnefndar og safnsins og eft-
ir margra vikna deilur féllust
dómarar á að vídeólistamaður-
inn Steve McQueen yrði sendur
í stað Chapman-bræðra.
Bræðurnir hafa hins vegar
lýst yfir „fatwa“, sem er eins
konar dauðadómur, gegn
safnayfirvöldum og sagt
McQueen „ofureinlægan“ síðari
tíma vatnslitalistamann sem
skapi verk sem séu „full af
engu.“
„Þeir eru að senda mann sem
vinnur svo óljós og tvíræð ljóð-
ræn verk að senur sem eru
fullar af skít, hryllingi og ógeði
verða gerðar að þokukenndum
vatnslitamyndum,“ sagði Jake,
sem hins vegar er ekki hissa á
andstöðunni við að senda þá
bræður. En tillagan sem hann
lagði fyrir dómnefndina byggð-
ist ekki aðeins á mótmælum
gegn stríðinu sjálfu heldur
einnig hugmyndinni að senda
listamenn til landa sem hafa
verið hertekin af „heimsveldis-
öflum“.
„Ég kom því skýrt til skila að
þetta væri ósmekklegt. Fyrst
varpar maður sprengjum á fólk
og svo notar maður stríðið í
fagurfræðilegum tilgangi. Ég
sagði af ef ég yrði sendur til
Íraks þá yrði verk mitt eitt-
hvað sem myndi benda á þetta
– hvernig er eiginlega hægt að
ýja að fagurfræði í smekkleys-
unni? “
Minnkandi
skúlptúr Koons
TILLAGA Jeff Koons að
skúlptúr í rauða hverfinu í
Hamborg hefur verið lækkuð
um eina 25 metra að því er
greint var frá í þýska dag-
blaðinu Süddeutsche Zeitung.
Upphaflega ætlaði Koons að
láta reisa tvo 110 metra háa
krana sem bæru uppi risavaxið
yfirvaraskegg og fjölda upp-
blásinna dýra, en kranarnir
hafa nú verið lækkaðir niður í
85 metra hæð. Skúlptúr Koons
nýtur nú aukins velvilja meðal
borgarbúa en ekki er þó enn
víst að hann líti dagsins ljós og
kunna breytingarnar að reyn-
ast of litlar. Enn á nefnilega
eftir að safna um 230 milljón-
um króna fyrir byggingar-
kostnaðinum svo skúlptúrinn
geti orðið að veruleika.
ERLENT
Ekki „hæfir“
stríðslistamenn
Reuters
„Great Deeds Against the Dead,“
eftir Jake og Dinos Chapman.