Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.2003, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. JÚLÍ 2003 15
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir myndlistarmaður leggur loka-
hönd á listaverk á vinnustofunni sinni í Gilinu á Akureyri.
Næsta v ika
Laugardagur
Listasafn
Reykjavíkur -
Hafnarhúsi kl.
14-17 Dagskrá
í tilefni sýning-
arinnar „Humar
eða frægð –
Smekkleysa í 16
ár“. Tónleika-
myndband Sykurmolanna Live
Zabor verður frumsýnt, hljóm-
sveitin Kimono leikur nokkur
lög og sýnd verða myndbönd
eftir Egil Sæbjörnsson.
Hafnarborg kl. 15 Sýning á
teikningum bandarísku lista-
konunnar Barböru Cooper.
Kínversk alþýðulist.
Gallerí
Tukt, Hinu
húsinu
Póst-
hússtræti
3–5 kl. 16 Skáld lesa ljóð á
einkasýningu listamannsins
GAG og lýkur þar með sýning-
unni.
Gallerí Skuggi kl. 15 Sam-
sýningin Jauðhildur. Verk eiga
Jóhannes Dagsson, Auður
Sturludóttir og Ragnhildur
Magnúsdóttir. Opið fimmtu-
daga til sunnudaga frá kl 13–
18.
Listhús Ófeigs, Skóla-
vörðustíg 5 kl. 16 Nikals
Ejve frá Svíþjóð sýnir skart-
gripi unna úr svörtu oxideruðu
silfri með gullskreytingum, lit-
uðum vír og bergkristal.
Opin virka daga 10–18,
laugardaga 11–16.
Listasetrið Kirkjuhvoli,
Akranesi kl. 15 Þórdís
Björnsdóttir sýnir 25 búta-
saumsverk. Þórdís hefur haldið
einkasýningu og tekið þátt í
nokkrum samsýningum. Opið
alla daga nema mánudaga kl.
15–18.
Jómfrúin kl. 16 Gítarleikar-
arnir Ásgeir J. Ásgeirsson og
Henk Sprenger, auk bassaleik-
arans Róberts Þórhallssonar
flytja djasstónlist. Leikið er á
Jómfrúrtorgi ef veður leyfir.
Sunnudagur
Akureyrarkirkja kl. 17 Páll
Óskar Hjálmtýsson og Monika
Abendroth hörpuleikari koma
fram á Sumartónleikum Akur-
eyrarkirkju.
Nýlistasafnið
kl. 15 Halldór
Björn Runólfsson
leiðir gesti um
sýningu Matt-
hews Barney.
Sýningin er hluti
af Cremaster-
seríunni sem
Matthew byrjaði að vinna að
1994.
Krókur á Garðaholti,
Garðabæ Opið hús kl. 13-
17. Aðgangur ókeypis.
Þriðjudagur
Listasafn Sig-
urjóns Ólafs-
sonar kl.
20.30 Þórunn
Ósk Mar-
inósdóttir víólu-
leikari leikur
Sellósvítu nr. 2 eftir J. S. Bach,
Svítu op. 131d nr. 1 eftir Max
Reger og Sónötu op. 25 nr. 1
eftir Paul Hindemith.
Fimmtudagur
Hallgríms-
kirkja kl. 12
Guðrún Lóa
Jónsdóttir alt og
Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir
orgel.
Þórshafnar-
kirkja kl. 20
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópr-
an, Einar Jóhannesson, klarín-
ettuleikari og Valgerður Andr-
ésdóttir píanóleikari flytja
íslensk og erlend verk m.a. eftir
Jón Ásgeirsson, Atla Heimi
Sveinsson, Mozart, McCabe
og G. Gershwin. Einnig ein-
leiksverk fyrir klarínett og ís-
lensk sönglög og aríur.
Egill
Sæbjörnsson
Halldór B.
Runólfsson
Guðrún Lóa
Jónsdóttir
Myndlist
Árbæjarsafn: Daglegt líf í
Reykjavík – sjötti áratugur-
inn. Til 1.9. Lárus Sigur-
björnsson, safnafaðir Reyk-
víkinga. Til 20.7.
Gallerí Hlemmur: Hrafn-
hildur Halldórsdóttir. Til 3.
ágúst.
Gallerí Skuggi: Samsýn-
ing: Ragnhildur Magnús-
dóttir, Auður Sturludóttir og
Jóhannes Dagsson. Til 3.8.
Gallerí Sævars Karls:
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir.
Til 1.8.
Gerðarsafn: Sýning á
málverkum Jóhannesar
Kjarvals úr einkasafni. Til
6.9.
Gerðuberg: Til sýnis upp-
lýsingar um Breiðholtið á
18. og 19. öld. Til 5.9.
Hafnarborg: Afmælissýn-
ing Hafnarborgar – 1983–
2000. Til 4.8. Úr einkasafni
Wang Shucun. Barbara
Cooper. Til 28.7.
Handverk og hönnun,
Aðalstræti 12: Sumarsýn-
ing. Til 31.8.
Íslensk grafík, Hafn-
arhúsinu: Erla Norðdahl.
Til 27.7.
Kling & Bang, Lauga-
vegi 23: Sýning Péturs
Más Gunnarssonar. Til
13.7.
Listasafn ASÍ: Úr eigu
safnsins: Nína Tryggvadótt-
ir, Svavar Guðnason og
Kristján Davíðsson. Til 3.8.
Listasafn Árnesinga,
Hveragerði: Kristján Dav-
íðsson og Þór Vigfússon. Til
31.7.
Listasafn Borgarness:
Gunnar Ingibergur Guð-
jónsson. Til 13. ágúst.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga
og sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Úrval
verka úr eigu safnsins. Til
31.8.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Ásmund-
ur Sveinsson – Nútímamað-
urinn. Til 20.5.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Innsýn í al-
þjóðlega myndlist á Íslandi.
Til 7.9. Erró – stríð. Til 3.1.
Humar eða frægð – Smekk-
leysa í 16 ár. Til 31.8.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Nýir tímar
í íslenskri samtímaljós-
myndun. Til 17.8.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Sumarsýn-
ingin Andlitsmyndir og af-
straksjónir. Til 1.9.
Listhús Ófeigs, Skóla-
vörðustíg: Nikals Ejve frá
Svíþjóð. Til 16.7.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi.: Claire
Xuan. Til 1.9.
Norræna húsið: Norræn
fílasýning. Til 17.8. Ljós-
myndir Ragnar Th. Sigurðs-
son við texta Ara Trausta
Guðmundssonar. Til 31.8.
Norska húsið, Stykk-
ishólmi: Ebba Júlíana
Lárusdóttir. Sýning á verkum
félagsmanna úr Samlaginu.
Til 28.7.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg
3B : Matthew Barney:
Cremaster-plate. Til 27.7.
Safnasafnið, Alþýðu-
listasafn Íslands, Eyja-
firði: Tíu úti- og innisýn-
ingar. Til 14.9.
Safn – Laugavegi 37: Ís-
lensk og alþjóðleg samtíma-
listaverk. Safnið er opið
mið.–sun. kl. 14–18.
Sjóminjasafn Íslands,
Hafnarf.: Gripir úr Þjóð-
fræðisafni Þjóðminjasafns
Íslands. Til 15.9.
Skálholtsskóli: Staðar-
listamaður. Björg Þorsteins-
dóttir. Til 1.9.
Slunkaríki, Ísafirði: Egill
Sæbjörnsson. Til 21.7.
Þjóðmenningarhúsið: Ís-
landsmynd í mótun – áfang-
ar í kortagerð. Til 8.8.
Handritin. Landafundir.
Sumarsýningin Íslendinga-
sögur á erlendum málum.
Leiklist
Borgarleikhúsið: Grease,
lau., mið., fim., fös.
Tjarnarbíó: Hið lifandi
leikhús: Aðfarir að lífi henn-
ar, frums. þrið.
Tilkynningar sem birtast
eiga á þessari síðu, þurfa
að berast í síðasta lagi kl.
11 árdegis á fimmtudögum.
Netfangið er menning-
@mbl.is. Sjá einnig mbl.is/
staður og stund.
LISTAMAÐURINN Að-alheiður S. Eysteins-dóttir stendur íströngu þessa dagana.
Opnar 40 myndlistarsýn-
ingar á jafnmörgum dögum
í tilefni af 40 ára afmæli
sínu. Þegar blaðamaður
náði símasambandi við hana
var hún í óða önn að pakka
niður verkum til að hafa á
sýningu hjá
Sævari
Karli sem
opnuð verð-
ur kl. 14 í
dag.
Hvernig hefur verkefnið
gengið?
„Þetta hefur gengið ótrú-
lega vel og samkvæmt áætl-
un. Ég er að vinna að verk-
unum jafnóðum og ég sendi
sýningar í burtu. Við opnun
í Safnasafninu málaði ég
t.d. skúlptúr sem fara átti í
póst daginn eftir til útlanda.
Allt er þetta svolítið knappt
en þetta hefst.“
Nú ertu tæplega hálfnuð,
hefur þú ekki „hlaupið á
vegg“ eins og maraþon-
hlauparar tala oft um?
„Víst má líkja þessu við
maraþon. Tíminn er ansi
knappur oft en ég hef ekki
„hlaupið á vegg“ ennþá.
Það tekur vissulega á að
vera undir svona miklu
álagi í langan tíma. Hins
vegar er vinnugleðin svo
mikil að allt annað gleym-
ist. Það er innri þörf sem
knýr mig áfram í þessu
verkefni.“
Hefur verið fjölmenni í
afmælisveislunum?
„Já, aldeilis. Það eru ekki
bara vinir og vandamenn
sem halda þessar afmæl-
isveislur með því að setja
upp sýningarnar. Þær fara
fram víða um heim. T.d.
hringdi í mig kona sem sér
um sýninguna í Bainbridge
Island í Washington og
spurði hvort ég vildi hafa
súkkulaði- eða rjómatertu
við opnunina. Þegar ég opn-
aði sýninguna á Siglufirði
fór fjöldi manns með mér
og eins verður það á sýning-
unni hjá Sævari. Það er
mjög gaman því tilgang-
urinn er að dreifa gleðinni
sem víðast og um leið þess-
ari myndlist. Einnig hef ég
fengið gesti allsstaðar að á
vinnustofuna mína í Gilinu á
Akureyri sem óskar mér til
hamingju með sýningarnar.
Ég finn að fólk fylgist með
þessu og sumir hafa séð
margar sýningar nú þegar.
Í Ketilhúsinu á Akureyri er
svo heimildarmynd sem
gerð var um mig.“
Hvers konar efnivið not-
ar þú í verk þín?
„Ég vinn úr því hráefni
sem berst inná vinnustof-
una til mín. Fólk kemur
með allskonar dót og gefur
mér, timbur, striga, alls-
konar tuskur, járn, blöð og
tímarit. Allt verður þetta
mér að yrkisefni.“
Hvað fá gestir að sjá hjá
Sævari?
„Þar verða fjórar manns-
myndir (skúlptúrar) gerðir
úr timburafgöngum. Kaup-
maður með viðskiptavinum
og nokkrar hænur verða
þarna á vappi. Það má segja
að sýningin sé framlenging
á verslun Sævars Karls í
Bankastræti.“
Muntu taka þér frí eftir
þessar fjörutíu sýningar?
„Ég er ekki farin að
hugsa svo langt, hugsa bara
um næstu sýningu. Í næstu
viku opna ég sýningu á
Seyðisfirði og í millitíðinni
verð ég með uppákomu í
Hrísey.“
Sýningin hjá Sævari
Karli stendur til 1. ágúst.
Hænur á vappi hjá
Sævari Karli
STIKLA
Skúlptúr-
sýning hjá
Sævari Karli
ROGER Sayer, dómorganisti í Rochester í Englandi, kemur fram á
tvennum tónleikum á vegum Sumarkvölds við orgelið þessa helgi.
Í dag kl. 12 leikur hann á stuttum hádegistónleikum en aðal-
tónleikar helgarinnar verða annað kvöld kl. 20.
„Þetta er í þriðja sinn sem Roger heimsækir Ísland
auk þess sem hann hljóðritaði hér diskinn Great
Europan Organs nr. 45 sem gefinn var út af Priory
Records,“ segir í fréttatilkynningu.
Á efnisskrá sunnudagstónleikanna kennir ýmissa
grasa. Fyrst leikur Roger Sónötu í G-dúr eftir
breska tónskáldið Edward Elgar. Austurríska tón-
skáldið Anton Heiller skrifaði næsta verk efnis-
skrárinnar. Það er Tanz Toccata frá árinu 1970.
Síðasta verk tónleikanna og jafnframt það viðamesta er Orgelsin-
fónía nr. 6, op. 42/2 eftir hið kunna franska tónskáld Charles-
Marie Widor. Hann mótaði öðrum fremur frönsku orgelsinfón-
íuna, eitt stórkostlegasta tónlistarform síðrómantíska tímabilsins í
orgeltónlist. Í 64 ár, frá 1871 var Widor organisti við eitt af fræg-
ustu orgelunum, í St. Sulpice-kirkjunni í París. 6. orgelsinfónían er
af flestum talin ein besta orgelsinfónían hans.
Á tónleikunum í dag flytur Roger þrjú verk. Prelúdíu og fúgu í Es-
dúr BWV 552 eftir Johann Sebastian Bach, Scherzo eftir ítalska
tónskáldið Marco Enrico Bossi og Fantasíu og fúga um B-A-C-H
eftir Max Reger.
Dómorganisti frá Rochester
í Hallgrímskirkju
Roger Sayer
SÝNING á þjóðlegum
listmunum úr einkasafni
Wang Shucun frá Kína
verður opnuð í Hafnar-
borg kl. 15 í dag. Shucun
er listfræðingur að mennt
og hefur lengi starfað
sem fræðimaður á sviði
kínverskrar myndlistar og
alþýðulistar. Á und-
anförnum 60 árum hefur
hann safnað mörg þús-
und kínverskum munum,
þ.á m. málverkum, trérist-
um, klippimyndum, leik-
föngum úr leir, útsaum
o.fl. Hann hefur farið víða
um heim með þessa muni
og fjallað um þá í fyrir-
lestrum í Ástralíu, Hong
Kong, Japan, Rússland
Singapore og víðar.
Hafnarborg er opin alla
daga nema, þriðjudaga,
frá kl. 11–17. Sýningunni
lýkur 28. júlí. Eitt kínversku verkanna í Hafnarborg.
Þjóðlegir listmunir frá Kína
Í HINU nýja Listasafni Árnesinga í Hveragerði verður nú boðið
upp á „sunnudagsuppákomur“. Að sögn Birnu Kristjánsdóttur for-
stöðumanns er ætlunin að ná til breiðs hóps fólks. „Við viljum með
þessu gera safnið aðgengilegt fólki með margvísleg áhugamál,
s.s. tónlist, leiklist, bókmenntir og tísku. Öllu er lýtur að sköpun.“
Á fyrstu uppákomunni kl. 15 á morgun koma fram djassfélagarnir
Alfreð Alfreðsson á trommur, Árni Scheving á bassa, Jón Páll
Bjarnason á gítar og Þórir Baldursson á hljómborð.
Í sölum safnsins stendur yfir samsýning þeirra Kristjáns Davíðs-
sonar og Þórs Vigfússonar.
Safnið er opið frá kl. 12–18. Aðgangur er ókeypis.
Ljósmynd/Birna Kristjánsdóttir
Jón Páll, Árni Scheving, Þórir Baldursson og Alfreð Alfreðsson.
Sunnudagsdjass í listasafni