Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Síða 1
ISLENDIBTGAÞÆTTIR
Timans
FÖSTUDACUR 31. OKTÓBER 1969.
20. TBL. — 2. ÁRO.
SIGURÐUR EGILSSON
FRÁ LAXAMÝRI
„Sumarblíðu sólskinsvorin
saman gengu þeir og ég,
vinir mínir, — allir, allir
eins og skuggar liðu þeir
inn í rökkurhljóðar íhallir,
hallir dauðans — einn og tveir,
einn — og — tveir.“
Guðm. Guðmundsson.
Enn er einn til viðbótar úr hópi
beztu vina minna liðinn inn í
„rökkurhljóðar hallir dauðans“,
Sigurður Egilsson frá Laxamýri.
Hann lézt í sjúkrahúsi Húsavíkur
30. september s.l. og var jarðsung-
inn frá Húsavíkurkirkju 11. októ-
ber að viðstöddu f jölmenni.
Sigurður var 77 ára gamall, en
þrátt fyrir þann aldur, ennþá mik-
ilsverður maður umhverfi sínu. Eft
ir hann stendur opið skarð vand-
fyllt. Maðurinn var svo vel gerður
og margvíslega til liðsemdar. Sum-
ir þreyta sig á því, meira en skyldi,
að spyrna á móti breyttum tímum.
Sigurður Egilsson aðlagaði sig
manna bezt og oft með fögnuði
nýjum tímum. Það hélt honum
ungum, þótt árin liðu. Hann var
alls ekki hvíldar þurfi frá lífinu,
nema síðustu vikurnar, eftir að
krabbameinið hafði tekið hann
skyndilega heljartökum.
Sigurður Egilsson fæddist á
Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu
11. ágúst 1892. Foreldrar hans
voru merk hjón og mikilhæf: Arn-
þrúður Sigurðardóttir og Egill Sig-
urjónsson, bóndi, gullsmiður og úr
smiður.
Arnbrúður var frá Ærlækjarseli
í Axarfirði í Norður-Þingeyjar-
sýslu. Faðir hennar, Sigurður bóndi
þar Gunnlaugsson bónda í Skóg-
um í sömu sveit. (Sú ætt af sum-
um nefnd Styrbirningaætt.) Móðir
Arnþrúðar var kona Sigurðar,
Kristín Björnsdóttir, ættuð úr Lax-
árdal í Þistilfirði, systir Árna
bónda á Bakka í Axarfirði (Dals-
ætt).
Faðir Egils var Sigurjón hinn
Sögufrægi stórbóndi á Laxamýri
Jóhannesson bónda þar (Hvassa-
fellsætt). Móðir Egils, kona Sigur-
jóns, Snjólaug Guðrún Þorvalds-
dóttir frá Krossum við Eyjafjörð
(Krossaætt). Móðurfaðir Snjólaug-
ar var bróðir Hallgríms föður þjóð-
skáldsins Jónasar.
Systkin Sigurðar, börn Arnþrúð-
ar og Egils voru:
Snjólaug Guðrún, gift Jóni Jóns
syni bónda í Kaldbak, síðar sund-
hallarverði í Reykjavík. Hún and-
aðist 1954.
Kristín, bústýra í Reykjavík (hjá
bræðrum sínum Sigurj. og Jóh.)
Sigurjón, úrsmiður í Reykjaví-k.
Stefán Gunnbjörn, starfsmaður
hjá Rannsóknarráði rikisins, R-
vlk. Kvæntur Oddrúnu Jóhannes-
dóttur frá Tyrfingsstöðum í
Blönduhlíð.
Jóhannes Þorvaldur, húsgagna-
smíðameistari, Reykjavík.
Sigurður var elztur systkinanna,
en þau eru annars í aldursröð ta\-
in hér að framan.
Árið 1895 tók Egill, faðir Sig-
urðar, ásamt Jóhannesi bróður sín-
um, Laxamýri á leigu af föður
þeirra, Sigurjóni, sem þá var kom-
inn á áttræðisaldur. Eftir 11 ár
kej^ptu þessir bræður síðan jörð-
ina og ásamt henni fjórar grann-
jarðir, sem faðir þeirra átti: Kald-
bak, Saltvík, Núpa og Knútsstaði.
Allar voru þær í byggð og eru
enn.
Bjuggu bræðurnir félagsbúi á
Laxamýri í nálega þrjá áratugi.
Laxamýri var ein af glæsilegustu
og kostaríkustu jörðum landsins.
Þar var tún gott og engjar nær-
tækar og heygóðar. Beitiland hag-
fellt. Hlunnindi: laxveiði, silungs-
veiði, æðarvarp, trjáreki. Réttur til
sjósóknar frá lendingu næsta bæj-
ar (Saltvík) og netalagna þar fyrir
landi, — bæði til að veiða hrogn-
kelsi og vöðusel, — og var sá
réttur á þeim árum hagnýttu«r
nokkuð-
Margt fólk var jafnan á Laxa-
mýri. Egill og Arnþrúður áttu sex
börn: 4 sonu og tvær dætur, eins
og áður er greint frá. Jóhannes,
bróðir Egils og búfélagi, /ar
kvæntur Þórdísi Þorsteinsdóttur
frá Stóru-Hámundarstöðum á Ár-