Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Síða 9

Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Síða 9
Haukur Öxar Snorrason F. 17. marz 1945. D. 19. sept. 1969. LEIÐRÉTTING Höfundarnafn undir afmælisgrein um Pál Þorsteinsson, alþingismann í íslendingaþáttum Timans 23. okt. átti að vera Vilhjálmur Hjálm- arsson, en ekki Viliijálmur Vil- Ihjálmsson, og eru hlutaðeigendur beðnir afsökunar á mistökum þessum- Athugasemd Ég er því ekki alls kostar óvan- ur að sjá greinar mínar koma meira og minna afbakaðar úr prentsmiðju og sumar næsta illa leiknar, ugglaust sakir óvandaðs prófarkalesturs — og hef ekki fengizt um. En þegar gloprað er niður upp undlr 50 greinarmerkj- um í stuttrl grein, svo að setning- ar verða sumar linnulausar lang- lokur, þá er það meiri misþyrm- ing en svo, að þegja megi við. En þannig var þvi farið um minning- argrein mína um Guðrúnu sál. á Sleitustöðum í 15. tbl. íslendinga- þátta 26. sept. sl. . 4.10. ‘69. Gísli Magnússon. Hraðfleyg er stund, fyrir ljós og líf, löngun og von og þrá. Fyrir ókomna ævitíð, engum er leyft að sjá. Um endurfundi ekki spurt, né okkar helgustu von, um framtíðardag og fylling lífs. Nú fylkja sér tár um vom son. Hver leggur að sárum líknarhönd, ljúflinginn kveður sem ber? Leysir gátur og bindur bönd, birtu gefur, þar myrkvað er? Stillir vom harm, vort hugarstríð, helgar oss kveðjustund, ber okkur yfir þá óbærutíð og eykur jafnvægislund? 1 ættargarði við áttum HAUK, þar óx hann sem kvistur frá rót. Jók okkur trú á tilgang lifs, tók öllu sólskini mót. Ljúflingur kær, um öll sín ár. með eilífðarneista þann, er verða hin beztu verkalaun fyrir vel gerðan drengskaparmann. Þú lyngmór á heiði, með litskraut þitt og lognværa septemberkvöld, hví réttir þú að okkur harmanna hleif og húmröggvuð skýjanna tjöld, lézt Hafragilsfoss kveða sorgarsöng, yfir sveini við bamæskujörð og haustmyrkrið leggjast hljótt og þungt, á hvert heimili um Öxarfjörð. Hver huggar okkur á iiljóðri stund, og hjálpar í örlagastraum? Að skynja þig gegnum alla ást, sem eilífðar morgundraum. Þitt skeið er nú mnnið, frá upptöku, að ós og yfir þér guðsbirta skín. Þú ert vor huggun, vort helga Ijós og heilög er minning þín. Amþór Ámason frá Garði. 9, ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.