Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Page 19

Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Page 19
árinu 1909 og gegndi hún því starfi tii ársins 1959. Eins og kunn ugt er, hafði sú kenning, er Louis Pasteur (1822—1895) setti fram árið 1864 um það, að sýklar yilu sumum sjúkdómum, átt mjög erf itt uppdráttax og var komið fram yfir fyrri heimsstyrjöld, er hún hafði öðlazt fullkomna viðurkenn- ingu. Hef ég sannfrétt, að á þeim árum hafi aðeins hinir yngri lækn- ar viðurtkennt hana til fulLs. En ástæðan til þess, að ég minnist á þetta hér, er sú fullyrðing fróðra manna, að í hinni hræðilegu „'spönsku veiki“ árið 1918 hafi Hafnarfjörður og nágrenni gold ið minna afhroð en ýmis önnur byggðarlög. T1 þessa Uggja að sjálfsögðu margar ástæður, en ein ástæðan er vafalaust sú, að á þess ii,m árum voru íbúar Hafnarfjarð- ar svo lánsamir að hafa í sinni þjónustu tvær ungar og duglegar manneskjur, sem báðar höfðu ver ið við framihaldsnám í helbrigðis- fræðum í Danmörku og komu tl starfa í bænum 1917. Þessar mann eskjur voru Sigríður E. Sæland, Ijósmóðir og Bjarni Snæbjörns- son læknir. Hinn ágæti héraðs- læknir, sem hér starfaði þá, Þórð ur Edilonsson, tók veikina og lá mestallan tímann, sem hún geis- aði. Eitt er vist, að þau Sigríður og Bjarni lágu ekki á liði sínu þá fremur en æ síðan í þjónustu sinni við bæjarbúa. Ekki ber svo að skiija, að bæjarbúar hafi ekki rétt hver öðruim hjálparhönd eftdr því sem hægt var, og bjartur ljómi verður ávallt yfir lýisingunni af norska trúboðanum Ólsen, sem gekk um bæinn og vatt bakstra með þvottavindu fyrir fúlk. Árið 1937, eða 25 árum eftir að Sigríður var fyrst í Danmörku, fór hún enn utan tl frekara náms í sérgrein sinni. Fór hún þá tl Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur og kynnti sér nýjungar í fæðing- arhjálp. Ekki er mér grunlaust um, að með þessari námsför hafi hún vljað leitast við að búa sig sem bezt undir enn frekara þjón- ustustarf fyrir Hafnfirðiuga, er „Sóílivangur“ hæfi starfsemi sína. Aldrei fékk hún þó svo mikið sem tækifæri tl þess að sækja um stöðu þar og munu það hafa orð- lð henni mikl vonbrigði, því fátt er jafn sárt og vanþakklæti fyrir vel unnin störf. Allir, sem tl þekkja vita, að þótt hún sinnti fljótlega tveimur störf- um, húsmóðurstarfinu og ljósmóð urstarfinu, þá hefux hún rækt hvort tveggja af mikll skyidti- rækni og án tillits tl þess, hvort greiðslugeta væri fyrir hendi, en sllíkt mun hafa verið nokkuð al- gengt á fyrstu starfsárum henn- ar sem ljósmóður. Starfsþrek og starfsgeta hennar hefur verið með fádæmum og vissulega þarf hún ekki að óttast þann dóm, sem að tókum verður kveðinn upp yfir okkur ölum og leggur tl grund valar þau störf, sem við höfum innt af höndum. En Sigríður hefur ekki látið sér nægja að hj'álpa fjöl- mörgum Hafnfirðingum tl þess að sjá dagsins ljós í fyrsta sinn, heldur hefur hún látið sér mjög annt um velferð þeirra og fylgt þeim fram á þroskabraut. Þessum áhugamiálum sínum hefur hún sinnt af stakri prýði meðal ann- ars innan barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar, en þar starfaði hún í tvö kjörtímabU. Auk ljósmóður- og húsmóður- starfsins hefur hún látið félags og menningarmál tU sín taka. Hinn 17. desember 1930 var stofnuð kvennadeild í Hafnarfirði innan Slysavarnafélags íslands, sem hlaut nafnið „Hraunprýði“. Var Sigríður frumkvöðuíU að stofnun deildarinnar og formaður fyrstu árin, en virkur félagi aUt til þessa dags. Er óhætt að fulyrða, ?.ð starfsenii „Hraunprýði11 hefur alla tíð verið til mikiUar fyrirmyndar. Árið 1928 gerðist Sigríður félagi í Góðtempiarareglunni og hafa þau hjónin, Sigríður og Stígur, innt af höndum mikið og fórnfúst starf í þágu þess félagsskapar. Mun hún í þeim efnum hafa orðið fyrir mikl um áhrifum af tengdaföður sín um, Sveini Auðunssyni, en hann var áhrifamikil félagsmálaskör- ungur í Hafnarfirði. Má með sanni segja, að Sigríð- ur befur verið sístarfandi og sí- hugsandi, enda hafa ábugamálin verið fjölbreytUeg. Þá hygg ég, að hugur hennar hafi hvað mest ver- ið tergdur þeim, sem á einn eða annai; hátt hafa mátt sín miður í lífsbar tunni. Og vissulLega hefur hugsur ’.rínáttur hennar aldrei ver- ið sá a5 sitja með hendur í skauti og láta aðra framkvæma það, sem gera þurfti á ýmsum sviðum, held ur leggja sjálf hönd á plóginn. Hefur Sigríður í þeim efnum sýnt meira hugrekki en flestar konur gátu státað af á þeim árum, er hún var tvisvar í framboði tU Al- þingis árin 1942 og 1946 og er mér enn í minni vaskleg frammi- staða hennar gegn öðrum fram bjóðendum, sem allir voru þjálfaö- ir stjórnmálamenn. Fyrir öl sin margvíslegu stört hefur Sigríður hlotið verðskuldað þakklæti og heiður. Meðal annars er hún heiðursfélagi í Slysavaraa ffélagi íslands, Góðtemplararegl- unni og Ljósmæðrafélagi íslands. Ég er viss um, að ég mæli fyr- ir munn alra „bama“ hennar. er ég óska henni og fjölskyldu henn- ar tU hamingju með þennan da? og þess, að hún megi njóta góðrar heUisu og starfskrafta enn um rnörg ár. Vilhjálmur G. Skúlason Helgi Guðmundsson tTramihiald af t>ls 23 í þessum efnum algjörlega sjálf- lærður og engin próf tekið og engra réttinda aflað sér og not ir engan meistaratitil framan eða aft an við nafn sitt, en hann er sann- arlega meistari í hagræðingum og hjálpsemi við náungann. Nú vil ég að síðustu geta þess, að hann var eftirlitsmaður naut- griparæktarfélaganna, hér í sveit í þrjátíu ár og í nágrannasveitunum. Þetta starf rækti hann af vand- virkni og samvizkusemi, en naut litilla launa. Margt mætti enn segja um Helga Guðmundsson sjötugan, en ég veit ekki hversu hrifinn hann yrði af nánari greinargerð um störf hans í þágu meðbræðra sinna. Helgi er hæglátur og hógvær maður og yfirlætislaus, vinsæil og velkominn þar sem hann á nokk- ur kynni. Þessar línur eru ritaðar sem lít- U1 þakklætisvottur, fyrir meir en þrjátíu ára samvinnu, og hjálp- semj við hugðarmál min og ann- arra, er áttu að miða að bættri aðstöðu bænda í lífsbaráttunni í þessu fagra og góða landi. Jóhannes Davíðsson, Hjarðarholti. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 19

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.