Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Qupperneq 24
ÁTTRÆÐ:
VaLgerður BjarnacLóttir
frá Hreggsstöðum
Á norðurströnd Breiðafjarðar
breiðir sólfögur sveit faðm sinn
mót suðri. — Þar er mjótt undir-
iendi við sjóinn þakið gulum sönd-
um við sjávarmál. — Upp frá þvi
ganga breið en stutt daladrög
miHj brattra hlíða þar sem birki-
kjarr breiðir úr sér austantil. —
Þessi sveit er kölluð Barðaströnd.
Hún er austasti hreppurinn í Vest-
ur-Barðastrandasýslu.
Öti á enda þessarar sveitar
gengur lítið dalverpi upp til fjalla
undir bröttum brúnum.
Þarna er býlið Hreggsstaðir.
Á síðari hluta seytjándu aldar
settist þar að bóndi, Einar
að nafni, með konu sinni Rann-
veigu dóttur Jóns bónda Finnsson-
ar í Flatey, þess er átti Flateyjar-
bók.
Faðir Einars var Gunnlaugur
prestur Snorrason á Stað á Reykja-
nesi. — Gunnlaugur Snorrason var
kominn í beinan karllegg af Þórði
Bjarnarsyni (Höfða-Þórði) í Höfða
á Höfðaströnd í Skagafirði. Kona
Gunniaugs prests, Kristín, en
móðir Einars, var dóttir séra Gísla
á Stað Einarssonar prests í Eydöl-
um. Hún var komin í tuttugasta
iið frá Sæmundi hinum fróða.
presti í Odda á Rangárvöllum.
Einar Gunnlaugsson bjó fyrstur
sinna kynsmanna á Hreggstöðum
Af honum er komin svokölluð
Hreggstaðaætt. Sonur Einars (líkl.
sá eizti) héf Jón. Siðan skiptast á
nöfnin Einar og Jón í sjö liði og
búa þeir allir einhvern hluta ævi
sinnar á Hreggstöðum.
Fyrir og eftir síðustu aldamót
bjuggu bræður tveir á Hreggstöð-
um: Bjarni og Einar synir seinasta
Jóns Einarssonar af þessari röð. —
Sá Jón var bróðir Þórólfs föður
Sigurðar Þórólfssonar skólastjóra
á Hvítárbakka í Borgarfirði, föð-
ur Kristínar f.v. alþm.v séra >or-
gríms á Staðastað og Ásbergs f.v.
sýslumanns og þeirra barna.
Þeir bræður Einar og Bjarni á
Hreggstöðum áttu mörg börn. Son-
ur Einars hét Sturla og með hon-
um brotnaði nafnaröðin: Einar —
Jón. Móðir hans var Jónina Sturlu-
dóttir af Kollsvíkurætt, föðursyst-
ir Hákonar í Haga og þeirra barna.
Sturla Einarsson kvæntist frænd
konu sinni Valgerði dóttur Bjarna
Jónssonar á Hreggstöðum. Hún var
þriðja barn Bjarna af tólf, sem
hann átti með konu sinni Jónfríði
Helgadóttur Sæmundssonar bónda,
kenndum við Skjaldvararfoss. En
hann ólst upp hjá þeim nafn-
kennda garðyrkjumanni Guðm.
Sigmundssyni í Litluhlíð. — Móð-
ir Jónfríðar var Ragnhildur Einars
dóttir, náskyld Einari í Kollafjarð-
arnesi.
Dætur Einars Jónssonar á Hregg
stöðum, Helga og Sigríður áttu
börn sem eiga nú margt barna.
Valgerður dóttir Bjarna Jónsson-
ar á Hreggstöðum fæddist 17. okt.
1889. Hún á þvi áttræðisafmæii
um þessar mundir. — Hún giftist
frænda sínum Sturlu Einarssyni,
sem fyrr er getið, þann 19. ckt.
haustið 1908 og hófu þau búskap á
Skriðnafelli á Barðaströnd vorið
eftir. Síðar bjuggu þau í Holti í
sömu sveit og fluttust svo að
Hreggstöðum árið 1916 og bjuggu
þar á þriðjungi jarðarinnar unz
Sturla lézt 1930. Valgerður hélt
þó áfram búi með börnum sínurn
ungum unz hún fluttist til Reykja-
víkur árið 1941, þrotin að heilsu
og kröftum. Dvaldi hún þar hjá
dætrum sinum lengi vel lengst af
hjá Margréti, eða um tuttugu ár,
unz nú seinustu árin sem hún hef-
ur dvalizt á Hrafnistu, dvalarheim-
ili aldraðra sjómanna.
Þau Valgerður og Sturla eignuð
ust alls sjö börn og eru fimm
þeirra á lífi. — Fyrsta barn þeirra:
Kristján Pétur, dó fárra vikna. Og
þriðja barn þeirra: Jónína dó, er
hún var tæpra seytján ára að
aldri. — Þau sem lifa eru:
1. Ragnar Valdimar. Hann vinn-
ur hjá Reykjavíkurborg.
2. Margrét Björg. Hún er glft
Gunnari Bjargmundssyni, umsjónar
manni Hamrahlíðarskóla.
3. Einar Bjarni. Skipasmlður I
Bátalóni í Hafnarfirði. Hann er
kvæntur Kristínu Andrésdóttur —
þau búa á Akranesi.
4. Unnur Hólmfríður. Gift Svani
Skæringssyni, pípulagningarmeist-
ara í Reykj avík.
5. Kristjana Hálkonía, kona Sigur
bergs Andréssonar, trésmiðs í Hlíð
artúni Mosfellssveit.
Þessi æviatriði, sem hér eru upp
talin um Valgerði Bjarnadóttur,
gefa þeim lítið til kynna, sem ekki
til þekkja um raunveruleg ævi-
kjör hennar. En það væri löng saga
um harða baráttu við fátækt og
erfiði, sem nútímafólk á erfitt með
að gera sér grein fyrir, og ekki
verður rakin hér. Hins skal held-
ur minnast sem birtu veitti á ævi-
skeiði hennar. — Hún hefur eign-
azt margt af vinafólki 1 umhverfi
því sem hún hefur dvalið í á langri
ævi. Börn hafa ætíð hænzt að
henni og þeir sem eldri eru ætíð
virt hana mikils vegna hreinlyndis
hennar og siðvandrar framkomu.
Þótt heilsa hennar hafi um langa
tíð verið bág, hefur hún lítið borið
það með sér vegna tíguleika í
framkomu, sem henni hefur venð
1 blóð borinn.
Ætterni hennar, sem hér hefur
verið rakið lítillega, er hér til gam-
ans gert svo nokkrar tengdir henn-
ar við þekkta meiði þjóðarinr.ar
megi sjást. — Það sem enn er eft-
ir af nánasta skylduliði hennar, fyr
ir utan afkvæmin, er bræður benn-
ar tveir á Patreksfirði: Jón Valdi-
mar og Einar Bjarni. — Jón er
næstur henni að aldri, eða tæpu
ári yngri. Hann dvelur þar á
sjúkrahúsinu. Hann er mesti fræða
sjór um ættir og gamlar sagnir.
Einar bróðir hennar er nýlega orð-
inn sjötugur og hvers manns hug-
ljúfi.
Það sem veitir henni mesta gleði
er að frétta um gott gengi barna
sinna og barnabarna. En börnm
eru fimrn, eins og áður er sagt,
barnabörnin tuttugu og tvö og
barnabarnabörnin eru orðin sjö.
Það er áreiðanlegt að marg-
hlýjar óskir og hugsanir streyma
til hennar á þessum tímamótum.
Sveitungi.