Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Side 1

Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Side 1
I ISLEXDIBÍOAÞJEITTIR . ■ ■■ ' Timans 14. TÖLUB. — 3. ÁRG. FIMMTUDAGUR 8. OKT. 1970 NR. 46 Guðmundur Hannesson fyrrverandi bæjarfógeti, Siglufirði Hinn 14. sept. andaðist í Landa- kotsspítalanum hér í Reykjavík, Guðmundur H. L. Hannesson, fyrr verandi bæjarfógeti á Siglufirði. Hann var á nítugasta aldursári er hann Tézt. Jarðarfor hans verður gerð í dag kl. 13,30 frá Dómkirkj- unni. Guðmundur Hallgrímur Lúther, en svo hét hann fullu nafni, fædd- ist 17. marz 1881, að Stað í Aðal- vík. Foreldrar hans voru Hannes Sigurðsson bóndi á Látrum í Aðal- vík og kona hans Jórunn Einars- dóttir Sívertsen. Guðmundur ólst upp hjá foreldrum sínum og vand ist þegar í æsku allri vinnu til sjós og lands eins og títt var um ungl- inga á síðasta tug 19. aldar. Snemma bar á ríkri löngun hjá honum til að læra meira en al- mennt tlðkaðist að kenna íslenzkri sveitaæsku á þeim tjma er hann var að alast upp. Þar sem*.saman fóru hjá þessum unga Vestfirðingi rík menntaþrá og góðar gáfur, tók móðurbróðir hans, séra Páll Sívertsen sóknar- prestur að Stað í Aðalvík hann til sín um tíma og kenndi honum und ir lærða skólann, það gerði einmig séra Þorvaldur Jónsson prestur á fsafirði. Guðmundur Hannesson settist 1 fyrsta bekk lærða skólans haustið 1897, þá 16 ára gamall. Hann út- skrifaðist þaðan vorið 1903 með 1. einkunm. Þegar um haustið sigldi hann til Kaupmannahafnar og iagði stund á lögfræðinám. Próf í forspjallsvísindum tók hann við Hafnarháskóla 1904 og embættis- próf f lögfræði við sama skóla 9. janúar 1909. Hvort tveggja með 1. einkunn. Að loknu prófi gerðist hanrn þing skrifari veturinn 1909, en fluttist í maí sama ár til ísafjarðar þar sem hann stundaði málaflutnings- störf til vorsins 1918. Á þessum árum gegndi hamn einnig störfum vararæðismanns fyrir Noreg á ísa- firði og bæjarfulltrúastörfum. 1918 var hann settur sýslumaður Barðastrandarsýslu, en að hálfu ári liðnu flutti hann aftur til ísafjarð- ar. 9. maí 1919 var hann skipaður lögreglustjóri í Siglufirði og þann 1. janúar 1920 var hann skipaður bæjarfógeti þar. Guðmundur Hannesson kvænt- lst 15. ágúst 1915 Friðgerði Rann- veigu Guðmundsdóttur, öndvegis konu, vestfizkrar ættar og lifir hún mann sinn. Fyrstu bæjarstjórnarlög Siglu- fjarðar kváðu svo á, að í Siglufjarð arkaupstað skyldi vera lögreglu- stjóri skipaður af dómsmálaráð- herra með kr. 2,000,00 árslaun. Hann skyldi jafnframt vera sjálf- kjörinn oddviti bæjarstjórnar og hafa atkvæðisrétt á fundum. Laun fyrir oddvitastarfið skyldu vera kr. 500.00 á ári og greiðast úr bæjar- sjóði. Guðmundur Hannesson kom eins og fyrr segir til Siglufjarðar 27. maí Í919. Hinn 28. maí 1919 var haldinn síðasti hreppsnefndar- fundurinn. Á fundi þessum mætti lögreglustjórinn í fyrsta sinn og Var það síðasta verk oddvita hreppsnefndar, séra Bjarna Þor- steinssonar að bjóða hann velkom- inn. Séra Bjarni mælti m.a. á þessa 'leið: „Það hefur fallið í minn hlut að vera síðasti oddviti Hvanneyrar- hrepps og bjóða velkominn hinn fyrsta, sérstaka valdsmann Siglu- fjarðarkaupstaðar. Mér er Ijúft að leggja niður völd sem oddviti hreppsnefndarinnar. Hitt er mér ekki síður ljúft að bjóða velkom- inn þann mann, sem forsjónin hef- ur sent okkúr til að vera oddviti okkar á komandi tíð. Þótt Siglu- fjörður sé ekki stór bær né mann- margur, er þess ekki að dylja, að þessi maður á talsvert vandasamt starf fyrir höndum. Það er mik u meira verk, erfiðara og vandasam- ara, að stýra málefnum þessa bæj- ar, sem er á uppvaxtarárum, sem er á hröðu framfaraskeiði, þar sem margt er hálfgert og enn fleira ógert, heldur en hjá bæjum, þar sem allt er komið í fast form. En þvi meira verk og vandasamara MINNING

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.