Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Page 2
9
gem hér liggur íyrir, þess meira
ríður á, að hér sé gengið að starfi
með framtakssemi og dugnaði sam
fara hyggindum og ráðdeild. Þessa
kosti þarf oddviti okkar að hafa
og allir þeir, sem með honum eiga
að stýra málefnum bæjarins. —
Bæði fyrir hönd hreppsnefndar-
innar og fyrir hönd íbúa kaupstað-
arumdæmisins býð ég lögreglu-
stjórann velkominn og óska hon-
um allra heilla og samtímis vona
ég, að heill og hamingja hans og
bæjarins megi fara saman, að bær-
inn megi blómgast og blessast und
ir hans stjórn og að sjálfur megi
hann hafa gleði og ánægju af starfi
sínu hér og megi koma mörgu
þörfu og góðu til leiðar og búa
glaður og ánægður okkar á meðal
langa stund“.
Þessar heillaóskir bakkaði hinn
ungi lögreglustjóri og lét í Ijósi
ánægju sína yfir þeim hlýju mót-
tökum, sem þau hjónin höfðu hlot
ið við komuna til Siglufjarðar.
Fyrstu bæjarstjórnarkosning-
ar 1 Siglufirði fóru fram 7. júní
1919. Kjörnir voru 6 bæjarfulltrú-
ar. Oddvitinn var sá sjöundi með
fullum atkvæðisrétti.
Hinn 14. júní 1919 var haldinn
fyrsti fundur hinnar nýkjörnu bæj
arstjórnar undir forsæti Guðmund
ar Hannessonar. Oddvitastörfum í
bæjarstjórn Siglufjarðar gegndi
hann nákvæmlega í 19 ár eða til
15. júni 1938 er sérstakt bæjar-
stjóraembætti var stofnað í Siglu-
firði
Eias og áður er getið hafði Guð-
mundur Hannesson á hendi yfir-
stjórn bæjarmála í 19 ár í Siglu-
firði og var jafnframt lögreglu-
stjóri og dómari allt til 1948.
Hann var því æðsti embættis-
maður staðarins þau tæp 30 ár, er
hann bjó í Siglufirði og mikill
áhrifa- og framkvæmdamaður var
hann alla tíð.
Hinnar nýju bæjarstjórnar er
kjörin var 1919 biðu mörg verk-
efni. Fyrir samstillt átök bæjarfull
trúa undir forustu oddvita var
hverju stórmáli á fætur öðru hrint
i framkvæmd. Þau verða ekki tal-
in hér, það yrði of langt mál, en
minna má á að á þessum órum
breyttist Siglufjörður úr iitlu
þorpi í menningar- og athafnabæ,
sem löngum var á sviðsljósinu á
fyrra helmingi þessarar aldar og
jafnvel lengur.
Ég kynntist ungur Guðmundi
Hannessyni og fjölskyldu hans. í
húsum þeirra vár ég heimagangur
um áratugi.
Guðmundur Hannesson var að
mínum dómi mikill eljumaður.
Hann var oftast komirnn að vinnu
borði sínu í Siglufirði um kl. 8 og
vinnudagurinn var a.m.k. þriðjung
ársins ætíð 12 klst. á dag og oft
lengur.
Tímafrek réttarhöld — langir
bæjarstjórnarfundir, nefndafund-
ir og önnur embættisstörf kröfð-
ust mikillar vinnu, mikilla átaka
og ónæðis og nú kom sér vel að
hafa tamið sér í æsku skyldurækni
og árvekni.
Guðmundur Hannesson var ein-
stakur heimilisfaðir. Hann unni
konu sinni til hinztu stundar og
reyndist henmi umhyggjusamur og
frábær eiginmaður alla tíð. Þau
eignuðust fjögur börn: Hannes, lög
fræðing, kvæntan Guðrúnu Kristj-
ánscfóttur, Jórunni Ástu, íulltrúa
hjá Öryggiseftirlitinu, Garðar,
skrifstofumann, kvæntan Kristínu
Bjarnadóttur (eru þau öll búsett i
Reykjavík) og Hallgrím, læ'kni, er
andaðist í febrúar 1950. Féll þar
frá fyrir aldur fram mikill efnis-
maður og góður drengur.
Guðmundur Hannesson lét reisa
glæsilegt tveggja hæða steinhús á
lóð sinni við Hvanneyrarbraut í
Siglufirði árið 1927. Var það þá
reisulegasta hús í Siglufirði og er
það enn. Ber það vott um þann
-stórhug er einkenndi bæjarfógeta
Siglufjarðar á þessum árum.
Fyrirmannlegri embættisbú-
stað á íslandi hefi ég ekki séð. Á
þessu heimili ríkti jafnan gestrisni
og glaðværð. Þar skemmtu sér og
nutu gestrisni húsráðenda fólk á
öllum aldri, ungir og gamlir. ekki
sízt ungir vinir barnanna á heim-
ilinu.
Guðmundur Hannesson er lát-
inn og kvaddur. Hann var
höfðingi og bar höfuð jafnan hátt
og hafði ráð á því. Siglfirðingar
kveðja nú mikilhæfan forustu-
mann, er starfaði þeirra á meðal
nær þrjá áratugi og þeir þakka
giftúdrjúg störf hans í þágu Siglu-
fjarðarkaupstaðar.
Guðmundur Hannesson og fjöl-
skylda fluttust til Reykjavíkur ár-
ið 1948 og bjó alla tíð að Blöndu-
hlíð 6 hér í bæ. Þar bjó kona hans
og Jórunn dóttir þeirra fjölskyld-
unni fagurt heimili. Þangað, svo og
til annarra vandamanna, eru nú
sendar samúðarkveðjur og þess
beðið, að ævikvöld frú Friðgerðar
megi verða milt og fagurt eins og
maður man fegurstu vorkvöldin í
Siglufirði.
Frá heimili minu eru Guðmundi
Hannessyni sendar vina- og þak'kar
kveðjur, það er fyrir svo margt að
þakka nú er leiðir skiljast.
Minningin um mikilhæfan mann
mun lifa meðal ástvina hans og
þeirra annarra, er þekktu hann
bezt.
Jón Kjartansson.
t
Hinn 14. sept. andaðist í Landa-
kotsspítalanum hér í Reykjavík,
Guðmundur H. L. Hannesson fyrr-
verandi bæjarfógeti á Siglufirði.
Með þessum fáu línum vil ég
færa honum þakkir, fyrir það
margt og gott, sem hann gerði
fyrir mig og mitt heimiTi meðan
við áttum leið saman.
Nú eru full 51 — fimmtiu og
eitt — ár síðan kynni okkar Guð-
mundar hófust, og á gamalsaldri
hef ég oft mikla ánægju af að
hugsa um, hve skemmtilega
glöggur og framsýnn hann var oft
á mín málefmi, og að flestar ákvarð
anir hans í mínum málum, hafa
staðizt dóm reynslunnar og reynzt
réttar. Sama virðist mér mega
segja um önnur störf hans á Siglu-
firði, og nú við fráfalT hans vil ég
segja, að hann reyndist mér einn
ráðhollasti maður, sem ég hefi
þekkt um ævina og einn af þeim
beztu.
Eftirlifandi konu hans, börnum,
tengdadætrum, bamabörnum og
öðru vandafólki, óska ég guðs
blessunar.
Skafti Stefánsson
Snorragötu 7, Siglufirði.
t
2
ISLENDINGAÞÆTTIR