Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Blaðsíða 3
MINNING
Síra Þorvarður G. Þormar
Síra Þorvarður fæddist í Fljóts
dal 1. febrúar 1896 og ólst
þar upp með foreldrum sín-
um, Guttormi bónda og al-
þingismanni Vigfússyni og konu
hans Sigríði Sigmundsdóttur frá
Ljótsstöðum á Höfðaströnd —
Bærinn í Geitagerði stendur undir
klettabelti í bröttu túni á háum
norðurbakka Lagarfljóts. Útsýn er
þar fagurt hið næsta og víð
yfir Fljótið. Um blíða dags-
komu verða áhrifin úr hlaðvarp-
anum 1 Geitagerði varanleg í huga
barnsins, staðurinn elskaði að ítök-
Um mildi og friðar alla ævi í
sál'inni. Þeir, sem þekktu síra
Þorvarð fundu hvað samlíkt getur
verið skaplyndi mannsins og
heimastöðvar mótunaráranna,
þegar þeir kornu að æskuheimili
hans og litu lognkyrrðan morgun
°g fagran dag. Þannig var vöggu-
gjöfin í Geitagerði. ,,En lofaðu
engan dag fyrir sólarlags stund“,
sagði síra Matthías. Það er
snemma sólsett í Geitagerði.
Einnig var það svo í lífi síra Þor-
Varðar. En s amt var birtan ekki
horfin. Hún ljómaði úti fyrir, eins
°g minning morgunsins og fyrir-
heiti hins eilífa árdegis. — f
Persónuleika síra Þorvarðar urðu
°g greindir margir og góðir mann-
kostir feðra hans, sem Ijósir eru
®f sögu þeirra. Ættfaðirinn er
síra Vigfús Ormsson á VaTþjófs-
stað, en kona hans var frú Berg-
liót Þorsteinsdóttir, bæði presta-
hörn úr Rangárþingi. Niðjar
þeirra eru margir, fram undir
þetta einkum á Austurlandi, og
þundnir eiginleikar í karllegg hag-
syni í búskap og friðsamleg og
holl skipti af félagsmálum. Síra
j^'gfús var búnaðarfrömuður.
Eann bar á tún til að auka gras-
vöxtinn, byggði fyrstu garðahúsin,
a-m.k. hér eystra, reisti kornmvllu
og stofnaði til samtaka um forða-
yúr matar og heyja i Fljótsdal.
E^gsýni hans kom þannig fram
oæði í fordæmi til bættra og
legurri búskaparhátta og sem
felagslegt viðurhald sveitunganna.
(SLENDINGAÞÆTTIR
Sonur síra Vigfúsar var Gutt-
ormur stúdent og alþingismaður
á Arnheiðarstöðum. Hann byrjaði
fyrstur manna vatnsveitingar á
slægjulönd og reyndi fleiri ný-
mæli, sem horfðu til heilla í
bændaþjóðfélaginu. Varð hann og
upphafsmaður umræðna um bún-
aðarskóla á Au-sturTandi. Skólinn
var settur á Eiðum nær aldar-
fjórðungi eftir dauða hans og varð
sonarsonur hans og alnafni Gutt-
ormur Vigfússon síðar bóndi og
alþingismaður í Geitagerði_ skóla-
stjóri þar um árabil. — Á hlað-
inu í Geitagerði kemur margt í
hugann úr sögu þeirra, er setið
hafa þessa hjáleigu frá Arnheiðar--
stöðum í hálfa aðra öld og gert
hana, fyrst meðfram heimajörð-
inni, síðan eina, að_einu kunnasta
hefðarbóli á Héraði. Vigfús Þor-
mar tók hér við búi af Guttormi
föður sínum, en Þorvarður hvarf
á brautir náms og fjarlægrar veru,
því að prestablóð var í æðum hans.
Skóli
Hann varð stúdent úr eina
menntaskóla þjóðarinnar vorið
1919 og guðfræðikandidat frá
hinum unga háskóla 14. febrúar
1923. Tveggja skólafé'laga hans
vil ég minnast sérstaklega, sem
báðir eru nú horfnir til veru
hins eilífa, síra Ingólfs Þorvaíds-
sonar og síra Ragnars Ófeigssonar.
Þeir voru allir samferða í háskóla-
námi og lokaprófi, en þeir síra
Þorvarður og síra Ingólfur auk
þe-ss samstúdentar og síðar ná-
grannaprestar við Eyjafjörð, þótt
vik skildi milli vina, er annar var
austan en hinn vestan þessa mikla
byggðafjarðar. hvor í sínu héraði.
Samfundir urðu tíðir syðra, þegar
báðir höfðu látið af störfum, og
gleðimál gamalla stunda vakin á
ný. — Haustið eftir að skóla var
lokið gekk síra Þorvarður að eiga
Ólinu Mörtu Jónsdóttur úr Reykja
vík, Ólafssonar. Voru það giftu-
spor beggja, því að þau reyndust
samvalin í öllu til starfs og erfða.
Unga brúðurin fl'uttist nú með
manni sínum austur á Norðfjörð,
þar sem hann var ráðinn kennari
unglingaskólans um veturinn.
Hofteigur.
Prestsstarfið var hafið næsta
sumar, er síra Þorvarður tók
vígslu til Hofteigs á Jökuldal
(4. júlí 1924), en þar hafði hann
verið settur prestur. Skipun fyrir
brauðinu hlaut hann vorið eftir,
að undangenginni kosningu. Siðan
hefur ekki farið fram prests-
kosning á JökuldaT. — Samgöngur
hafa löngum verið erfiðar á Dal,
torleiði langrakið milli bæja, Heið-
in í byggð á þeim árum og út-
kirkjurnar á Eiríksstöðum og í
Möðrudal svo fjarlægar, að engri
hliðstæðu nær i þessu landi. Mikil-
uðleg og niðþung streymir Jöbla
neðan við garð í Hofteigi, eins og
Bjarni skáTd Benediktsson hefur
lýst svo minnilega, og klýfur
3