Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Page 7

Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Page 7
MINNING Friðfinnur Sigurðsson, Bæ, Dalasýslu Hinn 21. júlí s.l. andaðist Frið- finnur Sigurðsson bóndi að Bæ i Miðdölum, rúmlega sjötugur að aldri. Hann fæddist 6. apríl árið 1900 að Bæ í Miðdölum. sonur hjónanna Sigurðar Jósúasonar og Ingibjargar Bjarnadóttur er þar bjuggu allan sinn búskap. Ilefur sama ættin búið að Bæ á þriðja hundrað ára. Þegar ég heyrði sagt, að hann Finnur væri dáinn, var eins og strengur brysti og minn- ingarnar sterymdu fram — hug- Ijúfar minningar allt frá æskudög um og til þessa dags. Allar þessar minningar eru tengdar hinu bjarta i lífinu, vináttu, velvilja, hjálpsemi, fyrirgreiðslu, góðu samstarfi og samvinnu alla þá tíð er ég man hann. Hann var hugsjónamaður sem gaman var að ræða við í næði — og gaman að heimsækja, enda var hann gestrisinn og veitti af al- úð gestum sínum jafnt háum sem lágum, og naut þar aðstoðar sinn- ar ágætu konu, Elínar Guðmunds- dóttur, því þau hjón voru bæði höfðingjar heim að sækja. Til þeirra kom ég oft og naut v-elvilja þeirra og hollráða, og minningar frá þessum samfundum okkar eru yljaðar vináttu og hlýju sem ekki gleymist. Friðfinnur var góður félagi í sínum hóp — glaður og bjartsýnn en þó raunsær. Söngvinn var hann og hafði bjarta söngrödd. Hann var um áratugi í kirkjukór Kvenna við ferðaTok. En Hannes í Víði- gerði var ekki einn að verki. Ekki má gleymast hlutur hans góða lífs förunautar, Laufeyjar Jóhannes- dóttur. Hún reyndist hin ágætasta húsfreyja og nýtur nú sinna vel- unnu verka, þar sem hún unir á ævikvöldi á meðal barna sinna og hamabarna, sem bera gæfumerki góðs uppeldis og góðra erfða. Með Hannesi í Víðigerði er hnig- ÍSLENDINGAÞÆTTIR brekkukirkju og er nú skarð hans þar ófyllt. Hann var um mörg ár í sóknarnefnd og var þar sem annars staðar saamvinnuþýður og góður liðsmaður. Hann átti lengi sæti í hreppsnefnd Miðdalshrepps og í skattainefnd o.fl. Ungmenna- félagi var hann á fyrstu árum þess félagsskapar og naut sín þar I góðra vina hópi, enda var þá ung- mennafélagið lífgefandi félagsskap ur sem gott og þroskandi var að inn einn af beztu sonum eyfizkrar byggðar, vitur maður og traustur — heill og trúr til liinztu stundar. Það er ein af gjöfum auðnu að hafa kynnzt honum og átt hann að vini. Vertu sæll, vormaður. Þín minn ing geymist. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum. vera í, og má segja, að öll sveit- in okkar hafi iðað af Tífsfjöri æsk- unnar í þessu virka starfi — bæði til gleðiauka og lijálparstarfs þeim er höllum fæti stóðu það og það sinnið. ÖIT störf að félagsmálum taka tíma, og sá tími er ekki tek- inn af öðru en eigin hvíldartíma. En Friðfinnur gleymdi ekki sínum skyldum við bú sitt og fjölskyldu, þar var hann heill og óskiptur og vann þar mikið og gott starf allt fram á síðasta dag ævi sinnar að segja má. Jörðin Bær ber þess glöggt merki, að vel hefur verið unnið, öil umgengni er þar til fyrirmynd- ar og verkmenning ríkjandi í bezta Tagi. Þar er nú eitthvert bezt rekna og arðsamasta bú í Dölum. Friðfinnur var góður búmaður, hygginn og ráðdeildasamur. Hann fór alltaf vel með sínar skepnur, enda gáfu þær mikinn og góðan arð og voru alla tíð vel hirtar svo til fyrirmyndar var. Þær báru því hirði sínum og eiganda gott og gull ið vitni með útliti sínu. Umgengni um hús og hey var sérstök. Ég veit að enn eru margir sem muna egg- sléttu heystabbana, sem ekki sjást annað en væru heflaðir — þó l’eystir væru með höndum og hey- nál. Friðfinnur hafði lika gaman að hestum og átti þá góða og vei tamda. Ég man er hann eitt sinn kom til okkar föður míns fram á engjar er við vorum þar að vinna, hve hesturinn bar hann vel, og hve maður og hestur vöktu hjá mér hrifnæmar tilfinningar sem geymast svo vel enn. Sjálfsagt hef- ur hann eins og svo rnargir fleirl notið unaðskennda er góður hest ur veitir, hvort sem það er tölt eða tilþrifamikill skeiðsprettur, enda voru leiðir greiðfærar — sléttai grundir — áreyrar eða veliir ísi lagðir. Á meðan hestar voru einu farartækin eða fæturnir, var það yfirleitt regla — óskráð þó, að 4

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.