Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Síða 9
PÁLMI FRIÐRIKSSON
Aldrei verður að öllu vitað
ævi langferða manns.
Liggur þó á hans víðavangi,
vegurinn kærleikans.
Örlaga þræði enginn rekur
alla í hendi sér.
Drottinn gefur og
drottinn tekur.
Drottinn sé með þér.
Þessi orð úr eftirmælum um
þingeyskan bónda koma mér í hug
er ég minnist Pálma Friðrikssonar,
Gránufélagsgötu 5 á Akureyri.
Hann kom úr sinni síðustu sjóferð
mánudaginn 16. febrúar s.I., þá
lagði hann bátnum sínum í hinzta
sinni. Nafni hans og dóttursonur
'kom til móts við hann. VafaTaust
hafa afabörnin oft verið búin að
bíða hans í fjörunni og fagna hon
um, þegar hann kom af sjónum,
svo náið var samband Pálma, þessa
góða manns, við niðja sína. Heima
var honum fagnað að venju, því
Pálmi Friðriksson var svo mikill
gæfumaður að njóta hins sanna
kærleika ástvina sinna til hinztu
stundar, og stundin var komin.
Hún kom að kveldi síðasta starfs-
dagsins, mild og hljóðlát kvaddi
hún farmann til ferðar án tafar,
án mikilla þjáninga. Umvafin
kærleika sinnar góðu konu kvaddi
Pálmi Friðriksson þennan heim eft
ir starfssaman og farsælan ævidag,
megi ölTum heilsast fljótt og vel,
og að þau megi í sameiningu kom-
ast yfir þessa þungu sorg, svo
harkaiega og miskunnarlaust sem
örlögin hafa höggvið til þeirra.
Höfurn það hugfast, að það gat
farið enn verr, verum því þakk-
iát, að svo var ekki.
Látum því ljómann af minningu
þessa ágæta manns ná ofar sorg-
inni.
Blessuð sé minning þessa góða
drengs.
Marius Blomsterberg.
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
þessi hógværi og hiédrægi maður
var sannur gæfumaður,
Pálmi Friðriksson fæddist að
Naustum við Akureyri 29. október
árið 1900. Foreldrar hans voru
hjónin Friðrik Guðmundsson frá
Teigi, hinn mesti sæmdarmaður,
og Anna Guðmundsdóttir, bæði
voru þau af eyfirzkum ættum.
Amna var göfug kona, trúu'ð og
bænrækin. Þau hjón bjuggu í Arn-
arnesi og fleiri bæjum í Arnarnes-
hreppi, þeim varð 6 barna auðið
Dóttur misstu þau unga, hin náðu
fullorðinsaldri og lífið brosti við
þessum gervilega systkinahóp. En
örlagaþræði enginn maður rekur,
annar ræður þeim. Bræðurnir
þrír, Jónas, Andrés og Guðmund-
ur, deyja allir á bezta aldri. mikl-
ir efnismenn. Frú Sigríður kona
Stefáns Ág. Kristjánssonar for-
stjóra er nú ein eftir af börnum
Önnu og Friðriks Guðmundssonar.
Pálmi Friðriksson fluttist með
foreldrum og systkinum til Akur-
eyrar árið 1925. Þar varð á vegi
hans ung og falleg stúlka, Guðrún
Jóhannesdóttir frá Patreksfirði.
Þau gengu í hjómband 18. desem-
ber 1926. Skömmu síðar fluttu þau
í Gránufélagsgötu 5 og bjuggu þar
síðan. Þau eignuðust fjögur börn:
Jóhönnu Maríu, gifta Matthiasi Ein
arssyni lögregluþjóni, Andreu,
gifta Bjarna Jónssyni bifreiða-
stjóra, Guðbjörgu, hjúkrunar-
konu og húsfreyju í Reykjavík,
maður hennar er Gunnar M. Guð-
mundsson hæstaréttarlögmaður,
yngstur er Jóhannes er Ies lög við
Háskóla íslands, kvæntur Jóhönnu
Árnadóttur. Barnabörnin eru tíu.
Pálnia var það mikil hamingja
að eignast svo ágæta konu, sem
frú Guðrún er, hún stóð við hlið
hans, fagnaði heimkomu hans
hverju sinni, bjó honum og börn-
um þeirra hið fegursta heimili, því
svo verkhæf kona er Guðrún, að
segja má, að allt leiki í höndum
hennar.
Sameiginlega vöktu þau hjón yf
ir velferð og þroska barna sinna
og barnabarna. Börnin öll bera
það með sér, að hafa hlotið hið
bezta uppeldi á menningarheimili,
þar sem foreldrarnir og hin góða
amma vöktu yfir velferð þeirra,
báðu fyrir þeim og vísuðu til veg-
ar. Það er trú fnín, að sú leiðsögn
nái lengra en tiT barnabarnanna,
þau munu kenna sínum bömum
og þannig rætast fyrirheitin og
bænir trúaðra.
Pálmi Friðriksson var fdður
maður og vel á sig kominn, það
var mikil hýra í svipnum, hann
var gamansamur, smá gTettinn en
hlédrægur og naut sín bezt heima.
Þar var allt sem hann unni.
Pál'mi var kvaddur hinztu
kveðju frá Akureyrarkirkju 24.
febrúar, að vðistöddu fjölmenni
Þótt Pálmi Friðriksson sé horfinn
sjónum, þá geymist mynd hans og
minning hjá ástvinum hans öllum
og vinum.
Æðruleysi, dugur og drengskap-
ur er arfurinn dýri, sem ekkert
fær grandað og það er góð arf-
leifð.
Laufey Sigurðardóttir
frá Torfufelli.
9