Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Qupperneq 27

Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Qupperneq 27
SEXTUG: LÚÐVÍKA LUND Frú Lúðvíka Lund varð sextug 8. júní 1970. Ýmsum mun koma þetta á óvart, sem þekkja þessa glaðlyndu og síuingu konu. Frú Lúðvíka fæddist norður á Raufar höfn og þar ólst hún upp og vann mikinn hluta þess ágæta starfs, sem hún hefur þegar lagt af mörkum margvíslega. — Snemma komu 1 ljós ágætir hæfi leikar hennar og fúsleiki til að nýta þá í þágu góðra málefna. Lúðvíka er félagslynd og lætur sitt aldrei eftir liggja ef hún má einhverju góðu leggja lið. Lengi vann hún í Kvenfélaginu Freyju og Slysavarnadeild kvenna á Raufarhöfm, og fagurt vitmi um traust það er hún nýtur meðal fyrri félagssystra sinna er það, að hún hefur lengi verið fuHtrúi deildarinnar á þingum Slysavarna félags íslands. Fyrir rúmum ára- tug fluttist fjölskylda hennar í Garðahrepp og þar hóf Lúðvíka fljótt þáttöku í störfum Kven félags Garðahrepps. Þennan tíma allan hefur hún leikið undir söng í Sunnudagaskóla Garðasókn ar og áunnið sér ást og þökk hinna íjölmörgu barna, er þangað sækja Vetrarlangt. Gift er Lúðvíka Leifi Eiríkssyni. Leifur er kunnur fram kvæmda- og forystumaður, vin- sæll kennari og drengur góður í hvívetna. Gesbrisni og einstök vel- vild er sameiginlegt einkenni Þeirra hjóna og á sinn ríka þátt í því. hversu heimili þeirra hefur Verið mörgum kært fyrr og síðar. •Mikið barnalán hefur og verið þeim mikið hamingjuefni. Á vordegi fæddist Lúðvíka Lund. Það vekur enga furðu. Hún sjállf í ætt við vorið, svo góð Viljuð, léttstíg og momgunglöð. . Jón S. Bergmann kvað eitt ®inn til Lúðviku ungrar. Óskin hans fögur og hlý á enn við. ».Ég óska að gígjan í gleðinnar hönd með gripléttum strengjum þér dýrlega hljómi. Svo fcennirðu aldrei hin kúgandi bönd og kvíðir ei ranglátum örlaga dómi. En vonin hún opni þér Ijómandi lönd með ljósblik og vordögg á sér hverju blómi“. Vinur. Daniel Markússon varaslökkvi liðsstjóri á Reykjavíkurflugvelli er sextugur í dag. Húnvetningux að uppruna, hesta-, gleði- og sóma- maður eins og þeir gerast beztir þar norður í sýslu, sem er alldjúpt tekið í árinni, því Húnvetningur inn þarf að standast býsna ströng próf í hestamennsku og glaðværð til þess að hljóta einfcunn sæmdar mannsins. Daníel ólst upp við sveitastörf fyrir norðan, fór ungur í vega vinnu, en í tjaldbúðum vegagerð armanna lærði margur unglingur inn að lynda við félaga sína. Um tvítugsaldur keypti hann sér vöru- bíl og tók að sér flutninga milli Hvammstanga og Reykjavíkur. Raunar er það íhugunarefni, hví svo margir menn sem raun ber vitni, úr hópi þeirra sem lagt hafa jafn slæma þjóðvegi og þá ís lenzku, skuli hafa gerzt bílstjórar að atvinnu. Það kallast víst kald hæðni örlaganna, en þeir mega líka eiga það, sumir hverjir, að þeir tala yfirleitt ekki mjög vel um þessa vegi sína eftir að þeir eru farnir að aka þá sjálfir. Árið 1945 fluttist Dam j.iður til Reykjavíkur ásamt konu sinni, Hrefnu Ásgeirsdóttur. Gerðist hann þá starfsmaður slökkviliðs ins á Reykjavíkurflugvelli er það var stofnað og starfar þar enn. Daníel Markússon flutti með sér hvort tveggja að norðan, glað- lyndið og hestana, og hefur hvor ugu fargað. Ekki veit ég betur en hann eigi nú fimm gæðinga og má heita vel ríðandi Reykvíkingur. Síðustu fimm árin hefur Dani verið heilsutæpur. Hjartað er veilt og hefur oft legið nærri að sjúk dómurinn leiddi hann til bana. Nú í dag er hann rúmliggjandi í sjúkrahúsi eftir fjórða eða fimmta kastið, en orðinn þó það hress að hann er farinn að tala um hesta, rétt einu sinni, og við kunningj- arnir erum farnir að gera okkur vonir um að sjá bráðlega það sem okkur þykir einma skemmtilegast, en það er Dani á Blesa sinum. 29. ágúst 1970 Auðunn Halldórsson, Háteigsvegi 19., R. SEXTUGUR: DANÍEL MARKÚSSON ÍSLENDINGAÞÆTTlfi 27

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.