Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Qupperneq 28

Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Qupperneq 28
SEXTUGUR: ÞÚRÐUR MAGNÚSSON Þórður Magnússon í afurðasölu SÍS er orðinn sextugur, fæddur 24. september 1910. Hann er Önfirðingur að upp- runa. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Guðbjartsdóttir, Helga sonar og Magnús Halldórsson, Jónssonar. Guðbjartur Helgason afi hans var trésmiður. Hann var einn af fyrstu iðnaðarmönnum, sem settust að á Flateyri. Þar eru nú heimilisföst sex börn hans með seinni konunni, hálfs.ystkin Guð- rúnar, og er sá frændgarður mest ur á Flateyri. Magnús Halldórsson var sjómað ur. Um skeið voru þau hjón í Súgandafirði en annars á Flateyri, og þaðan fórst hann af vélskipi frá börnum þeirra ungum, en þau eru, auk Þórðar, Jenný, kona Hall dórs Gíslasonar skipstjóra og Hall dór málarameistari, bæði í Reykja vík. Þórður Magnússon var í bernsku og á unglingsárum lang- dvölum í Hjarðardal innri hjá Guð mundi Gilssyni og Sigríði Haga línsdóttur konu hans og átti þar annað heimili. Þórður stundaði nám í héraðs skólanum á Laugarvatni veturna 1931—33, en annars var hann sjó maður á ýmsum skipum fyrir og eftir skólaveturna. Stundum var hann á heimabátum á Fláteyri, stundum á síldveiðum norðan lands, nokkrar vertíðir á tog- urum. Haustið 1935 settist hann í eldri deild Samvinnuskólans og lauk prófi þaðan vorið eftir. Stundaði þó sjómennsku um skeið eftir það, en gerðist síðan starfs maður Kaupfélags Önfirðinga og varð kaupfélagsstjóri þar. þegar Hjörtur Hjartar tók við Kaup félagi Siglufjarðar 1945. Hann fann sárt til þess hversu margt duaandi manna hafði horfið burt úr Önundarfirði og vildi feginn vinna þar sitt ævistarf og undi þar vel hag sínum. En enginn ræður sínum næturstað. segir hið fornkveðna. Þórður er kvæntur önnu Tryggvadóttur frá Flateyri, Jóns sonar á Fjallaskaga, Gabríelssonar. Hún var heilsutæp, og sumarið 1946 þurfti hún að dvelja á sjúkra húsi sýðra, viðbúið að sú dvöl gæti orðið nokkuð löng og líkur til að hún þyrfti lengstum að vera undir læknishendi. Því hætti Þórður kaupfélagsstjórn á Flateyri og fluttist suður. Vann hann fyrst í frystihúsinu Herðubreið en síðan í Afurðasölunni á Kirkjusandi eftir að starfsemin fluttist þangað. En svo rættist úr um heilsu Önnu 23. ágúst 1970. Lífið gaf þann ljúfa gróður látið þar í mjúkar hendur sinnar ungu, mildu móður, af meistara lífsins varst þú sendur. Sæll við unga barminn bjarta brosir þú í fyrsta sinni, gaf sá neisti gleði í hjarta gæfu ríkri móður þinni. í föðurgarði fyrstu sporin fórst þú létt á sauðskinns skónum, mannst þú bróðir björtu vorin, blíðast fugla kvak í mónum. Þó að lífsins kletta klungur kunni að verða í götu þinni, njóttu heill og ávallt ungur alTs hins bezta í framtíðinni. Fjöllin enn við fjörðinn geyma fegurð sína, ár og gerði, dvelur ungur hugur heima, hærri þó að aldur verði. Drottinn veit að Dýrafjörður dásamlega skarti búinn fjöllum girtur, fagur gjörður, fagnar þér ef ertu lúinn. að hún hefur jafnan séð um heim ili þeirra og einn son eigá þau, 14 ára. Mér finnst Þórður Magnússón alltaf sjálfum sér líkur. Þegar ég kynntist honum fyrst, fannst mér einkennandi hvað hann var ólataur, og kapp hans og metnaður að vinna sitt verk svo að óaðfinnan legt væri. Þótt hann hafi nú verið á höfuðborgarsvæðinu nærri ald arfjórðung, er hann jafn vestfirzk- ur fyrir því, og alltaf jafn mikil gleði að styðja að því, sem æsku stöðvunum er til gagns og sóma. Því er allttaf gott að koma á heim- ili þeirra hjóna að Vallartröð 3 1 Kópavogi. Og því er það bæði eðlilegt og maklegt, að kveðja berist heiman frá æskustöðvunum á sextugsafmæli húsbóndans. H. Kr. Mjög er heimsins görótt gæzka gleggra sézt ef um öxl er litið, víst er sextíu ára æska aðeins meira en barnaskóslitið. Margt í skóla lífs má læra og leggja á vörzlu í æðri sjóði, sendum við því kveðju 'kæra Kjaranstöðum frá í ljóði. Elís Kjaran Friðfinnsson. ISLENDINGAÞÆTTIR SEXTUGUR: GUÐMUNDUR H. FRIÐFINNSSDN

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.