Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Page 32

Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Page 32
ÁTTRÆD: INGIBJÖRG SIGRiDUR JÚNASDÚTTIR Ingibjörg fræ’nka varð áttræð 28. ágúst. Hún ber þó ekki aldur inn með sér, alltaf jafn kát og skemmtileg, augun leiftrandi fjör ug og hjartagæzkan vermir hvern þann, sem kemur í heimsókn.^ Ingibjörg fæddist að Efri-Brunn á i Saurbæ í Dalasýslu. en fluttist tveggja ára með foreldrum sínum, Ingibjörgu Loftsdóttur og Jónasi Jónassyni, bónda og smið, í Borg arfjörðinn, á Galtárhöfða í Norður- árdal. Þar ólst hún upp, þangað til fjölskyldan fluttist skömmu eftir aldamótin að Litla Skarði í Stafholtstungum. Ingibjörg var þó aðeins tvö ár á Litla Skarði. þvl að fjórtán ára byrjaði hún að sjá fyrir sér sjálf, sem kaupakona og vinmikona á ýmsum bæjum i Borg arfirði. Árin kringum síðustu aldamót voru engin sæluár í þjóðlífssögu íslendinga. Harðæri og náttúru hamfarir þrengdi mjög að þjóð inni og fjöldi fólks varð að flýja land. Fjölskyldan í afdal Norður árdalsins og i Stafholtstungum var ekki undanþegin tíðarandanum. Jónas drýgði að vísu afrakstur jarð arinnar með smíðum fyrir sveit ina, því að hann var afburða smið ur bæði á tré og járn og orðlagð ur fyrir hæfileika sína um allt hér aðið. Búskapurinn lenti þvi oft mikið á móðurinn, Ingibiörgu og elztu systkinunum, og það kom fyrir að legið hafi við örvætningu um viðurværið. Ekkert til á bæn um nema' mjólkursopi, sem ekki var undirstöðumikilT í vaxandi barnahóp. þótt góður væri, og veik von um að elzti bróðurinn, Jóhannes, næði i nokkrar rjúpur eða aðra veiði. sem rættist víst furðanlega oft, þótt hann væri að eins á unglingsaldri. Hann mun snemma hafa tamið sér ábyrgðar hlutverk gagnvart systkinum sín um og hafði þá Ingibjörgu. sem var næst elzt, með ? ráðum. Elztur systkinanna er sem sagt Jóhannes trésmiður hér i Revkja vík. Þá kemur Ingibjörg, síðan koma Ragnheiður og Magnús, en þau eru bæði dáin, Magnús dó nú í vetur sem lexð, Þá kemur Árni trésmiður í Reykjavík og tvíburi hans, sem dó í fæðingu, og síðan yngstu bræðurnir Sveinn og Karl, en þeir eru báðir dánir. Einnig er uppeldissystir, Lilja JúTiusdótt ir. Borgarfjörðurinn er fögur sveit. Efst gnæfir einbúinn mikli, minn isvarði hreysti og hreinskilni, klappaður úr stuðluðu líparít bergi. Birkikjarr eykur unað hlíð ardraga og árbakka og Hafnarfjall og Skarðsheiðin spegla sig í sæ bláum firðinum og lognsæTum fjallavötnum. Allt héraðið er vaf ið gróðri, lyngfléttum og grasbreið um, en yfir öllu hvílir hinn þrungni máttur ískalds Eiríksjök uls og hann „veit aTIt, sem talað er hér“, svo vitnað sér í föður nafna systkinanna. Það er ekki í kot vísað að fá að fæðast og alast upp í slíku um hverfi. Enda munu þeir feðgar Kveldúlfur. Skallagrímur og Egill og síðar Snorri Sturluson vel hafa vitað hvað þeir gerðu, þegar þeir kusu þar helzt að búa. En það er víða fallegt á íslandi og hver er sá, sem ekki þykir sín sveit fegurst? Það er að minnsta kosti alveg öruggt, að forfeður og frændur Ingibjargar yrðu ekki á einu máli um fegurstu sveit lands ins. Því varla er ofmælt, þótt sagt sé, að þeir séu um gjörvallt Vest ur- og Norðurland. Foreldrar Ingibjargar voru eins og áður segir Ingibjörg Loftsdótt ir, fædd i Gairpsdal í Gilsfirði, og Jónas Jónasson, fæddur að Háreks stöðum í Norðurárdal. Loftur fað ir Ingibjargar dó ungur vinnumað ur, en hann var sonur Jóns Jóns sonar bónda að VíðivöITum i Stein grímsfirði og var hans fólk bæði úr Strandasýslu og Barðastranda- sýslu. Móðir Ingibjargar Loftsdóttur var Sigríður Magnúsdóttir, Sig urðssonar bónda í Múla i Gilsfirði en kona Magnúsar var Ingibjörg dóttir Jóns Jónssonar hreppstjóra i Snartartungu á Ströndum og konu hans Sigríðar Sveinsdóttur bónda á Kleifum i Gilsfirði, Stur laugssonar. Um Jón i Snartar tungu er þáttur í þjóðháttum Finns Jónssonar á Kjörseyri og um Svein á Kleifum er þáttur í sagnþáttum Fjallkonunnar. Báð um er þeim lýst mjög lofsamlega. Fóstursonur Jóns og Sigriðar og systursonur hans og bróðursonur hennar var séra Sveinn Níelsson prófastur að Staðarstað, en hann var sem kunnugt er faðir Hall gríms biskups, Elísabetar móður Sveins Björnssonar forseta, og Sig ríðar móður Haraldar Nielssonar prófessors og ömmu Dungals-syst- kinanna. Faðir Jónasar eða Jónas Jónas son eldri fæddist i Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi, en móðir hans var Ingibjörg Jónsdóttir, fædd á Bjarnastöðum í DalasýsTu og var Framhald 6 bls. 30- 32 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.