Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Síða 11

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Síða 11
áhuga á málum. Hann var vel máli farinn, þrátt fyrir málheltina. Eins og fyrr segir, hneigSist hug ur L/eifs snemma að bókmenntum og ritstörfum. Það var hans heim- ur. Hann þýddi ýmsar smásögur, sem birtust í ýmsum tímaritum og um tíma var hann ritstjóri'tíma- rits, sem Helgafell gaf út og nefn- ist „Það bezta“. Leifur var mikill smekkmaður á íslenzkt mál, og mjög vel ritfær. Merkasta þýðing hans var hin stór merka skáldsaga, Stríð og friður, eftir Leo Tolstoj. Þú þýðing fékk góða dóma skynbærra manna á ís- lenzíkt mál. Ekki má því gleyma, að Leifur var ágætur hagyrðingur og urðu sumar vísur hans land- fleygar, t.d. þessi: Ungu slkáldin yrkja kvæði án þess að geta það. Á Ingólfskaffi er ég í fæði án þess að éta það! Ýmsir eignuðu Steini Steinarr þá vísu. Hnyttileg tilsvör Leifs nutu sín og vel á stundum í vísum hans. Hann var ekki í vandræðum með að svara fyrir sig, er hann átti í málaþrasi við kunningja sína. Dæmi um það er þessi saga: Iíagmæltur kunningi Leifs kast- aði einu sinni fram þessum vísu- part: Bilið er langt milli Leifs og manns, en löngum er hann þó glaður. Leifur botnaði strax: Því langalangafi hans var landskunnur heiðursmaður! Geri aðrir betur í flýti! Og þetta var ekkert skrum vegna rímsins, því að langafi Leifs, i föðurætt, var Þorleifur ríki Kolbeinsson á Stóru-Háeyri og langa-langafi Þor- leifs var Skafti lögréttumaður Jós- epsson (faðir sr. Þorleifs próf. 1 Múla). Leifur var mjög söngvinn, eins og hann átti kyn til og kunni vel að gleðjast með glöðum. Og vel var það, að hann kvaddi þetta líf í glöðum hópi góðra vina 2. ág. 8.1. þjáningalaust, að þvi er virtist. Hann var þá nýbyrjaður að vinna aftur, eftir nokkurra vikna sjúkra húsvist. Ég læt hér staðar numið, þó fleira mætti segja. Ég hugsa til Leifs með einiægu þakklæti fyrir okkar kynni. Hann byrjaði sem nemandi minn, en seinni árin var ég nemandi hans í þeim fræði- greinum, sem voru eftirlæti hans, en ég aftur fákunnandi. Hann var ágætur sögumaður og minnið frá- bært. Ég óska honum velfarnaðar á nýjum leiðum í hópi horfinna vina, sem bíða okkar hinna á ströndinni handan móðunnar miklu. Ingimar H. Jóhannesson f Svo snart Leifur Haraldsson samferðamenn sína í lífinu, að margir hafa orðið til þess að minnast hans látins. Öllum kemur saman um, að hann hafi verið sér- stæður persónuleiki og eftirminni legur þeim sem eitthvað höfðu saman við hann að sælda. Ég átti þess lcost að kynnast Leifi heitnum allnáið og eiga við hann samstarf um tíma. Það var í sambandi við afmælishefti Sam- vinnunnar 1949 undir ritstjórn Hauks Snorrasonar, í tilefni af 30 ára afmæli Samvinnuskólans. Meg inefnið var ritgerðir nemenda frá flesturo árgöngum, mjög sundur- leitt og frágangur handrita með ýmsu, ósamræmdu móti. Mér er I fersku minni, hve mikla og þrot- lausa alúð Leifur sýndi við þetta verk, og hversu nákvæmni hans og vandvirkni var einstök. Þarna var þó ekki seilzt til launa, ég man ekki hvort hann fékk nokkuð fyr- ir þetta, og var hann þó atvinnu- lítill um það leyti. Mér satt að segja ofbauð og fannst Leifur ganga alltof langt í nostursemi sinni og kröfuhörku. En hann hélt rólegur og staðfastur sitt strik og lét hvergi haggast af óþreyju minni. Ég var honum þá stundum gramur, en lærði síðar að meta þá mannkosti, sem hér lágu að baki, og skilja, að öll vandvirkni og ná- kvæmni var honum lífsþörf, sem hann varð að fullnægja. Þótt samband okkar Leifs Har- aldssonar væri löngum ekki mjög náið síðar, man ég þó ekki til þess, að við hittumst nokkurn tíma án þess að heilsast oe talast við lengri eða skemmri tíma, hvenær og hvar sem var. Og það var ekki eins og að hitta hvern sem var, að hitta Leif og eiga orðastað við hann. Alltaf fór maður auðugri af hans fundi, og skiptl \ þri sam- bandi engu, hversu ratfiningar stönguðust á eða féllu samati Leif ur sagði alltaf eitthvað eftirmirni- legt og oft ógleymanlegt. SniftV yrði hrutu honum ósjaldan af vör- um. Það var því ekki að furða, þótt hann væri prýðilega ritfær og mælskur á sinn hátt, enda muna hann margir frá þeim vettvangi. Mér er það í minni, að oft kvöddumst við Leifur í hálfkær- ingi og stundum meira en það. En þetta kom ekki í veg fyrir það, að mér þætti einhvern veginn alltaf vænt um hann, og ég er alls ekki frá því, að uppáfallandi þykkja okkar hafi beinlínis orðið til þess, „að skerpa kærleikann". Ég sem sagt trúi því, að Leifi hafi a.m.k. ekki verið mjög illa við mig. Til þess að svo gæti verið, sýndi liann mér alltof mikla tryggð og rækt- arsemi — langt umfram það, sem ég verðskuldaði — og takmarkað- ist umhyggja hans engan veginn við mig sjálfan, heldur náði einn- ig til konu minnar, sona okkar og jafnvel barnabarna. Slíkur var drengskapur þessa mikla tryggða- trölls, og segir þetta ekki svo lítið um manninn. Stundum — þó alltof sjaldan, finnst mér nú eftir á — kom Leif- ur heim til okkar. Svo gerði hann t.d. þegar ég varð fimmtugur. Þar flutti hann snilldartækifærisræðu, þrungna í senn mannviti og kátínu, og kom víða við. Þar vantaði held ur ekki nokkra sárbeitta brodda, (hann átti þá til), í garð sumra manna og málefna, sem honum fannst koma við sögu. Var það eft- irminnilegur málflutningur. Litlu síðar, er mágur minn, Magnús Gislason, hafði m.a. sung- ið „Bjórkjallarann“ á sænsku, og Leifur var orðinn „mátulegur“, kom hann til mín og sagði okkur vanta íslenzkan texta, svo við gæt- um sungið öll. Lét hann mig svo skrifa upp eftir sér nýorta vlsu sína, þá á stundinni — þýðingu eða stælingu — undir þessu þekkta og vinsæla lagi, hvar hann náði vel anda og stemningu drykkjuvísunn ar, sem okkur líkaði svo vel, að hún varð þá þegar einn vinsælasti söngur okkar. sem þarna vorum þá samankomnir. eftir að Magnús hafði innleitt lióð og lag með sín- um fimbulbassa. Ég held ég muni rétt þetta stundarbarn Leifs, sem við dáðumst að, m.a. vinur minn f SL END3NGAÞÆTTIR 11

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.