Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Blaðsíða 22

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Blaðsíða 22
ingarblæ, er fyliti barnshuga minn hrifningu. Æsikuheimili Garðai's í Þverdal var annálað fyrir gestrisni og glað værð, og hvergi hefi ég heyrt feg urri söng, en þegar þau hjónin í Þverdal og börn þeirra sungu fyr ir gesti síná í Aðalvík é-í sumarfagurt, og óef að hafa töfrar hinnar stórbrotnu náttúru í Þverdal haft djúp áhrif á Garðar. því engan hefi ég þekkt, sem tengdari var sinni heima byggð en hann, og reyndar hafa þau sysfkLn öll sýnt æskustöðvun um meiri ræktarsemi en almennt gerist, og gefið öðrum gott og eftirbrevtanlegt fordæmi. 1935 hélt Garðar að heiman og réðst þá til sveitunga síns Klemens ar Kristiánssonar á Sámsstöðum. Þar vann hann við jarðræktarstörf í tvö ár, eða til 1937, er hann fór til náms í Bændaskólann á Hvann eyri. 1939 útskrifaðist hann þaðan og næstu þrjú árin vann hann ým ist við búskap eða önnur störf þar til 1942, að hann réðst til lögreglu starfa hér í Reykjavík, en þar starfaði hann í nær tvo áratugi, eða þar til hann réðst sem hús vörður við Laugalækjarskólann. Garðar kvæntist eftirlifandi konu sinni, Bertu Hannesdóttur frá Vaðstakksheiði, Neshreppi ut an Ennis á Snæfellsnesi 8. maí 1943. Berta Hannesdóttir er dug mikil og góð kona, sem staðið hef ur trútt við hlið manns síns og ber heimili þeirra dugnað hennar og atorku gott vitni. Þegar Garðar veiktist fyrir meira en tveimur ár- um, tók Berta við störfum hans auk heimilisstarfanna, og hefur með einstæðum dugnaði séð heim ilinu farborða. Þau Garðar og Berta eignuðust fimm börn, en þau eru: Edda Gerður, gift Jóni Waage flugstióra. Guðmundur Snorri, sem nýlega hefur Lokið námi f flugumferðar stjóm, kvæntur Pálínu Ágústsdótt- ur. Hannes, sem er við nám, og Guð rún Elsa og Erla Gígja, en þau þrjú síðasttöldu eru enn í foreldra húsum. Áður en Garðar kvæntist, eign aðist hann eina dóttur, Jónínu, er ólst upn hjá foreldrum hans. Garðar var vel gerður um flesta hluti. Hann var í hærra lagi, þrek- inn og vel að manni, háttvís og hið mesta prúðipenni í allri fram göngu. Átti hann því létt með að umgangast hvern og einn. Þessir eiginleikar komu að góðu haldi í lögreglumannsstarfinu, sem fór honum sérstaklega vel úr hendi, sem og öll önnur störf, er honum voru fengin, og hann rækti af trú- mennsku og samvizkusemi. Garðar átti sér mörg hugðar efni utan starfsins. Hann var óvenjulega músikalskur og hafði fagra söngrödd. Söng hann í Karla kór Reykjavíkur í 26 ár, eða þar til hann veiktist. Garðar var traustur og góður fé lagi, glaðvær, skemmtinn og hjáíp samur, svo af bar. Ég minnist ótaldra gleðistunda, er við félagar hans áttum með honum, allt frá bernskudögum. Á þær minningar slær hvergi skugga. Garðar kvaddi þennan heim í einhverjum fegursta sólmánuði, er við höfum lifað, þegar náttúran skartar sínu fegursta, og sólin breytir þessu landi í undraveröld. Djúpur harmur er nú kveðinn að konu hans, bömum, áldraðri móður og öðrum ástvínum. Megi sólin brjóta sér braut gegnum hið svarta sorgarský, sem nú hefur dregið fyrir, o g verða sá orku gjafi, sem hjálpar þeim til að mæta hinum mikla missi, og breyta sorg og erfiðleikum í von og yl frá minningu Garðars, sem ekkert fær grandað. Það var bjart yfir lífi Garðars Guðmundssonar, og það verður ávallt bjart um minningu hans. Við hjónin sendum aðstandend um hans innilegar samúðarkveðj ur. Gunnar Friðriksson. f Mætur samborgari er horfinn af sjónarsviðinu fyrir aldur fram, Garðar Guðmundsson fyrrum lög- regluþjónn. Fáein kveðjuorð skulu flutt af skólabróður og starfsfélaga í mörg ár, þakklæti fyrir góða kynningu I meira en 3 áratugi, þar sem aldrei bar neinn skugga á. Lífssaga Garðars skal ei rakin hér nema í örfáum orðum. Hann fæddist í Aðalvík í N-ísa- fjarðarsýslu. — Foreldrar hans voru Guðmundur Snorri Finnboga son og Jónína Sveinsdóttir, hin mætustu hjón, enda bar Garðar það með sér við fyrstu kynni, að hann hafði fengið gott uppeldi. Sveit hans, einkum Aðalvíkin átti alltaf mikil ítök í honum, ekki hvað sízt eftir að byggðin eyddist að fólki með fasta búsetu. Var hann ásamt bræðrum sínum í far- arbroddi þess merka félagsskapar Átthagafélags Sléttuhrepps, sem stofnað var til varðveizlu sögu og menningarerfða þessarar fyrrum fjölmennu sveitar. Einn þáttur þessa félags er útgáfa ritsins Sléttuhrepps, sem er merkilegt framtak um sögu byggðar og bú- enda vestur þar. Garðar lauk prófi úr Hvanneyr- arskóla 1939 og starfaði um skeið til sjós og lands. 1942 gekk hann í lögreglu Reykjavíkurborgar og starfaði þar hátt á annan áratug, þar til hann saeði upp stöðu og gerðist skólaumsjónarmaður Laugalækj arsfcóla. Hann kvæntist um það leyti er hann gekk í lögregluna hinni mæt ustu konu, ættaðri af Snæfellsnesi, Bertu Hannesdóttur skólaumsión- armanns Elíssonar og konu hans Guðrúnar Guðbjörnsdóttur. Börn þeirra Garðars eru 5 en áður hafði hann eienazt eina dóttur. Garðar var starfsmaður góður, reglusamur um allt, sem að starfi hans laut, enda ávann hann sér traust samverkamanna, hvort sem það voru yfirmenn hans eða undir menn. Sem samstarfsmaður hans í nær tvo áratugi er mér ljúft að minn- ast hans sem góðs félaga og dreng skaparmanns. Honum virtist sá eig inleiki alltaf tiltækur að laða hið rétta og jákvæða fram í hveriu máli. Glaðlyndi og góðvild voru hans aðalsmerki, og átti hann létt með að deila geði með öðrum, efcki hvað sízt á góðra vina fundum. Hann var söngmaður góður, hafði fagra tenórrödd og það heyrði ég eftir kunnáttumanni, að Garðar hefði náð langt á þvi sviði, hefði hann ungur lagt á þá braut. Hann var óspar á krafta sína í þágu þess málefnis, þvi að í nær þrjá ára- tugi var hann virkur félagi I karla kórum, Lögreglukór Reykjavikur, en þó sérstaklega Kariakór Revkia vfkur, þar sem hann söng lenstst af og fór með kórnum margar tón ieikaferðir, m.a. tvær til Banda- rfkianna og Kanada, við mjög góð an orðstír. En nú er þar, sem og á vinnn- Btað og hlýlegu heimili hans, sfcarð 22 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.