Íslendingaþættir Tímans - 11.05.1972, Page 18
Haukur Ingvaldsson Nordström
F. 17. desember 1931
I). (>. nóvember 19<>9.
Haukur fæddist á Stóra-Hofi á
Rangárvöllum. Móðir hans var Helga,
þá heimasæta á Hofi, dóttir bænda-
höfðingjans Guðmundar Þorbjarnar-
sonar og Ragnhildar Jónsdóttur konu
hans. Helga fæddist á Hvoli i Mýrdal,
21. ágúst 1909, en þaðan fluttu
foreldrar hennar að Stóra Hofi, þegar
Helga var ársgömul, og þar ólst Helga
upp i glaðværum systkinahópi á
mannmörgu rausnar- og myndar-
heimili.
Faðir Hauks var ungur Norömaður,
Ingvald Jóhannessen Nordström, sem
þá var heimilismaður á Hofi. Dvaldist
hann hér á landi um hrið og vann land-
búnaðarstörf. Auk þess,sem hann var
á Hofi.var hann um tima i Birtinga-
holti og Hrepphólum i Árnessýslu. Ing-
vald var fæddur 2. mai, 1910 og þvi ári
yngri en Helga.
En þeim Helgu og Ingvald var ekki
skapað nema að skilja. Þegar hann
hvarf héðan af landi brott alfarinn
treystist Helga ekki til af ýmsum
ástæðum að fylgja honum til Noregs.
Hún varð eftir með son sinn heima á
Hofi. En Ingvald kvæntist annarri
islenzkri konu, Ingibjörgu Jónsdóttur
frá Hrepphólum og settust þau að i
Noregi.
En Haukur hinn ungi óx og dafnaði
heima á Hofi, og naut þar ástrikis afa
sins og ömmu, og móður sinnar og
móðursystkina, sérstaklega Elinar og
svo Ágústs, sem tók við búi á Hofi eftir
lát föður sins 1949. Ljóshærður, blá-
eygðurogbroshýrmildaði Haukur skap
afa sins með nærveru sinni, og var
ömmu sinni til hughreystingar i bar-
áttu hennar við langvarandi heilsu-
leysi. Þannig liðu bernskuár Hauks við
leik og störf i fjölbreytni og unaðsemd
sveitalifsins, sem hann lærði fljótt að
meta. Oft var móðir hans fjarverandi
við ýmisleg störf á ýmsurn stöðum.
Gekk þá Elin frænka hans honum i
móðurstað.
Barnaskólanám sitt fékk Haukur i
heimavistarskólanum á Strönd. Kom
þar fljótt i ljós, að hann hafði góðar
námsgáfur og var minnugur vel.
Fermdur var hann i Odda á sól-
björtum hvitasunnudegi.
Næst tók svo við þriggja vetra nám i
18
Flensborg i Hafnarfirði. En á sumrin
vann hann heima á Hofi og fylgdist
með sveitabúskapnum af lifi og sál.
Hestamaður góður varð hann snemma
og hafði mikla skemmtun af að glima
við galda fola og temja þá.
Veturinn eftir að hann lauk námi i
Flensborg var hann við nám á Akur-
eyri og lauk gagnfræðaprófi við
Menntaskólann þar. Það mun hafa
verið vorið 1949. En framtiðar-
draumar Hauks voru bundnir við
sveitalifið og búskapinn og þvi fór
hann veturinn eftir til náms i búnaðar-
skólanum á Hvanneyri. Næstu tvö ár
var hann til heimilis að Hofi hjá Ágústi
frænda sinum, sem þá var tekinn við
búi þar eftir lát föður sins 1949.
Árið 1952 fór Haukur til Ameriku
ásamt vini sinum Gunnari Guðnasyni
frá Brekkum i Hvolhreppi. Fóru þeir á
vegum islenzk-ameriska félagsins til
þess að kynna sér búnaðarhætti vestan
hafs. Seint á árinu 1953 kom Haukur
heim aftur úr þeirri ferð. Fáum dögum
eftir heimkomu hans andaðist Ragn-
hildur amma hans i Reykjavik, eftir
langa vanheilsu.
Eftir skamma viðdvöl heima fór
Haukur til Noregs og hitti þar föður
sinn og dvaldist hjá honum um hrið. 1
þeirri ferð fór hann lika til
Danmerkur. Vann hann i báðum þeim
löndum landbúnaðarstörf og kynnti
sér búskaparhætti. En átthagarnir
kölluðu hann heim. Þar biðu
verkefnin, og gróðurmoldin angaði
fyrir vitum hans. En jörð átti hann
enga og búskaparmöguleikar hans
voru óráðnir.
Næstu ár vann Haukur á ýmsum
stöðum, var meðal annars hjúkrunar-
maður á Kleppi, mokaði salt úti i Vest-
mannaeyjum, hausaði þorska i Þor-
lákshöfn, vann sér inn peninga á
Keflavikurflugvelli og viðar.
Sumarið 1956 var Haukur kaup-
maður i Gljúfurholti, Olfusi.
Þá var Helga móðir hans forstöðukona
Elliheimilisins i Hveragerði. Það
sumar, 30. júni, kvæntist Haukur
unnustu sinni, Gunnhildi Guðjóns-
dóttur frá Vatnsdal i Hvolhreppi, f.4.
janúar, 1933. Þau voru gefin saman i
Kotstrandarkirkju og þá um leið skirð
dóttir þeirra, Helga, sem fædd var 9.
mai þá um vorið.
Það var á sólheiðum hásumardegi,
sem þau gengu út úr kirkjunni nývigð
hjón, Gunnhildur og Haukur, og sjálf-
sagt hefur verið bjart yfir framtiðar-
vonum þeirra. En þess var þó ekki
langt að biða, að skugga bæri á. Um
sumarið varð Haukur að leggjast á
spitala um tima. Heilsan var ekki góð.
Var það ef til vill fyrirboði þess, sem
siðar átti að koma?
Um haustið fluttu þau til Reykja-
vikur og fékk Haukur vinnu hjá
Eimskipafélagi Islands. Siðar varð
hann stöðvarstjóri. Alltaf þráði hann
sveitalifið og vorið 1958 fluttu þau
austur á Rangárvelli og settust að á
Litlu-Strönd. Þá höfðu þau eignazt
yngri dótturina, Þuriði Guðrúnu. Hún
var fædd i Reykjavik 8. nóv. 1957. Til
að byrja með fékk Haukur vinnu með
jarðýtu hjá búnaðarfélagi sveitar-
innar og vann að vegagerð og jarð-
vinnslu af mesta kappi og dugnaði eins
og hann átti vanda til. Siðar fékk hann
fasta atvinnu hjá Kaupfélagi Árnes-
inga við mjólkuflutninga til Flóabús-
ins austan úr Fljótshlið og Hvols-
hreppi, og flutti hann þá heimili sitt
austur á Hvolsvöll. Reyndist Haukur
enn sem áður harðduglegur og úr-
ræðagóður i þessu starfi, sem oft var
erfitt og slarksamt á misjafnlega
góðum farartækjum.
Aður en Helga móðir Hauks fluttist
vestur um haf árið 1958 hafði hún gefið
Hauki Nýbýlaland, sem
hún tók við erfðum. Það var
hluti úr Hofslandi niður með eystri
íslendingaþættir