Íslendingaþættir Tímans - 11.05.1972, Síða 24

Íslendingaþættir Tímans - 11.05.1972, Síða 24
60 óra Sveinn Guðmundsson Sveinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kaupfélags Skag- firöinga á Sauðárkróki, varð sextugur 28. april s.l.í 12. h. Glóðafeykis, er út kom i nóvembermán. 1971, er hans stuttlega getið, eins þeirra fjögurra starfsmanna K. S., er á þvi ári áttu að baki aldarfjórðungs samfellt starf hjá félaginu. Þar segir svo: ,,....Hann er fæddur i Litladalskoti (nú Laugardalur) i Tungusveit (Lýtingsstaðahreppi) 28. april 1912 (hér hefur slæðzt inn, sU afleita villa, i Glóðaf., að fæðingard. hans sé 27. ágUst). Gagnfræðapróf frá Mennta- skóla Akureyrar 1932. Próf frá Sam- vinnuskólanum 1939. Stundaði á þessum árum verzlunar- og skrifstofu- störf á Akureyri, verkstjórn og sildar- mat á Siglufirði. Gerðist kaupfélags- stjóri við Kaupfélag Hallgeirseyjar - nU Kaupfélag Rangæinga - á Hvols- velli 1941 og gegndi þvi starfi til 1946. Réðst hinn 1. jUni 1946 til Kaupfélags Skagfirðinga og hefur verið þar kaup- félagsstjóri óslitið siðan. Dvaldist um stund i Sviþjóð, áður en hann tók við forstöðu K. S., og kynnti sér starfsemi samvinnufélaga þar i landi. Sveinn er kvæntur Elinu Hallgrims- dóttur, eiga þau 5 börn, fjóra sonu og eina dóttur.” Þurra upptalningu, þvilika sem þessa, er vandalaust að festa á blað. 1 henni eru að visu fólgin drög að sögu. En á bak við er önnur saga, stærri i sniðum, viðameiri og margslungnari en svo, að sögð verði með einni saman upprifjun ártala. SU saga verður eigi rakin hér. Kemur þar til, að bæði yrði sagan löng, þótt aldur mannsins sé enn eigi hár, og eins hitt, að Sveini Guðmundssyni er einna minnst um það gefið, þeirra manna allra, sem ég þekki, að sitja undir lofi um sjálfan sig eða að gert sé með hann mikið stáss. En væri saga hans og K. S. rakin og rétt sögð frá 1946 til þessa dags, mundi hUn alveg vafalaust tefla honum i allra fremstu röð þeirra manna, er helga krafta sina félagsmálum og fjármál- um. Sira SigfUs Jónsson var formaður og framkvæmdastjóri Kaupfél. Skagf. 1913—1937, er hann lézt. Hann tók við örsnauðu og alls ómáttugu fyrirtæki. Við andlát hans var K. S. komið i röö hinna stærstu og traustustu kaup- félaga landsins. Verður starf hans i þágu samvinnumála I Skagafirði, og kaupfélagsstjóri um leið Skagfirðinga allra, seint að fullu metið. Að sr. SigfUsi látnum tók við kaupfélagsstjórn tengdasonur hans, Sigurður Þórðarson, bóndi á NautabUi. Hann hélt öllu vel i horfi til 1946, er hann lét af starfi og Sveinn Guðmundsson tók við. Sveinn hefur nU stýrt Kaupfél. Skagf. fullan fjórðung aldar — og stýrt félaginu með þeim hætti, að fullyrða má, að þar hefðu fáir eins vel gert og enginn betur. Alla þá stund hefur félagið staðið i margháttuðum stór- ræðum og umsvifum ýmiss konar, vafalaust meiri og margvislegri en al- menningur gerir sér ljóst i fljótu bragði. Allar hafa þær framkvæmdir orðið - og verða - félaginu til eflingar og við það miðaðar, að verða megi, ýmist með beinum hætti eða óbeinum, félagsmönnum og öðrum til hagsbóta og aukinna þæginda. Kaupfélag Skagfirðinga nýtur óskoraðs trausts ábyrgra aðilja. Þar stendur allt eins og stafur á bók. En tiltrU og traust er vitaskuld hverri stofnun fyrsta og helzta skilyrði þess, að hUn megi lifa og þroskast. Sveinn kaupfélagsstjóri er gæddur þvi merki- lega skyni hins fædda fjármálamanns að sjá I einu vetfangi, hversu djarft má sigla um framkvæmdir og fleira, svo að ekki sé teflt i tvisýnu. Þess vegna, ekki hvað sizt, hefur hann reynzt K. S. svo frábær forystumaður, sem raun ber vitni. Hann er mikill fram- kvæmdamaður og athafna. En hann gleymir enga stund þeirri ábyrgð, sem hvilir á herðum þess manns, er stjórnar stóru fyrirtæki i umboði 1300—1400 eigenda. Sveinn Guðmundsson var eigi við- vaningur i samvinnumálum, er hann tók við forstöðu Kaupfél. Skagfirðinga, þótt eigi væri eldri en 34 ára. Hann hafði þá i nokkur ár verið kaupfélags- stjóri á Hvolsvelli við ágætan orðstir. Sagði svo gagnmerkur maður, Helgi Jónasson, alþm. og læknir á Stórólfs- hvoli, þeim, er þetta ritar, að Sveinn hefði reynzt þeim Rangæingum af- burðavel sem kaupfélagsstjóri og for- ystumaður i samvinnumálum, og þeim þótt sUrt i broti, að fá eigi haldið honum lengur þar syðra. En hugur hans mun hafa leitað á heimaslóðir handan fjalla og jökla, var og Jón Árnason frá Vatnsskarði, fram- kvæmdastjóri og siðar bankastjóri, fýsandi þess, að hann réðist norður hingað, þar sem var stærra félag og viðari vettvangur fyrir ungan athafna- mann. Það mun almælt af þeim, er þar um mega gerst vita, að Sveinn Guðmunds- son sé einn i hópi hinna beztu og allra hæfustu kaupfélagsstjóra landsins, og eru þó vissulega i þeirri sveit ýmsir hinir ágætustu menn. Þó eiga hér að nokkru við hin spaklegu orð skáld- bóndans á Sandi: Stendur um stóra menn stormur Ur hverri átt. Aukvisar lifa i logni. Hinir, sem standa i stórræðum og gæddir eru miklum manndómi, þreki og skap- festu, hlaupa ekki i skjól, þótt um þá næði stundum napur gustur. Sveinn kaupfélagsstjóri var um skeið rægður meira en aðrir menn, svo sem hér er kunnugt. Sá rógur datt dauður niður, enda lét Sveinn sem hann ekki vissi. Gerðar voru itrekaðar tilraunir til þess að koma kaupfélaginu á kné, þessu óskabarni Sveins. Þær tilraunir enduðu með ósköpum. Félagið hefur, undir forystu Sveins, risið þeim mun hærra, sem á þvi hafa skollið hat- rammari öldur. Hann er bjargtraustur maður, undirhyggjulaus, sjálfstæður i skoðunum, heiðlyndur, hreinskilinn og einarður. Af umhyggju fyrir félaginu hefur hann eigi viljað dreifa kröftum sinum og þvi vikizt undan þátttöku i opinberum málum. Að vissu leyti Framhald á bls. 2 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.