Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Side 9

Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Side 9
Jóhann Steingrímsson Eftir skamma en þungbæra legu á sjúkrahúsi lézt Jóhann Stein- grimsson málari aöeins 34 ára gamall. Foreldrar hans voru Guörún Pétursdóttir og Steingrimur Þóröarson trésmiöur. Þau fluttu frá Hverageröi til Reykjavikur um haust- iö 1943 og var Jóhann þá abeins nokk- urra mánaöa gamall, en heimili þeirra I Reykjavik var i Efstasundi 37. Börn þeirra voru fjögur og Jóhann yngstur. Eftir nokkurra ára samvistir i Efsta- sundinu misstu þau systkinin móður sina, en héldu hópinn þar til faöir þeirra giftist ööru sinni og þá bættust viö fjórar hálfsystur. Jóhann giftist ungur Gróu Clafsdótt- ur, og áttu þau saman eina dóttur, sem nú er 10 ára gömul. Þau Gróa skildu eftir skamma sambúö, en nokkru siöar giftist Jóhann aftur Guöbjörgu Baldursdóttur og meö henni eignaöist hann dóttur sem er nú fjögurra ára þegar hún missir fööur sinn, en auk hennar gekk Jóhann I fööurstaö tveim börnum Guöbjargar er hún átti áöur en þau kynntust. Fyrstu minningar minar um Jóhann eru frá vetrinum 1951, er viö hjónin stofnuöum okkar fyrsta heimili í Efstasundi 26. Þá vakti athygli mina snarlegur snáöi dökkur yfirlitum sem fékkst viö mannvirkja- gerö úr snjó, hann gekk aö verki meö harðfylgi og röggsemi og mér virtist sem hann væri sjálfkjörinn foringi hópsins er aö framkvæmdunum stóö. BUseta min I Efstasundinu var stutt og tengslin viö dökkhæröa snáöann, sem ég raunar vissi þá ekki nein deili á, rofnuðu. Um þaö bil 10 árum siðar bar fund- um okkar aftur saman og svipmótiö var óbreytt. Jóhann haföi byrjaö nám i málaraiðn og meistarinn var Hákon 1. Jónsson sá sami og ég haföi lært hjá. Viö Jóhann tókum nú tal saman i fyrsta skiptiog þá kom i ljós aö viö átt- um ætt aö rekja til sömu sveitar i Fljótum I Skagafiröi og móöurafinn er mér sérlega minnisstæöur, Pétur Jónsson, sem jafnan gekk undir nafn- inu „Stóri Pétur” og meö honum og Jóhanni mátti greina augljóst ættar- mót. Uppfrá þessum degi urðu samfundir okkar tíöari og kynnin náin. Starf mitt orsakar, aö kynni af málurum veröa nánari en almennt gerist á meöal stéttarfelaga. Jóhann, eöa Jói eins og hann var ætiö nefndur af félögunum, er einn af þeim úr hópi yngri manna sem mér er hugstæðastur. Þaö er mikill léttir I starfi aö koma á vinnustað þar sem ríkir glaðværð og ferskt andrúmsloft. Þaö var mér jafn- an tilhlökkunarefni að hitta Jóa, hvort heldur var skammtimadvöl á vinnu- staö eða i vinahópi. Honum lágu jafnan á vörum gaman- yröi og eiginlegt var honum aö flétta spaug inn I samræöur og var sama hvers eðlis umræöuefniö var, og til- svör hans viö glettum annarra komu umsvifalaust og hittu I mark . Oröum sinum hagaöihann svp aö engan sveiö undan og engum uröu leiöigjarnar orö- ræður hans, þótt um langar samvistir væri að ræða. Slikt er ekki á færi ann- arra en þeirra sem eru vel greindir og búa yfir næmri kimnigáfu og skilningi á mannlegum samskiptum. Hann var frjálslegur I fasi og ófeiminn án þess þó aö nokkrum kæmi i hug framhleypni eöa mikillæti. Hann var frjálslyndur i skoöunum og sagði hverjum sem i hlut átti mein- ingu sina ef svo bar undir, án þess þó að lenda i hörðum deilum viö menn. Fleira mætti nefna sem var jákvætt I fari hans, en hér skal staöar numiö. Höfuðeinkennið var glaöværðin sem geröi þaö að verkum aö hann var hrók- ur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Fáir munu þeir, sem ekki er hægt að finna lestihjá ef grannt er skoðað, og Jói var einn af þeim, sem ekki var tamt aö haga liferni sinu eftir form- fastri forskrift, en þeir þverbrestir hurfu 1 skuggann vegna björtu hliö- anna. Ef hægt er aö nota orðið persónu- töfra sem samlikingu um dauölega menn, þá var þá að finna I fari Jóhanns Steingrimssonar. Jói mun á sinum stutta starfstlma sem málari hafa eignast marga góöa kunningja og vini, i þeim hópi mætti nefna samstarfsmenn í stjórn Málara- félags Reykjavikur, en þar átti hann sæti á árunum 1968-1970. Þá má einnig nefna meistarann hans, Hákon 1. Jónsson, en á milli þeirra hefur rikt vinátta og Jói talaöi ætiö um þennan læriiheistara sinn af virðingu. Ég tel mig mæla fyrir munn allra þeirra sem ég hef hér nefnt er ég ber fram þakkir fyrir ánægjuleg sam- skipti og góö kynni sem þvi miöur uröu of stutt og fengu óvæntan endi. Konu, börnum, öldruðum fööur og öðrum nákomnum ættingjum sendi ég hugheilar samúöarkveöjur. Hjálmar Jónsson Til minningar um vin minn, Jóhann Steingrimsson. Þegar lifsins blómin blá breiöast yfir engi, Þá er gott aö eiga þrá fyrir unga drengi. » Þú varst glaður, hreinn og hlýr hljóma slóst á strengi, okkar björtu ævintýr eflaust man ég lengi. Hvil þú vinur, hvil þú rótt, hvil þú ást og tregi. Megi guð þér góöa nótt gefa á hinzta degi. Þinn vinur Gunnar Ingólfsson. t islendingaþættir 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.