Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Side 27

Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Side 27
Hafliði Jón Hafliðason Kveðja frá Sveinafélagi skipasmiða Hafliði J. Hafliðason fæddist aB Dvergasteini i Hafnarfiröi 3. október 1891. Hann hóf smlðanám hjá Sveini Magnússyni, bátasmiöi I Hafnarfirði f febrúar 1907, en lauk námi hjá Otta Guömunds- syni, skipasmiöi i Reykjavik áriö 1911. Hann sigldi siöan til Danmerk- ur var t iönskóla i Fredrikshavn og Iauk þaöan námi 1918. Framhaldsnám stundaöi hann viö tækniskóla i' Helsingör I Dan- mörku og iauk þar prófi I skipa- verkfræöi i marz 1922. Hafliöi var frá upphafi einn ágætasti fél.agi Sveina- félags skipasmiða. A und- irbúningsfundi aö stofnun hann einn af þremur sem kosnir vou f nefnd, til þess aö undirbúa félagsstofnunina og gera drög aö lögum fyrir væntanlegt félag. Hann var i stjórn félagsins frá stofnun þess fram á áriö 1945, er hann baöst undan endurkosningu vegna breyttra atvinnuaöstæöna. A því ári var hann kjörinn endur- skoöandi félagsins og gegndi þvi starfi 1 fjölda ára, en starf hans i stjórn félagsins hafði einmitt veriö gjaldkerastarfiö. Vegna mannkosta sinna og hinnar miklu þekkingar sem hann haföi aflaö sér, valdist Hafliði til hinna margvislegu starfa fyrir féiagiö, sem of langt rná! vröi hér upp aö telja. Sjálfsagt þótti aö hafa Hafliöa meö I ráöum og þvl fremur sem viöfangsefniö var erfiðara eöa flóknara og alltaf reyndist hann hinn trausti og öruggi félagi. . Vandfundnir eru þeir menn sern vinna störf sír. af sömu trú- rnennsku, sömu einurö, sömu ósérhlifni og af sama heiöarleika og Hafliöi J. Hafliöason, geröi. A félagsfundi I febrúar 1937 las formaöur bréf til félagsins frá Hafliöa J. Hafliöasyni þar sem hann skýrir frá peningagjöf til félagsins, ,,sem nota skyldi sem visi aö sjóösstofnun, sem geti oröíö félagsmönnum til styrktar á einhvern hátt.” Fé þaö sem Hafliöi gaf félaginu var greiösla sem hann haföi fengiö fyrir teikningu af varöbát fyrir skipagerö rikisins. Þetta atvik lýsir Hafliöa vel sem manni, þannig voru viöbrögö hans. A grundvelli þessarar gjafar, var strax næsta mánuö á eftir stofnaöur Styrktarsjóöur Sveina- félags skipasmiöa og samþykkt reglugerö fyrir hann. Þessi sjóöur hefur þaö hlutverk aö greiöa félagsmönnum styrk I slysa- og veikindatilfellum. Sveinafélag skipasmiöa stendur ávallt i stórri þakkarskuld viö Hafliöa fyrir störf hans. A aöalfundi 23. febrúar 1947 var Hafliöi einróma kjörinn heiöurs- félagi Sveinafélags skipasmiöa, meö þvi vildu félagsmenn sýna skilning sinn á störfum hans og örlitinn þakklætisvott. Hafliöi var fyrsti heiöursfélag- inn, siöar var Siguröur Þóröarson kjörinn heiöursfélagi, en þessir menn voru buröarásar félagsins frá stofnun þess, og alia tiö meðan þeir störfuöu. Annar er sá þáttur Hafliöa sem senndega veröur seint kannaöur og aldrei þakkaöur aö veröleikum, en þaö er þáttur hans I menntun skipa- smiöa hér I Reykjavik og Hafnar- firöi. Frá þvi kennsla I skipa- teikningu var hafinn viö Iönskól- ann i Reykjavik áriö 1928, haföi Hafliöi þessa kennslu meö hönd- um. Hann kenndi ekki einungis skipateikningu, heldur einnig margvlslega og flókna út- reikninga i sambandi viö smiöi skipsins, stööugleikaútreikninga og margt fleira. Hann geröi þetta allt á svo lifandi og eölilegn hátt að þrátt fyrir, aö nemendurnir heföu þvi miöur allt of litla mögu- leika á aö vinna viö nýsmlöi jafn- hliöa náminu i skólanum, þá hélzt þekking ótrúlega vel I hugum þeirra. Stóran þátt I þvi átti auðvitaö þaö mikla vald sem Hafliöi haföi á viðfangsefninu og þekking hans á eöli og eiginleikum efniviöarins sem unnið var úr, trénu.en þaö er eitt af grundvallaratriöum þess aö kennsla komi aö réttum not- um. Auk þess aö kenna i iönskólan- um I Reykjavik og Hafnarfiröi, undirbjó hann og þjálfaöi enn frekar ófáa skipasmiöi, sem annaö hvort ætluðu aö taka aö sér aö sjá um smföi skipa eöa fara i viöbótarnám erlendis, en Hafliöi hvatti menn mjög til þess aö afla sér frekari menntunar. Meö kennslunni ásamt félags- störfum hefur Hafliöi manna mest unniö aö þróur. iöngreinar- innar á þessu timabili. Fyrir allt þetta þskkar Sveina- félag skipasmiöa Hafliöa J. Haf- liðasyni og vottar konu hans og dætrum samúö sína. Helgi Arnlaugsson, formaöur. t islendingaþættir 27

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.