Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Qupperneq 47
r
Jón Arnason
fyrrverandi bankastjóri
F. 17/11 1885
D. 1/1 1977.
Þeir geta bókstaflega ekki hætt
sinu starfi. Einhvers staðar
stendur: „Verið ekki smeikir viö
að nálgast upptekna manninn, þvl
hann er upptekinn, vegna þess að
hann vill vera það. Þannig var
um Þorlák. Hann setti á stofn
hænsnabú I Hafnarfiröi sem hann
annaðist, allt til dauðadags,
ásamt Guölaugu og Bjarna, sem
lengst hafa búið með föður sfnum,
aö ógleymdum Þóri, sem var til-
tölulega nýfluttur að heiman. Þar
að auki var Þorlákur maðurinn er
fjölskyldan sótti til i vandræðum
sinum.enda vænlegasti maöurinn
til að gefa holl og velmeint ráð.
Siðustu 2 árin hafði Þorlákur
átt við allmikla vanheilsu að
striöa, en þó lét hann aldrei bil-
bug á sér finna og gekk að vinnu
sinni, hvað sem á gekk. Er hann
aö lokum var lagður inn á spitala
og hann sjálfur vissi að hverju
dró, þá brá hann ekki venju sinni.
Einlægnin skein út úr honum og
maður fann hlýjuna er streymdi
frá honum. Orö voru óþörf, augun
sögðu: þakka þér fyrir að þú
komst. Slðustu orð Þorláks I
þessu llfi lýsa honum einna bezt,
en hann sagði viö hjúkrunarkon-
urnar á spltalanum: „Skiliö
kveöju til allra”.
Auk þeirra þriggja barna Þor-
láks, er hér hafa verið nefnd, þá
áttti hann 6 önnur, en þau eru:
Borghildur, gift Sveinbirni Ólafs-
syni, Annes Svavar giftur Grétu
Böðvarsdóttur, Marteinn Guð-
berg giftur Halldóru Jónsdóttur,
Ellnborg Þórdls gift Steindóri
Arasyni, Kristján giftur Guðrúnu
Grlmsdóttur, Guöbrandur Sveinn
Ingimar giftur Astu Jónasdóttur,
öll búsett I Hafnarfirði.
Alls munu afkomendur Þorláks
vera um eöa yfir 45.
Ég og fjölskylda min vottum
öllum aðstandendum dýpstu
samúð á þessari skilnaðarstund.
Megi þjóð vor öðlast þá ham-
ingju, að eignast fleiri syni, sem
Þorlákur Guðbrandsson var.
Blessuð sé minning hans.
G. Helgason og fjölskylda
islendingaþættir
Kveðja fró
Sambandi íslenzkra
samvinnufélaga
Jón Árnason fyrrverandi
bankastjóri og framkvæmda-
stjóri i Sambandinu andaðist á
gamlársdag, niutiu og eins árs
að aldri og er útför hans gerð i
dag.
Jón hóf störf i Sambandinu
um leið og opnuð var heildsölu-
skrifstofa á vegum þess i
Reykjavik árið 1917. Tveimur
árum siðar veröur hann fram-
kvæmdastjóri Otflutningsdeild-
ar Sambandsins um leið og til
hennar var stofnað, og þvi
starfi gegndi hann til ársins
1946, að hann varð bankastjóri
Landsbankans. Þegar hann lét
af störfum i Sambandinu var
hann kjörinn heiðursíélagi þess.
Á þeim áratugum sem Jón
Árnason gegndi íramkvæmda-
stjórastarfi Otflutningsdeildar
Sambandsins, stýrði hann stór-
sókn i afurðasölumálum sam-
vinnumanna til lands og sjávar
og átti mjög rikan þátt i þróun
útflutningsviðskipta þjóðarinn-
ar allrar. Á þessum árum voru
þessir þýðingarmiklu þættir i
samvinnustarfinu og raunar i
atvinnulifi allrar þjóðarinnar,
meðferð og sala afurðanna,
færðir mjög i það horf, sem
reynzt hefur farsæl undirstaða
þeirra stórfelldu framfara, sem
orðið hafa i landinu. Mörg voru
járn i eldinum og margt nýmæla
kom til. Nefna má útflutnin
freökjöts, byggingu kjötfrysti-
húsa og siðan fiskfrystingu,
uppbyggingu samvinnuiðnaðar
úr ull og skinnum, kjötsölu-
skipulagið innanlands sam-
kvæmt kjötsölulögunum og ný-
skipan sölumála sjávarútvegs-
ins á félagslegum grundvelli.
i öllum þessum umsvifum var
Jón Árnason i fylkingarbrjósti,
ýmist beint á vegum Sam-
bandsins og kaupfélaganna eða
með öðrum þegar fleiri þurftu
að koma til. Jón átti áratugum
saman þátt í flestum opinberum
samningum, sem gerðir voru
erlendis um viðskipti og fjár-
mál.
Að þessum mikilvægu málum
vann Jón Árriason af þeirri at-
orku og krafti, sem honum var
lagið, þvi hann var harðdugleg-
ur framkvæmdamaður, áræð-
inn og farsæll. Nutu samvinnu-
menn i rikum mæli forustu Jóns
i afuröasölumálum og brautryð-
jendastarfs hans i þeim efnum
nýttist einnig allri þjóðinni á
þeim umbrota- og breytinga-
timum, sem þá voru.
Astæða er til að minna á það
sérstaklega, hve þýðingarmikið
og farsælt starf Jón Árnason
vann i samvinnuhreyfingunni i
þágu bændastéttarinnar og með
þýðingarmikilli forustu sinni i
undirbúningi og framkvæmd
afurðasölulöggjafar landbún-
aðarins, sem hann átti i'jkan
þátt i, en það leikur ekki á
tveim tungum að afurðasölu-
skipulagið sem innleitt var á
kreppuárunum, reyndist sú
lyftistöng, sem hóf landbúnað-
inn úr djúpum öldudal til far-
sællar þróunar.
Samvinnumenn hafa margt
að þakka Jóni Arnasyni nú við
leiðarlokin og kveðja hann með
virðingu og þakklæti.
Eysteinn Jónsson
Erlendui’ Einarsson.