Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Síða 56

Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Síða 56
Petrína Jónsdóttir öörum. Um þeirra óskir cg þarfir var ekki talað, annað var ofar á blaði. Ibúðin var alltaf nógu stór. Flatsængurnar á eldhúsgólfinu voru bara misjafnlega margar. Aldrei heyröi ég þær mæðgurnar vera aö barma sér eöa hafa uppi búksorgartal. öllum virtist liða vel þarna á Laugaveginum þótt ekkert væri þar af nútimaþægind- um. Þuriður Gisladóttir gekk aö öll- um störfum með glaöværð og áhuga, enda tápmikil og lengst af vel heilsuhraust. Hún stundaði á yngri árum fiskvinnu viða.meöal annarra staða I Viöey. 1 mörg sumur vann hún við heyskap hjá Reykjavlkurborg. Hún hafði menn i fæði. Þvoði þvotta. Vann viö slikt I mörg ár á Hótel Vlk. Hvarvetna, sem hún starfaði, lað- aðist samstarfsfólkið að henni. Hún tók lika þátt I gleði þess og mótlæti, og engum hefi ég kynnzt, sem gladdist eins innilega, þegar einhverjum vini eöa vandamanni gekk eitthvað I haginn. Hún var frásagnarglöö, en umtalsfróm Hún fylgdist vel með frændfólki slnu fjær og nær og var öllum trygg og heil. Þuriður Gisladóttir giftist ekki, en einn son eignaðist hún meö Zophoniasi Sveinssyni frá Akranesi, Skúla að nafni, en hann lézt 34 ára gamall frá konu og tveimur ungum sonum. Hún bar ekki þann harm sinn á torg, en hjálpaði tengdadóttur sinni við uppeldi drengjanna og batzí henni og hennar fólki óslitandi vináttuböndum, enda varði sú sambúð til slðasta dags. Það eru sólbjartar minningarnar um þessa heiðurskonu, sem nú er horfin af sviðinu eftir langa veg- ferö. Um hana lék á langri æfi blær birtu og voryls, hispursleys- is og reisnar. Það var eins og hún hefði aldrei verið meö eða kynnzt nema góðu fólki, og til þess hugs- aði hún fallega. 1 orðskviöum Salomons segir á einum stað „Gott mannorö er dýrmætara en mikill auöur. Vin- sæld er betri en silfur og gull”. Pálmi Eyjólfsson, Fædd 23. april 1894. Dáin 29. janúar 1977. I dag fer fram frá Akranes- kirkju útför Petrlnar Jónsdóttur, sem andaðist I sjúkrahúsi Akra- ness þann 29. janúar 1977, eftir langt og erfitt sjúkdómsstrið. Petrlna var fædd aö Gröf I Lundareykjadal 23. apríl 1894. Foreldrar hennar voru Ingveldur Pétursdóttir og Jón Jónsson. Þau Ingveldur og Jón bjuggu að Gröf I Lundareykjadal frá árinu 1888 til ársins 1898. Siöan voru þau Ing- veldur og Jón I vinnumennsku á ýmsum stööum I Borgarfjarðar- héraði meö börn sín, en sum þeirra fóru til vandalausra og ól- ust þar upp. Petrlna giftist 13. mal 1921 Al- bert Gunnlaugssyni. Albert, maður Petrinu, var fæddur 17. júll 1894, dáinn 9. aprll 1935 og var hann 41 árs er hann lézt. Börn þeirra voru 9 og var það elzta 13 ára og það yngsta á fyrsta ári er Albert lézt. Stóð nú Petrina uppi ein með barnahópinn eins og þá kom I ljós hennar mikii dugnaður og kjark- ur, sem einkenndi hana og öll hennar störf allt hennar ltf. Hún kom börnunum sinum öllum til manns, án nokkurrar hjáipar frá þvl opinbera. Þá voru ekki trygg- ingar eða önnur samhjáip tu ao setja traust sitt á, eins og nú er, og þá var á þessum árum litil at- vinna, og erfiðara með llfsbjarg- armöguleika alla heldur en nú er. Petrína varð að vinna utan heimilisins til að afla sinu mann- marga heimili tekna, svo þegar börnin komu til aldurs fóru þau að hjálpa henni og eru börn hennar öll hið mesta dugnaðar og at- gervisfólk. Barnabörnin hennar Petu eru crðin 24 og barna- barnabörnm 8. Eftir aö börnin komust upp haföi Peta rýmri tíma til að sinna þeim hugöarefnum sínum, sem ábyggilega alltaf hafa á hana strltt, en hún I önn daganna I bar- áttunni fyrir sinu mannmarga heimili, og velferð barna sinna, hafði ekki tima né efni til að sinna, en það var hinn skapandi listhneigð hennar, sem birtist manni er komið var inn á heimili hennará Akranesi. Eru þaöhinar fögru útsaumuðu myndir sem eru sannkölluö listaverk og útsaumur margs konar, sem allt ber vott um skapandi og listhagar hendur, sem fjallað hafa um þessa fögru muni. Hún Peta var hetja sem aldrei lét basliö smækka sig og hélt reisn sinni allt til loka ævidagsins. Og ef litið er yfir æviteril þess- arar mikilhæfu og góðu konu, hlýtur maður aö undrast það hversu ævistarf hennar hefur ver- iö stórt I sniöum, og þó llf hennar hafi ekki alltaf verið dans á rós- um, varhúnsú sem gekk meösig- ur af hólmi I hinni erfiöu llfsbar- áttu. Peta var trúuð kona, sem trúði á mátt hins góöa I einu og öllu. Ég votta svo börnum hennar og systkinum og öðrum aðstandend- um samúð mlna. Ég, kona mln og systkini kveðjum þig svo hinztu kveðju með hjartans þökk fyrir allar velgjörðir okkur sýndar. Ég vil svo enda þessi fátæklegu kveðjuorð mín með þvi að setja hér tvö erindi úr hinu fagra kvæði „Ekkjan við ána”, eftir Guðm. Friðjónsson: Er börnin voru I ómegð, húnbjó viðmarga þraut, — hjá börnunum I ellinni þess hún aftur naut -- Hún kenndi þeim að lesa og kemba, prjóna og spinna, Hún kenndi þeim fyrst aö tala og svo aö ganga og vinna. Erbúiðvar að ,,lesa”,hún barþeim kvöldverðinn og breiddi siðan ofan á litla hópinn sinn, á versin sin þau minnti og vermdi kalda fætur, en vakti sjálf og prjónaði fram á miðjar nætur, Agnar Gunnlaugsson. Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.